Alþýðublaðið - 01.10.1975, Síða 6

Alþýðublaðið - 01.10.1975, Síða 6
Ungt norskt hljómlist- arfólk í íslandsferð í sjónvarpinu i kvöld klukkan 22.05 fáum við að heyra og sjá norsk-islenzka unglingahljómsveit á hljómleikum i Háskólabiói. Þetta var hundrað manna hljómsveit skipuð að megin- hluta til af Norðmönnum, en 12-15 islenskir hljómlistar- menn voru i hljómsveitinni. Leikin voru verk eftir Herbert H. Ágústsson, Egil Hovman og Mozart. Hljóm- sveitarstjóri á þessum hljómleikum var Karsten Andersen. Alþýðublaðið hafði sam- band við Gisla Magnússon, sem lék einleik á pianó á þessum hljómleikum. „Norsku ungmennin, sem þessa hljómsveit skipuðu, eru ungt hæfileikafólk alls staðar að úr Noregi. Þetta er hljómsveit, sem kemur saman einu sinni á ári og æfir i hálfan mánuð og spilar siðan opinberlega i nokkur skipti. Hljómsveitin var styrkt til Islandsferðar, og i þvi tilefni fóru 12-15 ungir islenskir hljómlistar- menn utan og æfðu með hljómsveitinni. Hljómsveit- in fór hér viða um land og lék á fjölda staða.” Um hljómleikahald i Háskólabiói sagði Gisli: ,,Ég lék þarna einleik i pianókonsert eftir Mozart, C dúr K-467. Mjög gaman var að leika með hljómsveitinni, og var samkomulagið við stjórnandann, Karsten Andersen, og hljómsveitina mjög gott. Hljómsveitin spilaði vel, og ég hef heyrt upptöku þá, er sjónvarpið tók af hljómleikunum. Tel ég að upptaka sjónvarpsins hafi tekist framar vonum.” Unnendur klassiskrar tónlistar mega þvi eiga von á góðri skemmtun fyrir framan skjáinn i kvöld, klukkan 22.05. Aðstaða og vald einstakra hópa Þátturinn ,,í sjónmáli” er á dagskrá útvarpsins kl. 19.35 i kvöld,” og sagði ann- ar stjórnenda þáttarins, Skafti Harðarson, að við- fangsefnið væri hagsmuna- hópar. Fjallað er almennt um efnið og siðan tekin til með- ferðar aöstaða og vald einstakra hópa, bæði þeirra, sem hafa orðið ofaná og hinna, sem halloka hafa far- ið. í þættinum mun Hannes Gissurarson skilgreina orð- ið og fjalla um valdið, sem hagsmunahópar hafa eða geta haft. Brynjólfur Bjarnason mun ræða upp- byggingu hópanna og tengsl innan þeirra og Margrét Auðunsdóttir mun ræða um stöðu þessara hópa með til- liti til þess að þeir starfa i lýðræðisþjóðfélagi. Sem dæmi um hagsmuna- hópa má nefna verkalýðs- hreyfinguna, stjórnmála- flokka, neytendasamtök o.s.frv. Þá er leitað álits almenn- ings á hagsmunahópum og ýmsu, sem þá varðar. Þetta er gert með þvi að fara út á götu og spyrja fólk. í heild sagðist Skafti vera ánægður með, hvernig til tókst með vinnslu þáttarins, en hverjum manni væri það Ijóst að þáttur, sem ekki er lengri en 25 minútur i flutn- ingi getur ekki tekið málin til það ítarlegrar rannsókn- ar, að um sé að ræða nákvæma úttekt á stöðu hagsmunahópa, en auðvitað koma i ljós þær tilhneiging- ar sem ráða ferðinni. Þá er þeirri spurningu varpað fram, hvort vald einstakra hópa er ekki of mikið og hvort ekki sé rétt að reyna að styðja við bakið á þeim hópum, Hnstins flif PLASTPOKAVE RKSMIO JA Sfnw 82439—82455 V®tn*göfðun 6 Box 4064 - R«yfcjavfk Pípulagnir Tökum aö okkur alla pípulagningavinnu Oddur Möller löggiltur pipulagningameistari. Hafnarljaröar Apótek Afgreiðslutimi: Virka daga kl. 9-18.3Ö 'Laugardaga kl. 10-12.30. Helgidaga kl. 11-12 Eftir lokun: Upplýsingasími 51600. Útvarp 7.00 Morgunútvarp 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til- kynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Til- kynningar. 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: „Dagbók Þeódórakis” Málfriður Einars- dóttir þýddi. Nanna ölafsdóttir les (21). Einnig flutt tónlist eft- ir Þeódórakis. 15.00 MiðdegistónleikarRaymond Lewenthal leikur tvö pianóverk eftir Alkan, „Le festin d’Esope” op. 39 nr. 12 og Bar- carolleop. 65 nr. 6. Trieste-trió- ið leikur Trió i a-moll fyrir pianó, fiðlu og selló eftir Ravel. Daniil Shafran og Rússneska útvarpshljómsveitin leika Sellókonsert eftir Kabalevsky; höfundur stjórnar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.25 Popphorn 17.00 Lagið mittBerglind Bjarna- dóttir sér um óskalagaþátt fyr- ir börn yngri en 12 ára. 17.30 Smásaga: „Séni” eftir Ása i Bæ Höfundur les. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 t sjónmáli Skafti Harðarson og Steingrimur Ari Arason sjá um þáttinn. 20.00 Skiptir. tónlistin máli? Nokkrir hlustendur svara spurningunni. Umsjón: Páll Heiðar Jónsson. 21.00 „Sögusinfónian” eftir Jón Leifs Sinfóniuhljómsveit Is- lands leikur. Stjórnandi: Jussi Jalas. Þorsteinn Hannesson tónlistarstjóri flytur formáls- orö. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Kvöldsagan: „Rúbrúk” eftir Paul Vad Þýð- andinn Úlfur Hjörvar, les (22). 22.35 Djassþáttur Jón Múli Árna- son kynnir. 23.20 Fréttir i stuttu máli. Dag- skrárlok. Sjónvarp 18.00 Heimanám. Stutt, banda- risk teiknimynd um námsvenj- ur. Þýðandi og þulur Hallveig Thorlacius. 18.10 Höfuðpaurinn. Bandarisk teiknimynd. Þýðandi Stefán Jökulsson. 18.35 Fyrsta sigarettan. Stutt mynd um reykingar. Þýðandi og þulur Hallveig Thorlacius. 18.50 Kaplaskjól. Breskur myndaflokkur byggður á sög- um eftir Monicu Dickens. Góð- verk Ragnars. Þýðandi Jó- hanna Jóhannsdóttir. Hlé 20.00 Fréttir og veður 20.30 Dagskrá og auglýsingar 20.35 Lltil stjarna úr tini (The Tin Star). Bandarisk kúrekamynd frá árinu 1957, byggð á sögu eft- ir Barney Slater og Joel Kane. Leikstjóri Anthony Mann. Aðalhlutverkin leika Henry Fonda, Anthony Perkins, Betsy Palmer, og Neville Brand. Þýðandi Stefán Jökulsson. Ungur lögreglustjóri á fullt i fangi með að halda uppi reglu, uns ókunnur maður kemur til bæjarins. Reynist hann lög- reglustjóranum hin mesta stoð og stytta. 22.05 Norsk-islenska unglinga- hljómsveitin. Sjónvarpsupp- taka frá tónleikum, sem haldn- ir voru i Háskólabiói 23. ágúst siöastliðinn. Hundrað manna hljómsveit, skipuð norskum og islenskum ungmennum, lék þar verk eftir Herbert H. Agústs- son, Wolfgang Amadeus Moz- art og Egil Hovman. Hljóm- sveitarstjóri var Karsten Andersen, en einleikari á pianó Gisli Magnússon. Stjórn upp- töku Tage Ammendrup. 22.55 Dagskrárlok. Birgir Thorberg málarameistari simi 11463 Önnumst alla málningarvinnu — úti og inni — gerum upp gömul húsgögn m S5.0G heimilið Frú Sólveig 1 flauelispilsinu góða viö gluggatjöldin, sem hún Finnast hér á landi enn Miðstöð fataiðnaðar á Islandi var i baðstofunum hér áður fyrr. Vegna þessarra sanninda vildum við grennslast eftir, hvort til væri ung húsmóðir, sem gæti bjargað sér eins og formæður hennar gerðu. Ekki tók nema hálfan sólar- hring að hafa upp á einni slikri, að visu með hjálp góðra AB-vina. Hannyrðakonan og húsmóöirin, Sólveig Theódórsdóttir, býr ásamt eiginmanni sinum Rúti Jónssyni og dóttur þeirr-a að Sæviðarsundi i Reykjavik. Þegar við knúðum dyra var bóndinn farinn i vinnuna eftir há- degisverðinn, en hann er einn af eigendum Bilaskoðunar og still- ingar að Skúlagötu 32. Aftur á móti kom myndarleg dóttir þeirra heim úr skólanum og fylgdist vel með tali okkar og myndatökum. Það sem við rák- um fyrst augun i var veglegur vefstóll. Vefur þú öll klæði á þennan hérna? Solveig (hlægjandi): „Nei, ekki er það nú svo, en eitt og annað hef ég gert t.d. gluggatjöldin hér i stofunni.” Væri ekki bezt að fá mynd af þér hérna við vefstólinn? Solveig (stórhissa): „Það finnst mér alls ekki viðeigandi, svona þegar ekkert er i honum.” Gætum við þá fengið mynd af þér við gluggatjöldin í stofunni og helst i fötum, sem þú hefur saumað sjálf? Solveig (ibyggin): „Jú, þið hafið mig þá afsakaða á meðan ég bregð mér i flauelspils, sem ég gerði úr rándýru flaueli.” Sólin sin inn um gluggana og upplýsir þetta fallega, en persónulega heimili og opið er út i garðinn, sem ber eigendunum ekki siðri vitnisburð en annað, er fyrir augu okkar ber. Nú kemur frúin aftur inn i þessu lika dýrindis pilsi, sem hvert tiskublað myndi gleypa við. Hefur þú lært hannyrðir, Solveig? „Nei, ég fór á „Folkhögskóla” I Sviþjóð og þar læröi ég fyrst aö vefa, en siðan fór ég á námskeið hjá Guðrúnu Jónasdóttur, sem einmitt er að byrja námskeiö núna.” Hannar þú og vefur eða saumar fyrir aðra? Solveig (skellihlægjandi): „Nei, alls ekki. Þetta geri ég aðeins fyrir sjálfa mig og mina, þegar mig lagar i eitthvað óvenjulegt og persónulegt.” Nú hefur frúin komið sér fyrir við gluggatjöldin sin, i pilsinu sinu og dóttirin Jóhanna litur með velþóknun á móður sina meðan Hallur ljósmyndari smellir af fá- einum myndum. Að lokum fáum við svo mynd af þeim mæðgum saman við vefstólinn, en þó við birtum hana ekki, þá má hún Jóhanna vita, að við hefðum gert það hefði pabbi hennar verið með á myndinni. H.P. Módelsamtökin sýna haust- og vetrartísku Módelsamtökin sýna annað kvöld i Súlnasal Hótel Sögu haust- og vetrartiskufatnað nokkurra verslana i Reykjavik. Þetta er hin árlega tiskusýning samtakanna, sem kynna starfsemi sina um leið fyrir framleiðendum og fyrir- tækjum, og kynna sýningarfólk samtakanna, sem eru um 20 manns. Modelsamtökin hafa nú starfað i meira en tólf ár, og er greinilega vaxandi áhugi auglýsenda fyrir hagnýtingu sýningafólks. Samtökin hafa i nokkur undan- farin ár, sýnt islenskan ullarfatn- að vikulega fyrir erlenda ferða- menn og ráðstefnugesti auk fjöl- margra sýninga fyrir kaupmenn, framleiðendur ög félög. Tiskufatnaðurinn verður frá Parinu og Dömunni i Hafnar- stræti og Herragarðinum, Aðal- stræti, Snyrtistofan Krista, Rauðarárstig sér um förðun. Stjórnandi Módelsamtakanna er Unnur Arngrimsdóttir. Dansað verður til kl. 01.00 og leikur Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar fyrir dansinum. Er þetta fyrsti dansleikur þeirra eft-. ir sumarhlé. ~m-----------► Verið VlÐBÚNAR Vetrinum Fáum daglega nýjan vetrarfatnað þernhard lax^ai KJORGARÐ! Fáum daglega nýjan vetrarfatnað fyrir konur á öllum aldri fyrir konur á öllum aldri angarnír þernhard lax<fal KJÖRGARÐ/ MO £ru AUTAF t'VAi/BRjfz sert M c/brra DRAWN BY DENNIS COLLINS , . & MAPa /ýt/SST AF ÚMV/V’i/V'&N'WM' ' t/AFPAKsrai, rttssr af [/£Rf> LAUHA au<íJP.UnAl íXx\ /AAR&'tfZ HAfA (tSAV A4 fitö'r/OLA HAtfif/óJUR'i: f' r-é&m WRITTEN BY MAURICE DODD OGc Ht/lZR3ÍR ERu //iosrÓ'AHk A MRFWU? H&9 Alþyóubankinn hf Teppahreinsun Hreinsum gólfteppi og húsgögn I heimahúsum og fjrirtækjum. Krum meö nýjar vclar. Góft þjón- usta. Vanir menn. SIGFÚS BIRGIR 82296 40491 Ctvarps.og sjónvarpsviögeröir Kvöld og helg- arþjónusta. 10% afsláttur til öryrkja og aldr- aftra. SJÓNVARPS- VIÐGERÐIR Skúlagötu 26 — slmi 11740. Nylon-húðun Húöun á malmum með RILSAN-NYL0N II Nælonhúöun h.f. Vesturvör 26 Kópavogi — simi 43070 Kasettuiftnaftur og áspilun, fyrir útgefcndur hliómsveitir, kóra og fl. Leitift tilbofta. Mifa-tónbönd Akureyri Pósth. 631. Simi (96)22136 Dunn i GlAEflBflE /ími 84900 T-Þft TTILISTINN T-LISTINN ER inngreyptur og þolir alla veöráttu. T-LISTINN A: útihuröir svalahuröir . hjaraglugga og ... veltiglugga CluggntmiO|an ---1 U0>múla 70 Simi 38770 :j=l. iAJl Verið VlÐBÚNAR Vetrinum

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.