Alþýðublaðið - 01.10.1975, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 01.10.1975, Blaðsíða 12
alþýðu InPmhi , - Veðrið Liklegast mun verða einhver breyting á veðr- inu i dag, frá þvi sem ver- ið hefur. Suðaustanátt verður rikjandi og mun hún færa okkur skýja- breiður, sem hella þó lik- lega ekki úr sér rigningu, að minnsta kosti ekki fyrr en siðdegis.Hiti verður 4-5 stig. "V7 7>h fF riff ip— "T /y*px-Z>e- k tAx/vesi %% 3£/Tu‘ foffðD-’J uru/z VflRft ‘-JÖb/Ð SvflLL • V JUR T/ R /nyvr /0 rpRþjL SK£L b f 5 G/lV L / Y/9 fl 2 SKYLV f>Sr/ T/jLfí P0/<fí St/TA SP/L í r L/muR <bKÖ0GR LfrRV SK'/r/) WmHL / 7 3 l EFST Ufí íjRfíuO_ ZiRoPu/n S>nmni T)LTti Útgefandi: Blað hf. Framkvæmda- stjóri: Ingólfur P. Steinsson. Hit- stjóri: Sighvatur Björgvinsson. Ritstjórnarfulltrúi: Bjarni Sigtryggsson. Auglýsingar og af- greiðsla: Hverfisgötu 10 — simar 14900 og 14906. Prentun: Blaða- prent hf. Askriftarverð kr. 800.- á mánuði. Verð í iausasölu kr. 40.-. KÓPAVOGS APÓTEK Opið öll kvöld til kl. 7 Llaugardaga til kl. 12 I HBBBSHnHBBHBMHBBHMPBSBfll MEGUM VIÐ KYNNA Sveinn Sæmundsson, blaöaf ulltrúi er fæddur i Borgarfirði og ólst upp á Akranesi til fermingar. Hann fór ungur að heiman, fyrst til almenns náms og lauk siðan námi i rafvélavirkjun. Næst lá leiðin á sjóinn og Sveinn stundaði siglingar i sjö ár. Þá hélt hann til Kanada, þar sem hann stundaði framhaldsnám og vann jafnframt við skipasmiðar með náminu. Siðan hélt Sveinn til Þýskalands þar sem hann lauk námi sinu og stundaði auk þess vinnu. Sveinn sagði að þetta nám i rafvélavirkjun hefði aldrei komið sér að notum i neinum mæli, þvi þegar hann kom heim frá námi þá gerðist hann blaðamaður við dag- blaðið Timann og siðar við Alþýðublaðið. Hann starfaði við blaðamennsku til ársins 1957, er hann réðist til Flugfélags Islands sem blaðafulltrúi. Þar starfaði hann þar til hann tók við sömu stöðu hjá Flugleiðum, við sameiningu flugfélaganna. Meðan Sveinn var i siglingum skrifaði hann allmargar greinar sem birtust i hérlendum blöðum. Fyrstu kynni Sveins við blaða- mennsku urðu með þeim hætti að meðan á Kanadadvölinni stóð þá fór hann einu sinni sem oftar til gullleitar með félögum sinum. 1 bakaleiðinni komu þeir að þar er bfll hafði ekið útaf og hrapað niður hlið. Sveinn tók myndir af þessu, sem hann seldi til dagblaðs i Vancouver og siðan urðu mynd- irnar fleiri og þannig komst hann i kynni við blaðamenn og ekki var aö sökum að spyrja, blaðamanns- bakterian hafði gripið hann. Sveinn sagði að hann hefði alltaf kunnað vel við sig á sjónum og hefði áhuga á sjómennsku og flestu sem að sjónum lýtur. Hann hefur gefið út sjö bækur sem fjalla að meginhluta til um sjó- mennsku og sjómenn. Varðandi starf sitt sagði Sveinr að sú landkynningar starfsemi sem flugfélögin hafa rekið sl. 20 ár hefði áreiðanlega komið Isiandi til góða i markaðsöflun og mörgum baráttumálum Islendinga á erlendum vettvangi. „Þáttur landkynningar i starfi minu tekur 60-70% af tima minum, og i starfi minu hitti ég allmarga erlenda blaða- og sjón- varpsmenn og þá nota ég hvert tækifæri til að gera þeim ljósa grein fyrir mikilvægi fiskveiði- lögsögunnar fyrir okkur Islendinga”, sagði Sveinn að lokum. 0KKAR Á MILLI SAGT Það er vitað mál, að fjölmargir kirkjunnar menn eru andvigir prest- kosningum, og stór hluti almennings er það lika. Alþingi heldur hins vegar fast við sinn keip, að prestar skuli kosnir af söfnuðum. En fyrst sú er skoðun þingmanna um prestana, hvi útfæra þeir hana þá ekki þannig, að hún nái til ýmissa annarra embættismanna rikisins? Hvi ekki þá að gefa fólki kost á að kjósa sér bæjarfógeta, sýslumann, lækni og ýmsa aðra embættismenn hins opinbera? I ný útkomnu fréttabréfi Rauða kross Islands erm.a. frá þvi sagt, að á ráðstefnu um sjúkraflutninga, sem haldin var I fyrra, hafi eitthvað það veriðkynnt, sem er nýmæli og hlotið hefur nafnið bjorgunaratgeir. Ekki hefur Alþýðublaðið hugmynd um, hvaða tæki þetta er, en skyldi fornkappanum Gunnari á Hliðarenda ekki hafa komið það spánskt fyrir sjónir ef orðið atgeir hefði verið notaö i sambandi við björgun mannslifa — annars en þá hans eigin? Mikill meirihluti þingmanna hefur látið i ljós vilja um, að zetan verði leidd til aftur til öndvegis I Islensku ritmáli. Það eru þvi allar horfur á, að þótt fyrrverandi menntamálaráðhérra, Magnús Torfi ólafsson.hafi misst nn fái hann þó zetuna aftur til baka. Gárungarnir hafa það eftir framsóknarmönnum i kjördæmi Halldórs E. Sigurðssonar.að brúin yfir Borgarfjörð muni ávallt bera á sér framsóknarsvipinn. Hún verði nefnilega opin i báða enda. Ekki hefur hin nýja stefnuskrá Aiþýðubandalagsins orðið til þess að skera endanlega úr um.'hvers konar flokkur Alþýðubandalagið vill vera — og hefur m .a. verið á það bent i greinum flokksmanna i Þjóðviljanum. Það virðist þvl hafa gleymst að láta lykilinn fylgja skránni. Eftir að Dagblaðiðhefur nú komið út I mánuð telur það sér helst til gildis að hafa sett tslandsmet I smáauglýsingum. Það má því með sanni segja, að það vantaði ekki verkefni fyrir frjálst og óháð blað á Is- landi. Skyldi eitthvað vera til I því, að ef flugmönnum væri borgað i krónupeningum á útborgunardögum þyrftu þeir að greiða yfirvigt fyrir hýruna ef þeir tækju hana með sér um borð? 5ÖRVAR HEFUR ORÐIÐi^ 1 ræðu Einars Agústs- sonar, utanrikisráðherra, á Allsherjarþingi S.Þ. boðaði hann m.a., að ts- lendingar myndu á næst- unni hefja visindalegan fiskibúskap á miðunum umhverfis landið. t Tim- anum i gær er svo skýrt frá þvi, að ætlunin sé að leggja frumvarp um þetta efni fyrir næsta Al- þingi. Þetta eru bæði merki- legar og harla ánægjuleg- ar fréttir. Þær eru merki- legar fyrir það, að með þessu hyggjast tslending- ar riða á vaðið með því að nytja auðæfi hafsins með svipuðum hætti og gróður jarðar hefur verið nytj- aður um alda bil. Þær eru ánægjulegar vegna þess, að með þessu taka tslend- ingar fyrstir þjóða skýrt fram, að þeir ætli að hafna þeim skammsýnu rányrkjuviðhorfum, sem ráðið hafa stefnu i fisk- veiðimálum i heiminum fram til þessa — með ó- skaplegum árangri. Auðvitað kemur þaö til með að verða talsvert vandasamt að setja ná- kvæmar reglur um, hvernig á að nýta fiski- stofnana á Islandsmiðum — hvar má veiða, hve lengi og hversu mikið magn. Ýmsir hagsmunir munu togast á varðandi þær ákvarðanir og aldrei verður hægt að haga mál- um svo, að öllum liki. En það á heldur ekki að vera markmiðið að gera alla ánægða. Markmiðið með visindalegri stjórn á fiskveiðum er að nytja fiskistofnana þannig, að sem mestur arður fáist af þeim án þess að þeim sé i hættu stefnt. Sá er til- gangurinn með visinda- legum sjávarbúskap, en ekki að verða við óskum allra, sem hlut eiga að máli. Við verðum þvi frá upphafi að ganga út frá þvi, að þessi stefna hlýtur að leiða til þess, að við verðum að segja nei við okkur sjálfa oftar en einu sinni og oftar en tvisvar Og þá kemur spurning- in hver á að segja þetta nei. Eiga það að vera sér- fræðingarnir, sem byggja afstöðu sina á þekkingu sinni og reynslu, eða eiga það að vera hin pólitisku öfl I landinu, sem ávallt hljóta að vera undir þrýstingi frá hagsmuna- hópum og leita þvi gjarna þeirrar leiðar að reyna að gera alla ánægða? Svarið við þessari spurningu getur ráðið úrslitum um, hvernig til tekst. Hvað lest þú helsf í dagblöðunum? Ólafur B. Guömundsson, sjó- maður: Ég les aðallega skrif um stjórnmál, bæði innlend og erlend, þvi næst koma auglýs- ingar og siðan koma menning- armál sem reka lestina, enda gerist það aöeins stundum að ég les um þau. Bjarki Þórarinsson, nemi: Eg les allar almennar fréttir. Næst koma teiknimyndaseriur, sem ég fylgist vel með, og stundum ber við að ég ies stjórnmála- skrif. Aður las ég öll stjóm- málaskrif, en það er orðið mun minna nú orðið. Ragnar Tómasson, lögfræðing- ur: Ég les allt sem i blöðum er nema framhaldssögur. Annars held ég að blöðin gerðu almenn- ingi litinn greiða ef þau ætla sér að „kála” eina islenska stjórn- málamanninum sem alltaf gef- ur sér tima til að hlusta á vandamál mannsins á götunni. Hjörtur Gislason, nemi: Helst les ég Iþróttaskrif, skritlur og utanrikismálaskrif. Stjórn- málaskrif les ég stundum, ef fjaliað er um erlend málefni, innlent stjórnmálakarp finnst mér leiðinlegt og þvi les ég það ekki. Þóra og Hólmfrfður, vinna f búð: Stjörnuspána fyrst af öilu, síöan lesum við hvaða hljóm- sveitir spili á böllunum næstu kvöld, og næst lesum við skritl- ur og teiknimyndaseriur.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.