Alþýðublaðið - 02.10.1975, Page 12

Alþýðublaðið - 02.10.1975, Page 12
alþýðu Útgefandi: Blaö hf. Framkvæmda- stjóri: Ingólfur P. Steinsson. Rit- stjóri: Sighvatur Björgvinsson. Kitstjórnarfulltrúi: Bjarni Sigtryggsson. Auglýsingar og af- greiðsla: Hverfisgötu 10 — simar 14900 og 14906. Prentun: Blaða- prent hf. Áskriftarverð kr. 800.- á mánuði. Verð i iausasölu kr. 40.-. KÓPAVOGS APÓTEK Opiö öll kvöld til kl. 7 Laugardaga til kl. 12 — Ycdrid------- Gera má ráð fyrir að hægviðrið, sem rikt hefur undanfarna daga, vlki bráölega fyrir dumbungi og rigningu. 1 dag er reiknað með austan- kalda, sólarlausu veöri en þurru. Ohætt er að segja aö undanfarnir dagar hafi verið nokkur sárabót, eftir svo til sólarlaust sumar. Gátan “V/ £F r/fí /■/^PL.Z>Ó r, A' IA//V£ 5Tául? 3£ TT FO///JD-T L/TuR vfí/?fí 1 L/Ób/Ð 'JvfíLL 1 V j urt i R - iinwr /o rpRSK $K£l b f S GjlV l 7/? \\ 2 SHYLV fís r/ TQLfí POKH St/Tfí SP/L 8 r L/mu.Q ZÆ/?Z> SK'/rfí ‘bfím/JL / 7 3 l BFST up arnn fiRfíuO droPu/o SnmnL 9 VLTT/ MEGUM VIÐ KYNNA Bjarki Elíasson yfirlög- regluþjónn, fæddist á Dalvik þann 15. dag maímánaðar árið 1923. Þar ólst hann upp og stundaði sitt barna- og gagnfræðaskólanám. Siðan lá leiðin i Stýrimannaskólann i Reykjavik og þaðan útskrifaðist Bjarki árið 1949. ,,Ég var alla mina unglingstið mikið á sjó og eftir fjögur ár á sjónum, eftir lokapróf úr Stýri- mannaskólanum, má segja að ég hafi farið beint af togurunum i lögregluna árið 1953”. Bjarki hefur nú starfað I lög- reglunni um 22 ára skeið og og m.a. á þvi timabili farið til Bandarikjanna til frekari upp- fræðslu i lögreglufræðum. Um breytingar á starfi lögreglunnar á 22 ára timabili, segir Bjarki. „Geysilega mikil breyting hefur orðiö á starfi lögreglunnar á und- anförnum tveimur áratugum og er það I samræmi við almennar þjóðfélagsbreytingar. Til að mynda var bifreiðafjöldi i Rvik. þegar ég byrjaöi i lögreglunrii að- eins 5500, en er nú um 50000. Þá finnst mér samband lögreglu og hins almenna borgara haf gjör- breyst til hins betra, og er nú mun betri samvinna þar á milli, en áð- ur var. Gott dæmi um það, er við- mót barna i garö lögreglunnar. Aður fyrr var lögreglan hálfgerö grýla i augum barna, en er nú sem vinur og verndari.” ,,Ég er ánægður með það lifs- starf sem ég hef valið mér og fundist sem ég hafi fengið tæki- færi til að gera ýmsa góða hluti i minu starfi, svo sem að hjálpa fólki og aðstoða á margvfslegan hátt. Þó eru einnig óneitanlega dökkar hliöar á starfinu, sökum eðlis þess.” Bjarki er kvæntur Þórunni Ast- hildi Sigurjónsdóttur og eiga þau hjónin eina dóttur. Bjarki á 3 börn úr fyrra hjónabandi. Um áhugamál utan hefðbund- ins starfs: ,,Ég hef notað min sumarfri mikið til að stunda veið- ar á sjó og vatni. Ég var t.d. á sildveiðum á sumrin, þegar sildin var og hét. Þá fer ég oft til Dal- vikur og ræ þar út á trillum, auk þess sem ég stunda silungsveiðar i ám og vötnum. A veturna uni ég mér vel, við lestur góðra bóka,” sagði Bjarki Eiiasson yfirlög- regluþjónn að lokum. HEYRT, SÉÐ HEYRT: Að hugmyndir um að framleiða fitusnauða mjólk á ís- landi — en slik mjólk er viöast hvar annars staðar á boðstólum fyrir þá, sem vilja fara varlegai neyslu dýrafitu — strandi á þvi, að þá muni smjörfjallið fara enn hækkandi, og nógu slæmt hefur verið að koma þvi út i þeirri hæð, sem það hefur náð til þessa. LESIÐ: 1 „Fiskaren” frá 29. september s.l., að norska rikis- stjórnin hafi i bígerð tillögu um að veita 82 millj. norskra króna i styrki til sjávarútvegs i Noregi á siðasta fjórðungi yfirstandandi árs. Meginhluta styrksins á að nota i verðbætur á fiski. FRÉTT: Að samgönguráðherra, Halldór E. Sigurðsson hafi i gær farið vestur á firði til þess að skoða Djúpveginn nýja. Vegurinn var endanlega opnaður siðsum- ars og er talið, að hann geti stytt aksturstima milli Isafjarðar og Reykjavikur um allt að tveimur klst. LESIÐ: 1 ,, Húsfreyjunni”, Tima- riti Kvenfélagasambands Is- lands, að einhver óheppilegasta matargerð á kartöflum frá nær- ingarfræðilegu sjónarmiði sé að steikja þær i feiti (franskar kartöflur). Við þá matreiðsluað- ferð rýrnar C-vitaminmagnið i kartöflunum um 90%, B2 vita- minið hverfur nær alveg og kartöflurnar innihalda eftir steik- inguna 35-40% feiti i stað vatns, sem gufað hefur burtu úr þeim. HEYRT: Að þegar mest hefur gengið á i netaveiðum á Breiða- firði nái samanlögð lengd neta- trossanna frá tslandi til Skotands. Það er þvi varla nema fiskur og fiskur á stangli, sem sleppur inn fyrir netagirðingarnar. 0G HLERAÐ TEKIÐ EFTIR: 1 kvikmyndinni, sem sjónvarpið sýndi frá Alls- herjaþingi S.Þ. er Einar Agústs- son, utanrikisráðherra, flutti ræðu sina, að flest sæti i salnum voru auð. Skyldi þetta vera gert af virðingarleysi við Islendinga, eða er það vani sendinefnda hjá S.Þ. að mæta svo illa á fundum Allsherjarþingsins? LESIÐ: Forystugrein i 8. tbl. timaritsins „Frjáls verslun” þar sem hvatt er til þess að leyfa bruggun og sölu bjórs á Islandi. Er þetta til marks um, að ný sókn i bjórmálinu sé hafin? Hyggst Pétur Sigurðsson, alþm., til hreyfings enn á ný með bjórfrum- varpið? SÉÐ: Að búið er að krota rimla á glerið I gluggum nýja Sjálfstæðis- hússins. Hvort skyldu þeir eiga að tákna innilokun eða útilokun? ER ÞAÐ SATT: að útgefendur Dagblaðsins hafi þegar fest kaup á prentsmiðju er- lendis frá, sem staðsett verði I húsi kexverksmiðjunnar Esju, — og þar verði Vikan enn fremur prentuð og hugsanlega nýtt morgunblað? ÖRVAR HEFUR ORÐIÐfcd Stór hópur skattgreið- enda i tveimur byggðar- lögum — Bolungarvik og Borgarnesi — hefur risið upp til mótmæla við ó- réttláta niðurjöfnun opin- berra gjalda. Ibúarnir hafa snúið sér til skatta- yfirvalda og spurst fyrir um, hvað valdi þvi, að ekkert samræmi sé á milli skattlagningar á einstaklinga annars veg^ ar og eyðslu þeirra og út gjalda hins vegar. Hvern- ig stendur á þvi, að á sama tima og sumt fólk er að kikna undir byrði opinberra gjalda eru aðr- ir skattlausir þótt vitaö sé, að þeir siðarnefndu eyði i sig og sina jafnvel margföxdu fé á viö hina? Viðbrögð skattyfir- valda eru mjög lærdóms- rik fyrir margra hluta sakir. Skattstjórinn á Isa- firði svaraði þvi einfald- lega til, að svona væru lögin — þetta vildi Al- þingi! Þetta er fráleit og viðurstyggileg afsökun. Mismununin byggist að sjálfsögðu á þvi, að þeir, sem bera ekki skatta I samræmi við eyðslu sina, fara i kring um þau lög sem Alþingi setur. Og það er eitt af hlutverkum skattstjóra og skattayfir- valda að reyna að koma i veg fyrir, að slikt sé gert. Þeir eiga að hafa aðstöðu til þess að gera það. Þeir eiga að hafa aðstöðu til þess að kalla þá fyrir sig, sem þeir gruna um græsku, og láta þá skýra út hvernig þeir geti gert eina krónu i framtöldum tekjum að fjórum eða fimm, þegar kemur að einkaeyðslu þeirra. Aö skjóta sér á bak viö að Al- þingi vilji að menn sviki undan skatti er út I hött. Að slikar yfirlýsingar skuli koma frá yfirmönn- um skattakerfisins, sem jafnframt eiga að hafa „skattalöggæslu” með höndum vekur þá spurn- ingu, hvort yfirleitt sé hægt að treysta þeim til þess að gæta þess að skattalög séu haldin hver svo sem þau eru. Það kann að vera rétt — og er það raunar — að skattakerfið á tslandi er meingallað, enda hefur Alþýðuflokkurinn fyrstur islenskra stjórnmála- flokka lagt fram tillögur á Alþingi um algera kerfis- breytingu skatta. En það leysir þó ekki „varðmenn kerfisins” — skattstjóra og skattalögreglu — und- an þeirri skyldu sinni að reyna að framkvæma þau lög, sem i gildi eru. Sé um það að ræða, að auðugur eða efnaður maður sleppi við að gjalda réttlátan skatt, þá eru þessi lög brotin. Viti skattstjóri af þvi og hafist ekki að, þá vanrækir hann embættis- skyldu sina. Þá van- rækslu afsakar hann ekki með þeim furðulega hætti að segja, að allt sé þetta löggjafanum að kenna. FIMM á förnum vegi . Eru Islendingar löghlýðnir? Guðbjörg Júliusdótt'ir þroska- þjálfi. „Það tel ég vera. Ég byggi þá skoðun mina á þvi að þjóðfélagið er i heild ágætt eins og er þó gera mætti strangari kröfur til einstaklinga þar á meðal yfirvalda og rikisstjórnai sem eiga aö hlita lögum eins og við, alþýða manna. ólafur Grlmsson verkamaður. „Nei, það erum við ekki. Við gerum allt sem við getum til að brjóta reglur, bæði visvitandi og án vitundar. Það eru allir lands- menn undir þessa sömu sök seldir. Jóhann Jóhannsson strætis- vagnastjóri. „Nei, ekki mjög og mættum vera hlýðnari í þeim efnum. Ég tel mig vera varan við fjölda lögbrota I samskipt- um minum við fólk.” Emil Arason útstiliingarmaöur „Við erum framúrskarandi lög- hlýðnir, ef skattaframtal er þar frádregið. Dómsvaldið dregur fram meginhluta lögbrota, en hins vegar er erfitt að dæma um hvar við erum helst brotlegir, nema auðvitað við skattafram- tal. Rut Arnadóttir húsmóðir. „Nei, ég mundi ekki segja það. Tölur hjá hinu opinbera um afbrot og lögbrot segja allt aðra sögu. Þó finn ég ekki beint til þess i um- gengni við fólk, að það brjóti lög.”

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.