Alþýðublaðið - 22.08.1975, Page 9

Alþýðublaðið - 22.08.1975, Page 9
íþróttir Bobby Charlton..... hætti hjá Preston i gær. Charlton hættir hjá Preston - eftir ákvörðun félagsins að selja aðal markaskorara liðsins t gær sagöi Bobby Charlton af sér sem framkvæmdarstjóri hjá enska 3. deildarliöinu Preston North End eftir deilur viö stjórnarformenn liðsins. Stjórnin vildi setja markskor- arann Mike Elwiss á sölulistann vegna slæms fjárhags, en Charlton sagöi nei. t gær var svo samþykkt á stjórnafundi aö Elwiss skyldi settur á sölulistann — og Bobby var þá fljótur að segja af sér. Charlton réöst til Preston fyrir þrem árum og var liöiö þá í 2. deild. I fyrstu gekk vel, en þegar að liöa tók á keppnistimabiliö fór aö halla undan fæti og aö lokum féll liöiö i 3. deild. 1 fyrra tók Charlton fram skóna og byrjaði aö leika meö liöinu, en þrátt fyrir þaö gekk ekki of vel og liöinu tókst ekki aö vinna sæti sitt i 2. deild aö nýju. Það má þvi segja aö ákvöröun stjórnarfundarins sé einskonar vantraust á störf Bobby Charltons hjá félaginu. Knattspyrnu- sýning hjá Benfica — og heimamenn komu ekki við boltann langtímum saman Portúgalska kanttspyrnuliöiö Benfica er um þessar mundir i keppnisferö I Astraliu. 1 gær- kvöldi lék liðiö sinn fyrsta leik i feröinni viö Victoria á Olympiu- leikvanginum i Meibourn. Leiknum lauk meö öruggum sigri Benfica 2:0 og segja tölurn- ar lítið um gang leiksins. Portúgalirnir sýndu algjöra yfir- buröi i leiknum og var þaö aðeins frábærri markvörslu markmanns Victoria að þakka að mörkin urðu ekki miklu fleiri. Astrali- mennirnir voru aðeins áhorf- endur að leiknum langtimum saman og komust ekki með tærnar þar sem Portúgalirnir höfðu hælana i knattleikni. Föstudagur 22. ágúst 1975 Umsjón: Björn Blöndal Melnik rauf 70 metra múrinn á móti í Zurich Góður árangur í mörgum greinum - sérstaklega í spretthlaupunum Faina Felnik frá Sovétrikjunum setti heimsmet i kringlukasti kvenna á alþjóöamóti I frjáls- iþróttum sem fram fór i Zurich, Sviss á miövikudagskvöldiö. Þá kastaöi hún kringlunni 70.20 m og bættieldra met sitt sem var 69.90 m — um 30 sentimetra. Er hún fyrsta konan i heiminum sem rýfur 70 m múrinn. Mjög góður árangur náöist I mörgum greinum á mótinu og má þar nefna 100 m hlaup karla og 220 yarda hlaup kvenna. í kvenna hlaupinu varö Renate Stecher frá Austur-Þýskalandi fyrst á nýju Evrópumeti — 22.70 sek, en fyrri methafinn Irena Szewinska frá Póllandi varö önnur — fékk timann 22.87 sek. Eldra met hennar var 22.8 sek. Mikið fjör var i 100 m hlaupi karla, enda saman komnir allir bestu spretthlauparar heims. Mikil taugaspenna rikti I byrjun — þrjú þjófstört, þar af átti Heinz Busche V-Þýskalandi tvö og var dæmdur úr leik. Fyrstur I hlaupinu varö Steve Riddick USA á 10.05 sek sem er besti timi sem náöst hefur I ár. Annar varö Steve Williams USA á 10.08 sek, þriöji Valery Borsov Rússlandi 10.16 sek, fjóröi Pietro Nennea Italiu á 10.23 sek, fjóröi James Gilkes Gana á 10.43 sek og fjóröi Jean-Marc Wyss Sviss á 10.49 sek. Of mikill meövindur var i hlaupinu. I 200 m hlaupinu hefndi Steve Williams fyrir sig og sigraði örugglega — fékk timann 20.24 sek. Riddick varö annar á 20.31 og Gilkes þriöji á 20.42 sek. Siðastur varð Karl Honz frá Vestur-Þýska landi fékk timann 21.68 sek. John Walker Nýja-Sjálandi olli nokkrum vonbrigöum I 1500 m hlaupinu — hann var sýnilega þreyttur eftir hlaupiö i Stokkhólmi daginn áöur — tók lif- inu rólega og lét sér nægja annaö sætiö. Fyrstu varö landi hans Rod Dixon á 3:40.37 sek, en timi Walkers var 3:40.60 sek. Bretum gekk vel i 400 m hlaup- unum, I grindahlaupinu varö Allan Pascoe fyrstur á 48.69 sek, en Jim Bolding USA varð ann ar á 49.48 sek. I 400 m hlaupinu tókst engum að ógna David Jenkins sem sigraði örugglega. önnur helstu úrslit I keppninni uröu þessi: Hástökk Dwigth Stones 2.23 m annar varð Grigor iev Sovétrikjunum með 2.17 m. Stangarstökkið sigraöi Casey Carrigan USA stökk 5.30 m og 5000 m vann landi hans Frank Shorter á 13.33.00 sek. Kike Boit frá Kenya var öruggur sigur- vegari I 800 m hlaupi — hljóp á mjög góöum tima — 1:43.79 sek. í sleggjukastinu bar þaö helst til tíöinda aö nýi heimsmethafinn Walter Scmidt varö aö sætta sig viö annaö sætið, kastaöi 74.36 m — fyrstu varð Jochen Sachse frá Austur-Þýskalandi — kastaöi 76.40 m. Steve Williams til vinstri og Don Quarrie frá Jamaica hafa margar hildir háð i sumar. t vor var Jamaica maöurinn sterkari, en að undan- förnu hefur Williams haft vinninginn. Þeir voru meöal keppenda i 200 m hlaupinu.Williams varð fyrstur, en Quarrie varð aö sætta sig við fimmta sætið — hljóp á 20.51 sek. Úrslitaleikurinn í 2. deild í kvöld Þá keppa í Kópavoginum Breiðablik og Þróttur Úrslitaleikurinn i 2. deild i knattspyrnu verður leikinn á grasvellinum i Kópavogi I kvöld. Þá keppa Breiðablik og Þróttur og það liö sem fer meö sigur má teljast öruggt aðhljóta efsta sætiö i 2. deild. Breiöabliksmenn eru efstir þegar tvær umferöir eru eftir með 22 stig og eiga þeir eftir að leika viö Þrótt og Selfoss. Þróttarar eru með einu stigi minna, 21 stig og eiga þeir eftir að leika viö Vikinga ólafsvik fyrir utan leikinn gegn Blikunum i kvöld. Takist Blikunum aö sigra i kvöld, þá leika þeir i 1. deild á næsta ári, en sigri Þróttarar þá vinna þeir 1. deildarsætiö. Það liö sem tapar i kvöld á samt möguleika á að vinna sæti i 1. deild, þvi búið er að ákveða að fjölga liöinum i 1. og 2. deild um eitt og veröur það þvi hlutskipti liðsins sem verður i öðru sæti aö leika viö neösta liöið i 1. deild. Leikurinn hefst kl. 19.30. ÞRÍR KEPPA Á NM UNG- LINGA í FJÖLÞRAUTUM f Finnlandi 30. og 31. ágúst Stjórn Frjálsiþróttasambands- ins hefur valið þrjá keppendur til aö taka þátt I unglingameistara- móti Norðurlanda i fjölþrautum sem fram á að fara i Borgaa i Finnlandi dagana 30. og 31. ágúst n.k. Þaö eru Erna Guömundsdóttir KR sem mun keppa I eldri stúlkna flokki, Jón S. Þóröarson IR, sem keppir i eldri piltaflokki. og Þráin Hafsteinsson HSK, sem keppir i yngri piltaflokki. 4 Erna Guðmundsdóttir KR.... veröur meðal keppanda i Finnlandi. E Þátttakendurnir og félög þeirra verða aö mestu aö greiöa kostnaö feröarinnar, en FRI mun styrkja feröina aö einhverju leyti. Fararstjóri þremenninganna veröur Magnús Jakobsson. Jafntefli hjá Juventus og landsliðs Rúmenna Itölsku meistararnir Juventus léku i gærkvöldi vin- áttuleik við knattspyrnulands- liö Rúmena. Jafntefli varð 2:2 og I hálfleik var lika jafnt 1: i. Rúmenarnir tóku forystuna strax á 11. minútu, meö marki Msandu, en Causio jafnaði fyrir Juventus á 33. mínútu. Rúmenarnir náðu svo aftur forystunni á 72 mínútu, með marki Georgescu, en Italirnir voru fljótir aö svara fyrir sig — og Altafini jafnaöi aöeins tveim minútum seinna.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.