Alþýðublaðið - 17.05.1975, Side 13
aRflMBQLT
i; 11M' 11 ;>, -i. <i t ii i:; «■
plötu þeirra félaga, og ber hún
heitir Oldsmobile, og er gefin út
af Polydorfyrirtækinu i Sviþjóð.
Hún er hin áheyrilegasta þó
ekki sé hér um frumlega tóniist
að ræða frá hendi þeirra. Helst
ætla ég að hún flokkist undir það
sem kailað er þungtrokk, og
virðast þeir undir nokkrum á-
hrifum frá bandarisku hljóm-
sveitinn.i Lynyrd Skynyrd.
Hljóðfæraleikur er i heildina
góður, og söngur ágætur. En þá
vantar sem sé fyrst og fremst
ferskleika þann og frumleika,
sem myndi skipa þeim framar I
röð góðra hljómsveita. Þá er út-
setning þeirra á Sprengisandi
Kaldalóns langt frá þvi að vera
sérstök eða eins góð og hjá Peli-
Vikivaki halda hér hljómleika í sumar
Sænsk-Islenska hljómsveitin
Vikivaki mun koma hingað til
lands á næstunni og halda
nokkra hljómleika. Hljómsveit-
in er skipuð fjórum ungum
mönnum, þrem tslendingum og
einum Svia. tslendingarnir
heita Hans Gislason, er leikur á
gitar og planó auk þess að
syngja, Jón Gislason, er spilar á
trommur og syngur, og Steinar
Árnason sem leikur á bassann.
Sviinn Christer Modin spilar á
gitar. Ferð þeirra félaga hingað
er á vegum Demants. Brambolt
hefur undir höndum nýjustu
can. Annars eru mörg þokkaleg
lög á plötunni. Væntanlega fá-
um við að heyra betur i. þeim,
þegar þeir koma hingað i sum-
ar, en nánar verður skýrt frá
allri tilhögun hljómleikahalds
þeirra I næsta Brambolti að öll-
um iíkindum.
Stuðmenn í hljóm
leikaferð um gjör-
vallt ísland
Stöðvið pressurnar, stöðvið
pressurnar, seinkið blaðinu, ég
þarf að koma inn svakalegri
frétt... Sirrý G... nei heyröu
þessi kom I siðustu viku, nú man
ég... Hin heimsfræga hljómsveit
Stuðmenn er væntanleg til
fósturjarðarinnar með
Concorde-þotu Club 32 I júli.
Strax að loknum fagnaðar-
fundum meö vinum og vanda-
mönnum, og eftir að hafa kysst
langömmur slnar á Búðardal
munu þeir efna til blaðamanna-
fundar á Akraborginni, sem
stödd verður milli lands og eyja,
skipstjóri verður Á. Johnsen,
heiðursgestir verða tónhyrn-
ingar sem munu hafa allt á
hornum sér eins og áður og slást
við menntskælinga. Vin og vif
verður á staðnum, Sörli I LBB
mun blanda landa af sinni
alkunnu snilld. En biðum við, ég
gleymi aðalfréttinni i öllu kjaft-
æðinu og gleöjist nú gumar og
flottpæjur um land allt.
Stuðmenn ætla sem sé i lands-
reisu mikla um miðjan júli, eða
þar upp úr, ásamt Jakobi
Magnússyni og hljómsveit.
Mikill undirbúningur hefur
verið að þessu hljómleikaferöa-
lagi, og mun Demant sjá um
framkvæmdina. Til dæmis má
nefna, að Stuðmenn hafa neitað
að spila á stöðum sem rúma
minna en tiu þúsund manns
vegna hættu á að aðdáendur
troðist undir. t alvöru talað, i
þessari ferð munu þeir félagar
koma vfða við og skemmta
landslýð með nýjum og gömlum
slögurum. Það sem vafalaust
mun koma mönnum mest á
óvart verður fiutningur þeirra á
lögum af nýrri stórri plötu, sem
koma mun út um svipað Ieyti.
Að loknum flutningi Stuðmanna
munu Jakob Magnússon og fé-
lagar leika fyrir dansi. 1 næsta
Brambolt munum vér birta ná-
kvæma leiðabók Stuðmanna
ásamt viðkomustöðum, auk
þess sem við munum greina
nánar frá lögum þeim sem
verða á stóru plötunni, og gagn-
rýna þau, forréttindi sem
Brambolt einum veitast.
Nokkurn veginn öruggt er, að
stóra platan mun ekki heita
„Stuð, stuð, stuð”, en hins vegar
hefur komið sterklega til greina
að skýra hana: ,,Þá riðu hetjur
um héruð. Nánar i næsta Bram-
bolt.
Draumaprinsar
hleypa upp
Helludansleik
Jörfagleði á Hellu siðastliðið
laugardagskvöld, nánar tiltekið
I Hellubiói. Haukar léku fyrir
dansi, en þess i milli tókust
menn hressilega á. Heldur er
þetta kannske vægt til orða tek-
ið, þegar ég fer að hugsa málið,
þá logaði allt i slagsmálum.
Gróa var á staðnum, og tillti sér
rét sisona upp við barinn, eins
og Gary Cooper og John Waine i
gömlu vestrunum, og sá hvert
slagsmálið á fætur öðru, likt og
verið væri að renna i gegn úr-
valsbitum úr myndum með
fyrrgreindum hetjum. Löggur
staðarins mega þó eiga það, að
þeir stóðu sig i stykkinu og lögðu
sitt til málanna, ásamt mömm-
um staðarins, ömmum, frænk-
um og stjórn kvenfélagsins á
staðnum. Er mestu orrahriðinni
slotaði, mátti sjá blóðpolla á
borðum svo mikla að vöxtum að
hægt hefði verið að tappa þeim á
flöskur og selja sem bland út I
Bloody Mary. Menn deila enn
um það, hver átti upptökin,
helst kemur til greina bingó-
landsliðið úr Sigöldu sem þarna
var statt, ásamt mislitum hóp
úr bænum. Gifurlega athygli
vakti hin prúðmannlega fram-
koma nokkurra menntskælinga
sem þarna sátu að ölteiti og létu
ekki etja sér út i erjurnar fyrr
en i fulla hnefana. Bingólands-
liðið lét hins vegar alla nær-
stadda vera áþreifanlega vara
við nærveru sina, þvi að Haukar
urðu að spila „Heim i Búðardal
hvorki meira né minna en fjór-
um sinnum um kvöldið, en i þvi
lagi eru eins og alþjóð er kunn-
ugt þessar ljóðlinur: ,,Þá er ég
vann upp i Sigöldu, meyjarnar
mig völdu tilþess að stjórna sin-
um draumum”. Afram með
bingóið draumaprinsar....
Þá er komin
Elton John, munið þið eftir
honum? Það er þessi sem treður
upp með páfuglsfjaðrir I hausn-
um og bleika barta og meö bleik
sólgleraugu, og... alveg rétt,
hann spilar lika á píanó af mik-
illi snilld og syngur. Hann hefur
að undanförnu haft mikið að
gera við að troða upp á ólikleg-
ustu stöðum án pianósins, spila
tennis við heimsmeistarann
(sem er kvenkyns) og detta i
það með John Lennon. Þess i
milli rekur hann fyrirtæki sitt,
Rocket records af miklum á-
huga, og skipuleggur Wembley-
hljómleika sina sem við skýrð-
um frá fyrir alliöngu siðan. Það
er ekki svo ýkja langt siðan sið-
asta breiðskifa kom út með hon-
um, en nú er ný á leiöinni, og sú
ný plata með
ber nú ekkert smáræðisnafn,
eða: „CAPTAIN FANTASTIC
AND THE DIRT BROWN COW-
BOY”, og geri aðrir betur.
Þetta minnir mig á járnbraut-
arstöðina i Wales, en nafnið á
henni var lengra en stöðvarhús-
ið... En hvað um það, það væri
litið stuð ef hún héti bara Elton
IX eða eitthvað álika andlaust,
enda þarf Elton ekki að hafa á-
hyggjur af þvi að plöturnar hans
þekkist ekki, bleiki liturinn lýsir
langar leiðir. Platan sem er ný-
komin út erlendis hefur eins og
að likum lætur hlotið misjafna
dóma, en engum dettur þó i hug
að neita þvi að Elton sé góður,
menn velta þvi bara fyrir sér
hversu góður, og hvort að pá-
fuglsfjaðrirnar séu ekki farnar
Elton John
að stiga honum til höfuðsins.
Hann skipti nýverið um menn i
hljómsveit sinni, og mun frum-
raun þeirra verða á Wembley.
Gróa á Leiti
o
Laugardagur 17. maí 1975.