Alþýðublaðið - 30.10.1975, Side 9

Alþýðublaðið - 30.10.1975, Side 9
ÁRMANN VANN Ármenningar sigruðu Þrótt i 1. deildar keppninni i handknattleik i Laugardalshöllinni með 17 mörkum gegn 14. Staðan i hálfleik var 9:8 Ármenningum i vil. Leik- urinn var mjög jafn lengst fram- an af, en þegar liða tók á fyrri hálfleik tóku Ármenningarnir forystuna og voru eftir það ávallt yfir. Sigur Ármenninganna bygg- ist aðallega á yfirveguðu spili, betri vörn og markvörzlu, ásamt þvi, að þeir eiga tvo af beztu hornamönnum landsins, þá Pétur Ingólfsson og Jens Jensson, sem voru mjög ógnandi og skoruðu mörg mörk. Kosturinn við Ár- mann er annars sá, hversu liðið er jafnt og sjaldan sjást mikið af stórum vitleysum, eins og mörg flhnur lið i deildinni gera sig oft sek um. Þróttarliðið er allt of ein- hæft i sókninni og geta þeir ekki búist við neinum sigrum i vetur, ef þeirsetja ekki meiri fjölbreytni i sóknarleik sinn. Spilið byggist of mikið um einn mann Friðrik Friðriksson, sem er alltaf marka- hæstur i leikjum liðsins, en aðrir ÞRÓTT 17:14 leikmenn ógna litið i sókninni. Mörk Ármenninga i leiknum gerðu Pétur Ingólfsson og Jens Jensson 4 hvor, Hörður Kristins- son 3, Björn Jóhannesson 2, Stefán Hafstein, Gunnar Triausta- son, Kristinn Ingólfsson og Ragn- ar Gunnarsson eitt hver. Ragnar Gunnarsson gerði sitt mark beint úr sinum vitateig svo segja má að hann hafi ekki aðeins hjálpað Ar- menningum með góðri mark- vörzlu heldur einnig i sókninni. Mörk Þróttar gerðu Friðrik Friðriksson 6, Bjarni JónSson 4, Gunnar Gunnarsson 2, Sveinlaug- ur og Jóhann eitt mark hver. Víkingur vann FH Vikingar sigruðu FH-inga i Islandsmótinu i handknattleik i gærkvöldi 24:19. Vikingar léku þennan ieik mjög vel og gáfu FH aldrei tækifæri frá upphafi leiks. N-írland vann Noreg Heldur vænkaðist hagur Norður tra i 3. riðli Evrópukeppni lands- liða, þegar þeir unnu Norðmenn i írlandi 3:0 i gærkvöldi. Við sigur þennan komust þeir upp i 2. sæti i riðlinum. En von irlands til að komast i 8. liða úrslitin er þó litil, þar sem aðeins einn leikur er eftir i riðlinum, leikur Júgóslaviu og Norður trlands i Júgóslaviu, og verða trarnir að vinna þann leik með minnst tveggja marka mun. Sá ieikur verður leikinn 19. nóvember nk. Danir voru yfir í hálfleik, en síðan... Skotland vann Danmörk i 4. riðli Evrópukeppni landsliða i Glasgow i gærkvöldi 3:1. Staðan i hálfleik var 1:0 fyrir Dani. Á fimmtán minútum i seinni hálf- leik gerðu Skotar þrjú mörk. Kenny Daglish, Bruce Rioch og Ted MacDougall skoruðu. Við sigurinn færist Skotland upp i annað sæti i riðlinum, stigi á undan Rúmeniu og stigi eftir Spáni. Tékkósióvakía- England frestað Leikur Tékkaslóvakiu og Englands, sem fram átti að fara i gærkvöldi var flautaður af vegna þoku eftir aðeins 17 minútur. Var þokan svo slæm, að nær einn þriðji hluti hinna 45.000 áhorfenda, sem staddir voru á leikfanginum i Bratislava gátu aldrei séð knöttinn, frá þvi að dómarinn Mich Elotti frá Italiu flautaði til leiks. Reynt verður að leika leikinn i dag, ef ekki verður eins mikil þoka og i gærkvöldi. Don Givens á „skotskónum” írland vann Tyrkland i 6. riðli Evrópukeppni landsliða i gær- kvöldi með 4 gegn engu. Q.P.R. leikmaðurinn Don Givens gerði öll mörk Ira i leiknum, þrjú i fyrri hálíleik og eitt i þeim siðari. Don Givens hefur nú skorað átta mörk fyrir tra i keppninni af 11. Við sigur sinn i leiknum hefur irland tekið forystuna i riðlinum, með 8 stig, en litil von er þó á þvi að þeir komistáfram, þarsem Sovétrikin eru aðeins einu stigi á eftir og eiga eftir tvo leiki heima gegn Sviss, og á útivelli gegn Tyrk- landi. íþróttir Fleiri félög fara að láta að sér kveða á toppnum Siðasti getraunaseðillinn var hvorki betri né verri hjá spá- mönnum Alþýðublaðsins en verið hefur. Helgi Danielsson, Sigurjón Olafsson og Sunday Express voru efstir og jafnir með alls 7 rétta, Siðan kom Eyjólfur Bergþórsson og Observer með 6 rétta. Sunday Mirror, Suðurnesjatiðindi, Hermann Gunnarsson, Gunnar Sigurðsson og Stefán Eiriksson höfðu allir 5 rétta, og Sunday Times rak svo lestina að þessu sinni með 4 rétta. Við skulum vinda okkur strax i 11. getraunaseðilinn og sjá hvort ekki náistnú árangursem nægir til vinnings i getraununum. Bingham-West Ham X. Flestir spá sennilega West Ham sigri i þessum leik þar sem það er nú i einu af þremur efstu sætum deildarinnar. En þess verður þó að gæta að Birmingham er langt frá þvi að vera auðunnið og kæmi það alls ekki á óvart, þótt það færi með bæði stigin út úr þessari viður- eign, þar sem það er á heima- velli. Væri þó ekki sanngjarnt gagnvart West Ham aðdáend- um að spá liði þess ósigri gegn Birmingham, sem er í einu af neðstu sætum deildarinnar. Jafntefli er þvi meðalvegurinn, enda liklegast að þessi leikur endi þannig, og þá markajafn- tefli. Burnley-Stoke 1. Burnley hefur vegnað mjög vel i leikjum sinum undanfarið og nokkuð langt er nú siðan það tapaði siðast. Liðið er þó nokkuð neðarlega i deildinni, en þar sem keppnin i ár virðist ætla að vera mjög jöfn er ekki alveg að marka, þegar sagt er i hvaða sæti liðin eru, þvi einn sigur get- ur t.d. hækkað lið um mörg þrep, ef þannig stendur á. Bæði iiðin hafa mjög góða leikmenn innan sinna vébanda og er þvi nokkurn veginn vist að leikur þessi verði jafn og skemmtileg- ur þar sem sóknarleikurinn verður hafður i hávegum. Það er ekki ósennilegt að Burnley fari með bæði stigin út úr þess- ari viðureign þvi það leikur á heimavelli, en menn gera sér oft ekki grein fyrir þvi hversu mik- ið það hefur að segja. Coventry-Q.P.R 2. Miðlandafélaginu hefur geng- ið mjög slælega að undanförnu, eftir dágóða byrjun á keppnis- timabilinu. Heimavöllur virðist ekki heldur hafa hjálpað liðinu við að hala inn stig þvi það hefur aðeins unnið einn leik i Coventry af sjö. Það fær nú liðið^sem álit- ið er að hafi beztu framlinu- mönnunum i ensku 1. deildinni á að skipa, Q.P.Ryi heimsókn, og ætti ekki að hafa möguleika á að stöðva þá. Coventry má samt ekki alveg afskrifa gegn Q.P.R. þvi það hefur stundum náð þokkalegum leik og gæti þvi alveg eins vaxið ásmegin gegn Q.P.R. á Highfield Road á laugardaginn. En útisigur er þó sennilegustu úrslitin. Derby Country Country — Leeds Ctd. 1 Þessi leikur er erfiður, þar sem Leeds hefur oft vegnað vel gegn Derby á Baseball Ground. En Derby ætti þó að sigra Leeds liðið að þessu sinni, þvi það er nú álitið vera með eitt bezta liðið i deildinni að þessu sinni og eru þeir ófáir sem spá þvi sigri i 1. deildinni i ár, annað skiptið i röð. Heimasigur er liklegastur en geta verður þess að tveir af beztu leikmönnum Derby, þeir Todd og McFarlandi léku erfiðan leik með enska lands- liðinu i Tékkóslóvakiu i gær- kvöldi, og getur það haft eftir- köst. Everton-Leicester 1. Everton er mun sigurstrang- legra i þessum leik og er það næstum öruggt að það sigrar i leiknum. Liðið vann Wolves á útivelli siðasta laugardag, en Leicester tapaði fyrir Totten- ham á heimavelli sama dag. Leicester hefur ekki unnið leik til þessa og ætti þvi varla að byrja á þvi að sigra gott Everton lið á Goodison Park i Liverpool. Heimasigur er lik- legastur. Ipswich-Aston Villa 1. Ipswich er mun sigurstrang- legra i þessum leik enda á heimavelli. Liðið virðist ekki ná þeim árangri sem vitað er að það getur þvi i liðinu eru margir ungir og efnilegir leikmenn, eins og t.d. Kevin Beattie, Wy- mark, Johnson, Osborne og fleiri. Það hefur þó náð sæmi- legum árangri á útivelli en virð- ist skorta herzlumuninn til þess að vera i efstu sætum. Þetta hlýtur nú að fara að koma hjá þeim og ættu nýliðarnir i deild- inni, Aston Villa, að vera fyrsta hindrunin á þeirri leið. Heima- sigur er lang-liklegastur. Manch. Utd.-Norwich 1. Það ætti ekki að valda neinu rifrildi þegar merktur er 1 á þennan leik enda hafa iþrótta- fréttaritarar ensku pressunnar keppzt um að hæla Manchester United. Vörn Old Trafford-liðs- ins verður þó að gæta marka- kóngsins Ted MacDougall mjög vel ef það ætlar að vinna góðan sigur, því það má aldrei sleppa auga af þessum marksækna leikmanni. Manchester-liðið gerir þó ekki þá skyssu og ætti þvi að vinna þennan leik nokkuð örugglega. Middlesbrough — Liverpool. 1 Lið Jack Charltons vann Liverpool i fyrra á Ayresome Park leikvanginum i Middlesbrough 1:0. Það er svip- að að styrkleika núna og ætti þvi ab eiga mikla möguleika á að vinna þennan leik, þótt svo að Liverpool sé mjög gott lið. ,,Boro” er mjög sterkt heimalið, er það þvi megin ástæðan fyrir þvi að 1 er merktur við þennan leik. En hitt er annað mál að Liverpool með knattspyrnu- snillingana Kevin Keegan og Steve Highway i broddi fylk- ingar ætti alveg eins að geta náð jafntefli, en útisigur er frekar óliklegur. Newcastle-Arsenal. 1. Það er erfitt að sækja Newcastle-liðiðheim, þvi það er mjög sterkt á St. James Park. Oft er sagt um Newcastle-liðið að það sé nánast annað lið þegar það leikur á heimavelli en þegar það leikur á útivelli. Arsenal hefur vegnað vel i siðustu leikj- um liðsins og er það þvi alltaf smá möguleiki að það nái jafn- tefli, þótt liklegra sé að Newcastle vinni. Sheff. Utd.-Nanch. City X. Það er nánast stórfurðulegt hversu illa Sheffield liðinu gengur um þessar mundir, en það hefur innan sinna vébanda marga mjög góða leikmenn eins og t.d. Tony Currie,Alan Wood- ward, svo einhverjir séu nefnd- ir. Það er eins og einhver álög fylgi liðinu. Félagið er langt frá þvi að vera svo lélegt eins og stig þess gefa til kynna i dag, en liðið hefur aðeins hlotið 3 stig. Það hlýtur að fara að koma að þvi að það hreppi fleiri stig og gæti það alit eins unnið Manchester Citý á laugardag- inn. Leikurinn getur þó allt eins farið á alla þrjá vegu, en jafn- tefli er meðalvegurinn og merkjum þvi X hér! Tottenham-Wolves 1. Woives er illa statt um þessar mundir og er talið að langt sé siðan þeir hafi verið eins lélegir og þeir eru núna. Tottenham er miðlungslið og ætti þvi mestu möguleikarnir að verða heima- sigur. Þvi hefur lika alltaf vegnað vel gegn Wolves á siðustu árum bæði á útivelli og heimavelli. Heimasigur likleg- astur. Luton Town-Bristol City. 1. Bristol-liðinu hefur vegnað mjög vel i leikjum sinum i 2. deildinni i ár og er það mál manna að það fari upp i 1. deild að ári komanda. Það tapaði þó óvænt fyrir W.B.A. á heimavelli i siðustu viku og missti við þann ósigur forystusætið i deildinni til Sunderland. Luton er eins og Bristol eitt af beztu liðum deildarinnar en vantar herzlu- muninn til þess, að vera á toppnum. Það er þó gott á heimavelli og á þvi möguleika á að sigra Bristol-liðið á laugar- daginn. Getraunaþjónusta Al])ýðublaðsins Síöustu 8 Leikir sömu lið. cn ^ útileikir síðustu 8 árin £ p Síðustu 8 heima JTTJVVVJ Birmingham VJJJVJTV Burnley TJVJTTTJ Coventry JTVVVVVV Derby County JTTVVVJV Everton VTJVVVTJ Ipswich VWJVVJV Man .United JVVWJJV Middlesbrough VTJVVVJV Newcastle VJTTTVTT Sheffield United VVVJJTJJ Tottenham West Ham TTYJJJVT Stoke City JVJTVTVV Q.P.R. TTVJJJTT Leeds United JTVJVTVJ Leicester TJTJTTJJ Aston Villa VJTTTJJT Norwich VTTJJTVT Liverpool VTTVJTJJ Arsenal TTJVJTJT Man.City VJ TTTTVJ Wolves TTJTTTTT I X X X - - 1----- ---12 1 II --X 1------- 111X1 2---X 1X2X1 XIX XX -IX 2 X - 2 X XX 2 X X 2 X 2X1 11 -----XI 1 X X 11 --1 IX 1X1 XI X 2 X 2 2 X 2 1 11 4-> 4-> £ cn £ • 'O 3 cn £ C ■ u c • C-H O) cn o rrt u u £ i—1 SAM— U o 6 3 7S c vO pH £ xo Oý 0> t4 •r—) iALo X -H o QJ 3 ■H pi 4-> • 1 X 2 ta íh s CO co o CO 2 X X 1 2 2 2 1 X X 2 6 4 X X 2 1 X X 1 X 1 1 4 6 2 2 2 X X 2 2 2 X 2 2 n 5 7 X 1 1 1 1 1 X 2 1 1 7 3 2 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 12 C C 1 1 1 1 1 1 1 1 X 1 lo 2 C 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 12 C 0 X 1 2 2 2 X 1 1 X 1 5 4 3 1 1 1 1 X 1 X 1 X 1 8 4 0 2 2 1 1 2 2 2 X 2 X 2 2 8 1 1 1 1 X 1 1 X 1 1 lo 2 C VJVVTJJV Luton Town - Bristol Ciy TTrVJJVV ---1X21- 1 .2 X X ‘1 2 2 2 111 5 25 Fimmtudagur 30. október 1975. Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.