Alþýðublaðið - 11.04.1975, Blaðsíða 12
alþýðu
\mM
Plastns lif
plastpokaverksmiðja
Sfmar 82639-82655
Vatnagðr6um 6
Box 4064 — Roykjavfk
KÓPAV06S APÓTEK
Opið öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 12
SENDIBIL A S70DIM Hf
!:■
•51 iai»
lllt iap«
Selfoss:
FJÁRSÖFNUN TIL
VERKFALLSMANNA
Að undanförnu hefur vinnu-
stöðvun á verkstæðum Kaupfé-
lags Árnesinga á Selfossi vakið
töluverða athygli, en til hennar
var boðað vegna brottvikningar
aldraðs starfsmanns verkstæð-
anna úr starfi. Vegna þessarar
vinnustöðvunar hafa nokkrir
forystumenn verkalýðsfélaga i
Reykjavik ákveðið að beita sér
fyrir fjársöfnun, til handa verk-
fallsmönnum og hefur BSRB
þegar riðið á vaðið með 50 þús-
und kröna framlagi. Við fram-
lögum i söfnunina er tekið á
skrifstofu Dagsbrúnar, Lindar-
götu 9, hjá Félagi islenskra
járniðnaðarmanna, Sköla-
vörðustig 16, skrifstofu Tré-
smiðafélags Reykjavikur, Hall-
veigarstig 1, skrifstofu verka-
lýðsfélagsins Bjarma, Stokks-
eyri, og hjá verkalýðsfélaginu
Selfossi, Eyrarvegi 15.
Hafa forystumenn verkalýðs-
félaganna, þeirra sem að söfn-
uninni standa, sent frá sér eftir-
farandi áskorun:
Siðustu daga hefur staðið yfir
vinnustöðvun á verkstæðum
Kaupfélags Árnesinga á Sel-
fossi. Verkfallsmenn vilja með
vinnustöðvun þessari mótmæla
óréttmætum brottrekstri
manns, sem helgað hefur fyrir-
tæki samvinnuhreyfingarinnar
starfskrafta sina i hálfan fjórða
áratug og verið trúnaðarmaður
stéttarfélags sins i aldarfjórð-
ung, og krefjast þess að upp-
sögn hans verði ógilt.
Enn hefur ekkert gerst sem
bendir til þess að forráðamenn
kaupfélagsins láti af einstreng-
ingslegri afstöðu sinni. Þeir
valda þvi samvinnuhreyfing-
unni miklum álitshnekki með
þeirri árás á réttindi verkafólks
sem felst i brottvikningu þessa
aldraða starfsmanns.
Við undirritaðir skorum á
verkalýðsfélög, samvinnumenn
og allan almenning að veita
verkfallsmönnum á Selfossi
fjárhagslegan og siðferðilegan
stuðning. Við treystum alþýðu
til skjótra viðbragða.
Við styðjum verkfallsmenn á
Selfossi fjárhagslega og sið-
ferðilega.
Björgvin Sigurðsson, forseti Al-
þýðusambands Suðurlands
Eðvarð Sigurðsson, formaður
Dagsbrúnar og forseti Verka-
mannasambands íslands.
Guðjón Jónsson, formaður Fé-
lags járniðnaðarmanna.
Jón Snorri Þorleifsson, formað-
ur Trésmiðafélags Reykjavik-
ur.
Magnús Geirsson, formaður
Rafiðnaðarsambands Islands.
MECKING TOK
FORYSTUNA
t gærkvöldi var f jórða umferð
tefld áLas Palmas mótinu.
Friðrik Olafsson tefldi þá við
Pomar, og gerði sitt fjórða jafn-
tefli.
Úrslit skáka urðu þessi:
Anderson og Bellon gerðu
jafntefli,
Hort sigraði Cardoso,
Hjá Petrosjan og Tal kom upp
Nimzo-indversk vörn og sömdu
meistararnir um jafntefli eftir
19 leiki.
Tatai og Visier sömdu um
jafntefli, og ennfremur Pomar
og Friðrik, eins og fyrr greindi.
Þetta var enn eitt af varfærnis-
jafnteflum Friðriks á þessu
móti, það þriðja i röðinni, en i
þriðju skákinni missti hann
betri stöðu niður i jafntefli. Nú
var tefld kóngsindversk vörn,
og þeir sömdu um jafntefli eftir
aðeins 17 leiki.
Bent Larsen er að sækja i sig
veðrið og hann sigraði Debarnot
i gærkvöldi.
Þá sigraði Mecking Fern-
andez, en Rodrigues var veikur,
og þvi sat Lubojevic hjá i þess-
ari umferð. Verður skák þeirra
tefld á föstudaginn.
Tefldar hafa verið biðskákir
frá fyrri umferðum, og urðu úr-
slit þeirra sem hér segir:
Rodrigues sigraði Debarnot,
Larsen sigraði Tatai og Meck-
ing sigraði Tal.
Eins og sést á töflunni hér að
neðan hefur Friðrik ekki komist
i fremstu viglinu. Hann er nú
aðeins kominn með tvo vinn-
inga, og er i 6-10. sæti, eða i
miðjum hópnum.
Mecking er nú einn i efsta
sæti, hefur þrjá og hálfan vinn-
ing, og er heilum vinning á und-
an fjórum næstu, en það eru
Lubojevic, Larsen, Cardoso og
Hort.
Þótt Friðrik sé ekki meðal
þeirra efstu, þá er það skammt
á mótið liðið, að allt getur gerst,
og þær skákir, sem Friðrik hef-
ur teflt til þessa hafa ekki verið
annað en klassiskar byrjanir,
svo ekki hefur verið talin ástæða
til að birta þær. Hinsvegar má,
eins og áður hefur verið sagt,
búast við þvi að þegar á tekur að
liða mótið hleypi hann i sig
krafti og tefli þá til vinnings.
1 2 3 4- 5 (0 a \0 11 12 13 \A 16 'L Visvi. SKiacx
1. DEBARt-ior ■ 0 O o O IS-llo 3
2. LOtioJENtC 1 ■ T 'k 2-5 3
3 .EoúRieue^ □ O 1 2 fe-lo 3
4. LA1235-K1 L H '/z \ G IV 2-S 4-
5.FRi©R\K ■ '/z 'Jl 'k 'k 1 U° 4-
L.NIISIER m 0 'k 'lz 'k \'k U-12 4
■? , TAL m 1 0 'k 'lz 1 Uo 4
S. CA6.DDSO ■ 1 1 'Jz 0 2'k 2-5 4
FEetikWDES O □ O 0 15-lL 2
10 . aELLotu 0 0 z 'k % 14- 3
n. heckiwg [T 1 l r 3!4 1 — 4
a. wort '/z ]lz % L r - Vk 24 4-
\Z. PETRqsóLiJ iA 'lz xk \ 'lz 1 m 2 (rio 4
14-. TATAI 0 'k % ■ 1 fo-lb A
[S. PoMAR. © 0 L '4. u l'k 11-12 4
\lo, AVit>05.AOkJ 'lx 'k ■ 1 13 2
Lýöur Friöjónsson, nemi: ,,Jú,
ég óttast það. Það bendir allt til
þess að nú dragi saman, meðal
annars i byggingariðnaðinum.
Þó á ég ekki von á að samdrátt-
urinn verði mjög mikill.”
Finnur Torfi Stefánsson, lög-
fræöingur: ,,Nei, það verður
enginn samdráttur. Það er frek-
ar bjart framundan núna og ég
sé enga ástæðu til annars en
bjartsýni. Menn þurfa ekkert að
vera hræddir.”
Jóhannes Ólsen, sjómaöur: ,,Ég
bara veit það ekki. Ég fylgist
ekkert með þeim málum hérna,
þar sem ég er Færeyingur.”
fimm is förnum vegi
Óttast þú samdrátt í
Hreinn Stefánsson, verslunar-
maður: ,,Já, ég er hálf hræddur
um það, jú. Ég óttast að sam-
dráttur verði i flestum þeim at-
vinnugreinum sem eitthvað
taka til framkvæmda og jafnvel
viöar.”
atvinnulífinu núna?
Siguröur Einarsson, skrifstofu-
maöur: ,,Já það er ég. Sam-
dráttur held ég hljóti að verða,
ef til vill ekki mjög mikill, en þó
tilfinnanlegur.”