Alþýðublaðið - 17.05.1975, Side 16
alþýðu
mum
NjKtos liF
PLASTPO K AVÉ R KS MIO J A
Stmar 82639-8265S
VetnogðrÍHjm 6
Box 4064 — Raykjevtk
KOPAVOGS APÓTEK
Opifi öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 12
l
(H)ROS I HNAPPAGATIÐ
FERÐALAG
Hvað er svo fritt sem fjall á sumardegi
er freistingarnar rjúfa sérhvert bann.
Hvað er svo blátt sem blóm á förnum vegi
er birtan logar allt i kringum mann.
Hvað er svo frjálst sem ganga um græna móa
og glápa á þennan bláa fjallahring
og heilsa upp á hrossagauk og spóa
og holtasól og krækiberjalyng.
Hvað er svo glatt sem gaufa útum hagann
við goluþyt og vaða drullu og leir
og skjögra haltur heim með tóman magann
og heita þvi að ferðast aldrei meir.
(H)rós Alþýðublaðsins að þessu
sinni, er veitt Gisla Sigurbjörns-
syni, forstjóra Elli-og hjúkrunar-
heimilisins Grund. Gisla er veitt
(h)rósið fyrir að sýna skilning
sinn á aðstæðum og vandamálum
hreyfihindraðra i verki, með þvl
að færa Kjarvalsstöðum að gjöf
tvo hjólastóla, sem ætlaðir eru til
þess að auðvelda hreyfihindruð-
um að heimsækja og skoða list-
sýningar og njóta annarrar starf-
semi hússins. Með þessu verki
þykir Alþýðublaðinu Gisli gefa
(h)rósvert fordæmi og ábendingu
um lausn á hluta þeirra vanda-
mála sem vib hreyfihindruðum
blasa í þjóðfélagi okkar.
Þetta er ekki i fyrsta sinn, sem
(h)rósnefnd Alþýðublaðsins þykir
tilhlýðilegt að veita Gisla viður-
kenningu sína , þvi þann 1. desem-
ber 1973 fékk hann (h)rós i
hnappagatið fyrir áratugalöng
störf sin að málefnum aldraðra.
Nú er það fyrir skilning á málefn-
um hreyfihindraðra, sem honum
er veitt viðurkenning.
*
Þar sem ekki reyndist unnt að
ná til Gisla Sigurbjörnssonar I
gær, veitir (h)rósnefnd Alþýðu-
blaðsins honum viðurkenningu
sina að honum sjálfum fjarver-
andi. Myndin, sem hér fylgir
með, var tekin þegar GIsli veitti
hinu fyrra (h)rósi viðtöku og það
er Edda Guðmundsdóttir, sem er
að næla (h)rósinu i barm hans.
Kaktusinn okkar að þessu
sinni fer til Erlendar Einars-
sonar, forstjóra SÍS. Tilefnið
er, að undir framkvæmda-
stjórn hans hefur Sambandið
leiðst svo langt frá upphaflegu
markmiði sinu, sannvirðis-
stefnunni, að i fréttabréfi
þess, Sambandstiðindum, er
undan þvi kvartað, að við-
skiptaráðherra skyldi leyfa
innflutning sykurs, sem neyt-
endur siðan gátu fengið á mun
lægra verði, en SÍS-stjórnend-
um þótti hæfa mibað við það
verð, sem þeir vildu fá fyrir
sykur innfluttan af þeim sjálf-
um.
Þvi biður kaktusinn Erlend-
ar Einarssonar á ritstjórn Al-
þýðubiaðsins að Siðumúla 11.