Alþýðublaðið - 22.08.1975, Page 1
161. TBL. - 1975 - 56. ÁRG.
Melnic rauf
70 metra
múrinn
- íþróttir
bls. 9
FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST
Rltstjórn Siöumúla II - Simi 81866
Harðlína landbúnaðarins
- leiðari bls. 5
NEYTENDASÍÐA
í opnu blaðsins
/
Læknum skenktar
„láglaunabætur”
--GR UNDAR TANGI
RÁÐHERRA
RANNSAKAR
ÚTBOÐS-
MÁLIN
Nú hefur læknum við sjúkrahús
Reykjavikurborgar verið skenkt
sama launahækkun og fjármála-
ráðuneytið ákvarðaði læknum við
rikisspitalana i sumar, eða kr.
13.700 á mánaðarlaun og sam-
svarandi hækkun á eftirvinnu. Er
þetta samsvarandi launahækkun
og náðist á hinum almenna
vinnumarkaði i þremur áföng-
um, eða 3500 kr. i fyrrahaust, 4900
kr. I vetur og 5300 kr. i sumar.
Akvörðun fjármálaráðuneytis-
Slæmar horfur
hjá byggingar-
iðnaðarmönnum
Horfur eru á miklum samdrætti
i byggingariönaðinum I haust, og
eru þeir sem við hann starfa nú
mjög uggandi um sinn hag.
Benedikt Davlösson, formaður
Sambands byggingamanna
sagöi: „Astandið verður mjög
liklega slæmt 1 byggingariðnaðin-
um þegar llður á haustið, og horf-
ur þvi Iskyggilegar i atvinnumál-
um okkar. Húsbyggingar dragast
sifellt saman, svo að helst er að
likja við ástandið á árunum fyrir
1970. Þetta er versta skipulag
sem hægt er að hafa, þegar
skyndiiega er settur svona tappi I
allar framkvæmdir. Siöan má bú-
ast við, þegar ástandið lagast, að
þá verði sprenging og allir yfir-
bjóði hvern annan, en það veldur
aftur gifurlegri þenslu,” sagði
Benedikt.
ins um launahækkun til handa
læknum við rikisspitalana var
einhliða, ekki byggð á kjara-
samningum og að sögn Magnúsar
Öskarssonar, vinnumálafulltrúa
borgarinnar, er eftir að vita hvort
læknarnir samþykkja þessa af-
greiðslu mála, en þeir höföu látið
iljós, aðþeir vildu ekki semja um
svo litla launahækkun.
Eftir þessa hækkun eru föst
mánaðarlaun aðstoðarlækna við
sjúkrahús frá kr. 109.667 upp i kr.
136.424, en laun yfirlækna og sér-
fræðinga frá kr. 163.516 upp i kr.
181.493.
Tilhögun sú, sem viðhöfð var
við útboð I byggingu vinnubúöa
fyrir Járnblendifélagið, leiddi
til þess, að islensk byggingar-
fyrirtæki áttu þess ekki kost að
taka þátt i tilboðsgerð um það
verk, eins og Alþýöublaðiö hefur
skýrt frá.
i skrifum blaðsins hefur veriö
bent sérstaklega á allt of þröng-
an framkvæmdatima, þegar til-
lit er tekið til umfangs verksins
og hins gersamlega óaðgengi-
lega skamma tlma til áætlunar-
geröar og tilboösgerðar.
Alþýðublaðið sneri sér til
Gunnars Thoroddsen, iðnaðar-
ráðherra, og spurði hann, hvort
ráðuneyti hans hefði fjailað um
þessar hliðar málsins.
„Ég er að skoða þetta mál”,
sagði ráðherra, ,,og get ekki
sagt neitt annað um það fyrr en
þeirri skoðun er lengra komið”.
Skrif Alþýðublaösins um þetta
mál hefur að vonum vakiö
mikla athygli, þar sem vinna
við frumaöstöðu til fram-
kvæmda viö byggingu þessarar
stóriðju er fyrirfram þannig
boðin út, að islendingar koma
þar ekki til greina sem verktak-
ar, en eins og lesendur muna, er
hér i upphafi um að ræða bygg-
ingu vinnubúða og aðra frumað-
stöðu.
I fyrradag komu þeir Asgeir
Magnússon, framkvæmdastjóri
Járnblendifélagsins, og dr.
Gunnar Sigurðsson, stjórnar-
formaöur, erlendis frá úr viö-
ræðum um framkvæmdirnar.
i gær fór svo flugvél á vegum
iðnaðarráðuneytisins upp i
Hvalfjörö I gær meö sér-
fræðinga og meöal annars full-
trúa hins breska ráðgjafarfyrir-
tækis Parsons LTD, sem sá um
gerð útboðsgagna fyrir bygg-
ingu vinnubúöanna.
Er þess að vænta að öll með-
ferð þessa máls verði tekin til
rækilegrar endurskoðunar, sér-
staklega með hiiðsjón var yfir-
lýstri stefnu i þá átt, að is-
lendingar sitji að minnsta kosti
við sama borð og aörir i eöli-
legri þátttöku við framkvæmdir
sem áætlað er að kosti á annan
tug milljarða króna.
Hér er mikið I húfi, þvi að um
framhaldið er sennilegt, aö fari
nokkuð eftir þvi, versu til tekst
um upphafið.
Verðmerkingar í
alla búðarglugga
Deilt um verð-
lagsbætur
Almennur félagsfundur var I
gærkvöld haldinn hjá Flugfreyju-
félagi islands, þar sem félögum
var kynnt staðan I deilu þeirri,
sem nú stendur yfir, milli flug-
freyja og Flugleiða h.f.
Flugleiðir h.f. hafa sent Flug-
freyjufélaginu bréf, þar sem
félaginu er tilkynnt sú ákvörðun
flugfélaganna, að greiða ekki þær
verðlagsbætur á laun flugfreyja,
sem þær telja sig eiga rétt á, en i
viðtali við Alþýðublaðið i gær
sagöi Erla Hattlemark, formaður
Flugfreyjufélagsins, aðbréf þetta
breytti málinu ekkert, enda heföu
Flugleiðir visað deilunni til
félagsdóms, áöur en það tilkynnti
flugfreyjum ákvöröun sina form-
lega.
Hjá skrifstofu verðlagsstjóra er nú verið að undirbúa viðtæka herferð
til þess að koma á verðmerkingum I verslunum. Að sögn Péturs Björns
Péturssonar hjá verölagsstjóra er nú beðiö eftir gögnum úr prentun,
sem veröa send til kaupmanna út um allt land, en fyrirhugaö er, að
herferðin hefjist um næstu mánaðamót.
I lögum er heimild til handa verðlagsstjóra til þess aö krefjast þess,
að kaupmenn verðmerki allar vörur, sem þeir hafa á boöstólum, og að
sögn Péturs Björns hafa eftirlitsmenn embættisins, sem fara daglega i
verslanir, m.a. til að kanna þessi mál, orðið var við vissa tregðu hjá
sumum kaupmönnum til að verðmerkja. Þó sagði hann, aö i flestum
tilfellum séu verðmerkingarnar fullnægjandi.
,,En þetta er ails ekki gert tii þess að fullnægja dauðum lagabók-
staf”, sagði Pétur, og benti á að verðlagseftirlitið sé I rauninni i hönd-
um fólksins, starfsmenn verölagseftirlitsins séu allt of fáir til að þeir
geti annað þvi einir. Þeirra hlutverk er frekar að fylgja eftir kvörtun-
um, sem berasÞvegna verðlagsbrota.
Einn þátturinn I verðmerkingaherferðinni er einmitt að koma á
framfæri verðlistum með hámarksverði þvi á vörum og þjónustu, sem
verðlagsstjóri hefur samþykkt. „Hingað til hafa þessir verðlistar verið
mjög lltið kynntir og varla nokkrir séö þá aðrir en viö hérna”, sagöi
Pétur, og benti á, að mjög skynsamlegt sé fyrir fólk aö hafa slika lista
meðferðis til að fylgjast með þvi, að verðlagning sé rétt.
„Erum við annars flokks menn?!
VERKALÝÐS-
ihreyfingin:
FER AF STAÐ
Viö komum alveg
fcreiöanlega ekki til meö aö
'sætta okkur viö aö okkar
nenn njóti ekki sama
böbúnaðar og aörir starfs-
fmenn og þaö veröur ekki
liöiö, aö islenskir verka-
| menn veröi meöhöndlaöir
iriöja _
C3 Jafnvel salernin eru'ckki samcigínleg! ’
STÉTTASKIPTING)
Á GRUNDARTANGAC
MÓTTÖKUSKILYRÐI í HÁLOFTUNUM ÓVANALEGA GÓÐ
Erlendar útvarps- og sjónvarps-
stöðvar nást ágætlega
Búist er við, að Félagsdómur
taki deiluna til athugunar I næstu
viku.
Opnar í dag
t dag kl. 4 opnar i Laugardals-
höll Alþjóðlega vörusýningin,
sem þar mun standa til 7. septem-
bcr n.k. Fjöldamörg fyrirtæki og
stofnanir, erlend sem innlend,
sýna þar og kynna vörur sinar og
þjónustu, og veröur þeirra getið
nánar og Itarlega I Alþýðublaöinu
næstu daga.
„Það eru alveg einstaklega góð
móttökuskilyrði i háloftunum
núna, og i gærkvöldi náðust á
Austfjörðum mjög greinilegar út-
varpsstöövar I Finnlandi, Noregi,
Sviþjóð og Englandi á FM-
bylgju”, sagði Vilhelm
Sigurðsson, félagi I Farstöðva-
klúbbi Reykjavikur, þegar hann
hafði samband viö blaðið i gær.
Ennfremur sagðist Vilhelm hafa
náð i fyrrakvöld nokkrum erlend-
um sjónvarpsstöðvum á
skerminn hjá sér, þótt hann hafi
ekki við tækið annaö en venjulegt
inniloftnct.
Þessi sérstöku móttökuskilyrði
i háloftunum eru háðar ellefu ára
svciflum, sem standa i sambandi
viö sólgos. Um siðustu áramót
voru móttökuskilyrðin I lág-
marki, en eru nú aftur á uppleið.
Sagðist Vilhelm eiga von á, að
skilyrðin færu nú enn batnandi
næstu daga að minnsta kosti á
meðan þurrvirði helst, en hann
kvaðst hafa hevrt þá tilgátu, að
móttökuskilvrðin séu einmitt best
þegar þornar eftir langa vætutið.
Þá myndast vlxllög I loftinu og
stuttbylgjur ná að endurvarpast i
stað þess að fara beint út i geim-
inn.
Þá bcnti Vilhelm á, aö þcgar
tilkynnt sé i útvarpi eða
sjónvarpi, að erlendar stöðvar
trufli útsendingu, sé tilvalið að
leita að erlendum stöðvum I út-
varps- eða sjónvarpstækjum. Til
þess að bæta móttökuskilyrðin
má ennfremur setja viö tækin
sérstök loftnet eða magnara.