Alþýðublaðið - 06.08.1975, Page 4
Vegna sumarleyfa verður
verkstæði okkar lokað
frá 5. ágúst til 18. ágúst n.k. Reynt verður
að sinna nauðsynlegustu smáviðgerðum á
þessu timabili.
Bilaborg h.f.
Borgartúni 29.
Evropuraðið
til handa kennurum til að sækja námskeið I Sambandslýð-
veldinu Þýskalandi á timabilinu ágúst 1975 til janúar 1976.
Námskeiðin standa að jafnaði i eina viku, og eru ætluð
kennurum og öðrum er fást við framhaldsmenntun kenn-
ara. Umsækjendur þurfa að hafa gott vald á þýsku.
Umsóknir skulu hafa borist Menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 15. ágúst. Nánari upplýs-
ingar og umsóknareyðublöð fást i ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið, 31. júlí 1975.
Laus staða
Umsóknarfrestur um stöðu kennara i
efnafræði og stærðfræði við fjölbrautar-
skólann i Flensborg i Hafnarfirði, sem
auglýst var laus til umsóknar i Lögbirt-
ingablaði nr. 44/1975, er framlengdur til
15. ágúst 1975.
Laun skv. launakerfi starfsmanna rikis-
ins.
Umsóknir, ásamt itarlegum upplýsingum
um námsferil og störf, skulu hafa borist
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,
Reykjavik, fyrir umræddan tima. — Um-
sóknareyðublöð fást i ráðuneytinu.
Mennta mála rá ðuney tið,
28. júli 1975.
Evrópuráðið
handa kennurum til að sækja stutt námskeið í Austurriki á
timabilinu september 1975 til april 1976. Náskeiðin standa
aö jafnaði i eina viku, og eru ætluð kennurum i iðnskólum
og tækniskólum, og þeim er fást við menntun slikra kenn-
ara. Umsækjendur þurfa að hafa gott vald á þýskri tungu.
Umsóknum skal skilað til menntamálaráöuneytisins,
Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 20. ágúst. Nánari upplýs-
ingar og umsóknareyðublöð fást i ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið, 31. júli 1975.
Starfsmaður óskast
að vöruafgreiðslu vorri i haust. Starfs-
reynsla æskileg. Umsóknir sendist fyrir
lok ágúst.
Skipaútgerð rikisins.
Gjaldkeri
Starf gjaldkera hjá Rafveitu Hafnarfjarð-
ar er laust til umsóknar.
Laun samkvæmt kjarasamningi Hafnar-
fjarðarkaupstaðar við Starfsmannafélag
Hafnarfjarðarkaupstaðar.
Umsóknum, ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf, skal skila fyrir 23.
ágúst nk. til rafveitustjóra, sem veitir
nánari upplýsingar um starfið.
Rafveita Hafnarfjarðar.
Abyrgð lýðræðisþ
á tímum öfga og
Fátt er það, sem haft hefur
eins mikil áhrif á gang heims-
málanna siðasta áratuginn eins
og vaxandi styrkur þriðja
heimsins. Frumstæð þjóðlönd
og undirokaðar nýlendur hafa
hrist af sér margra alda fjötra
og áþján og sett á stofn sjálfstæð
þjóðfélög. Sameinuðu þjóöirnar,
sem settar voru á stofn við lok
heimstyrjaldarinnar siðari,
urðu sá vettvangur, sem
sköpuðu grundvöll fyrir form-
legri og pólitiskri viðurkenningu
þessara nýju rikja. Enda þótt
margt megi segja Sameinuðu
þjóðunum til hnjóðs, munu
flestir þeirrar skoðunar að af-
skipti þeirra af alþjóðmálum og
alþjóðasamskiptum hafi orðið
til þess að treysta formleg
vinnubrögð á alþjóðavettvangi.
Sú staðreynd, að mikill fjöldi
þeirra rikja, sem öðlast hafa
sjálfstæði á siðustu árum,
viðurkennir ekki lýðræðislega
stjórnarhætti nema að tak-
mörkuðu leyti, hlýtur að vekja
nokkurn ugg um framtið
þessarar stóru alþjóðlegu stofn-
unar, semi grundvailaratriðum
byggir á almennum mann-
réttindum og frelsi einstak-
lingsins til orðs og athafna.
Engum blandast þó hugur um
að frumforsendur lýðræðis
hljóta ávallt að vera menntun
og efnahagslegt sjálfstæði. í
löndum þriðja heimsins rikir
enn almenn fátækt og fáfræði,
enda þótt mörg þessara rikja
eigi miklar auðlindir og ónýtta
efnahagslega aðstöðu. Við
slikar aðstæður er ekki óeðlilegt
þótt stjórnarfarsleg uppbygging
Breski forsætisráðherrann
Harold Wilson kvaðst i gær hafa
sagt Leonid Brésnef á fundinum i
Helsinki, að hann liti á framtið
Portúgal sem mælikvarða raun-
verulegrar afslökunarstefnu
austurs og vesturs.
Wilson kvaðst hafa átt fund
verði með nokkuð öðrum hætti
en i þeim rikjum, þar sem
alþýðufræðsla og almenn mann-
réttindi hafa mótað þjóðfélags-
þróunina i aldaraðir. 1 þessum
löndum hefur viðast hvar veriö
lögð mikil áhersla á efnahags-
lega uppbyggingu og hafa hinar
voldugari þjóðir heims lagt þar
mikla og margvislega aðstoð af
höndum. Stórir hópar manna og
kvenna úr löndum þriðja
heimsins hafa á siðustu ára-
tugum sótt menntun sina til
Bandarikjanna, Bretlands,
Frakklands og Sovétrikjanna og
viðar. Þetta fólk streymir nú til
baka til sinna fyrri heimkynna
til þess að takast á við þau
margþættu vandamál, sem þar
biða óleyst. Viðast hvar hefur
megináhersla verið lögð á upp-
byggingu atvinnulifsins og út-
með portúgalska forsetanum
Fransisco da Costa Gomes meðan
á Helsinkifundinum stóð og hafa
tjáð honum áhyggjur sinar af
þróuninni i Portúgal. Hann
kvaðst hafa lagt mikla áherslu á
að komið yrði á lýðræði þar i
landi.
rýmingu fátæktar. Onnur við-
fangsefni, svo sem menntun og
læknisþjónusta hafa þvi miður
orðið að biða betri tima. Engum
blöðum er um það að fletta, að
félagslegar aðstæður i þessum
löndum eru mjög ólikar þvi,
sem þekkist i háþróuðum og
iðnvæddum menningarlöndum
heims, eða i hinum siðmenntaða
heimi, sem svo hefur verið
nefndur.
Indland er eitt af stærstu og
fjölmennustu löndum heims.
FORD
0G MIKI
A FUNDI
Ford, forseti Bandarikjanna og
Takeo Miki, forsætisráðherra
Japans, héldu með sér fund i
Hvita húsinu i Washington D.C.
tæpri klukkustund eftir að þeir
komu til landsins úr Evrópuför-
inni. Talið er að forsætisráð-
herramir muni f jalla um öryggis-
mál Suður Kóreu og orkumálin
almennt en japanskur iðnaður
byggir mjög á innfluttri oliu.
Japanir óttast mjög hækkað verð
á oliu á heimsmarkaði og er gert
ráð fyrir að forsætisráðherra
Japans, leggi mikla áherslu á
ráöstefnu helstu oliuframleiðslu-
landa og iðnaöarlanda heims, til
þess aö halda oliuverði niðri.
Varðandi öryggismálin er
greint frá þvi að ráðgjafar Fords i
utanrikismálum leggi mikla
áherslu á, að Bandarikin veiti
Suður-Kóreu hverja þá aðstoö,
sem með þarf, til þess að verjast
árás frá Norður-Kóreu.
FORD ANÆGÐUR
MEÐEVRÓPUFÖR
Gerald Ford hefur latið i ljós mikla ánægju með för sina til Evrópu,
sérstaklega með ráðstefnuna i Helsinki. t frétt frá Hvíta húsinu segir
að forsetinn hafi flutt þann meginboðskap á ráðstefnunni i Helsinki, aö
áhugi Bandarikjamanna á friði I heiminum sé enn hinn sami og áður. A
þeim 10 dögum, sem forsetinn var i Evrópu heimsótti hanneinnig, auk
Finnlands, Vestur Þýskaland, Rúmeníu og Júgóslaviu.
Forsetakosningar fara fram i Bandarikjunum á næsta ári og má telja
vist að för Fords til Helsinki og annara landa Evr'ópu muni hafa nokkur
áhrif á afstöðu bandariskra stjórnmálamanna til frammistöðu forset-
ans i Evrópuförinni.
Wilson áhyggjufullur
o
Miðvikudagur 6. ágúst 1975