Alþýðublaðið - 30.10.1975, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 30.10.1975, Blaðsíða 8
HORNID s(mi 81866 - eða sendið greinar á ritstjórn Alþýðublaðsins, Síðumúla 11, Reykjavík Bridge Gleymdust smákonurnar? Undrandi faðir hafði samband við Homið: Kannski er ég að bera i bakka- fullan lækinn, með þvi að minnast meira á þetta blessaða kvennafri, eða kvennaverkfall, eða hvað menn vilja kalla þennan baráttu- dag kvenna, s.l. föstudag. En ég get ekki á mér setið. Þannig er mál með vexti, að ég á 11 ára gamla dóttur, sem titaf fyrir sig er ekki i frásögur fær- andi. Nema hvað, að þessi dóttir min er forkur duglegur, eins og reyndar flestar kynsystur henn- ar, þó eldri séu. Sú stutta byrjaði að bera út eitt morgunblaðanna, snemma i vor og hefur staðið sig með miklum ágætum þó ég segi sjálfur frá, enda ekki fengið eina einustu kvörtun á sig frá upphafi. Að sjálfsögðu var mikið rætt um kvennafriið og allt það stúss á okkar heimili, rétt eins og öðrum og einnig að sjálfsögðu tók móðir hennar sér fri frá öllum störfum þennan dag, sem ekki var nema sjálfsagt. En ein var það sem ekki tók sér fri, og það var dóttir min. Ég stakk uppá þvi við hana, að hún einfaldlega skyldi ekki bera blað út fyrr en á laugardag, en sú stutta mátti ekki heyra það nefnt, auk þess sem hún sagði, að ef blaöburðarstelpur ættu að eiga fri, þá hlytu dreifingarstjórar blaðanna að gera þeim viðvart. En þar sem ekkert slikt signal kom frá þeim ágætu mönnum, bar þessi smákona út sin blöð og ekkert með það. Þvl vildi ég spyrja: Var þetta frl ekki kvennafrl? Var ætlazt til að þetta fri færi eftir einhverjum aldurstakmörkum, eða starfs- stéttum? Mér kom þessi ráðstöf- un blaðanna spánskt fyrir sjónir, vegna þess að ég var búinn að lesa I flestum blöðum, hrós rit- stjóra og fréttamanna til þessara baráttukvenna og yfirlýsingar um fullan stuðning. Nei, góðir hálsar, staðreyndin er sú, að smáfólkið vill oft gleymast og verða eftir úti i kuldanum, þegar aðrir fara inn og ylja sér við arineldinn. Þessu verðum við að breyta og það fljótt. Kveðja til Halldórs á Kirkjubóli Orðsending til Halldórs á Kirkju- bóli Halldór minn! Til er ágæt bók, sem mun vera á vegum Alþingis. Hana skaltu út- vega þér og lesa vandlega. Þar er greint frá nefndarstörfum opin- berra starfsmanna, m.a. ráðu- neytisstjóra, sem hafa verið skip- aðir i — eigum við ekki að segja fullt starf, án þess að nefndar- störf væru undirskilin. Getur jafnvel þú ekki skilið, að séu þess- ir menn kafhlaðnir nefndarstörf- um, sé sú hætta þvi samfara, að aðalstörfin — lifsuppeldið, gjaldi þess i einhverju? Ef þú heldur, að það séu „málefnalegar umræð- ur’’ að búa sér til misskilning og leggja út af honum, er þér mál, að endurskoða þá hugmynd. Hrein- skilnislega sagt llt ég svo á, að mönnum sem slikt iðka, sé naum- ast trúandi til að losa næturgagn svo skammlaust sé, hvað þá meirá, og hefur það ekki verið talið til vandasamari verka á landi hér, hingað til. Vinsamlegast Oddur A. Sigurjónsson. Þyrmið há- hyrning- unum Dýravinur skrifar til Hornsins eftirfarandi bréf: Hörmulegt er að lesa fréttir blaðanna, þessa dagana, af svo- kölluðum háhyrningsveiðum, eða háhyrningsföngun. Mér væri nær að halda, að kalla ætti þessar að- farir sumra sjómanna, háhyrn- ingskvalir. Mér finnst eins og þeir geri meira af þvi að kvelja dýrin, en að fanga þau með sómasam- legum hætti. Nú siðast I gær (29. okt.) les maður um það I blöðunum, að orðið hafi að aflifa háhyrning, sem komið var með að landi i Höfn, Hornafirði. Svo mikið skaddaðist dýrið við slæma og fruntalega meðferð mannanna, að ekkert ráð var vænna, en að aflifa dýrið. Og sennilega hefði átt að gera það strax, þvi talsvert langur tlmi leið, frá þvi komið var með skepnuna að landi og þangað til dýralæknir var fenginn til að skoða það og úrskurða dauða- dóminn. En ég vildi spyrja að einu: Hvar eru nú okkar rómuðu dýra- verndunarsamtök? Ekkert hefur heyrzt frá þeim félagsskap um meðferð þessara skepna. Ef ég man rétt, þá er þetta annar há- hyrningurinn sem drepst I hönd- um manna á stuttum tima, hinn fyrri kafnaði i neti i Vestmanna- eyjahöfn fyrir fáum dögum. Ný spennandi framhaldssaga Enn sorglegra er til þess að vita, að gerðir manna þeirra sem hér eru að verki, virðast ráðast af einskærri peningagræðgi. Þessi fransmaður sem hér er og hefur reynt að fanga lifandi háhyrning, hefur sem kunnugt er heitið tals- verðri peningaupphæð, sem greiðslu fyrir lifandi háhyrning. Svona i lokin, mætti kannski koma með ábendingu um það, hvort ekki sé timabært fyrir við- komandi aðila, að halda nám- skeið fyrir bátasjómenn I með- ferð háhyrninga, svo þessi sorgarleikur endurtaki sig ekki á næstu vertið. Og loks: Auk þess mun Arnþór Jónsson, sem veitir nýja félagsheimilinu i Sigöldu forstöðu, koma fram með bassagftar sinn og sýna listir sínar í minningu Elvis Preslev. n Morgunblaðið Aðstoð frá andstæðing- um. Spilið i dag sýnir, hvernig glöggur spilamaður getur neytt andstæðinga sina til að spila út sér i hag, þó ekki sé um kast- þröng að ræða. * G 10 5 ¥ A 10 3 2 * K D 7 * D72 * D7 3 4AK864 ¥ D 7 6 y 4 * 10 643 4G85 * 10 63 .+ K854 A ~9 2 y K J 9 8 5 + A 9 2 * A G 9 Sagnirnar gengu: Austur Suður Vestur Norður lspaði dobl Pass 2spaðar Pass 3 hjörtu Pass 4hjörtu Pass Pass Pass Dobl. Suðurs segir frá opnunar- styrk, en lætur annars i vald Norðurs hvað gera skuli. Tveggja sögn Norðurs i spaða þýðir: Ég á sterka undirtekt, segðu mér frekar frá, hvað þú kýst. Eftir þetta er game-sögn i hjarta auðveld. Vestur sló út spaðaþristi og Austur tók á ás og kóng og spilaði þriðja spaðanum, sem sagnhafi tók á tromp heima. Hann spilaði nú smáhjarta og tók á ásinn i borði og spilaði aftur hjarta á kónginn. Legan kom nú i ljós. Nú mátti sagnhafi ekki tapa fleiri slögum en hinum óhjákvæmilega trompslag. Hann ályktaði nú svo: Liggi laufakóngur I Vestri, er spilið glatað, en liggi hann i Austri er enn von, sem byggist á þvi að Vestur eigi fjóra tigla, þvi ef kóngur og tia i laufi liggja i Austri kostar það að svina tvisvar, til að bjarga spilinu i höfn. Sagnhafi spilaði niu tigli þrisvar ogvar inni á hendi siðast og sló þá út trompgosa. Vestur fékk slaginn, og nú var hann mát. Ef hann spilaði tigultiu yrði hún trompuð i blindum og laufaniu kastað af hendi. Ef hann spilaði laufi tæki sagnhafi á niuna, eða gosann, væri tiunni spilað út, átti innkomu i blind á trompioggæti svinað aftur gegnum laufakóng Austurs og þannig unnið sögnina.A — Ég á að aðstoða við uppskurð á legi á morgun, skaut dr. Jordan inn i samalið. Berg virtist undrandi. — Þér eruð svei mér önnum kaf- inn. Þér fáið stjörnu fyrir hjá foringjanum. Metnaðar- girnd? — Auðvitað vilja allir forframast og ég ætla ekki að sitja hér án þess að hafast eitthvað aö. — Langar yður ekkert til að skemmta yður? spurði Helmut Berg dálítið vonsvikinn. — Ekkert sérstaklega. — Það er krökkt af sætum stelpum hér, sagði Berg. Jan Jordan bandaði frá sér með hendinni. — Hafið þér orðið fyrir vonbrigðum I ástum? — Ég er kannski ekki einn þeirra, sem alltaf verða fyrir vonbrigðum, hugsaði Jan, en ég ætlast vist til of mikils. Það leit út fyrir, að dr. Berg læsi hugsanir hans. — Of vandlátur eða.aðeins hrifinn af einni gerð? spurði hann. — Ég hugsa fyrst og fremst um vinnuna, fór Jan undan I flæmingi. — Já, en menn eiga ekki heldur að neita sér um lifs- nautnirnar, sagði Berg. — En nú fer ég. Við eigum lika uppskurð snemma I fyrramálið og dr. Falk er ekki slður kröfuharður en foringinn. En þeir eru báöir ágætir og eiga fyrsta flokks konur. Já, ef maður væri nú svo heppinn! Jæja, sé maður það ekki nú, getur maður orðið það. Góða nótt. — Góða nótt. Jan var feginn að fá að vera einn. Það var vel gert af samstarfsmanni hans að hugsa til hans og færa honum mat, en það var dálitið erfitt fyrir þreyttan mann að um- gangast Helmut Berg. Jan svaf vært alla nóttina og hann var vaknaður, þegar vekjaraklukkan hringdi. — Hann er iðinn, sá nýi, sagði systir Ulla. — Hann er stundvísari en dr. Denner. — Hann býr skammt héðan og er ókvæntur, sagði systir Anna. — Hann þarf ekki að kveðja neinn á morgnana. Ég verð fegin, þegar Vivi eignast barnið. Vivi Donner hafði verið hjúkrunarkona á Berling-spltal- anum. Hún hafði hætt að vinna fyrir nokkrum vikum. Systir Ulla hafði tekið við af henni. Hún var ung og rösk og hafði þegar sannað dugnað sinn. Húnkom ekki frá góðu heimili og stundum virtist hún hvassyrt og frek, en systir Anna skildi, að það var aðeins vörn hennar gegn umheim- inum. Þetta hafði vakið móðurtilfinningar hennar, þvl að hún skildi, að þessi framkoma ungu stúlkunnar var aðeins sjálfsvörn. — Það lftur illa út með frú Sörensen, sagöi Ulla. — Hún er vist búin að kveðja lifið. Guð forði mér frá þessum sjúk- dómi. Ég myndi líka verða hálfgeggjuð. — Þetta fer allt vel, sagði Anna til að lífga þær upp. — Það er að visu erfitt og alltaf geta menn átt von á ein- hverjum hliðarverkunum, en fyrst yfirlæknirinn ætlar sjálfur að skera hana upp er það það eina rétta. Yfirlæknirinn var að reyna að hrista þreytuna af sér. Hann hafði vakaö lengur en hann ætlaði sér, en þau höfðu skemmtsérsvo vel, að tíminnhafði liðiðhratt. Systir hans Bea og maður hennar, Axel Lassow hæsta-^ réttamálaflutningsmaður, höfðu verið I ljómandi skapi og" það var ekki einkennilegt þvi að Bea var nýbúin aö vinna stóra vinninginn i happdrættinu. Þó að þau væru ekki I neinum efnahagsvandræðum var alltaf gott að fá einhverja viðbót og þau höfðu ákveðið að fara i langt ferðalag með börnin. Heppni I spilum og heppni I ástum, eða réttara sagt I hjónabandi — hvað vildu menn meira? Axel og Bea voru komin yfir erfiðleikana. Þau rifust ekki lengur, ekki einu sinni, þegar Axel var lögfræðingur ungrar og þokkafullrar konu. Bea tók þvi með ró, sem enginn hefði trúað, sem þekkti hana. Um þetta var Stefan Holl að hugsa, þegar hann fór á skurðstofuna. — Hvernig gengur? spurði hann systur önnu, sem færði hann i hanzkana. — Allt er tilbúið, sagði hún. — Ný maðurinn er á slnúm stað. — Aðlaðandi náungi, sagði hann. — Erum við ánægð? — Já! — Gott, ég hef nefnilega trú á yður sem mannþekkjara, systir Anna. — Það litur út fyrir það, sagði hún brosandi. Skömmu siðar brosti hún ekki. Þau höfðu gert ráð fyrir þvi, að aðgerðin yrði erfið, en ekki búizt við hjartakasti. Þetta var barátta við dauðann. Þegar dr. Holl fór af skurðstofunni, vonlitinn, var hann jafn örmagna og hjúkrunarkonurnar og aðstoðarlæknirinn. — Ég held, að ég hefði gefizt upp, sagöi dr. Jordan við dr. Donner. AÐSTOÐAR- LÆKNIRINN — Ekki ef þér hefðuð reynslu yfirlæknisins. Hann gefst aldrei upp. Þessi fáu orð lýstu hrifningu hans á dr. Holl. Skömmu seinna sagði hann: — En hann er ekki aðeins frábær skurðlæknir. Hann er frábær manneskju. Við erum heppn ir. Jan Jordan fannst hann vera heppinn. Hannn hafði i aðeins verið hér fáeinar klukkustundir, en honum fannst hann eiga heima þar. Hann fékk að vera með I öllu, sem gerðist og enginn leit á hann sem óviðkomandi. Hann hafði staðið i stykkinu. Eldraunin var búin. — Farðu nú ekki að skjóta þig i honum, sagði systir Belle. — Ég get séð um mig. Svo væri það vonlaust. — Svona ung og þó svo vitur, sagði systir Anna stríöms- lega. «- En unglingurinn er þá spekingur. — Annars hefði ég aldrei farið að vinna á kvensjúk- dómadeild, þar sem engan karlmann er að sjá, svaraði systir Ulla að bragði. Það voru fleiri karlar en konur á handlækningadeildinni hjá dr. Falk. Streitan sagði æ meira til sln. Það voru ekki aðeins kransæðastifluköstin, heldur margt annað. Of góður og mikill matur og vaxandi vinnautn gerðu sitt til að eyði- o Aiþýðublaðiö Fimmtudagur 30. október 1975. Eftir Katrin Kastell — Einkaréttur: Bastei Verlag,-

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.