Alþýðublaðið - 17.05.1975, Síða 2
!■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Þingið sent heim
Menn hafa sjálfsagt velt
þvi fyrir sér, hvernig á þvi
standi, að rikisstjórninni lá
svo reiðinnar ósköp á að
senda Alþingi heim fyrir
helgina. Fjöldi stjórnarmála
liggur þó enn eftir óafgreidd-
ur og þar á meðal stórmál
eins og hafnaáætlunin, sem
lögformlega var skylt að af-
greiða á þessu þingi, en rik-
isstjórnin lét leggja til hlið-
ar.
Allt hefur að sjáifsögðu
sinar skýringar og einnig sú
ákvörðun rikisstjórnarinnar
að losa sig við þingið i snar-
hasti. Þeir, sem gerst þykj-
ast vita, fullyrða, að ástæðan
sém.a. sú, að rikisstjórnin sé
búin að láta undirbúa ýmis
mál, sem hún ætli sér að af-
greiða án afskipta Alþingis
— m.a. með bráðabirgðalög-
um. Þannig er þvi spáð, að i
skrifborðsskúffum ráðherr-
anna i stjórnarráðinu liggi
nú þegar fullfrágengin
bráðabirgðalög vegna tog-
aradeilunnar, þar sem verk-
fall sjómanna verði leyst upp
með lögum og þeir látnir
sæta gerðardómi.
Er fleira á
ferðinni?
Ýmislegt fleira kann einn-
ig að leynast i pokahorninu
hjá rikisstjórninni — i myrk-
asta afkimanum I hærusekk
ihaldsstjórnarinnar. Það
hefur t.d. vakið athygli
manna, sem fylgjast vel
með, að mikið hefur verið að
gera allra siðustu daga i
þeim stofnunum, sem fjalla
um fjármál þjóðarinnar.
Kannski er óvæntra tiðinda
von úr þeirri átt innan
skamms? Kannski er það
önnur ástæðan til viðbótar
fyrir þvi, aö stjórninni þótti
svo ákaflega nauðsynlegt að
reka þingið heim sem allra,
allra fyrst — frá hálfkláruð-
um verkum?
Þá má einnig eiga von á
þvi, að áður en langt um lið-
ur verði tilkynnt um tals-
verðar verðhækkanir á ýms-
um þýðingarmiklum neyslu-
vörum — t.d. landbúnaðaraf-
urðum. Vitað er, að stjórnar-
flokkarnir hafa þingað tals-
vert um þau mál upp á siö-
kastið og ekki verið á eitt
sáttir um, hversu langt ætti
að ganga. Sjálfsagt leysa
þeir þau deilumál sin með
sama hætti og jafnan áður —
á kostnað launafólks og neyt-
enda i þjóðfélaginu. Ýmsra
tiðinda kann þvi að verða
von á næstunni, þótt undir
eðlilegum kringumstæöum
ætti nú að vera hafinn
sumarorlofstimi i pólitikinni.
—SB
FRAMTÍÐARSTAÐUR
SKÓLANS ÓÁKVEÐINN
SKÚLINH f
„En hvernig taka svo börnin
þvi, að fara frá foreldrum og
heimili og i skóla? ”
„Min reynsla er”, segir Svan-
hildur”, að þau sætti sig vel við
það og séu fijótlega furðu jákvæö.
Satt best að segja hefur þeim ekki
verið sýnd mikil virkt áður á
þessu sviði, þrátt fyrir alla
hugsanlega umönnun foreldra að
öðru leyti. Hvað sem foreldrar
vildu annars gera, hafa þau fæst
aðstöðu eða kunnáttu sem sérhæft
fólk hefur aflað sér. Það fer
saman.aðþjálfa þarf börnin bæði
llkamlega og andlega, og hvorug
hliðin má án annarrar vera eigi
árangur að nást.”
„En hafi þið þá sjúkraþjálfara
eða eru einhverjir hér lærðir i
þeim fræðum?”
„Við fáum sjúkraþjálfara tvis-
var i viku, sem leiðbeinir okkur,
já, beinlinis setur okkur fyrir um
viðhald þeirra æfinga, sem hún
hefur á gangi. Eins höfum við
gert tilraun með að virkja for-
eldra, buðum þeim hingað í haust
sem leið i dagsveru. Þar skortir
nefnilega á, að geta ekki haft
stöðuga þjálfun allan ársins
hring. Hugsum okkur t.d., að full-
„Við vitum ekki hver framtíð
þessa skóla verður”, sagði Svan-
hildur Svavarsdóttir, forstöðu-
kona og skólastjóri i Reykjadal i
Mosfellssveit, við blaðið i gær.
„Rætt er um”, hélt hún áfram,
,,að flytja hann ef til vill í nýja
deild I Hlfðaskólanum i Reykja-
vik, en ákvörðun um það hefur
ekki veriðtekin. Hér hafa verið 10
börn f vetur. Þau eru hér fimm
daga vikunnar og heima um helg-
ar. Þetta eru þroskaheft börn á
ýmisskonar stigum og aldri, og
aðallega hreyfingarheft. „Að-
spurð um hve lengi skólinn hefði
starfað og hvernig aðstæður væru
til sliks rekstrar og ennfremur á
vegum hvers eða hverra, svaraði
Svanhildur svo:
„Skólinn var stofnaður 1969 á
vegum Styrktarfélags lamaðra
og fatlaðra, var þá fyrsti skólinn
þeirrar tegundar. Nú ber rikis-
sjóður kostnað af starfseminni
enda er hér um að ræða skóla-
starfsemi fyrst og fremst, þó það
renni einnig i öðrum farvegi
vegna likamslegs ástands nem-
endanna. Segja má, að aðstaðan
sé sæmileg, þótt ýmislegt skorti.
Þetta er t.d. á einni hæð, sem
starfið fer fram. Að öðru leyti má
segja, að það valdi nokkrum
vandkvæðum, hvað við erum
fjarlæg borginni, þó það hafi lika
sina kosti. En sú skoðun vinnur á,
að börnin þurfi að hafa sem mest
samneyti við heilbrigða jafn-
aldra.”
ur vilji er fyrir hendi hjá börnun-
um aö matast sem mest sjálf. En
það vill nú fara svo að önnum
kafnar mæður taka heldur þann
kostinn að hjálpa til af gömlum
vana og umhyggju. Niðurstaðan
úr ýmsu þessu getur orðið tog-
streita hjá barninu, sem seinkar
fyrir. En fyrst og fremst er þó
timabilið, sem líður milli skóla-
dvalanna, sem á rikan þátt i
vandkvæðum. Þjálfunin mætti
aldrei niður falla. Um árangurinn
af veru þeirra má nér sjá vinnu
þeirra að margháttuðum verk-
efnum.”
Og þegar litið var yfir sýning-
una, sem upp var sett i skólanum
verður að segja, að þar mátti
margt vekja mestu furðu af þvi,
sem þessi þroskaheftu börn höfðu
afrekað. Máske er það þó mest
gleðiefni að vera sér þess meðvit-
andi, að hér er unnið með árangri
að uppbyggingu þessara minnstu
bræðra og systra.
HEIMSÖTTUR
REYKJADAL
|,_. % r___________________v g. útvarps og I ....................... * k
I Hafnartjaröar Apótek' $ I A\V &. sinnvarnsviiSírprftir Ö f1 ií-
Áfgreiðslutími:
Virka daga kl. 9-18.30
Laugardaga kl. 10-12.30.
Helgidaga kl. 11-12
Eftir lokun:
% Upplýsingasími 51600.
30
s
I
©s
sjónvarpsviðgerðir
Kvöld og helg-
arþjónusta.
10% afsláttur til
öryrkja og aldr-
aðra.
SJÖNVARPS-
VIÐGERÐIR
Skúlagötu 26 —
simi 11740.
ÞAÐ B0RGAR SIG
AÐ VERZLA f KRON
duaa
í ClflEflBflE
/ími 84400
Laugardagur 17. mai 1975.