Alþýðublaðið - 30.10.1975, Qupperneq 3
Stefnuliés Sigurður E. Guðmundsson skrifar
O
Spánn á örlagastundu
Varla blandast nokkrum manni hugur
um það, að þegar andlát Francesco
Franco, einvalda á Spáni, ber að höndum
mun spænska þjóðin verða stödd á mikl-
um timamótum. Enginn vafi er á þvi, að
þeirrar stundar hefur mikill fjöldi manna
á Spáni og viðar um heim, beðið um langt
skeið — hann verður þeim merki þess, að
þróun 1 átt til lýðræðislegs stjórnarfars
geti nú loks hafizt. En a að visu er jafn-
ljóst, að fasistaöflin þar syðra eru föst i
sessi og munu vafalaust halda fast um
stjórnvölinn — og njóta eflaust til þess
stuðnings fasista- og afturhaldsafla á meg
inlandi Evrópu og viöar um heim. Athygíi
manna hlýtur þvi að beinast mjög að
þróun mála á Spáni á komandi tið og telja
má vist, að lýðræðisrikin og lýðræðis-
hreyfingar i Vestur-Evrópu muni leggja
allt kapp á að stuðla að þvi, að lýðræði
verði loks endurreist á Spáni. Eg hef áður
vakið athygli á þvi, að jafnaðarmenn eru
nú langsterkasta stjórnmálahreyfingin i
Vestur-Evrópu. Hún hefur látið sig þróun
mála i Portúgal miklu skipta upp á
siðkastið og á ef til vill rikastan þáttinn i,
að fasistar/kommúnistar hafa enn ekki
náð völdum þar. Telja má vist, að hún
muni nú einnig fylkja sér, beint og óbeint,
að baki spænskra jafnaðarmanna og lýð-
ræðisaflanna þar eins og jafnaðarmenn
hafa raunar ætið gert, i baráttunni við
einræðisöflin.
A þessu ári hafa birzt nokkrar greinar
um spænsk stjórnmál i ny politik, timariti
danska Alþýðuflokksins. Hafa þær verið
fróðlegar um margt, einkanlega nýleg
rein eftir blaðamanninn Halldor
igurdsson. Er hún viðtal við Francisco
Lopez Real, aðalritara alþjóðamála i
PSOE, Sósialistiska Verkalýðsflokknum á
Spáni (Partido Socialista Obrero
Espanol) og deildarstjóra verkalýðsmála
i emræðisrikjum i aðalstöðvum alþjóða-
sambands frjálsra verkalýðsfelaga
(ICFTU) I Brussel. PSOE er jafnaðar-
mannaflokkur, elztur meiriháttar stjórn-
málaflokka á Spáni (95 ára gamall) og er
aðiliað Alþjóðasambandi jafnaðarmanna
(Socialist International). 1 viðtalinu segir
Real, að auk PSOE muni Kommúnista-
flokkur Spánar (PCE) og Kristilegi
Demókrataflokkurinn verða burðar-
ásarnir i stjórnmálalifi Spánar, þegar
þeir fá á nýjan leik frelsi til starfa. Hann
segir kommúnista öfluga jafnframt þvi
sem hann telur styrk þeirra mjög of-
metinn. Á hinn bóginn viðurkennir hann,
að þeir séu öflugastir i verkalýðs-
hreyfingunni, sem ekki er þó skipulögð
með sama hætti og t.d. hér á landi, heldur
sé hún byggð upp af fjölmörgum aðskild-
um einingum (las comisiones obreras) er
nánast meigi nefna verkalýðsnefndir.
Engu að siður séu áhrif jafnaðarmanna
mjög sterk innan hennar og heldur hafi
dregið úr áhrifum kommúnista þar. Jafn-
aðarmenn telur hann tvimælalaust mjög
öflugan flokk.
I viðtalinu spyr Halldor hann um stefnu
PSOE og helztu markmið. Real segir, að
flokkurinn krefjist þess, að allir pólitiskir
fangar á Spáni verði þegar i stað látnir
lausir og án skilyrða. Hann krefjist þess
einnig, að spænska þjóðin fái á nýjan leik
yfirrað yfir þjóðarauðnum — og á þá
sjálfsagt m.a. við eignir þær og auðlindir,
sem erlend auðfélög hafa nú hagnýtt um
langt árabil. Real segir einnig flokk sinn
krefjast þess að innan 12 mánaða fari
fram þjóðaratkvæðagreiðsla um það
hvort ríkið eigi að vera lýðveldi eða
konungsriki, að sjálfsögðu berjist PSOE
fyrir þvi að lýðveldi verði reist þar i landi.
'Þá' kretjist ilokkurinn þjóðnýtingar
bankakerfisinsogstóriðaðarins og muni
i þeim efnum ganga mun lengra en jafn-
aðarmannaflokkarnir á Norðurlöndum,
semt „þörfnumst við stúðnings
skandinavisku jafnaðarmannaflokkanna
við málstað okkar, það er ljóst”, segir
hann. Og i lokin segir hann einnig, að
ástandið á Spáni (greinin er rituð i
mai/júni) sé mjög óljóst og óöruggt — má
þá nærri geta hvernig það er nú og verður
á næstunni. En i öllu falli muni hinir ungu
stjórnniálamenn flokkanna (sjálfur er
hann 62 ára) marka stefnuna og ráða
ferðinni.
Það lætur vitaskuld að likum, að i dag
geturenginn maður getið sér til um þróun
mála á Spáni á næstu vikum, mánuð-
um og árum. Svo mikið virist þó vist,
að furst i' stað muni fasistaöflin leit-
ast við að fara áfram með völd i
landinu, sem jafnvist má telja, að lýð-
ræðisleg stjórnmálaöfl muni ekki sætta
sig við til neinnar lengdar. Sú
barátta, sem þá hlýtur að koma til
sögunnar, verður vonandi með friðsam-
legum hætti, þótt þvi miður sé hæpið
að telja það fullvist. En væntanlega
kemur síðan i ljós, að öflugustu stjórn-
málahreyfingar Spánverja (þó að fasist-
um undanskiidum, sem Real teiur ekki
með hér að framan) hafa dregið nokkurn
lærdóm af þróun mála i Portúgal undan-
farið — og er þá hvað mikilvægast að
kommúnistar hafi gert það, eins og
raunar ýmsar fréttir hafa bent til. Verði
raunin sú, sem Real telur, að jafnaðar-
menn, kommúnistar og kristiiegir
demókratar verði aðalflokkar hins
frjálsa Spánar, er komið mynztur, :sem
fróðlegt verður að sjá hvernig stendur að
myndun meirihlutastjórnar i landinu. En
ekki er óliklegt að hún verði rótæk vel,
þvi að mörgu þykjast menn sjálfsagt
þurfa að breyta á betri veg eftir svo langt
stjórnartimabil fasista. Og liklegt má þá
einnig telja, aðharðar^kjótar og róttækar
breytingar af hennar hálfu framkalli
hatramma andstöðu fasista og annarra
hægriafla. Má þvi ætla, að sviptivinda-
samt verði i landinu, sem i Portúgal, a
komandi mánuðum og árum. En svo er að
sjálfsögðu oft þegar nýir timar fara i hönd
og menn vilja sópa feysknu spreki á brott.
Nýtt og betra þjóðfélag fæðist ekki átaka-
iaust, hvorki á Spáni né annars staðar.
En allirlýðræðissinnar hljóta að gera sér
eindregnar vonir um, að lýðræðið taki nú
senn um stjórnvölinn i landinu, hvað sem
öðru liður.
# O C
Skemmtilegar
skákir í gær
Baráttugleði skákmannanna á
svæðamótinu i skák virðist vera
að færast mjög aukana. I gær-
kvöldi fórnuðu menn i 4 skákum
af 7, tvær stóðust, ein fórnin
stóðst ekki og ein fór i bið, en það
var skák Friðriks Ölafssonar
gegn Englendingnum Hartston.
Staðan i þeirri skák er mjög tvi-
sýn, en Friðrik er þó talinn hafa
betri stöðu. Annars urðu úrslitin i
gærkvöldi þessi.
Ribli vann Timman
Liverzon vann Van den Broeck
Poutiainen vann Zwaig
Ostermeyer vann Björn og
Murray vann Laine.
Parma og Jansa gerðu jafntefli,
en skák Friðriks og Hartston fór i
bið. Hamman sat hjá. Liberzon og
Ribli eru nú efstir með 5 1/2 vinn-
ing hver.
Flugvallarskattur
á innanlandsleið-
um felldur niður?
Upphaflega var ráðgert að flug-
vallargjald það, sem samþykkt
var á Alþingi 26. april s.l., yrði
aðeins innheimt til loka febrúar-
mánaðar 1976. I fjárlagafrum-
varpi rikisstjórnarinnar er hins
vegar boðið að gjaldtaka þessi
verði framlengd allt næsta ár, og
ekkerthefur heyr-zt frá rikisstjórn
inni um að breytingar séu fyrir-
hugaðar á gjaldtökunni.
Þetta segir Sighvatur
Björgýinsson, þingmaður
Alþýðuflokksins, i frumvarpi til
laga um breytingu á umræddu
flugvallargjaldi. I frumvarpinu
segir ennfremur:
Frumvarp þetta er flutt I þeim
tilgangi að sú breyting verði gerð
á ákvæðum laga um innheimtu
flugvallagjalds, að eftirleiðis
verði gjaldið aðeins innheimt af
þeim farþegum, sem fara frá
tslandi til annarra landa, en
gjaldtakan verði felld niður i
innanlandsflugi. Er hér um
réttlætismál að ræða, þar sem
Reykjavik er sameiginleg
þjónustumiðstöð fyrir allt landið
og er aðeins þar hægt að fá ýmsa
f rettaþraðurinn
Dagsími til kl. 20: 81866
Kvöldsími 81976
nauðsynlega þjónustu sem allir
landsmenn þarfnast. Þá er það
alkunna, að þvi fjær Reykjavik,
sem fólk býr, þeim mun meira
verður það að notfæra sér
þjónustu flugfélaga til og frá
Reykjavik. Innheimta flugvallar-
gjalds af farþegum i innanlands-
flugi verður þvi i raun og veru
samnefndur dreifbýlisskattur,
sem á að leggja niður.
Ómannúðleg
meðferð á
háhyrningum
„Það er hreint hörmulegt að
heyra um meðferðina á
háhyrningnum. Þetta er svo
ómannúðleg meðferð, að mig
skortir hreinlega orð til að láta
vanþóknun mina i ljós. Hins
vegar munum við i dýra-
verndunarfélaginu halda fund
annað kvöid þar sem við munum
fjalla um þetta leiðindamál,
„sagði Svanlaug Löve stjórnar-
meðlimur i Dýraverndunarfélagi
Reykjavikur i samtali við
Alþýðublaðið i gær,
Eins og flestum er kunnugt þá
var enn einu sinni fangaður
lifandi háhyrningur á miðunum
fyrir suðaustan land, en frakkinn
Roger de La Grandiére hefur
heitið nokkrum milljónum króna
fyrir lifandi háhyrning, sem
komið er með til Hornafjarðar.
Margar tilraunir hafa verið
reyndar til að koma
háhyrningum lifandi til Horna-
fjarðar, en dýrin hafa ætið drepist
innan skamms tima. Hins vegar
tókst að koma háhyrningi lifandi
til Hafnar i Hornafirði i fyrradag,
en við svo illan leik að stórsá á
skepnunni og samkvæmt fyrir-
mælum læknis á staðnum var þvi
háhyrningnum lógað.
„Mér finnst þessi meðferð á
dýrinu fyrir neðan allar hellur,”
sagði Svanlaug,” og ég tel
peráónulega að þeir menn sem
fara svona með saklaus dýr, geri
sér ekki grein fyrir þvi hve mikið
þeir niðurlægja sjálfa sig.
Að lokum sagði Svanlaug Löve:
„Sá aðili sem lógaði dýrinu á
Homafirði hringdi i okkur i gær-
kvöldi og benti okkur i dýra-
verndunarfélaginu á þá illu
meðferð sem háhyrningarnir
hafa orðið fyrir. Ég geri ráð fyrir
þvi að þessi meðferð á dýrinu
striði gegn dýraverndunarlögum,
þó ég sé ekki nægilega vel að mér
i lögunum til að geta fullyrt þar
neitt um.
Litasjónvörpin
orðin leyfisvara
Sala litsjónvarpstækja varð
skammvinn sæla hjá innflytj-
endum þeirra, þvi i gær ákvað
viðskiptaráðuneytið að fram-
vegis verði innnutningur þeirra
háður leyfum.
Þetta er að sjálfsögðu gert til
að hamla þvi að fólk taki út
sparifé og kaupi tækin áður en
þau hækka öllu meira i verði.
Rikið hefur sem sé tekið að sér
að hafa vit fyrir fólki með þvi að
leyfa útsendingar i lit, en stöðva
eða takmarka innflutning mót-
tökutækja.
Vilja loforð um ný
launaj af nréttislög
Stjórn Sambands Alþýðuflokkskvenna skorar á samninganefndir laun-
þegasamtakanna — þar á meðal samninganefndir ASI, BSRB og SIB —
að gera það að skilyrði fyrir nýjum kjarasamningum i haust, að rikis-
stjórnin gefi ótvirætt og öruggt loforð fyrir þvi, að þegar verði hafizt
handa um endurskoðun á núgildandi launajafnréttislögum, er kvenna-
samtökin i landinu fái fulla aðild að, og lögfest verði siðan i vetur eða
vor. Sambandsstjórnin hvetur önnur kvennasamtök i landinu til að
sameinast um þetta mál og fýlgja fast eftir kröfunni um launajafnrétti,
verði framangreindri áskorun eigi sinnt. Samband Alþýðuflokkskvenna
S tj órnmálaf lokkarnir
bókhaldsskyldir ?
Verða stjórnmálaflokkar bókhaldsskyldir við liknarfélög i framtið-
inni? Eyjólfur Konráð Jónsson hefur flutt á Alþingi frumvarp til laga
um breytingu á bókhaldslögum þess efnis, en samkvæmt frumvarpinu
verða stjórnmálaflokkar framtalsskyldir, þó svo þeir séu skattfrjálsir
— og jafnframt verður sett þak á skattfrelsi einstakra gjafa eða fram-
laga til flokkanna.
Engar hefðir brotnar
segir verkfræðiskrifstofan
Við teljum að hér hafi engin
hefð verið brotin og að farið hafi
verið eftir reglum sem almennt
eru viðurkenndar” sagði Stefán
örn Stefánsson sem rekur verk-
fræðiskrifstofu undir eigin
nafni, en hún annaðist útboðið i
svartoliu- og lýsistankana i
Neskaupstað sem fjallað var
um i Alþýðublaðinu i gær.
„Ég sagði það á fundinum
þegar tilboðin voru opnuð, að
mér þættu þau öll of há. Einnig
bar ég það undir tilboðsaðila
hvort þeir vildu að gerð yrði
bréflega grein fyrir þvi að öllum
tilboðum væri hafnað. Svarið
sem ég fékk við þvi var neit-
andi.
Það sem næst gerist i málinu
er þetta. útboðið var brotið upp
þannig, að hægt var að bjóða i
einn, tvo eða þrjá tanka ef
tilboðsaðilum byði svo á að
horfa. Okkur þótti að óvissa
vegna veðurs væri of stór
kostnaðarliður i framkomnum
tilboðum. Við höfðum samband
við þá tvo aðila sem lægst tilboð
höfðu átt og sögðum þeim að
hægt yrði að vinna allt að 750
klst innanhúss við smiðina,
þannig að óvissa vegna veðurs
yrði ekki til þess að valda töfum
við smiðina. Að sjálfsögðu var
þetta einnig tekið inn i
kostnaðar áætlunina sem lá
fyrir, og við það lækkaði hún
nokkuð. Astæðan til þess að ekki
var haft samband við fleiri
tilboðsaðila, ereinfaldlega sú að
þeirra tilboðvoru þaðhá aðekki
kom til greina að þeim yrði
tekið, þó þau yrðu lækkuð sem
næmi þvi að óvissa af völdum
veðurs yrði nær engin. Annar
aðilanna mat þessa breytingu á
forsendum það mikils, að hann
lækkaði sig verulega. Þessi aðili
var Sigurður Söebech og fékk
hann þvi verkið. Hinn aðilinn,
Véltak hf., taldi sig ekki geta
lækkað tilboðið nema til jafns
við upphaflegu kostnaðar-
áætlunina. En eins og áður
sagði, var hún lækkuð, vegna
þess að of jnikið tiilit var tekið
til óhagstæðra veðurskilyrða.
Þetta seinna tilboð Véltaks hf.
var ekki bréflegt heldur
munnlegt.
Það segir einnig sina sögu um
fyrri tilboðin og reyndar einnig
þá samninga, sem gerðir voru
við Sig. Söeb., að þeir aðilar,
sem nú eru við verkið, gengu inn
i samninga hans, án þess að þeir
breyttust i nokkru og eftir þvi,
sem ég veit bezt, eru þeir harð-
ánægðir með þá. Þessir menn
eru vanir tankasmiði og mér er
sagt að þeir hafi af þessu ágætar
tekjur” sagði Stefn örn að
lokum.
Fimmtudagur 30. október 1975.
Alþýðublaðið
o