Alþýðublaðið - 11.04.1975, Síða 2

Alþýðublaðið - 11.04.1975, Síða 2
SKEMMTANIR — SKEMMTANIR HÓTEL LOFTLEIÐIR Cafeteria, veitingasalur meö sjálfsafgreiöslu opin alla daga. HÓTEL LOFTLEIÐIR Blómasalur, opinn alla daga vikunnar. HÓTEL BORG við Austurvöll. Resturation, bar og dans í Gyllta salnum. Simi 11440. HÓTEL SAGA GriIIiö opið alla daga. Mimisbar og Astrabar, opið alla daga nema miðvikudaga. Simi 20890. INGÓLFS CAFÉ við Hverfisgötu. — Gömlu og nýju dansarnir. Simi 12826. ÞÓRSCAFÉ Opið á hverju kvöldi. Simi 23333. SKEMMTANIR — SKEMMTANIR Akranes Atvinna Hér með eru störf tveggja flokksstjóra hjá Vinnuskóla Akraness auglýst laus til umsóknar. — Umsóknarfrestur er til 1. mai n.k. Starfstimi skólans verður 12 vikur, frá 2/6. — 29/8. með sumarleyfi i eina viku. (1. viku ágústmánaðar). Höfuðáhersla verður lögð á vinnu við skógrækt. — Umsóknir er greini frá aldri, menntun og fyrri störfum, berist undirrit- uðum. Akranesi, 10. april 1975. Bæjarritarinn, Akranesi. Lausar stöður Með tilvisun til 5. og 7. gr. laga nr. 108.31. desember 1974 um Framleiðslueftirlit sjávarafurða eru hér með auglýstar laus- ar til umsóknar stöður deildarstjóra við eftirtaldar deildir stofnunarinnar: 1. Hreinlætis- og búnaðardeild. 2. Ferskfiskdeild 3. Freðfiskdeild 4. Saltfisk- og skreiðardeild. Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt- un og fyrri störf berist sjávarútvegsráðu- neytinu fyrir 10. mai n.k. Sjávarútvegsráðuneytið 9. april 1975. FLOKKSSTARFIÐ ALÞÝÐUFLOKKSKONUR REYKJAVÍK Aðalfundur Kvenfélags Alþýðuflokksins i Reykjavik verður haldinn nk. mánudagskvöld, 14. april kl. 20.30 i Iðnó, uppi. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Félagskonur mætið vel og stundvislega! STJÓRNIN NAUD- EN Atvinnurekendur þinga: „VERKSVIPTIHG VARNARADGERD EKKI TIL ÁRÁS” „Flest aðildarfélög VSÍ hafa samþykkt samkomulag VSt og ASl frá 26. fyrra mánaðar. Þau félög, sem það hafa gert, geta reitt sig á stuðning VSl, ef svo færi, að staðbundnar vinnudeilur héldu áfram vegna þess að einstök verkalýðsfélög kunna að hafna samkomulaginu, og vera má, að á einstökum sviðum athafnalifsins kunni Vinnuveit- endasamband islands að þurfa að gripa til verksviptingaraðgerða til aðstoðar félagsmönnum sinum, sem standa vilja við heildarsamkomulagið. Til sliks myndi Vinnuveitendasambandið þó aðeins gripa sem nauðvarnar- aðgerða, en ekki til árása”. Þannig komst Jón H. Bergs, formaður Vinnuveitendasam- bands tslands, m.a. að orði i setningarræðu sinni á aðalfundi sambandsins, sem hófst i gær og lýkur i kvöld. 1 ræðu sinni fjallaði Jón um gang kjaramála á siðastliðnu ári og þróun efnahagsmála. I niður- lagi ræðunnar sagði formaður Vinnuveitendasambands islands: Framundan eru samningavið- ræður um kjarasamninga til langs tima eftir 1. júni. Til þess, að um slikt náist samkomulag, verður liklega ekki komist hjá þvi að taka upp einhvers konar verð- tryggingu launa, enda munu viðræður fyrst og fremst snúast um þetta atriði, þar eð þegar hafa verið veittar miklar launa- hækkanir, sem hljóta að teljast liður i samningagerðinni til lengri tima. t sambandi við breytingar á vlsitölukerfinu er i hópi vinnu- veitenda helst rætt um, að kaupgjaldsvisitalan verði aðeins látin mæla hækkun framfærslu- kostnaöar að hluta eins og tiðkast i nágrannalöndum okkar að visi- talan verði endurskoðuð sjaldnar, t.d. tvisvar á ári I stað fjórum sinnum og að við útreikning visi- tölunnar verði tekið tillit til breytinga á viðskiptakjörum þjóðarinnar. Með þessu er stefnt að þvi að draga úr verðbólgu- áhrifum visitölukerfisins og afskiptum rikisvaldsins af kjara- samningum, þegar viðskiptakjör versna. Að lokum sagði Jón H. Bergs: „Enn reynir á samstöðu félags- manna Vinnuveitendasambands Islands. Þvi verður að treysta, að félagsmenn samtakanna og aðildarfélög láti ekki i neinu undan kröfum, sem ganga lengra en samningar heildarsamtak- anna ráðgera. Félagsmennirnir geta treyst á stuðning og aðgerðir Vinnuveit- endasambandsins gegn slikum kröfum. Mönnum er skylt að hafa i huga, að undanlátssemi kann að grafa undan heildarsam- komulagi, sem þjóðfélaginu er mikil nauðsyn á að riki á vinnumarkaðinum, en með algerri samstöðu auka vinnu- veitendur efnahagslegan styrk- leika á íslandi.” Verslunarmenn sömdu í fyrrakvöld: HEFÐI MÁTT SEMJA FVRIR HALFUM MÁNIIUI „Þetta endaði með samkomu- lagi, nálægt miðnætti i gær, um nákvæmlega sömu samninga og gerðir voru milli okkar og ann- arra viðsemjenda. Það er ekki á kaupmönnum aðheyra að fundir þeirra með ri'kisstjórninni hafi borið nokkurn árangur, svo við teljum að allt eins hefði mátt semja strax fyrir hálfum mánuði, i stað þess að standa I þessu þófi, til einskis”, sagði Magnús L. Sveinsson, varaformaður Verslunarmannafélags Reykja- vikur, i viðtali við Alþýðublaðið i gær, en samkomulag milli verslunarmanna og kaupmanna þeirra^sem ekki eru i Vinnuveit- endasambandinu, voru undirrit- aðir I fyrrinótt. „Nú eiga félögin eftir að athuga samningana, hvert fyrir sig,” sagði Magnús ennfremur, „en verkfalli hefur verið frestað þangað til. Ætlunin er að þessu ljúki fyrir sunnudagskvöld, en lengsti frestur er til miðvikudags 16. april.” Með þeim samningum, sem gerðir voru i fyrrinótt, má telja að viðræðum milli kaupmanna og verslunarmanna sélokið að þessu sinni —að því tilskyldu að einstök félög samþykki þá. Eins og samn- ingar annarra launþega, fela þeir i sér greiðslu láglaunauppbóta, fram til 1. júni næstkomandi og eru þvi bráðabirgðasamkomulag. Unnið að áætlun um eflingu Bæjarútgerðar Reykjavíkur Borgarráð Reykjavikur sam- þykkti fyrir nokkru tillögu frá Björgvin Guðmundssyni og Albert Guðmundssyni um að fela borgarhagfræðingi að gera fram- kvæmda- og fjármögnunaráætlun vegna þeirrar f járfestingar Bæjarútgerðar Reykjavikur, sem tillaga þeirra tvimenninganna frá þvi I fyrra gerir ráð fyrir. A borgarhagfræðingur að skila áætlun þessari fyrir vorið. En ásamt honum munu forstjórar BÚR vinna aö áætlanageröinni. Það var i byrjun s.l. árs, að borgarráð fól þeim Björgvin Guð- mundssyni og Albert Guðmunds- syni að athuga framtið Bæjarút- gerðar Reykjavikur. Skiluðu þeir áliti og tillögum og iögðu til stór- fellda eflingu BÚR. Þeir lögðu fram i borgarráði tillögu um, að reist yrði nýtt, fullkomið frysti- hús fyrir BÚR i Bakkaskemmu á Grandagarði. Keyptur yrði einn nýr skuttogari fyrir BÚR og komiö yrði upp i samvinnu við einkaaðila skelisframleiöslustöð. Tillagan hefur enn ekki verið afgreidd. En framangreind áætl- anagerð mun væntanlega gera kleift að ganga til afgreiðslu á til- lögunni. Nýlega lýsti Ragnar Júliusson, borgarfulltrúi, sem sæti á i út- gerðarráði fyrir Sjálfstæðis- flokkinn, yfir stuðningi við tillögu þeirra Björgvins og Alberts. Allir fulltrúar minnihlutaflokkanna i bnrgarstjórn styðja tillöguna. Þannig virðast nú tryggður meirihluti borgarstjórnar, pfc ^ » &í | Hafnaiijarðar Apótek » Afgreiðslutími: S, *i Virka daga ,kl. 9-18.30 Laugardaga kl. 10-12.30. Helgidaga kl. 11-12 $ Eftir lokun: $ Upplýsingasími 51600. $ i WREMF/UI Sími 8-55-22. Opið allan sólarhringinn íl 1 tg ÞAÐ BORGAR SIG AÐ VERZLA f KR0N DUflfl í CíflEIIBflE /ími 64300 0 Föstudagur 11. apríl 1975.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.