Alþýðublaðið - 01.10.1975, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 01.10.1975, Blaðsíða 1
190. TBL. - 1975 - 56. ARG SKEYTI Víetnamferðir:- Franska ferðaskrifstofan Jet-tours hefur nú riðið á vaðið og gert Norður-Víetnam að ferðamannalandi. Frá næsta desember býðst ferðamönnum kostur á fjögurra daga ferðum þangað,með viðkomu i Hanoi og Haiphong. Fyrsta ferðin verður 20. des.^og siðan verður farið á mánaðar fresti, en þessi ferð er hluti af lengra ferðalagi um Suöaustur-Asiu. Nýr gjaldmiðill: Nýr gjaldmiðill fór i umferð 1 Chile i gær og olli mikilli ringul- reið I bankakerfinu. Nýja mynt- in heitir Pesois.og er einn slikur jafnvirði 1.000 gamalla Escudo. Þegar Escudo var tekinn upp sem gjaldmiðill árið 1959 jafn- gilti hann einum Bandarikja- dollar. En svo margar gengis- fellingar hafa orðið i Chile, að það þurfti orðið 6500 Escudo til aö kaupa einn dollar. Forsetinn litt vinsæll: Vinsældir Valery Giscard d’Estaing Frakklandsforseta hafa ekki verið jafn litlar meðal landa hans og nú siðan i desem- ber i fyrra — samkvæmt niður- stöðum skoðanakannana. Einar Ágústsson þegir um Spán Frammistaða Einars Agústs- sonar á Ailsherjarþinginu er honum og islensku þjóðinni til skammar. Hann lét sig hafa það að segja ekki orð um aftökurnar á Spáni, sem vakið hafa heima- athygli. Að visu komst ráðherr- ann skammlaust i gegnum ræðu sina varðandi útfærslu land- helginnar. Beta og Filipus horfa á nektardans 1 Reutersfrétt frá London i gær segir að Elisabet II og maður hennar muni vera meðal áhorfenda að nektardansleik, sem fer fram i Englandi 10. nóvember n.k. Grænu risarnir úr umferð í bili 1 fréttaskeyti Reuters frá Washington i gær greinir frá þvi að flugher Bandarikjanna hafi fyrst um sinn tekið úr umferð þyrlur, sem nefndar hafa verið Jolly Green Giant. Þessi ákvörð- un var tekin meðan fram fór rannsókn á flugslysi, sem varð i Þýskalandi sl. föstudag, en þar fórst þyrla af þessari gerð og með henni 16 menn.i Alþýðublaðið leitaði upplýsinga um þetta mál hjá varnarliðinu á Keflavikurflugvelli. Blaðafulltrúi varnarliðsins sagði að þeir hefðu nokkrar Jolly Green Giant þyrlur á vellinum. Þessar þyrlur, sem nefndar væru i fréttinni væru af stærri gerð en þær sem þeir hefðu. Reyndar væru þrjár mis- munandi gerðiraf þessum vélum. Blaðafulltrúinn sagði að vélarnar væru þó allar framleiddar af sömu verksmiðju. Hann kvaðst ekki háfa heyrt neitt um þessa á- kvörðun fyrr en blaðamaður Al- þýðublaðsins greindi frá þvi. Á hinn bóginn kvaðst hann viss um, að þær þyrlur, sem þeir væru meö, væru ekki meðal þeirra sem teknar hefðu verið úr umferð, enda hefðu þeir þá fengið um það fyrirmæli. MIÐVIKUDAGUR 1. 0KT0BER Ritstjórn Siðumúla II - Slmi 81866 Steffnuliós Helgi Skúli Kjartansson: Að læra að lifa með verðbólgunni SJA BLS. ENSKI BOLTINN Sjá nánar íþróttir síðu 8 og 9 0 Akæra um mútur til ferðaskrifstofa og farþega: 6 MILLJÓN KRÓNA BITI FLUGLEIÐA! 19 flugfélög hafa verið ákærð fyrir mútur, segir i frétt Reuters, fyrir að hafa látið ferðaskrifstof- um og einstaklingum i té ólögleg- ar greiðslurMálið var tekið fyrir i alrikisdómstól i Brooklyn i New York i gær, og lauk afgreiðslu málsins með dómssátt. Meðal þessara 19 flugfélaga, sem hér um ræðir er flugfélagið Flugleiðir. 1 tilefni þessa máls snéri Alþýðublaðið sér til Flug- leiða og fékk þær upplýsingar hjá Sveini Sæmundssyni, blaðafull- trúa Flugleiða, að þetta mál hefði fyrst borið á góma fyrir um það bil tveim árum.Væri hér fyrst og fremst umaðræða lækkun á hóp- fargjöldum. Bandariska flug- málastjórnin hefði iátið gera rannsókn á þessu máli og hefði þá komið i ljós að nokkur flugfélög hefðu gerst brotleg við gildandi reglur um fargjöld. Sveinn sagði að Loftleiðir hefðu ekki verið meðal þeirra félaga, sem hefðu brotið af sér. Þessi mál hefðu siðan verið rædd á fundi félagsins i nóvember i fyrra, og hefði það alla tið verið ætlun félagsins að fylgja settum reglum um fargjöld. Aðspurður um það, hvort Flug- leiðir mundu sætta sig við að greiða 6 milljónir i dómssátt, ef þeir hefðu ekkert brotið af sér sagði blaðafulltrúinn, að hann teldi liklegt að flugfélögin hefðu öll gert með sér samkomulag um að gerð yrði dómssátt i málinu til þess að komast hjá langvarandi málaferlum. Samkvæmt þessum upplýsingum virðist mega draga þá ályktun að Flugleiðir muni greiða 6 milljónir i sekt til þess að komast hjá réttarhöldum. Það hefur svo sem ekkert veðr- að neitt sérlega illa til ýmissa drullupollaframkvæmda undan- farna daga — en heldur er þó orðið kalt fyrir sull af þessu tagi, enda var myndin tekin fyrir nokkrum dögum, áður en kólnaði að ráði. —Verð- hjöðnun? A forsiðu fréttablaðs RKÍ, sem út kom i júni sl er mynd af frimerki þvi, sem Póst- og Simamálastjórnin mun gefa út þann 15.okt.nk.! myndatextan- um segir ma.,,Frimerkið er fjöl- litað með silfurletri, að verð- gildi 27 krónur.” Hins vegar sendi Póst- og Simamálastjórn- in nýlega frá sér tilkynningu um þetta merki, og þar segir að verðgildi téðs merkis sé 23 krón- ur.Þetta þykir mönnum hlálegt, þegar sami aðili boðar að á næstunni takigildi ný gjaldskrá um póstburðargjöld og þá verð- ur gjald fyrir almennt bréf inn- anlands 27 krónuri>ó er Póst- og Simamálastjórnin ekki alger- lega heiilum horfin, því sam- kvæmt nýju gjaldskránni verð- ur burðargjald fyrir prentað mál 23 krónur.Hins má geta að einungis eitt merki að verögildi 27 krónur hefur verið gefiö út og var upplagið ein milljón merkja og endist það trúlega skammt. Allt að 200 króna verðmunur ó kílói af eggjum Hvers vegna þessi mikli „ __ __ _O —umbúðirnar kosta v eromunur. 15 krónur stykkið i Verð á kilói af eggj- um er mjög mismun- andi hér i Rvik eins og einhverjir munu hafa komist að raun um, ef þeir hafa athugað mál- ið. Alþbl. athugaði verð á eggjum i nokkrum verslunum i gær. í ljós kom að meðalverð á eggjum i þeim 10 versl- unum, þar sem verðið var kannað, er mjög mismunandi. Hæsta verð á kilói reyndist vera kr. 550,— og þá eru eggin i sex stykkja pakkningum, lægsta verðið reyndist vera kr. 350,— og eru þá eggin seld i kilópakkn- ingum. Hér er um sömu verslunina að ræða. Meðalverð á eggjum, ef keypt er eitt kiló eða meira reyndist vera kr. 405,50, en ef um smærri pakkningarer að ræðaermeðal- verðið 443,50 kr. Hæsta verð á eggjum i stærri pakkningunum var kr. 480,— og það lægsta i smærri pakkningum var 390, en það hæsta i þeim pakkningum var kr. 550 eins og áður sagði. Munur á hæsta verði i stærri og því lægsta i smærri er kr. 90. Mesti munurinn er sem sagt tvö hundruð krónur, sem flest- um mun þykja all mikið. Þá vekur einnig athygli að sumar verslanir selja egg I smærri pakkningum á verði sem er lægra en meðalverð á eggjum i stærri pakkningunum, þó voru það aðeins tvær verslanir og hafa báðar sama verðið, þ.e. kr. 390. Þá sést einnig að mestur munur i smærri pakkninga- flokknum er kr. 160, og i hinum flokknum eru það 130 krónur. Þessi munur þótti okkur ein- kennilegur og leituðum þvi skýringar á skrifstofu verðlags- stjóra. Þar var okkur tjáð að verðlagning á eggjum er frjáls, hér virðist sem sagt vera á ferð- inni hið margnefnda frelsi til verðlagningar, sem kaupmenn margir hverjir berjast fyrir, Eitt er það atriði, sem vænt- anlegum seggjakaupendum skal bent á. Það er að neytand- inn kaupir umbúðirnar á þvi verði, sem eggin eru seld á. Umbúðirnar eru venjulega úr pappa og rúma sex egg. Sam- kvæmt upplýsingum seljanda umbúðanna kostar hver askja kr. 8,25 frá honum, en við neyt- endur kaupum þessar umbúðir á kr. 10,73 þegar við kaupum sex egg þar sem þau kosta 390 kr. kilóið, og við borgum 1. ,13 kr. þegar ,við kaupum sex e ?g þar sem þaukosta kr. 550hvert kiló. Ef við reiknum með þvi að 18 egg séu i kilói eða meðaltal , þá þarf þrjár öskjur undir kilóið og þá verður umbúðakostnaður neytandans kr. 32,18 miðað við kilóverð 390 krónur, kr. 35,76 miðað við meðaltalsverð á smærri pakkningum, og kr. 45,38 miðað við hæsta kilóverðið kr. 550. Þarna er auka kostnaðar- liður.sem einfalt er að losna við þegar dýrtiðin er að gera útaf við okkur. Þess má geta að heildsöluverð á eggjum, þ.e.a.s. það verð, sem kaupmenn greiða fyrir kilóið, er kr. 360.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.