Alþýðublaðið - 22.08.1975, Side 4

Alþýðublaðið - 22.08.1975, Side 4
Níu daga friðarmessa í Englandi Nú stendur fyrir dyrum heljar mikil hátiö í Eng- landi, þar sem kjör- orðinGLEÐI, ÁST og FRIÐUR eiga að sameina þátttakendur í 9 daga sam- félagi. Staðurinn, sem val- inn hef ur verið til þessarar hátíðar er smáþorpið Watchfield í Englandi, sem aðeins hefur 280 íbúa. Gert er ráð fyrir að hátiðar- gestir muni verða um 20.000 tals- ins, mestmegnis unglingar eða eins og fólkið i Watchfield segir, hippalýður, sem á eftir að setja allt á annan endann i þessu frið- sama sveitaþorpi. Strax eftir að staðurinn hafði verið valinn tóku þorpsbúar sig til og mótmæltu harðlega, en þaö dugði ekki til og nú eru unglingarnir farnir að ALÞIÓÐLEG VðRUSÝNING 1975 INTERNATIOHAL FAIR =f= REYKJAVlK- ICELAND Landsmenn, litið inn hjá Jórunni I dag klukkan 6 opnum við Alþjóðlegu vöru- sýninguna Reykjavik '75 í Laugardalshöll. Þessi sýning er sú stærsta og f jölbreyttasta sem haldin hefur verið á (slandi frá upp- hafi vega. 610 framleiðendur sýna fram- leiðsluvörur 24 þjóða í 124 sýningardeildum á 8000 ferm. sýningarsvæði, i höllinni sjálfri, i tjaldskála og á útisvæði. Segir þetta ekki nokkuð um umfang sýningarinn- ar? Við treystum okkur ekki út i nánari upptalningu eða sundurgreiningu á vöru flokkum hér, en vekjum athygli á því að sjón er sögu rikari. NOKKUR ATRIOI TIL ATHUGUNAR! Vinningurinn i dag er 5 manna ævintýra- ferð um Breiðafjörð með Flugfélaginu Vængjum. Flogiðtil Stykkishólms, snæddur hádegisverður á veitingahúsinu Nonna og siðan4tima sigling um Breiðafjörð. Flogið til baka um kvöldið. Tiskusýningar: Tískusýningar með nýju sniði verða tvisvar á dag alla daga vikunnar (nema á sunnu- dögum). I kvöld sýna sýningarsamtökin Karon og Modelsamtökin kl. 8.45. Opnunartimi: Sýningin verður opin virka daga f rá kl. 3 til 10 og frá 1.30 til 10 um helgar. Svæðinu lok- að kl. 11. Gestahappdrætti: Frumlegt gestahappdrætti, þar sem ferða- vinningur verður dreginn út daglega, og aðalvinningurinn, 14 daga ferð fyrir tvo til Bangkok með Útsýn, verður dreginn út i lok sýningar. Verð aðgöngumiða: Verð aðgöngumiða á sýninguna er 350 krón- ur fyrir fullorðna og 100 krónur fyrir börn. Foreldrar athugið, að börnum innan 12 ára aldurs er óheimill aðgangur að sýningunni nema i fylgd með fullorðnum. streyma til þorpsins og hátiðin virðist ætla að fara af stað eins og áformað hafði verið. Um það bil 400 lögregluþjónar munu verða til taks á staðnum til þess að fylgjast með þvi að þessi hátið friöarins fari siðsamlega fram. t fyrra var samskonar hátið sett af stað i námunda við Wind- sor Kastala, skammt utan við heimili drottningar. Þetta var reyndar gert i óleyfi og voru þá 5600 lögregluþjónar sendir á vett- vang til þess að leysa upp sam- kunduna. Þarna urðu heljarmikl- ar ryskingar og slösuðust um 50 manns en um 200 voru settir undir lás og slá. Reynslan frá þvi i fyrra varð svo til þess að ráðamenn féllust á, að unglingarnir fengju að halda sina hátið i friði og án þess að angra hennar konunglegu hátign drottninguna. Þorpsbúar i Watchfield verða svo að biða og sjá hvað setur og treysta þvi, að hátiðargestir trufli ekki um of ró þeirra. En eins og haft var eftir einhverjum þorpsbúa, þá erum við allir dauðhræddir við af- leiðingarnar. Fyrsta alþjóðaráð- stefna galdramanna Um það bil 2000 fulltrúar frá flestum löndum heims munu sækja alþjóðlega ráðstefnu galdramanna, sem haldin verður i Bogota i Koíumbiu nú á sunnu- daginn. Upphafsmenn hugmyndarinnar eru þau Josefina del Villa, 30 ára skrifstofustúlka, sem að sjálf- sögðu er göldrótt, og yfirmaður hennar, hinn 49 ára gamli Simon Gonzalez, einnig rammgöldrótt- ur. Undirbúningur ráðstefnunnar hefur tekið þrjú ár, að sögn for- svarsmanna og þó að ýmsir haldi að hér sé um einskonar leikara- skap að ræða, þá fullyrða for- svarsmenn, að hér sé raunveru- lega um að ræða hávisindalega ráðstefnu, þar sem heimsfrægir visindamenn haldi erindi um para-sálarfræði og hin fjölmörgu afbrigðilegu fyrirbæri mannlifs- ins og sjötta skilningarvitið. A þessari ráðstefnu mæta einnig mikill fjöldi manna og kvenna, sem hafa yfir margvislegum dul- um eiginleikum að ráða, þ.á.m. hinu svonefnda ESP (Extra Sensory Perception). Ýmsir kirkjunnar menn hafa lýst andúö sinni á þessari ráð- stefnu en þó er talið að galdra- mennirnir og seiðkonur ráðstefn- unnar fái að vera i friði. í fréttatilkynningu frá Bogota segir að ráðstefnan sé haldin skammt frá stað nokkrum, þar sem galdramenn voru brenndir fyrr á öldum. Viðskiptasamband milli Bandaríkjanna og Kína Eftir að Kinverska alþýðulýð- veldið hlaut viðurkenningu Sam- einuðu þjóðanna hefur sambandið milli Kina og Bandarikjanna farið stöðugt batnandi. Nú hefur verið ákveðið að 12 manna sendi- nefnd frá Kina fari i heimsókn til Bandarikjanna til að kanna möguleika á viðskiptum af ýmsu tagi milli landanna. Aætlað er að sendinefndin fari til Bandarikj- anna i byrjun næsta mánaðar og dvelji i Bandarikjunum i 18 daga. Hópur bandariskra kaupsýslu- manna fór til Kina i svipuðum erindagerðum i nóvember 1973. F erðamannastraumur til Bandaríkjanna Ferðamannastraumur til Bandarikjanna jókst um 5.5 prósent i júnimánuði i ár frá þvi sem var i sama mánuði i fyrra. 1 þessum eina mánuði komu til Bandarikjanna rúmlega 53 þús- und Bretar, um 35 þúsund Þjóð- verjar og rúmlega 15 ,þúsund Frakkar, svo nokkuð sé nefnt. Samt sem áður voru það Japanir sem urðu fjölmennastir eða alls rúmlega 65 þúsund talsins i júni- mánuði einum saman. Danskur hljómsveit- arstjóri fórst Meðal þeirra 126 farþega, sem fórust með tékknesku flug vélinni, sem fórst á flugleiðinni Prag—Damaskus, var danski hljómsveitarstjórinn Erling Hoey, ásamt eiginkonu og syni. Erling Hoey var stjórnandi Philharmonisku hljómsveitarinn ár i Irak. UMBQDIO hf. Hefur til sölumeðferðar skuttogara frá einni þekktustu skipasmiðastöð i Noregi — til afhendingar 1976 Útgerðarmenn - skipstjórar Skuttogari SÖLUMÖGULEIKAR Á ELDRA SKIPI í ÞESSU SAMBANDI Upplýsingar á skrifstofunni Klapparstíg 29, 3. hæð, Sími 28450. Skipasmíðastöðin hefur kaupanda að fiskiskipi ca. 80-110 feta, ekki eidra en 7 ára o Föstudagur 22. ágúst 1975

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.