Alþýðublaðið - 03.04.1975, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 03.04.1975, Blaðsíða 1
Prentunarkostnaðurinn við ársskýrslu Landsvirkjunar nam 815 þúsundum króna! FIMMTUDAGUR 3. april 1975 - 78. tbl. 58. árg. NÆGILEGT AF NYJUM BÍLUM TIL VORSINS Þeir 2000 bilar, sem ekki fengust tollafgreiddir áður en takmarkanir voru settar á gjaldeyrisyfirfærslur fyr- ir gengisfellinguna i byrjun febrúar, eru nú eitthvað teknir að seljast, að þvi er Gunnar Ásgeirsson for- maður Bilgreinasam- bandsins sagði við Alþýðu- blaðið i gær. ,,En ég held, að allir hafi stöðvað inn- flutning á nýjum bilum að mestu eða öllu leyti”, sagði Gunnar, ,,og eftir þvi sem ég hef heyrt á mönnum er búist við, að þessir bilar endist fram á vorið”. Sigurgeir Ásbjörnsson hjá tollstjóraembættinu sagði i samtali við Alþýðu- blaðið i gær, að hann hefði ekki orðið var við mikla hreyfingu á þessum bflum, nema helst að eitthvað hafi selst út á örorkuleyfi, og tollvörugeymslan á þaki Faxaskála sé enn full af bilum. Þá sagði Sigurgeir, að einu bilarnir, sem hafi verið fluttir inn að undan- fömu hafi verið pantaðir áður en gjaldeyristak- markanir og hækkanir skullu yfir. „Mér hefur heyrst á koll- egum minum i bilainn- flutningnum, að þessir bil- ar séu farnir að reytast út, og sumir hafa jafnvel selt 30—40 bila”, sagði Gunnar Asgeirsson, þegar við höfð- um tal af honum, ,,og menn eru jafnvel farnir að skrapa saman fyrir vöru- bilum. En margir hafa far- ið illa á þessu sölustoppi, og sem dæmi um það get ég nefnt eitt fyrirtæki, sem átti að greiða 40 þúsund krónur i vexti til framleið- andans og 15 þúsund krón- ur i leigu fyrir 200 bila i tollvörugeymslu. Innflytj- andinn fór til framleiðand- ans og fékk vextina strik- aða út, — annars held ég að fyrirtækið hefði orðið gjaldþrota. Þannig er með marga bifreiðainnflytjend- ur, allur tilkostnaður hefur vaxið gifurlega, fyrir utan kostnaðinn vegna geymsl- unnar, — og ekki fæst álagningin hækkuð úr þeim 5,9% sem hún nú er”, sagði Gunnar Asgeirsson að lok- um. BREYTINGAR A UMFERÐARLÚGUM Hjá dómsmálaráðu- neytinu er nú unnið að undirbúningi að frum- varpi til laga um ýmsar breytingar á umferðar- lögum. í frumvarpinu eru m.a. ný lög um skrán- ingu ökutækja, og er þar gert ráð fyrir gagngerri breytingu, en Bifreiða- eftirlit rikisins hefur þegar tekið upp skrán- ingu nýrra bifreiða samkvæmt þvi kerfi, ásamt hinu gamla. Rally FÍB verður um hvítasunnuna VALINN VERSTI VEGURINN í NÁ- GRENNI REYKJA- VÍKURBORGAR Ákveðið er, að fyrsta is- lenska „rallyið” fari fram um hvitasunnuna, og hefur þegar verið valin leið i nágrenni Reykja- vikur þar sem keppnin á að fara fram, en sú leið er á annað hundrað kiló- metra löng. „Við völdum versta veginn, sem við fundum hér i nágrenninu, en hvar hann er verður að sjálfsögðu stóra leyndar- málið þar til keppnin fer fram”, sagði Sveinn Oddgeirsson fram- kvæmdastjóri FIB, þegar Alþýðublaðið hafði tal af honum i gær — en keppn- in verður á vegum félags- ins. Að sögn Sveins hafa þegar nokkrir látið skrá sig til keppninnar, en skráning hefst þó ekki opinberlega fyrr en i næstu viku. Sagðist Sveinn búast fastlega við þvi, að bifreiðaumboðin sendi menn til keppni, þótt enn hafi ekki verið gengið frá þvi. Reiknað er með þvi, að hámarks- fjöldi keppenda verði hundrað, og verða þeir ræstir með einnar minútu millibili. „Þessi fyrsta keppni verður haldin innan ramma islensku um- ferðarlaganna, þannig að enginn keppandi má aka hraðar en á 70 km hraða — hugmyndin er að fá að- stoð lögreglunnar til að sjá um eftirlit með öku- hraðanum”, sagði Sveinn. „Þessvegna þurf- um við engin leyfi frá yfirvöldunum til að halda þessa keppni, en við höf- um reynt að fá undan- Þessu Hka sjón fáum við að sjá um hvitasunnuna I nágrenni Reykjavikur. Viðstadd- ir keppnina verða kortalesarinn Henry Liddon, sem kom til tslands fyrr i vetur, og rallyökumaðurinn Chris Sclater. þágu frá reglum um há- markshraða en ekki feng- ið. í • dómsmálaráðuneyt- inu höfum við fengið þau svör, að til þess þurfi lagabreytingu, og nú vinnum við að þvi, að i þau lög um breytingar á umferðarlögunum, sem nú er verið að vinna að, verði sett heimild til ráð- herra til að veita slika undanþágu”, sagði Sveinn. Samkvæmt þeim regl- um, sem teknar hafa ver- ið saman um þessa keppni, er gert ráð fyrir þvi, að keppendur geti verið á venjulegum bil- um, en skilyrði er, að ör- yggisbelti séu af svo- nefndri þriggja punkta gerð, að i bilunum sé sjúkrakassi og slökkvi- tæki og ökumenn og að- stoðarmenn þeirra hafi öryggishjálm á höfði. Mælt er með veltigrind, en það er ekki gert að skilyrði. Von er á „rallymannin- um” Henry Liddon til landsins i sambandi við keppnina, en hann kom til landsins fyrr i vetur til viðræðna við forráða- menn FÍB. Voru þá höfð samráð við hann um val á keppnisleið. I fylgd með Liddon verður ökumaður- inn Chris Sclater, og munu þeir félagar standa fyrir ökunámskeiði helg- ina fyrir keppnina. Ekki er full ákveðið hvernig fyrirkomulag hennar verður, og m.a. sagði Sveinn það ekki ákveðið, hvort þátttaka i þvi verð- ur eingöngu bundin þeim, sem ætla að taka þátt i „rallyinu”. Henry Liddon er frægur kortalesari i „rally” og tók m.a. þátt i Austur-Afriku Safari keppninni, sem lauk um helgina. Þar keppti hann með Finnanum Makinn- en, en þeim tókst ekki að ljuka keppninni vegná bilunar i bil þeirra. NY KAUPRANSLOG A SJÓMENN Á LEIÐINNI Rikisstjórnin hefur lokið við að semja frumvarp um ráðstafanir i kjölfar siðustu gengisfellingar, þar sem m.a. er ráð fyrir þvi gert að enn á ný verði ráðist að kjörum hlutaskiptasjó- manna og með lögum aukið það framlag, sem tekið er af óskiptu og látið renna i fjárfestingasjóði sjávarút- vegsins. Frumvarp þetta verður að likindum lagt fyrir Alþingi mjög bráð- lega — jafnvel i dag, en þá kemur þingið saman til fundar að loknu páskaleyfi. I kjölfar gengisfellingar þeirrar, sem gerð var sl. haust lét rikisstjórnin af- greiða lög um ráðstöfun gengishagnaðar o.fl., en með þeim lögum var sjávarútvegsráðherra i raun selt sjálfdæmi um ráðstöfun verulegs hluta gengishagnaðarins. I um- ræddum lögum var einnig að finna ákvæði, sem bein- linis ógiltu sjálfa undir- stöðu k jarasamninga hlutasjómanna — þ.e.a.s. skiptareglurnar. Var með lögunum aukið það hlut- fallslega framlag, sem tek- ið er af óskiptum afla og rennur i Stofnfjársjóð fiski- skipa. Með þessu móti voru tugir milljóna hafðar af is- lenskum hlutaskiptasjó- mönnum. Vakti þessi ráð- stöfun mikla reiði meðal sjömanna og var harðlega mótmælt af samtökum þeirra svo og stjórnarand- stæðingum i meðförum málsins á Alþingi. Lög um ráðstöfun gengishagnaðar o.fl. i kjöl- far siðustu gengisfellingar rikisstjórnarinnar hafa enn ekki verið sett né heldur var fyrir páskana búið að leggja fram frumvarp um það efni á Alþingi. Það frumvarp hefur nú verið samið og i þvi er, eins og áður segir, gert ráð fyrir þvi að höggva enn i sama knérunninn — ráðast að skiptakjörunum, auka það hlutfall, sem tekið er af ó- skiptu fyrir sjóði sjávarút- vegsins og skerða kjör sjó- manna að sama skapi. Munu forystumenn sjó- manna hafa haft af þessu pata og þvi ekki viljað ganga frá kjarasamning- um fyrr en séð verður, hvað rikisstjórnin hyggst fyrir i þessu efni.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.