Alþýðublaðið - 06.08.1975, Side 10
HREINSKILNI SAGT
óvönduð skrif
t sunnudagsblaði Þjóðviljans frá 27.
júli tekur Ólafur R. Einarsson sér fyrir
hendur að gera einskonar „sögulegt”
yfirlit yfir samskipti Islendinga við er-
lent vald á liðandi öld, eða frá þeim
tima, sem núverandi flokkaskipun var i
deiglu og fullmótuð. Þar ber, aö sjálf-
sögðu margt á góma. Hér verður, að
þessu sinni staðnæmzt við framslátt
Ólafs um afstöðu Alþýðuflokksins til
skilnaðar við Dani og stofnunar lýðveld-
isins. ólafur Einarsson segir berum
orðum, að Alþýðuflokkurinn hafi verið
„dragbitur” á lýðveldisstofnunina 1944!
Ég geri ráð fyrir, að i orðið dragbitur sé
lögð venjuleg merking, sem sé hamla til
meinsemdar, og mun miða við þann
skilning i eftirfarandi athugasemdum.
Rétt þykir i upphafi, að rifja upp aðal-
atriði úr sambandslögunum frá 1918
varðandi hugsanlega uppsögn á þeim
lögum. Þar segir: Rikisþing og Alþingi
geta, hvort um sig, eftir árslok 1940
krafist endurskoðunar sambandsiag-
anna. Verði nýr samningur ekki gerður
innan 3ja ára, getur hvort rikið fyrir sig
samþykkt, að samningurinn sé úr gildi
fallinn. Þetta ákvæði virðist skera
greinilega úr um það, að tilskilinn er
þriggja ára frestur frá uppsögn annars-
hvors aðila.
Við hernám Danmerkur 9. april 1940
hlutu íslendingar að taka i sinar hendur
bæði konungsvald og meðferð utanrikis-
mála, sem Danir höfðu haft með hönd-
um þar til. Var um það enginn ágrein-
ingur. Næsta skrefið á braut sambands-
slita verður svo að telja ályktun Alþing-
is frá 17. mai 1941 um stofnun lýðveldis á
íslandi jafnskjótt og sambandí við Dani
yrði slitið. Þessi boð fengu Danir þrem
dögum siðar um sendifulltrúa Islands i
K.höfn. Af ofannefndu er fullljóst, að
hinn tilskyldi 3ja ára frestur gat ekki
runnið út fyrr en 20. mai 1944, ef hafa
ætti sambandslögin i heiðri.
Sú furðulega kenning, að Islendingar
þyrftu ekki að binda sig við sáttmálann
frá 1918, vegna þess að Danir hefðu
„vanefnt” sinn hluta hans, skaut upp
kollinum og fékk hljómgrunn ýmissa.
Dapurleg
sagnfræði
Að þessu stóð auðvitað Sósialistaflokk-
urinn og hluti af Sjálfstæðisflokknum,
þar á meðal aðalforingjar hans. Alþýðu-
flokkurinn snerist öndverður gegn þess-
ari kyndugu kenningu, enda leit og litur
flokkurinn svo á, að öllum, ekki sizt
smárikjum beri að standa við gerða
samninga og hlita fullum lögum og rétti.
„Vanefnd” Dana var á engan hátt
þeirra sök, þar eð þeir voru troðnir járn-
hæl herja Hitlers og áttu einskis úrkosta
um umsvif erlendis. Þegar frá leið söns-
uðust lika hinir svokölluðu „hraðskiln-
aðarmenn” á þá afstöðu, sem Alþýðu-
flokkurinn hafði mótað, nema auðvitað
Sósialistaflokkurinn, sem engu tauti
varð við komið. Hér skal ekki getum
leitt að þvi, hvað olli þeirri þráhyggju.
Hinsvegar er rétt að benda á, að á Al-
þingishátiðinni 1930, sömdu Norðurlönd-
in um, að þau skyldu leggja öll ágrein-
Eftir Odd A. Sigurjónsson
ingsmál i gerðardóm og hlita úrskurði
hans auðvitað. Af þessum orsökum hefði
vel mátt búast við, að ef Islendingar
virtu ekki löglega gerða samninga, gætu
Danir krafizt slikrar gerðar. Hefði þá
fyrsta ganga lýðveldisins verið ill, að
ekki sé mikið sagt. Fyrir afstöðu og at-
beina Alþýðuflokksins fór svo lýðveldis-
takan fram eftir fyllstu lögum, að aflok-
inni glæsilegri þjóðaratkvæðagreiðslu
20.—23. maí 1944 og samþykkt Alþingis
16. og 17. júni sama ár. Óþarft er að
minnast frekar þess merkisatburðar,
eða væri ekki, ef ofsi Sósialistaþing-
manna hefði ekki leitt þá til að bletta þá
virðulegu samkomu með auðu atkvæða-
seðlunum við forsetakjörið. Hér hefur
verið stiklað á stóru um þetta mál,
vfigna rúmleysis. Hitt á að vera ljóst, að
afstaða Alþýðuflokksins var ekki af-
staða neins „dragbits”. Hún var afstaða
að hlita fullum lögum og standa við
gerða samninga með öllu. 1 ljósi þess
verður sleggjudómur Ólafs R. Einars-
sonar að teljast litt sæmandi þeim, sem
vill vera heiðarlegur sagnfræðingur, og
vekja algera furðu hjá afkomendum
Ara fróða. Sem betur fer er sagnfræði
okkar þó ekki enn sokkin svo djúpt, að
telja að söguna megi segja og skrifa eft-
ir geðþótta, hvorki valdsmanna, eða
officera lægra stanz. Slikar aðfarir er
bezt að láta þeim eftir, sem hirða meira
um imyndaðan stundarhag, en að hafa
það sem sannara reynist.
fclk
Söngvarinn Sammy Davies
jr.hefur ákveðið að halda sig
fjarri stjórnmálum i fram-
tiðinni. Ástæðan er sú, að
hans sögn, að hann var
stuðningsmaður Nixons i
kosningunum 1972 — og
„Watergate hefur nagað mig
siðan”, sagði hann.
Celeste, hin 35 ára gamla
eiginkona kvikmyndaleik-
stjórans John Houston sem
er helmingi eldri, hefur nú
óskað skilnaðar frá manni
sinum á þeirri forsendu að
þau séu ósamrýmd og muni
alltaf verða. Hún bað um
smá vasapeninga að skiln-
aði, milljón á mánuði i fastar
greiðslur. Celeste er fimmta
eiginkona Johns, sem
þriðji maður hennar.
er
Fimm flugfreyjur Continent-
al Airways flugfélagsins i
Chicago hafa nú höfðað mál
gegn fyrirtæki sinu og krafist
þess að það breyti auglýs-
ingatextum sinum. Þær
segja að texti auglýsinganna
sé oft harla tviræður og það
leiði til þess að þær verði oft
og iðulega fyrir áreitni og
kynferðislega nærgöngulir
farþegar láti þær ekki i friði,
þannig að stundum geti þær
ekki unnið skyldustörf sin.
Meðal auglýsingatexta CA
var texti undir svohljóðandi
fyrirsögn: „FLY THE
PROUD BIRD WITH THE
GOLDEN TAIL” Þar sem
BIRD getur i ensku máli
jöfnum höndum þýtt fugl og
stúlka, þá þótti þetta liklegt
til mistúlkunar. Ekki sist þar
sem jafnan fylgdi auglýsing-
unni mynd af ungri og
þokkafullri flugfreyju.
☆
Anne Pohtamo, 19 ára gömul
ljósmyndafyrirsæta frá
Finnlandi, var á dögunum
kjörin Ungfrú Alheimur i
Salvador, höfuðborg E1
Salvador, úr hópi fagurra
fulltrúa 70 rikja. Hin nýja al-
heimsungfrú ,er græneygð
auk þess að hafa öll hin
„réttu” mál, að mati dóm-
enda, — og helsta áhugamál
hennar er að geta orðið hag-
fræðingur. Þegar þar að
kemur á hún máske eftir að
slást i lið með Helen Saapp-
ilo, konunni, sem fékk þvi
framgengt, að Sameinuðu
þjóðirnar helguðu þetta ár
réttindamálum kvenna, en
hún er lögfræðingur, og full-
trúi Finnlands hjá Samein-
uðu þjóðunum.
Anne Póhtamo.
Raggi rélegri
Mallf! Ég er búinn að mála öll svefn'
^herbergin... baðherbergið og eld-
húsið...
Pabbi þinn er
ekki sá
i.llra laghent
Bíérin
Fjalla-Fúsri
HflSKÓLABÍO
Simi 22140
Moröið á Trotsky
Stórbrotin frönsk-itölsk lit-
mynd um hinn harmsögu-
lega dauðdaga Leo Trotsky.
Aðalhlutverk: Itichard
Burton, Alan I)elon, Rony
Schneider.
Leikstjóri: Joseph Losey.
ISLENZKUR TEXTI.
Bönnuö börnum.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Síðasta sinn.
TtiNflBÍÓ
Simi :! 11K2
Mazúrki á
rúmstokknum
CMAZURKA CPÁ
SENGEKANTEN
arets festligste, ole S0|,O"!
morsomste Garde'
og "frækkeste” Blr,"u T““
J Axel Strabye
lystspil Karl Stegger
Karl Stegger
Paul Hagen
m m.ll
„Mazúrki á rúmstokknum”
var fyrsta kvikmyndin i
„rúmstokksmyndaseri-
unni”. Myndin er gerð eftir
sögunni „Mazúrka” eftir
danska höfundinn Soya og
fjallar á djarfan og
skemmtilegan hátt um hold-
leg samskipti kynjanna.
ISLENZKUR TEXTI.
Aöalhlutverk: Ole Soltoft,
Birthe Tove.
Endursýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuö yngri en 16 ára.
Sföasta sinn.
NÝJA BÍÓ
Slmi 11546
Slagsmálahundarnir
Eo*Bear\£
...and fhafainf hay/
Sprenghlægileg ný itölsk-
amerisk gamanmynd með
ensku tali og tSLENZKUM
TEXTA, gerð af framleið-
anda Trinity myndanna.
Aöalhlutverkiö leikur hinn ó-
viðjafnanlegi Bud Spencer.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
KÓPAVOGSBfO SI
Bióinu lokað um óákveðinn
tima.
TROLOFUNARTflRINGAR
Fljót afgreiðsla.
Sendum gegn póstkröfu
GUÐM. ÞORSTEINSSON
gullsmiður, Bankastr. 12
Gleymid okkur
einu sinni -
og þið gleymid
þvi alarei f
LAUGARASBH
Þau Stephen Boyd, Jean Se-
berg, James Mason og Curt
Jurgens eru starfsménn
Interpols Alþjóða leyni-
þjónustunnar og glima við
eiturlyfjahring sem talin er
eiga höfuöstöövar I
Pakistan.
Bönnuö innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 11
Breezy
>ier ncrne ís Breezv.
i
-V: 'f
Breezy heitir 17 ára stúlka
sem fór.að heiman i ævin-
týraleit, hún ferðast um á
puttanum m.a. verðurá vegi
hennar 50 ára sómakær
kaupsýslumaður, sem leik-
inn er af William Holden.
Breezy er leikin af Kay Lenz.
Samleikur þeirra I myndinni
er frábær og stórskemmti-
legur. Myndin er bandarisk
litmynd, stjórnuð af hinum
vaxandi leikstjóra Clint
Eastwood.
Sýnd ki. 9.
SUÐRWUBÍÓ ö-ni
Nunnan frá Monza
ANNK HKVW(M)I)
ANJ’ONIO
SABA’I’O
f.f.b.
^ASTMANCOlOB
Ný áhrifamikil Itölsk úrvals-
kvikmynd i litum með ensku
tali.
Bönnuö börnum.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
HAFNARBÍÖ Simi 15444
JQHN
MARIR:.
RÖBBY 1H0M AS
BENSON:
Spennandi og mjög óvenju-
legur „Vestri” um piltinn
Jory og erfiðleika hans og
hættuleg ævintýri.
ISLENZKUR TEXTI.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
SAFNAST ÞEGAR
SAMAN
Hreint
táSland
fugurt
lund
LANDVERND
©
Miðvikudagur 6. ágúst 1975