Alþýðublaðið - 06.08.1975, Side 8
fleiri kilómetra
fyrir færri krónur
Hœkkáö benzínverö nð undan-
förnu hefur veriö áhyggjuefni flestra
bifreiöaeigenda. Af þeim sökum, hef-
ur athygli manna beinzt aö minni og
sparneytnari bifreiöum. RENAULT 4
ber af um sparneytni, en tapar ekki
kostum stœrri og eyöslufrekari bif-
reiöa fyrir vikiö. RENAULT 4 eyöir
aöeins 5,5 lítrum á hverja 100 km. þaö
þarf aöeins aÖ skipta um olíu viö
hverja 5.000 km. hann þarf ekki vatn,
enga smurningu og engan frostlög.
Vélarorkan er fullnœgjandi og á lang-
ferö um slœrnan veg er ekki hœtta á
aö þessi franska listasmíÖ bregöist
trausti yöar. Komiö og leitiÖ nánari
upplýsinga.
■rn!§«
framhjóladrif
franiar öllu!
RENAULT
KRISTINN GUÐNASON HF
SUÐURIANDSBRAUT 20. SÍMI 86633
Innanhússarkitektar —
húseigendur.-
Eigum fyrirliggjandi hollenska
kókosdregla í sterkum litum
Bendum sérstaklega á þá sem heppilega á
gólffleti sýningarstúka vörusýningarinnar
i Laugardalshöll. Einnig til ýmissa nota i
húseignum.
Gúmmíbátaþ jónustan
Sími 14010, Grandagarði 13.
LOKAÐ VEGNA
SUMARLEYFA
frá 11. ágúst til 8. september 1975.
Eyjólfur K. Sigurjónsson,
löggiltur endurskoðandi,
Flókagötu 65,
Simi 27900.
Ég þakka innilega gjafir blóm skeyti og annan vinarhug
mér auösýndan á 80 ára afmæli mfnu 19. júli s.l. Sérstak-
lega þakka ég Kvenfélagi Alþýðuflokksins og Alþýðu-
flokknum fyrir dýrmætar gjafir og vinarhug gegnum árin.
Guð blessiykkur og störf ykkará ókomnum árum.
Með bestu kveðju.
Halldóra Bjarnadóttir.
íþróttir
Islandsmótið í golfi
• •
BJORGVIN VARÐI TIT
• •
AF ORYGGI
HANN VAR 9 HÖGGUM BETRI EN NÆSTI
MAÐUR OG HAFÐI MIKLA YFIRBURÐI
Um helgina fór fram
islandsmótið í golfi á
Akureyri og fóru leikar
þar eins og menn
bjuggust við. Enginn
ógnaði sigri islands-
meistarans Björgvins
Þorsteinssonar i mótinu
sem varði titil sinn af
öryggi, — var 9 höggum á
undan næsta manni.
Jaðarsvöllurinn „Stóri-Boli”
reyndist mörgum kylfingnum
erfiður i mótinu og gekk flestum
illa að leika á flötunum.
Björgvin tók strax forystuna
eftir fyrsta daginn, 6 högg og
eftir það var aðeins formsatriði
að ljúka keppninni.
Úrslitin i Meistaraflokki karla
urðu þessi:
Björgvin Þorsteinsson GA
74 79 80 75 = 808
Einar Guðnason GR
81 79 80 75 = 317
Þorbjörn Kjærbo GS
80 70 79 78 = 319
Ragnar ólafsson GR
85 74 81 81 = 321
Jóhann ó Guömundsson NK
80 78 80 80 = 324
Sigurður Thorarensen GK
81 79 87 78 = 325
Akureyringar áttu þrjá fyrstu
menn i 1. flokki karla, þar varð
Hermann Benediktsson GA
hlutskarpastur, lék á 340 högg-
um, annar varð Bragi
Hjartarson GA á 344 og þriðji
Frimann Gunnlaugsson á 345
höggum.
f 2. flokki sigraði Borgnesing-
ur, Sigurður M. Gestsson GB,
lék á 355 höggum, annar varð
Ólafur Marteinsson GK á 360 og
þriðji Heimir Jóhannsson GA á
362 höggum.
úrslitin i öldungakeppninni
An forgjafar:
Pétur AuðunssonGK 93
Gunnar Péturss.,NK 94
Páll Asg. Tryggvas. GR 96
Jóhann Guðm .son, GA 97
Gestur Magnússon, GA 98
Með forgjöf:
Jóhann Guðmundsson, GA 77
JónGuömundsson,GA 80
Páll Ásg. Tryggvas. GR 81
Keppendur i öldungaflokki vort
um 20 talsins þar af margir frí
Akureyri.
Björgvin Þorsteinsson var I
„banastuði" á tslandsmótinu og
var I sérflokki.. Myndin er tekin
af Björgvin á mótinu um
helgina.
Keflvíkingar komnir
í 8-lifla úrslit
Keflviking„r tryggðu sér rétt-
inntil að leika i 8-liða úrslitum i
Bikarkeppni KSÍ á föstudags-
kvöldið þegar þeir báru sigurorð
af tsfiröingum i Keflavik, 3-0.
Isfirðingar komu nokkuð á
óvart með getu sinni i leiknum, en
lið Keflvikinga var samt of sterkt
fyrir þá. Fyrsta mark fBK
skoraði Ölafur Júiiusson með
þrumuskoti af löngu færi. Þá mis-
tókst Steinari vitaspyrna sem
hann tvitók, og dæmd var eftir að
Friðriki Ragnarssyni hafði verið
brugðið innan vitateigs.
En Keflvikingar létu þetta ekki
á sig fá og bættu við tveim mörk-
um, fyrst Friðrik og siðan Einar
Gunnarsson eftir hornspyrnu.
URÐU FJÓRÐU
islenska unglingalandsliöiö i
knattspyrnu, 16 ára og yngri tók
þátt i NM-móti i Finnlandi um
helgina.
Piltarnir léku þrjá leiki, unnu
einn og töpuðu tveim, fyrst léku
þeir gegn gestgjöfunum, Finnum,
og töpuðu 0-3, i næsta leik mættu
þeir Svium og þann leik unnu
piltarnir 3-0. t siðasta leiknum
léku piltarnir við lið Vestur-
Þjóðverja um 3.-4. sætið og lauk
þeim leik með sigri Þjóðverjanna
2.-1.,
Panir sigruðu í keppninni, unnu
Finna i úrslitalciknum 2-1, en
Norðmenn ráku lestina, töpuðu
fyrir Svium i síðasta leiknum 1-0.
Urslitin í Bikarkeppninni
Þrir leikir voru leiknir i
16-Iiða úrslitum i Bikarkeppni
KSl i gærkvöldi.
Á Selfossi léku Vikingar
Reykjavík við Þór Þorláks-
höfn og fóru leikar svo að
Vfkingar sigruðu i leiknum
2:0.
Á Akranesi léku heimamenn
við Ármenninga og sigruðu i
leiknum 3-1.
Sfðasti leikurinn var svo
leikinn i Kaplakrika og áttust
þar við FH-ingar og Grind-
vikingar og þar fór lika alit
samkvæmt uppskriftinni —
FH sigraði i leiknum 3:0.
Miðvikudagur 6. ágúst 1975