Alþýðublaðið - 17.05.1975, Qupperneq 8
KANADAMAÐURINN
mæli Belmonte majór var flæktur í máliS. Háifu þriðja ári síðar jöfnuðu
Þjóðverjar metin að nokkru, þegar þeir hjálpuðu við undirbúning her-
foringjabyltingar, sem velti Penaranda forseta og stjóm hans úr stóli 20.
desember 1943, og varð þá forseti Alberto Villarroel majór, þótt nýja
Bólivíustjómin stæði áfram með bandamönnum vegna áhrifa Bandaríkj-
anna.
Þótt Belmontebréfsins væri ekki aflað samkvæmt ströngustu heiðar-
leikareglum, verður að dæma þetta atvik af árangrinum. Að líkindum
var girt fyrir byltingu með þessu, og víst er, að það orsakaði brottvikn-
ingu þýzka sendiherrans og handtöku f jölda hættulegra manna og undir-
bjó jarðveginn fyrir ráðstefnu Bandalags Ameríkuríkja í Ríó sex mánuð-
um síðar, þegar Bólivía og átján önnur Suður-Ameríkuríki slitu stjóm-
málasambandi við möndulveldin og tóku höndum saman um vamir álf-
unnar — „tóku ákvörðunina, sem bjargaði einingu nýja heimsins,“ eins
og Sumner Welles komst að orði.
6.
Næsta meiri háttar aðgerð Stephensons í Suður-Ameríku bar þann
árangur, að starfsemi L.A.T.I.-flugfélagsins var stöðvuð.
Fyrri hluta stríðsins var Brazilía endastöð einnar mikilvægustu sam-
gönguleiðar möndulveldanna til Vesturheims. ítölsku L.A.T.I.-flugvélarn-
ar, sem liéldu uppi reglubundnum ferðum milli Evrópu og Brazilíu, fluttu
þýzkan og ítalskan stjórnarpóst, sendimenn, leyniþjónustumenn, dem-
anta, platínu, mika, kemisk efni, áróðurskvikmyndir og bækur. Brazilíu-
stjóm hafði enga löngun til að hindra þessar flugferðir. Einn af tengda-
sonum Brazilíuforseta var aðaltækniforstjóri flugfélagsins og margir aðrir
brazilskir áhrifamenn höfðu hag af áframhaldandi lendingarheimild fé-
lagsins. Þrátt fyrir mótmæli utanríkisráðimeytisins í Washington seldi
bandarískt olíufélag L.A.T.I. eldsneyti. L.A.T.I. myndaði í rauninni stærsta
skarðið í hafnbann Breta. Fyrir bragðið var „Stjórn sérstakra aðgerða“
(S.O.E.) í London einkar umhugað, að eitthvað róttækt væri gert í mál-
efnum félagsins, og Steplienson fékk fyrirmæli þar að lútandi.
Hann og ráðunautar hans í New York ákváðu að koma á framfæri
við Brazilíustjórn óhróðursbréfi, sem liti út svo sem það hefði verið skrif-
að af einhverjum valdamanni í aðalskrifstofu L.A.T.I. á Italíu til starfs-
manna fyrirtækisins í Brazilíu, og leiddi til þess, að heimild félagsins
til að halda uppi flugferðum yrði felld niður. Starfsmenn Stephensons í
Brazilíu hófust þegar handa, og eftir fáeinar vikur tókst þeim að ná í
bréf frá forstjóra L.A.T.I., Aurelio Liotta hershöfðingja, í aðalstöðvum
félagsins í Róm. Um leið og þeir sendu bréf þetta til New York, lögðu
þeir til, að falsbréfið yrði stílað til aðalforstjóra fyrirtækisins í Brazilíu,
Vicenzo Coppola flugforingja.
Sérfræðingar M-stöðvarinnar gátu líkt nákvæmlega eftir pappírnum,
bréfhausnum og ritvélarletrinu, sem Liotta hershöfðingi notaði. Til allr-
ar hamingju hafði M-stöðinni tekizt að afla sér dálítilla birgða af hálm-
kvoðupappír, sem fáanlegur var í Norður-Ameríku og var mikilvægt skil-
yrði við þessa framkvæmd. Líkt var eftir leturupphleypingunni með smá-
sjárnákvæmni, og ritvél var endursmíðuð til að koma nákvæmlega heim
við vélræna galla vélarinnar, sem ritari hershöfðingjans hafði skrifað upp-
haflega bréfið á.
Falsbréfið var síðan samið á ítölsku, ljósmyndað á smáfilmu og hún
send aðalstarfsmanni Stepliensons í Rio. Það var dagsett 30. október 1941
í aðalskrifstofu L.A.T.I. í Róm. „Enginn vafi getur leikið á, að ístru-
maginn litli (il grassocio) sé að lenda í vasa Bandaríkjamanna,“ átti
Liotta hershöfðingi að hafa skrifað, „og að einungis harkalegar aðgerðir
af hálfu hinna grænu vina okkar geta bjargað landinu. Eftir viðræður
þær, sem samstarfsmenn okkar í Berlín áttu við fulltrúa sinn í Lissabon
nýlega, hafa þeir ákveðið að láta til skarar skríða sem skjótast.“ Þar
sem þetta gæti leitt til nýrra sérréttinda þýzka flugfélagsins Lufthansa,
var Coppola flugforingi hvattur til að gera tafarlausar ráðstafanir, til að
afla nýrra vina meðal „grænu mannanna“, og gera það, sem hann gæti,
til þess að öll gildandi forréttindi L.A.T.I. væru tryggð undir hinni nýju
stjóm. („Gakktu úr skugga um, hvern þeir ætla að gera að flugmálaráð-
herra og gerðu beztu ráðstafanir, sem hægt er“). Flugforingjanum var
uppálagt að auðsýna staka gætni. j,Brazilíumenn kunna að vera, eins og
þú hefur sagt, apaþjóð (una nazione di scimmie),“ sagði að endingu í
bréfinu. „en þeir em apar, sem dansa fyrir hvern þann, er kippir í þráð-
inn.“
Augljóst var, að með „litla ístrumaganum“ var átt við Getulio Vargas
Brazilíuforseta, en „grænu mennimir“ voru Integralistas, andstöðuflokk-
Sir William Stephenson, einhver stórbrotnasti afreksmaður
af íslenskum ættum, sem uppi hefur verið
H. Montsomary Hydo
i þýBiagu Hersteins Páíssonar
DULARFULLI47
BARN GETUR EKKI ORÐIÐ SJ
VEGFARANDIFYRR EN UM V
E.t.v. munu margir foreldrar
segja að þeir hafi séö mörg 5 og
6 ára börn, sem kunna að hjóla
og vafalaust er það rétt. En þær
niðurstöður, sem þannig fást,
eru þvi miður rangar og hættu-
legar, jafnt fyrir barnið sem
aðra vegfarendur. Það hefur
þegar verið minnzt á að barn er
fariöað ganga l-2ja ára og er oft
óþreytandi á að hlaupa um
stofur og ganga. En þrátt fyrir
það mun vist enginn okkar setja
það i samhengi að barn „sé
leikið að nota fæturna” og að
barn „sé leikið i umferðinni”.
Umferðin krefst meiri kunnáttu
en einungis þá, að kunna að
setja annan fótinn fram fyrir
hinn og halda góðu jafnvægi.
Það er ekki reiknað með að
barnið nái þeim þroska, að vera
sjálfstæður vegfarandi fyrr en
það er orðið 10-12 ára.
Sama lögmálið gildir með
reiðhjól Til þess að geta hjólað
þarf hjólreiðamaður að geta
haldið jafnvægi, stiga petalana,
bremsa o.s.frv. Þetta getur
barn lært alveg niður i 4ra ára
aldur. Sum börn á forskólaaldri
geta jafnvel orðið hréinir snill-
ingar á reiðhjól. En mistökin,
sem flestir fullorðnir gera er, að
þeir likja saman „leiknum hjól-
reiðamanni” og „góðum veg-
faranda”. Það er tvennt ólikt að
vera snillingur á reiðhjól og
vera góður vegfarandi.
Hvað er hægri og vinstri
Við getum tekið eitt dæmi um
vanhæfni barns til þess að geta
kallast sjálfstæður vegfarandi.
Hversu gamalt er barn, þegar
það veit muninn á hægri og
vinstri? Að vita „hvað er hvað”
er nefnilega þýðingarmikið
atriði i umferðinni, sá sem ekki
veit það er stöðugt i lifshættu.
Margir sálfræðingar hafa rann-
sakað þetta, m.a. svissnesi sál-
fræðingurinn Piaget.
Rannsóknir hans leiddu i ljós,
að fyrst við átta ára aldur varð
vart við þá hæfni, sem til þurfti.
Fyrst um 12 ára aldur gátu 75%
barnanna leyst allar þrautirnar
fullnægjandi.
En það eru miklu fleiri van-
kantar á hæfni barna sem sjálf-
stæðir vegfarendur en að þekkja
munínn á hægri og vinstri. Þar
Gleymib okkur
einusinni ~
og þiö gleymib
því alarei í
hefur áður verið bent á þætti
eins og vanhæfni til að nota sjón
og heyrn, smæð barna o.fl.
Það ber þvi allt að sama
brunni, börn ættu ekki að vera á
reiðhjólum i umferðinni fyrr en
þau hafa þroska til.
A fyrstu æviárum
reynum við að vernda þ
öllum hættum. Við hindi
i að komast of nálægt st
tröppum, skærum og
hnifum er haldið frá
hættuleg meðul eru læi
skáp, og við klæðum þai
föt i rigningu og kuldafö
kalt er o.s.frv. En um
barnið fer að kalla á rei
er eins og umhyggjs
hverfi allt i einu. Án
vilja barninu nokkuð il'
við undan og barnið 1
sinum framgengt. Jafi
niður i 5-6 ára aldur eru
gefin reiðhjól. Siðan ei
sent út i umferðina, út
og vegi til þess að læra
er af þeim loforð um „£
sig á bilunum”. Alltof
hinna fullorðna lita á
börnin sem minni útg
sjálfum sér.
Manneskjan vex og ]
eins og allar aðrar
LEIKUR ER BÖRNUM
Ekki má gleyma þörfum yngstu
ibúanna
Allir hljóta að vera sammáia
um það, að hollir útileikir eru
börnum nauðsyn til andlegs og
likamlegs þroska. Crtileikir
barna eru og hafa lengi verið
vandamál i þéttbýli- Með
áukinni umferð, sem
óhjákvæmilega fylgir þéttbýlis-
kjörnunum, skapast alvarleg
hætta fyrir börn að leik, vanda-
mál, sem börn i dreifbýli þurfa
hins vegar ekki að standa
frammi fyrir. Með siaukinni
byggð verða möguleikar til leik-
aðstöðu barna á óskipulögðu
landi innan og utan byggðar
sifellt minni. Þessa skerðingu á
leikaðstöðu barna verður að
bæta upp með fjölbreyttum leik-
möguleikum á þar til gerðum
leiksvæðum, i hæfilegri fjarlægð
frá heimilum þeirra.
Ef við hugsum um mikilvægi
þess, að börn geti athafnað sig
utandyra á þann hátt, sem þeim
er eðlilegast, vaknar sú spurn-
ing, hvernig forráðamenn barna
annars vegar og borgaryfirvöld
hins vegar geti á sem beztan
hátt fullnægt þessum þörfum
barnsins og um leið stuðlað að
öryggi þess fyriróhjákvæmilegri
umferð og þeim hættum, sem
henni eru samfara. Börn að leik
og umferð ökutækja geta aldrei
farið saman. Það verður að
beina leik barnanna inn á þar til
gerð svæði og stuðla þannig að
aukinni vernd barna fyrir þeim
hættum, sem leynast i umferð-
inni. En það er engan veginn
nægilegt að vernda börnin með
þvi að einangra þau frá umferð-
inni, það verður einnig að nýta
hvert tækifæri, sem gefst, til
þess að fræða þessa væntanlegu
vegfarendur og kenna þeim að
varast hættuna.
Rúmlega 100 leikvellir og leik-
svæði i Reykjavik
1 Reykjavik eru i dag starf-
ræktir 30 smábarnagæzluvellir
auk tveggja opinna gæzluvalla.
Opin leiksvæði eru 48, spark-
vellir og körfuboltavellir eru
samtals 30. Einn starfsvöllur er
starfræktur i borginni en fyrir-
hugað er að setja upp þr já slika
velli nú á næstunni.
Leikvellir þessir eru allir
staðsettir þannig, að Ibúar
viðkomandi svæðis eiga greiðan
og auðveldan aðgang að þeim.
Stefnt hefur verið að þvi að sjá
fyrir fjölbreyttum leikmögu-
leikum allt árið um kring. Innra
starf þessara leikvalla,
einkum gæsluvallanna, e
felldri endurskoðun með
til þess að auka sem r
möguleika barna til þro
leikja.
En þótt borgaryfirvi
hafi tekist að mæta ]
þörfum borgarbúa i þ
efnum þarf þó meira að
til. Þörf barnsins fyrir i
byrjar mjög snemma
fyrstu fjórum árum ba
takmarkast athafnasvæð
að mestu við næsta ná
heimilisins. Það veitir b
visst öryggi að vera i sji
við heimilið og vita af m
eða pabba i nokkurra
fjarlægð.
Eftir fyrstu fjögur ái
athafnasvæði barnsir
aukast, forvitnin á að rai
örlitið meira af heiminui
Barn á þessum aldri er
lega úti eitt sins liðs og e:
sem það hættir sér lengra
dyrum sins heimilis þeii
meir nálgast það þá hætt
biður þess i umferðinni.
Nauðsyn á leikvöllu
ibúðarhús
Og þá komum við að
Laugardagur 17. maí 1975.