Alþýðublaðið - 06.08.1975, Blaðsíða 12
Ctgefandi: Blaö hf. Framkvæmda
stjdri-.Ingólfur P. Steinsson. Ritstjóri
Sighvatur Björgvinsson. .Fréttastjóri
Helgi E. Helgason. Auglýsingar
Hverfisgötu 8-10, simi 14906
Afgreiösla: Hverfisgötu 8-10, simi
14900. Prentun: Blaöaprent hf.
Áskriftarverð kr. 700.- á mánuði. Verð
I lausasölu kr. 40.-
KÓPAVOGS APÓTEK
Opiö öll kvöld til kl. 7
! Laugardaga til kl. 12
SENDIBILASrÖOIN Hf
rVeðrió
leiðinni hingað til okkar hér á
höfuðborgarsvæðinu. 1 gær
komst hitinn i Reykjavik upp i
17,3 stig, og eru það mestu
hlýindi á sumrinu hér.
I stað smálægðanna, sem
legið hafa suð-vestur af land-
inu er nú komin stór lægð um
1000 kilómetra suður af ís-
landi. Veldur hún hlýrri suð-
austan og austan átt. Evrópu-
loftið er einkum komið frá
Bretlandseyjum, en sá munur
á þvi þar og hér, að hérna
njótum við rakans, sem það
tekur i sig á leiðinni yfir hafið,
og er þvi ekki hægt að fortaka
einhverja útkomu. En sem
áður segir. Von er á betra
veðri með loftinu, sem hefur
verið að leika hitabylgju i
Norður-Evrópu að undan-
förnu.
Gátan
SlíTRW>/3/RTA
□ 8/ET/R v/Ð / , HftR/ NU bftm bKBV'l BB/NR HREyf /ST
5/vAL N/NCt ufí
KRftfT uRir/rt Tftulftbl
l
ÍÝRfí D/L //vV
HROKt
H/K /rv/V
l'/th efn/ VRYKK VfíN/Ð
P 1 2 1 B/NS
WRuT
mr?0 5T»R! \2t/"S
l □
ri V
MEGUM
VIÐ KYNNA
Guðmundur Hafsteinsson
veðurfræðingur, sem byrj-
aði að segja okkur frá
veðrinu i sjónvarpinu á
sunnudagskvöldið
erþritugur Reykvikingur, fæddur
1. april 1945 og lauk stúdentsprófi
árið 1965. Siðan hélt hann til náms
i veðurfræði i Osló og lauk prófi
þaðan árið 1973. A meðan
Guðmundur var við nám vann
hann á Veðurstofu Islands i
Reykjavik á sumrin, og hefur
verið þar starfandi siðan hann
lauk námi, eða i tvö ár.
Guðmundur er kvæntur Þór-
hildi Sigurðardóttur, og eru þau
barnlaus.
— Jú, það kemur fyrir að ég gái
til veðurs i fristundum, sagði
Guðmundur, þegar hann var að
þvi spurður hvort hann ætti sér
önnur áhugamál en veðrið.
— Annars hef ég mikinn áhuga
á allskonar útilifi og er stundum
kallaður sportidiót vegna þess að
ég er upp um fjöll og firnindi
sumar og vetur, þegar ég á fri-
stundir. Ég hef alltaf haft áhuga á
náttúrufræði og valdi veðurfræð-
ina þar úr, þótt ég geti varla sagt,
að það sé orsakasamband á milli
þess og útivistaráráttu minnar.
— Hvaða starf annað heldurðu
að þú vildir stunda, annað en að
gera veðurspár?
— Eg hef nú litið hugleitt það,
en stundum hefur mér dottið i hug
að gerast bóndi i sveit.
— Hvernig leið þér þegar þú
sagðir veðurfregnir i fyrsta sinn i
sjónvarpinu?
— Mér leið ágætlega. Ég bjóst
alveg við að sleppa lifandi frá
þessu, en þó fannst mér dálitið
asnalegt að standa þarna og ein-
blina á öll þessi tæki. En þetta
venst eins og annað.
OKKAR A MILLI SAGT
Svipur Reykjavikur mun breytast við nýja miðbæinn austur af Hlið-
unum ... Þar mun m.a. risa á horni Miklubrautar og Kringlumýrar-
brautar Hús verslunarinnar, 13 hæða skýkljúfur, sem Verslunarbank-
inn mun eiga þriðjung i ... Arkitektarnir Ingimundur Sveinsson og
Einar Þorsteinn Asgeirsson eru að teikna húsið, og eru vonir um, að
það risi fyrir árslok 1977, að þvi er Þorvaldur Guðmundsson (i Sild og
fisk) sagði á aðalfundi bankans, en hann er þar stjórnarformaður.
Erlendir hagfræðingar hafa löngum sagt, að engin þjóð geti varðveitt
ómengað lýðræði við meira en 20% verðbólgu, eins og dæmin sanna,
t.d. i Suður-Ameriku og Grikklandi ... Skyldi tsland geta afsannað
þessa kenningu?
Það er þvi miður augljós togstreita milli stjórnarflokkanna f
landhelgismálinu og virðast Sjálfstæðismenn staðráðnir I að
eigna sér málið ... Heimsókn Geirs Hallgrimssonar til London
og viðræður hans við Harold Wilson og fleiri valdamenn án al-
varlegs sa mráðs við Framsóknarmenn var glöggt dæmi þessa ...
Þetta minnir á viðtöl ólafs Thors við Harold Macmillan á sinum
tima, sem sjáifstæðismenn notúðu til að halda fram, að ólafur
hefði leyst málið, en þáverandi utanríkisráðherra, Guðmundur
I. Guðmundsson, hvergi komið nærri ... Nú tekur Geir enn meir
af utanrikismálunum I sfnar hendur, er hann situr toppráðstefn-
una i Helsinki, meðan Einar Agústsson rabbar við Vestur-ls-
lendinga i Kanada.
TOGARAKAUPUM virðistsfður en svolokið í þessari umferð ... Þeir
siöustu, sem keypt hafa skuttogara I Noregi, eru Haraldur Böðvarsson
&Co.á Akranesi,en fyrirtækið hefur selt tvo af bátum sinum.
Enda þótt kirkjunnar menn deili hressilega um þessar mundir,
gleyma þeir ekki að ýta við rikisvaldinu, eins og þeir hafa gert öðru
hverju um langt árabil ... I siðasta Kirkjuriti segir m.a.: ,,A y'firstand-
andi Alþingi okkar brá svo við i fyrsta sinn sennilega i aldaraðir, að
enginn prestur átti sæti á Alþingi. Ef til vill er sú staðreynd spegilmynd
af minnkandi itökum kirkjunnar i þjóðlífinu.”
BSRB — Bandalag starfsmanna rikis og bæja — mun i haust gera
herferð með fundahöldum um land allt fyrir verkfallsrétti opinberra
starfsmanna ... Fjölmenn nefnd undir formennsku Agústs Guðmunds-
sonarundirbýr herferðina og hefur ráðið sér starfsmann, Loft Magnús-
son yfirkennara i Hafnarfirði.
ÖRVAR HEFUR ORÐIÐ^G
Hin hraða þróun
Portúgals til kommún-
isma er sem kennslubók i
stjórnmálum nútimans
fyrir Vestur-Evrópu-
menn. Frjálsar kosningar
hafa sýnt, að kommún-
istar hafa sáralitið fylgi,
en sámt leggja þeir — i
skjóli herforingjaklik-
unnar — undir sig fjöl-
miðla, stjórnardeildir,
fyrirtæki. Þeir eru að
koma á kommúnistisku
einræði, og fyrirlitning
þeirra á vilja þjóöarinnar
er augljós.
Það er athyglisvert að
fylgjast með þvi, hvernig
kommúnistaflokkar ann-
arra landa bregðast við
þessari þróun. Þar skiptir
i tvö horn.
Sovétrikin hafa stutt
kommúnista i Portúgal
og ráðist á andstæðinga
þeirra, meðal annars
jafnaðarmenn og foringja
þeirra Soares.
Hins vegar hafa komm-
únistar á Italiu og sp-
ánskir kommúnistar ekki
lýst stuðningi við starfs-
aðferðir flokksbræðra
sinna I Portúgal. Italskir
kommúnistar hafa unnið
kosningasigur og foringi
þeirra, Enrico Berling-
uer, lýsir yfir, að þeir séu
lýðræðissinnar, vilji fjöl-
flokkakerfi, og hann
hefur gagnrýnt flokkinn I
Portúgal. Foringi
spánskra kommúnista,
Santiago Carillo (sem býr
i útlegð I Parfs) tekur í
sama streng og segir, aö
aðferðir portúgalskra
kommúnista dugi ekki,
sósialisminn verði að
aðlaga sig lýðræði
Vestur-Evrópu.
Báðir þessir foringjar
og flokkar þeirra hugsa
til valdatöku án byltingar
og haga þvi seglum eftir
vindi. Það gerir Alþýðu-
bandalagið hér uppi á
tslandi einnig. Það þykist
vera lýðræðislegur
flokkur og afneitar bylt-
ingakommúnisma og ein-
ræði.
Samt hafa þau furðu-
legu tiðindi gerst, að
Þjóðviljinn tekur hvað
eftir annað málstað
portúgalskra kommún-
ista og ver gerðir þeirra.
Málgagn Alþýðubanda-
lagsins er sem sagt á
sovétlinunni, en ber ekki
við að taka undir afstöðu
Italskra og spánskra
kommúnista og gagnrýna
hið augljósa valdarán i
Portúgal.
Hér hefur orðið rugl-
ingur á linunni. Þjóð-
viljinn kemur til dyranna
eins og hann er klæddur
— kommúnistamálgagn,
sem styður valdarán
kommúnista gegn vilja
portúgölsku þjóðarinnar.
FIMM á förnum vegi
Hvernig líst þér á ástandið í Indlandi?
Sigurður Haraldsson, útgerðar-
maður: „Það horfir til bóta,
eftir aö búið er að taka afstöðu
og stjórnin er að ná tökum á
þessu ástandi. Það er eflaust
mjög heitt i kolunum þarna, og
stjórnin þarf að halda vel i
taumana.”
Eli Einarsson, glugga-
hreinsunarmaður: ,,Ég hef svo
litið fylgst með þessum málum,
en ég held að henni takist að
brjóta á bak aftur alla and-
stöðu.”
Helgi S. Helgason, nemi: „Mér
finnst það vera mjög slæmt.
Indira Ghandi segist vera að
koma i veg fyrir spillingu, en
gerir það með spillingu.”
Auðunn Bergsveinsson, raf-
virki: Ég hef voða litið hugsað
um það, maður þekkir þetta
ekki til að dæma um það. Ég er
nú ekki hrifin af aðferðum
hennar Indiru við að losna við
andstæðinga sina.”
Arni Jónsson, húsasmiður: ,,Ég
hef svo lítið fylgst með þvi, en
þetta er einræði, það liggur ljóst
fyrir, þegar Indira Ghandi lætur
fangelsa menn, fyrir að vera i
andstöðu við sig.”