Alþýðublaðið - 22.08.1975, Side 8

Alþýðublaðið - 22.08.1975, Side 8
PELE: FIAR- FESTING ALDARINNAR Pelé — Edson Arantes do Nascimentox, eins og hann heitir fullu nafni — skrifaði undir samning við bandariska liðið Cos- mos i New York 10. júni s.l. Það hafði lengi verið i mikilli óvissu hvort hann myndi þiggja til- boð Cosmos, en 7. júni gerði hann ráðamönnum Cosmos ljóst að hann myndi ganga að þeim samningsdrögum, sem þá höfðu legið frammi. Hér á myndinni réttir Pelé blaðamanni áritaða Santos-skyrtu, en þessi blaðamaður hafði beðið í 24 tima eftir að fá svar frá Pelé hvort hann myndi leika knattspyrnu i Banda- rikjunum eða ekki. Á skyrtunni stendur skrifað: Vinur minn, þú vannst baráttuna um biðtímann. Aðfararnótt hins 3. október 1974, að islensk- um tima, hljóp brasi- liska knattspyrnustjarn- an Pelé grátandi með skyrtu númer tiu á lofti heiðurshring fyrir hróp- andi og klappandi tug- þúsundum áhorfenda. Hann hafði leikið sinn siðasta leik með Santos á Caldeira leikvellinum i borginni Santos i Brasi- liu, — þar sem hann hafði 18 árum áður, 15 ára gamall, hafið sinn frægðarferil ;sem knattspyrnustjarna. Nálægt 30.000 manns voru á áhorfendapöllum, og allir hrópuöu þeir einni röddu hiö sama og hrópaö var þegar hann lék sinn siöasta landsleik, viö Júgóslava 18. júli 1971, — Afram! Afram! En Pelé varö ekki haggaö. Ekki fyrr en tilboö New York félagsins Cosmos kom til sögunn- ar nú i vor. Pelé átti aö innleiöa knattspyrnu i Bandarikjunum, og hann er hæst borgaöi „trúboöi” sögunnar. Og þaöer ekki erfitt aö skilja af hverju Pelé ákvaö aö venda sinu kvæöi I kross ef maöur litur á máliö i samhengi meö tilboöinu sem hann fékk. Tilboöið var of hátt til aö hægt væri aö hafna þvi, og auglýsingagildi tilboðsins fyrir knattspyrnuiþróttina er óvé- fengjanlegt. Innifaliö i tilboöinu var ákvæöi um aö sex brasiliskir þjálfarar I ólympiugreinum fái kennslu i Bandarikjunum, og 50 munaöar- lausir strákar I Brasiliu fá ókeypis dvöl i knattspyrnuskóla Pelés. Eigendur knattspyrnuliös- ins Cosmos Warner Communications Inc., borga brúsann. Eflaust veröur þaö konungur knattspyrnunnar sjálfur, sem mest hagnast á þessu. Heildar- launagreiöslur til hans fyrir samninginn nema um 700 milljón- um króna, skattfrjálst. Að auki færhann 5% hlutabréfa I Cosmos, en þau eru metin á rúmar 70 mill- jónir króna. Og bjartsýnir Banda- rikjamenn reikna út að sú upphæö muni með velgengni liösins auk- ast upp I 120 milljónir króna eftir fimm ár. Hann heldur þeim tekjum, sem hann hefur af samningum, sem hann haföi þegar gert við Pepsi Cola fyrirtækiö og Puma skó- verksmiöjurnar. Hann fær ókeypis einbýlishús og allan uppi- haldskostnaö og einkaþotu til af- nota til allra feröa innan landsins sem utan. A móti fær Warner fyrirtækiö aö nota nafniö Pelé til allrar auglýsingastarfsemi. ,Pelé neitar þó aö auglýsa áfengi og tó- bak. Það hefur ekki alltaf verið f jár- málamaöurinn Pelé sem hefur átt jafn mikilli velgengni aö fagna og knattspyrnumaðurinn Pelé. og hann hefur oft sinnis fariö flatt á Laust starf Ritari óskast á skrifstofu vora hálfan dag- inn. Skriflegar umsóknir ásamt helstu upplýsingum skulu hafa borist eigi siðar en 10. september næstkomandi. Samband islenskra rafveitna Pósthólf 60, Reykjavik. Pelé I einum af sínum fyrstu leikjum með New York liðinu Cosmos gegn Washington Diplomats. Cosmos vann 9:2 aö 35.600 áhorfendum viöstöddum. Urðu risaupphæðir samningsins við Peié til að opna bandarískri knattspyrnu aðgang að sjónvarpinu — og þar með tryggja henni fastan sess í íþróttalífinu ? fjárfestingum. En þegar Pelé sagöi skömmu áöur en hann undirritaði samninginn, aö þaö væri útilokaö að hafna amerisku tilboöi, lágu til þess nokkrar ástæður. Þegar „trúboðinn” Pelé kemur til Bandarikjanna er hann ekki aö koma til lands sem engin kynni hefur haft af knattspyrnu. Eftir margra ára dýrt og mikiö starf er knattspyrna nú loks aö ná fótfestu þar. Stanslaus áróöur I skólunum þrátt fyrir mikla andstööu „base- ball” og körfuboltamanna, hefur haft sitt aö segja, og I dag er knattspyrna á atvinnumæli- kvaröa þriöja stærsta Iþrótta- greinin. í ár er keppt I fjórum deildum, 20 liö I hverri, um ger- völl Bandarikin. 1 fyrra voru þau fimmtán, þar áöur voru þau 11. Arið 1974 komu aö meöaltali 9000 áhorfendur á leikina, og I ár hefur aösóknin aukist, en I Evrópurlkjum hefur frekar dregið úr aösókn á leiki. Eigendur liöanna eru I öllum tilfellum vel stæö fyrirtæki eöa milljónamæringar, sem fengiö hafa áhuga á iþróttinni, og þaö tryggir góöa fjárhagsstööu liö- anna. I lögum bandariska Iþrótta- sambandsins er ákvæði sem segir aö I hverju liöi veröi að vera minnst fimm innfæddir Banda- rikjamenn. Þetta ákvæöi var sett vegna reynslu fyrri ára, þegar keyptir voru einvöröungu út- lendingar til liöanna. En þaö sem úrslitum ræöur verður sjónvarpiö. Til þessa hef- ur sjónvarpiö ekki viljaö sýna leiki, þar sem mörk geta oröiö hvenær sem er, og þá jafnvel meðan verið er aö sýna aug- lýsingar, þvl I sjónvarpi þar I landi er auglýsingum skotiö inn i miöja þætti. I fyrra var aöeins úr- slitaleikurinn sýndur I sjónvarpi, en nú hefur CBS ákveöið að sýna marga 1. deildar leiki. Fjárfestingin I Pelé hefur máske veriö fyrst og fremst til- raun til að fá sjónvarpiö til að sýna knattspyrnu, — og eins og allt útlit er fyrir viröist þaö ætla aö rætast. Og þá var líka þessum hundruöum milljóna vel varið, — og sé ráöning Pelés litin I því samhengi, þá er það skiljanlegt af hverju forráðamenn Cosmos, sem lagt hafa áöur hundruðir milljóna I fjárfestingar I knattspyrnu I Bandarikjunum, hafa fengið til liös viö sig hetjuna, sem síöastliöin 18 ár hefur leikið 1253 leiki meö Santos, og hefur i leikjum meb Santos og brasillska landsliöinu skoraö alls 1216 mörk — og óteljandi fyrirgjafir sem uröu aö marki. Þá er þetta ef til vill fjárfesting aldarinnar. FlA\ Ferðafélag islands Laugardag 23. ágúst, kl. 13.30. Hellaskoðun i Bláfjöllum. Verö kr. 600,- Leiðbeinandi: Einar Ólafsson. Brottfararstaöur Umferöarmið- stööin. Ferðafélag Islands. icodren - rörin eru komin (10 cm) verð með söluskatti kr. 362.—metrinn. Einnig lcotex-gólfteppi i sérstökum gæðaflokki til afgreiðslu úr Tollvörugeymslu. Verð frá kr. 982,—ferm. Siðumúla 8, Sími 85350. o Föstudagur 22. ágúst 1975

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.