Alþýðublaðið - 22.08.1975, Page 6
NY FRAMHALDSSAGA
þegar hún lyfti hönd hans til að taka púlsinn. — Segðu mér
eitt i einlægni, sagði hann rólega. — Hvað hefur fengið
stúlku eins og þig til að leita uppi lif eins og þetta?
— Senhor, ég bið yður! Systir Teresa sleppti hendi hans
og tók fram hitamælinn.
Augu hans eltu hana er hún snerist um i stofunni, lagaði
til á náttborði hans, lagaði teppið og opnaði gluggann að-
eins meira. — Hvað ertu hrædd við? spurði hann þegar
hún sá sig tilneydda til að koma aftur að honum til að taka
hitamælinn — Spurningin var einföld, getur þú ekki gefið
einfalt svar?
— En það er ekki til neitt einfalt svar, senhor. Ég get
ekki sagt yður það sem ég ekki veit, senhor.En ég óskaði
þessa. Hún gekk hratt til dyra. — Constancia kemur með
kvöldmatinn.
— Ég er ekki svangur. Farðu ekki! Hann leit til hennar
biðjandi augum og hún roðnaði aftur.
— Ég verð að fara.
— Afhverju? Ertu hrædd við mig? Hann brosti litillega.
— Ég gæti þess vegna alveg eins verið kaþólskur prestur.
— Það hugsa ég ekki, senhor.
— Af hverju ekki?
Hún fitlaði óstyrk við slopp sinn. — Þér hegðið yður ekki
eins og „faðir”, senhor.Það er eitthvað i augunum yðar,
sem ég sé það á.
Grá augu hans horfðu glettnislega á hana. — Er það
vegna þess hvernig ég horfi á þig? Er það vegna þess að
mér finnst hressandi og nærandi að sjá þig?
— Senhor! Rödd hennar var nú skipandi, og hann kenndi
sektartilfinningar. Hann var farinn að nota þessa ungu,
saklausu konu til þess að losna undan hinum nagandi
hugsunum sinum, og það var ekki réttlátt, þegar hann tók
tillit til þess að hún gat ekki varið sig.
— 0, farðu bara, sagði hann. — Ég bið þig afsökunar.
Mér þykir leitt ef ég hef móðgað þig.
Systir Teresa þagði feimnislega, eins og hún vildi þó
hafa sagt eitthvað meira, en svo gekk hún út og lokaði
hljóðlega að baki sér.
Með snöggri hreyfingu svipti hann teppinu til hliðar,
settist upp og setti fæturna á kalt trégólfið. Hann stóð hægt
á fætur og beið þannig kyrr smástund þar til slátturinn i
höfði hans vegna hinnar óvæntu áreynslu hætti. Svo gekk
hann hægum skrefum að glugganum. útsýnið var dásam-
legt, og hann velti þvi fyrir sér hvað magasársveikur for-
stjóri myndi glaður greiða háa upphæð fyrir að fá að
slappa hér af á sjúkrahúsinu i nokkrar vikur I þessu dá-
samlega umhverfi.
Hann herpti munninn. Hvaðan vissi hann þetta. Var
hann hagvanur i heimi viðskiptalifsins, eða hafði hann
bara imyndað sér þetta? Hann ýtti höndunum á granna
magavöðvana. Nei, hann væri sannarlega ekki með
magasár, — ella hefði dr. Ramirez uppgötvað það. Rann-
sóknir hans voru það nákvæmar, að honum hefði aldrei
yfirsést slikt.
Hann andaði hreinu fjallaloftinu að sér djúpum sogum.
Sjúkrahúsið var reist i fjallshlið, og neðan við það var
brött hlið niður i dalinn. Neðst i dalnum rann á milli mosa-
vaxinna kletta. En áhrifamesta sýnin voru hinir snævi
þöktu fjallatindar. Hann undraðist hvernig nokkur maður
gæti komist lifs af úr flugslysi þarna uppi i þessum isuðu
fjallatindum, og honum hraus hugur við tilhugsuninni.
En nærgat að lita meira llf. Gamli maðurinn, sem vann
i hliðunum fyrir neðan, bjöllurnar um háls geitanna
klingdu i fersku morgunloftinu. Allt þetta virkaði svo ró-
andi á hann að hann slappaði af. Héðan gat hann séð
hversu einfalt lif þetta fólk sætti sig við og hann komst að
þeirri niðurstöðu, að öll lifsreynsla væri einhvers virði. Ef
til vill var það fáránlegt af honum að leita af svo mikilli á-
fergju eftir tengslunum við hiö fyrra lif, sem hlaut aö vera
úti I hinum striðandi heimi, þar sem allir voru þjakaöir af
pressu hinnar eilifu samkeppni.
Hann greip höndunum um höfuð sér þegar verkurinn
byrjaði aftur. Hann heyröi umgang fyrir utan dyrnar, og
hann bjóst við að þaö væri Constanca á leið til hans með
kvöldmatinn.
Hann hallaði sér aftur á bak I rúminu, og um leið
opnuðust dyrnar og fulloröin kona kom inn með matar-
borðið hans. Hun sletti I góm þegar hún varð þess áskynja
að hann hafði farið fram úr rúminu, talaði eitthvað
óskiljanlegt á sinni eigin tungu og hristi höfuðið þegar tá
hans kræktist I siðan náttserkinn. Óendanleg þreyta og
veikleikatilfinning gagntók hann og hann hné útkeyrður
niður I rúmið.
Constancia gekk raunamædd leiðar sinnar og hann glefs-
aði áhugalaus i matinn. Feitt kjötið á disknum vakti enga
lyst hjá honum, svo hann fletti utan af banana og beit I
hann.
Stuttu siðar opnuðust dyrnar, og það kom honum ekkert
á óvart aðsjá dr. Ramirez á þröskuldinum. Hann bjóst við
að Constancia hefði ekki þagað lengi yfir þvi að hann hafði
laumast úr rúminu. Ramirez gekk inn i stofuna hægum
skrefum og lokaði dyrunum að baki sér. — Þér verðið að
gera yður það ljóst, að það er yður sjálfum fyrir bestu að
halda yður i rúminu, senhor...
— Já,já,ég veitþað.Hannhreyfðihöndina órólega eftir
koddanum. — En mér leiðist, dr. Ramirez. Skiljið þér
það? Mér leiðist! Hvað hef ég verið hér lengi. Hve marea
daga? Þér gerið yður ekki grein fyrir þvi hve lengi ég er
búinn að liggja hérna. Hve dagarnir erulangir, — og é< hef
ekkert að lesa. Engan að tala við. Ég bara ligg hér og stari
upp i loftið.
— Það var óheppilegt að það skuli ekki finnast neinar
enskar bækur hér á bókasafninu. En ég vildi óska að þér
væruð ekki svona óþolinmóður. Yður fer dagbatnandi, og
nú er hitinn orðinn svo að segja enginn. Þér eruð að sjálf-
sögðu nokkuð lasburða ennþá, en ég myndi halda að á
morgun væri yður óhætt að setjast upp nokkurn tima og.
sitja við gluggann...
— Hvenær ætlar einhver að gera eitthvað I þvi að reyna
að komast að raun um hver ég er? Hann andvarpaði.
— Þaðer verið að rannsaka málið, senhor. Yfirvöldin...
— Ovtil fjárans með þau! Hann kreppti hnefana, en svo
rann honum jafnskjótt reiðin þegar höfuðverkurinn
ágerðist. O, þessi nagandi sársauki...
Ramirez beit i vörina. — Senhor, ef það er eitthvað, sem
ég gæti gert til að reyna að hressa upp á minni yðar, þá
myndi ég ekki sitja á þvi. En ég er ráðþrota. Það er
ekkert, hvergi sýnilegur neinn þrýstingur á heilann, engin
likamleg skýring sjáanleg, sem gæti valdið minnisleysinu,
og þess vegna ekkertsem mælir gegn þvi að á morgun eða
einhvern næstu daga komi það af sjálfu sér. En ég hef
orðið vitni að tilfellum sem þessu áður. Þegar likaminn er
farinn að hressast og ná sér að nýju, þá kemur minnið
aftur.
Hann hafði lokað augunum, en nú leit hann á lækninn og
sagði rólega: — Ég veit það. Fyrirgefið mér, ég veit að þér
gerið yðar besta.
Ramirez veifaði höndunum á dæmigerðan suðrænan
hátt. — Þér eigið ekki að biðja mig afsökunar, sagði hann.
— Ég veit nákvæmlega hvernig yður liður, en þér megið
bara ekkistigafram úr rúminu án leyfis. Þér gætuð dottið
l~”-----------------------------
I ,
Htvarp
Föstudagur
22. ágúst
a 7.00 IUorgunútvarp- Veðurfregnir
kl 7.00, 8.Í5 og 10.10. Fréttir kl.
7.30, 8.15 (og fosustugr. dagbl.)
9.00 og 10.00. Morgunbæn kl.
7.55. Morgunstund barnannakl.
8.45: Jóna Rúna Kvaran les
söguna „Alfinn álfakóng” eftir
1 Rothman (5). Tilkynningar kl.
8 9.30. Létt lög milli atriða.
Spjallaó við bændur kl. 10.05.
Morgunpopp kl. 10.25. Morgun-
tónlcikarkl. 11: Zemel-kórinn i
Lundúnum syngur Gyðinga-
lög/Homero Francesch leikur á
pianó „Variations serieuses’’
op. 54 eftir
Mendelssohn/Jascha Heifetz
og RCA Victor hljómsveitin
leika „Skoska fantasiu” op. 46
eftir Max Bruch.
S 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til-
i kynningar.
J 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Til-
kynningar.
i: 13.00 Við vinnuna. Tónleikar.
g 14.30 Miðdegissagan: ,,í Rauðár-
dalnum” cftir Jóhann Magnús
Bjarnason örn Eiðsson les
(18).
“ 15.00 Miðdegistónlcikar
15.45 Lesin dagskrá næstu viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15
Veðurfregnir).
a
g *m rnm wm mm ummmmammm
16.25 Popphorn
17.10 „Lifsmyndir frá liönum
tima” eftir Þórunni Elfu
Magnúsdóttur. Höfundur les
(4).
18.00 ,,Mig hendir aldrei neitty
stuttur umferöarþáttur i umsjá
Kára Jónassonar. Tónleikar.
Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál.Helgi J. Hall-
dórsson flytur þáttinn.
19.40 Húsnæöis- og byggingarmál
Ölafur Jensson sér um þáttinn.
20.00 Frá tónlistarhátiöinni íPrag
í vor. Pavel Stephan og
Smetana-kvartettinn leika
Pianókvintett i A-dúr op. 81
eftir Antonin Dvorák.
20.35 Vakningin á Egilsey-Séra
Kolbeinn Þorleifsson flytur
þriöja og siöasta erindi sitt.
21.05 Kórsöngur, Svend Saaby
kórinn syngur þjóölög frá ýms-
um löndum.
21.30 Útvarpssagan: ,,Og hann
sagöi ekki eitt einasta orö”
eftir Ileinrich BöllBöðvar Guð-
mundsson þýddi og les ásamt
Kristinu ólafsdóttur (5).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir íþróttir
22.40 Afangarv Tónlistarþáttur i
umsjá Ásmundar Jónssonar og
Guðna Rúnars Agnarssonar.
23.30 Fréttir i stuttu máli. Dag-
skrárlok.
Sjónvarp
FÖSTUDAGUR
22.ágústl975
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Dagskrá og auglýsingar.
20.35 Tökum lagið. Breskur
söngvaþáttur, þar sem söng-
sveitin „The Settlers” flvtur
iétt lög. Þýðandi Jóhanna Jó-
hannsdóttir.
21.00 1 Nýja-lslandi. Kvikmynd,
sem Sjónvarpið gerði i ná-
grenni Winnipeg-borgar sum-
arið 1967.1 myndinni eru meðal
annars viðtöl við nokkra Vest-
ur-íslendinga. Umsjónarmaður
Markús örn Antonsson. Fyrst á
dagskrá 29. des. 1967.
21.30 Skálkarnir. Breskur saka-
málamyndaflokkur. Chas.
Þýöandi Kristmann Eiðsson.
22.25 Dagskrárlok.
— Kokkurinn hefur lofað ókeypis miðdegis-
verði í fundarlaun fyrir sfíftönnina hans....
Brauð og go
FYLGIST MEÐ
VÖRUVERÐINU
Verðlagsstjóri sendir frá sér
auglýsingar um hámarksverð á
innlendum vörum og öðrum þeim
vörum, sem ekki fylgja daglegum
sveiflum á erlendu gengi og
heimsmarkaðsverði, jafnóðum og
verðlagsnefnd og rikisstjórnin
samþykkja verðhækkanir. En
auglýsingar þessar vilja fara
framhjá fólki, og er þvi nauðsyn-
legt að rifja upp gildandi há-
marksverð öðru hvoru til þess að
auðvelda neytendum að taka
sjálfir þátt i verðlagseftirlitinu —
þeim tilhagsbóta. A siðustu neyt-
endasiðu birtum við gildandi há-
marksverð á fiski, nýjum, hert-
um og söltuðum, og nú höldum við
áfram og birtum að þessu sinni
nýjasta verðið á brauðúm. Fólki
skal bent á að klippa út þessa
verðlista og geyma þá, jafnvel
taka þá með i innkaupaferðina, ef
einhver ágreiningur kemur upp
um verð.
Rúgbrauð, óseydd, 1500 gi
Franskbrauð, 500 gr.....
Heilhveitibrauð, 500 gr ..
Vinarbrauð, hvert stykki
Tvibökur, pr. kg.........
A öli og gosdrykkjum gi
á það áfallinn flutningsk
Maltöl, 1/3 liter flaska ...
Hvitöl, 1/3llterflaska ...
Sódavatn, 25 cl. flaska ...
Sódavatn, 19 cl. flaska ...
Sinalco, 25 cl. flaska...
Appelsin, 25 cl. flaska....
Appelsin, I9cl.flaska....
Grape fruit, 25 cl. flaska .
Grapefruit, 19cl.flaska .
Sitrón, 25cl. flaska....
Sitrón, 19cl.flaska.....
Ginger Ale, 25 cl. flaska..
Ginger Ale, 19 cl. flaska..
Hi-spot, 25 cl. flaska..
Hi-spot, 20 cl. flaska..
Tonic Water, 20 cl. flaska
Spur Cola, 30cl. flaska ...
Spur Cola, 25 cl. flaska...
Spur Cola, 17cl. flaska ...
Pepsi Cola, 25 cl. flaska .
Pepsi Cola, 19 cl. flaska .
Coca-cola, 30cl. flaska..
Coca-cola, 19cl.flaska..
Polo, 25 cl. flaska.....
Seven up, 20 cl. flaska ..
Mirinda, 25 cl. flaska ...
Walash, 25cl. flaska\ ...
Valash, 25cl. flaska, syki
Pommac, 25 cl. flaska ..
Fresca,30cl.flaska ....
Orange, 25cl.flaska, syk
iif
PLASTPOKAVERKSMiOJA
Slmar 82639 — 82655
Vatnagðröijm 6
Box 4064 — Raykjavfk
Ókeypis þ|ónusLa
Klokkaöar auglýsingar
erulesendum Alþýöublaösins
að kostnaöarlausu. Kynniö
ykkur L ES E N D AÞ JoN
USTUNA á blaösiðu 11. ö
Hafnarfjaröar Apótek
Afgreiðslutími:
Virka daga kl. 9-18.30
Laugardaga kl. 10-12.30.
Helgidaga kl. 11-12
Eftir lokun:
Upplýsingasimi 51600.
Birgir Thorberg
málarameistari simi 11463
Onnumst alla
málningarvinnu
— úti og inni —
gerum upp gömul húsgögn
Teppahreinsun
Hreinsum fíólfteppi og húsgögn I
heimahúsum og íy rirtækjum.
Krum meft nýjar vélar. Góft þjón-
usta. Vanir menn.
SIGFÚS BiRGIR
82296 40491