Alþýðublaðið - 23.09.1975, Side 8
Verða þeir lið nr. 2
frá íslandi sem
kemst í 2. umferð
Evrópukeppni
í steikjandi hita — yfir 30 stig á
Celsius — og á sólþurrkuðum og
grjóthörðum velli. Þrátt fyrir
þessar aðstæður voru það
tslendingarnir sem höfðu töglin
og hagldirnar i fyrri hálfleik og
skoruðu þá eitt mark sem fyrir-
liðinn Jón Alfreðsson gerði með
skalla um miðjan fyrri hálfleik. t
siðari hálfleik náðu svo Kýpur-
leikmennirnir fljótlega að jafna
og komust siðan yfir. 2:1, sem
urðu úrslit leiksins. Segja má að
þessi úrslit séu mjög hagstæð
Akurnesingum og ætti þeim ekki
að verða skotaskuld úr því að
vinna Omonia-liðið á erfiðum og
hálum Laugardalsvellinum á
sunnudaginn enda gestirnir jafn-
vel óvanari slikum aðstæðum
heldur en Skagamenn sólþurrk-
uðum velli.
tslandsmeistararnir- frá
Akranesi eiga nú góða möguleika
i að komast i 2. umferð Evrópu-
keppni meistaraliða, eftir að þeir
töpuðu fyrir Kýpurliðinu Omonia
Nikosia 2:1 i Nikosiu á sunnu-
daginn. Þeir eiga eftir seinni
leikinn á Laugardalsvellinum — á
sunnudag — og nægir þá að sigra
1:0 þar sem mark á útivelli gildir
tvöfalt ef liöin verða jöfn að
markatölu. Ef Akurnesingar
vinna þann leik þannig að þeir
komist i 2. umferð verða þeir
annað liðið i islenskri knatt-
spyrnu sem ekki hefur verið
slegið út þegar i 1. umferð, áður
hafði Knattspyrnufélagið Valur
komist i 2. umferð er þeir slóu út
lið frá Luxemburg árið 1967. Þeir
leikir enduðu 1:1 og 3:3, en þar
sem Valur hafði gert fleiri mörk á
útivelli komust þeir áfram.
Leikur Omonia og Skagamanna
á sunnudaginn var leikinn við
aðstæður sem voru mjög
óhagstæð fyrir 1A.
Verður Saunders
ráðinn þjálfari K.S.I.?
Eins og fram hefur komið i
fréttum þá hyggst Knattspyrnu-
samband Islands ráða fastan
þjálfara á næsta keppnistimabili.
Störf þess þjálfara sem ráðinn
verður er að þjálfa islenska
landsliðið og auk þess að vera
með ýmiskonar námskeið fyrir
unglingaþjálfara og þjálfara utan
af landsbyggðinni. Það hefur
heyrst að KSl hyggist ráða eða
bjóða Vikingsþjálfaranum siðast-
liðin tvö ár, Antony Sanders,
þetta starf.
Reykjavíkurmótið hófst
með sieri KR-inga
Or leik Fram og KR á fyrsta
keppnisdegi Reykjavikur-
mótsins i handknattleik á þessu
timabili. Hér er það landliðs-
maðurinn Pétur Jóhannsson i
Fram, sem nær ekki að stöðva
Símon Unndórsson KR.
Sex leikir voru leiknir i Reykja-
vikurmótinu i handknattleik sem
hófst um helgina, i meistaraflokki
karla. Eins og i fyrra er félögun-
um skipt i 2 riðla og eru 5 félög i
A-riðli og 4 i B-riðli. 1 A-riðli eru
Fram — 1R — Ármann — KR og
Leiknir. 1 B-riðli eru Valur — Vik-
ingur — Þróttur og Fylkir.
A laugardaginn léku Fram og
KR og Þröttur — Fylkir. öllum á
óvart sigraði KR Fram með 18
mörkum gegn 16. Fram var yfir
nær allanleikinn þangað til undir
■lokin að KR jafnaði og komst
siðan 2 mörkum yfir þegar flaut-
að var til leiksloka. Hilmar
Bjömsson, þjálfari Vals — var
atkvæðamestur hjá KR-ingum en
Pálmi Pálmason var bestur hjá
Fram. Munaði mestu markvarsl-
an i þessum leik en hún var mjög
léleg hjá Fram.
Siðan léku Þróttur og Fylkir og
sigruðu Þróttarar örugglega i
þeim leik, 22-14. Vinstrihandar-
maðurinn i liði Þróttar, Friðrik
Friðriksson, gerði 13 mörk i þeim
leik.
Eftir hádegi á sunnudag léku
svo 1R og Ármann og Vikingur og
Fylkir. Leikur ÍR og Armanns
var jafn og skemmtilegur og lauk
með jafntefli 17-17. 1R var oftast
yfir en þegar nokkrar minútur
voru til leiksloka jöfnuðu Ár-
menningar 15-15. Siðan gerði
hvort liðið 2 mörk — Pétur
Ingólfsson bæði fyrir Armann og
Sigurður Svavarsson bæði fyrir
1R — og lauk leiknum þvi' með
jafntefli, 17-17, eins og fyrr segir.
Strax á eftir léku svo Vikingur
og Fylkir og sigruðu Vikingar
með yfirburðum, 28-11.
A sunnudagskvöldið léku svo
Fram og Leiknir og var sá leikur
mjög ójafn, þvi Framliðið ger-
sigraði hýliðana Leikni 36-13.
Eftir Fram — Leikni lék svo
Valur og Þróttur. Var beðið með
nokkurri eftirvæntingu eftir þess-
um leik, þar sem álitið var að
Þróttarar með þjálfarann sinn,
Bjarna Jónsson, i broddi fylking-
ar myndu veita Valsmönnum
harða keppni. Svo reyndist þó
ekki vera þvi Valur sigraði nokk-
uð auðveldlega 26-20.
Reykjavikurmótið heldur svo
áfram i kvöld og leika þá KR —
Leiknir og Valur — Fylkir.
Aiþýðublaðið
Dundee mættir með
sitt sterkasta lið
1 kvöld kl. 6 hefst leikur Kefl-
vikinga og Dundee United i
U.E.F.A. bikarkeppninni á gras-
vellinum i Keflavik. Dundee-liðið
var væntanlegt til landsins i gær-
kveldi með allt sitt sterkasta lið
og er ekki nokkur vafi á þvi að
leikurinn i kvöld verður mjög
spennandi. Fróðir menn telja að
l.B.K. eigi all góða möguleika á
að sigra i þessum leik gegn at-
vinnumönnunum þótt það dugi
kannski ekki til að komast áfram
I 2. umferð, en allt getur þó skeð
og Suðurnesjamennirnir frægir
fyrir baráttu og leikgleði. l.B.K.
liðið verður skipað nær sömu leik-
mönnum og léku gegn l.A. i bik-
arkeppninni á dögunum. Dundee-
liðið hefur marga góða knatt-
spymumenn innan sinna vébanda
t.d. Dave Narey, Andy Grey og
Graham Pint, en þrír leikmenn
eru að styrkleika á við bestu leik-
menn Skotlands. Það verður þvi
gaman að sjá hvernig Keflviking-
um tekst upp á móti þessum snill-
ingum.
Miðasala hefur gengfð mjög vel
hjá Keflvikingum, og er búist við
fjölmenni. 1 Reykjavfk er miða-
sala fyrir utan útvegsbankann og
verður hún opin i dag frá kl. 13 til
16ogeru menn hvattir til þess að
tryggja sér miða i tima.
Seinni leikur liðanna verður svo
i Dundee þriðjudaginn 30. sept-
ember. Keflvikingar efna til hóp-
ferðar á þann leik og hefur al-
menningur sýnt henni mikinn á-
huga. Farið verður frá Reykjavik
mánudaginn 29. sept. til Skot-
lands. Strax um morguninn eftir
leikinn, eða nánar tiltekið, 1. okt.
verður flogið til London. Þá um
kvöldið verður leikur West Ham
og finnsku bikarmeistaranna
Reipas i Evrópukeppni bikarhafa
á Upton Park. Dvalið verður i
London til mánudagsins 6. okt. en
þá verður haldið aftur heim. Það
verður þvi dvalið i London eina
helgi og gefst þá mönnum kostur
á að sjá annað hvort leik Arsenal
Hér sést Dave Narey einn af hinum mörgu efnilegu knattspyrnu-
mönnum hjá Dundee United. Hann er ávöxtur góðrar unglingastarf-
semi United liðsins, en liðið er frægt fyrir hana. Keflvfkingar veröa að
gæta þess 1 kvöld að Narey leiki ekki of lausum hala á miðjunni.
Manchester City eða West Ham
og Everton. Ferð þessi kostar
35.000 með flugfargjöldum hótei-
gistingu og vagnferðum. Sunna
sér um hópferðina fyrir Keflvik-
ingana.
Binda vonir við
Einar Magnússon
„Við spilum upp á að hreppa 2.
sætið i Norðurdeildinni og
komast þannig i 4 liða úrslit”,
sagði Huber Meier þjálfari
Hamburg SV, þegar hann var
spurður um möguleika
Hamburg — liðið sem Einar
Magnússon leikur með — i
Norður-deildinni á föstudaginn.
Meier hélt áfram, „við höfum
styrkt lið okkar mikið siðan f
fyrra og bindum miklar vonir
við Islendinginn Einar
Magnússon sem hefur leikið 65
landsleiki fyrir Island” sagði
þjálfari Hamburg Sv. að lokum.
A þessu viðtali má vita að þjálf-
aranum þykir mikið til Einars
koma, enda sannaði hann það
með þvi að skora 7 mörk gegn
Gummersbach á laugardaginn,
en Hamburg tapaði leiknum
25:18. Huber Meier býst þvi við
að Hamb. verði í 2. sæti á eftir
Gummersbach, en eins og menn
vita þá hefur það lið verið i sér-
styrkleika i Þýskalandi i nokkur
ár, en ofar en félag Axels og
Ólafs Dankersen.
Það nýjasta frá ÞÝSKALANDI
Mönchengladbach vann 4:1 og
komst þar með á toppinn
Borussia Mönchengladbach tók aftur forystuna I
v-þýsku Bundsliga á laugardaginn er þeir sigruðu
erkifjendurna Bayern Miinchen á heimavelli 4:1.
Lið Berti Vogts — sá sem lék Cryuff svo grátt i
úrsiitaieik heimsmeistarakeppninnar — átti mjög
góðan Icik og verða að sögn þýskra iþróttafrétta-
ritara illstöðvandi i vetur. Þeir hafa hlotið 12 stig en
tiðið sem var i fyrsta sæti fyrir umferðina á laugar-
daginn Eintracht Brunswick tapaði illa á útivelli
fyrir Schalke 04 1:5, en er samt I öðru sæti með 11
stig. Annars urðu úrslitin I Þýskalandi þessi:
Bor. Moenchengl. — Bayern Munchen 4-1
Kickers Offenbach — Herta Berlin 2-1
Ilannover — Eintracht Frankfurt 3-2
Schalke 04 — Eintracht Brunswich 5-1
Fortuna Dusseldorf — Karlsruhe 0-2
HamborgSV — Rot—Weiss Essen 4-1
Bayer Uerdingen — Werder Bremen 2-1
l.fcKöIn — Duisburg 3-2
Kaisersleutern—Bochum 2-1
Geta fengið
Enska knattspyrnusambandið
hefur ákveðið að landsliðs-
mennirnir fái 2.000 punda
þóknun ef þeir komist i 8. liða
úrslit Evrópukeppni lands-
allt að
liða. England á eftir tvo leiki i
sinum riðli gegn Tékkum og
Portúgölum, báða á útivelli^svo
róðurinn verður erfiður þótt svo
að þeir séu efstir eins og stendur.
þóknun
Ennfremur hefur sambandið
ákveðið að þeir fái 1.000 pund
fyrir hvern unninn leik i úrslitum,
ef þeir komast i þau.
5.000E
Þriöjudagur 23. september 1975