Alþýðublaðið - 30.10.1975, Qupperneq 10
í HREINSKILNI SAGT
Tóinahljóð
Fjármálaráöherra vor hefur nil
upplokið sinum munni og haldið venju-
bundna fjárlagaræðu. Þar hefur, að
sjálfsögðu komið fram útlistun hans á
ástandi i þjóðarbúskapnum og einnig
ráðleitni við að lagfæra eymdar-
ástandið, sem hann og hans félagar hafa
kallað yfir þjóðina. Hér er ekki tóm til
að rekja þessa langloku að ráði, enda
furðulegt hve mikla mælgi hann virðist
þurfa til þess að segja ekkert bitastætt.
Nokkur dæmi mætti nefna. Svo virðist
þó, sem Matthias sé ekki alveg ráða-
laus. Það kemur nefnilega fram, að
„aðalatriðið sé, að ná tökum á vanda
efnahagslifsins”! Skarplega athugað!
En þvi miður minnir þetta óþægilega á
gamansöguna um karlinn og folann.
Karlanginn var búinn að eltast við ljón-
styggan fola daglangt og naut þar við
aðstoðar vinnumanna. En hvernig sem
að var farið, skrapp folinn jafnan úr
höndum þeim. Loks að kvöldi dags
settist gamli maðurinn örþreyttur á
þúfu og blés mæðinni. En hann hafði
ekki lengi hvilzt er hann spratt á fætur
svo segjandi: ,,Ég kann ráðið, piltar.
Það er ekkert annað en að taka helvitið
og hnýta upp i hann snæri”! Matthias
situr nú á sinni þúfu og veit, hvers þarf,
en hvernig á að bera sig að framkvæmd-
inni, er verri saga!
Að þessu sinni ber fjárlagafrum-
varpið óvenjulegan svip. Það er nefni-
lega byggt þannig upp, að reiknað er
með liðum, sem eiga enga stoð i lögum
enn sem komið er. Enginn veit á þessari
stundu, hvort öruggt sé, að þingfylgi
fáist fyrir þeim fyrirhuguðu lögum eða
lagabreytingum, sem hér þurfa til að
koma. Vissulega hafa stjórnarflokk-
arnir nægilegt afl á þingi til þess að
koma fram hvaða löggjöf sem þeim
þóknast, ef samstaða næst þar um. En
með hliðsjón af venjulegum, og raunar
að sumu leyti mannlegum viðbrögðum
þingmanna, þegar skerða á hlut kjör-
dæma þeirra, sýnist harla liklegt, að
einhverjir i liðinu verði fremur ófúsir á
að rétta upp hendur til stuðnings við
ýmsar hugdettur fjármálaráðherra.
Enn má benda á, að nú eru 6—7 vikur til
stefnu, til þessað koma áfram nauðsyn-
legum lagabreytingum og lögum, auk
„Vélstrokkað
tilberasmjör”
fjárlagafrumvarpsinssjálfs. Þegar þess
er svo gætt, að frumvörpin hafa ekki séð
dagsins ljós, er hætt við að kapphlaup
við timann standi nokkuð tæpt.
Við skulum segja, að það komi engum
á óvart sultarhljóðiðsem einkennir bæði
þetta afkvæmi ráðherrans og málflutn-
ing. Það er bara samhljómur i sinfóniu
annarra stjórnvalda um þessar mundir.
Lakara er tómahljóðið i raunhæfum
endurbótaaðgerðum. Við getum fallizt
á, að það eigi að vera bjarghringur að
nlðast á li'fsafkomu aldraðra, sjúkra og
öryrkja. En einmitt þarna á að skera
stærstu sneiðina af, miðað við fjárlög
fyrri ára. Við getum fallizt á, að ýmis-
legt hafi gengið úrskeiðis i lögum um og
Eftir Odd A. Sigurjónsson
framkvæmd á lánasjóði námsmanna
áður og þar þurfi breytingar til að
koma. En við getum ekki fallizt á, að
fyrirvaralaust sé skertur hagur þeirra
jafn geypilega og nú er gert og fyrirhug-
að. Við getum samþykkt, að grunn-
skólalögin hafi verið flan. En fyrst þau
eru staðreynd, er erfitt að samþykkja,
að einmitt nú þegar á þvi veltur, að
koma i framkvæmd þeim þætti sem
flestir virðast sammála um, að réttlæti
helzt þeirra tilurð — verknámið, séu
fjárframlög niður skorin.
1 heild má segja, að fyrirliggjandi
fjárlagafrumvarpi svipi mest til þeirrar
smjörtegundar, sem seiðkonur fyrri
tima framleiddu, tilberasmjörsins. Það
var fengið með þvi að láta tilberana
sjúga ær og kýr nágrannanna og gubba
siðan i strokk tilberamæðranna. Það
hafði þá eiginleika, að ef dreginn var
kross i skökuna, varðhún að froðu einni.
Færðar hafa verið að þvi nokkrar likur,
að vel gæti svo farið, að einhverjum-
máske ekki svo fáum samherjum gæti
dottið I hug, að draga „kross” i þessa
sköku Matthiasar. Fari svo, er hætt við
að sömu verði örlög f járlagafrumvarps-
ins og tilberasmjörs fyrri alda, það
verði að froðu. Ekki veit ég, en aðstæður
sýnast fyrir hendi, þó i þessu falli sé um
að ræða „vélstrokkun”, þar sem kerl-
ingarnar handstrokkuðu áður.
k‘lk
Auðmaðurinn
Solsjenitsyn
Hann er orðinn milli, hann
Solsjenitsyn. Hann er búinn
að græða um það bil 25 mill-
jónir (norskra króna) á bók-
um sinum og ritverkum, sið-
an honum var visað úr
heimalandi sinu, Sovétrikj-
unum, fyrir nokkrum árum.
En peningarnir hafa ekki
leyst vandamál hans, nema
siður sé. Hann er orðinn full-
saddur af okkar peninga-
þjóðfélagi, enda þvi vanast-
ur að lifa i fámenni og um-
gangast fólk, sem ckki hugs-
ar svo mikið um þessa heims
gæði og peninga.
Um tima var Solsjenitsyn
helzt að hugsa um að ganga i
klaustur, en einhverra hluta
vegna varð ekkert úr þvi og
nú er hann aftur kominn til
Sviss, ásamt fjölskyldu
sinni.
Solsjenitsyn er um þessar
mundir að ljúka við bók um
útlegð Lenins i Sviss, fyrir
byltinguna 1917.
**
Ali
kjaftaskur
Hann Muhammed kappinn
Ali heldur áfram að gefa út
yfirlýsingar og vekja athygli
á sér og sinum málefnum. Sú
nýjasta i þessum langa hala
yfirlýsinga frá Ali, varðar
nýleg kaup hans á enn einni
krá I Florida. En eins og
margir eflaust vita, er það
helzta fjárfesting hans um
þessar mundir, að sanka að
sér veitingakrám. Og alls
staðar er sömu sögu að
segja. Enginn hvitur maður
fær aðgang að veitingahús-
um Alis, og þeir skulu bara
reyna og þá... segir Ali og
horfir ögrandi á menn.
Raggri rólegri
VAfísTU A4
EÞf7R N\AíVfft tU a-Ð
TKOfA af’/írVco>')*/«, É<J
í(KiÉáA n&T-n...
Fjjalla-Fúsri
Alþýðublaöið
Bíóín
IÁSKÓLABIÓ iim^UO^
Caroline Lamb
Listavel leikin mynd um ástir
Byrons lávaröar og skálds og
eiginkonu eins þekktasta
stjórnmálamanns Breta á 19.
öld. Leikstjóri: Robert Bolt.
Tónlist eftir Richard Rodney
Bennett, leikin af Filharmón-
iusveit Lundúna undir stjórn
Marcus Dods.
tSLENZKUR TEXTI.
Frábærir leikarar koma fram
i myndinni m.a. Sarah Miles,
Jon Finch, Richard Chamber-
lain, John Mills, Laurence
Oliver o.m.fl.
Sýnd kl. 5.
Þetta er mynd fyrir alla^ekki
sist konur.
Tónleikar ki. 8,30.
AUGARASBÍÓ sim~
ZÁCHÁRIÁH
COLOH <;p -3E£-
Ný Rock Western kvikmynd,
sú fyrsta sinnar tegundar hér-
lendis. í myndinni koma fram
nokkrar þekktustu sem uppi
eru i dag m.a. Country Joe and
The Fich og The James Gang
og fl.
Aðalhlutverk: John
Rubinstein, Don Johnson,
Elvin Jones, Dough Kershaw.
Bönnuö börnum innan 12 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Harðjaxlinn
HÁRD NEGL
TOMAS MILIAN
ýfW'fc CATHERINE SPAAK
4^14. ERNEST BORGNINE
MMmm NERVEPIRRENOE SKILDRING
11 01 HAROE ORENGES CPGBR.
fSBk OERSlAR PUBIIKUM
Sýnd kí. 11.
lAFHARBÍÓ Slmi 16444 >
Meistaraverk Chaplins:
SVIflSLJÓS
Hrifandi og skemmtileg, eitt
af mestu snilldarverkum
meistara Chaplins og af flest-
um talin einhver hans bezta
kvikmynd.
Höfundur, leikstjóri, aöal-
leikari: Charli Chaplin, ásamt
Clarie Bloom, Syndey
Chaplin.
ISLENSKUR TEXTI
Hækkaö verö.
Sýnd kl, 3, 5.30, 8.30 og 11.
Ath. breyttan sýningartima.
IÝIA ÖÍÓ Slmi 1154«:.
Sambönd i Salzburg
rTHE SAIZBURGH
tslenzkur texti
Spennandi ný bandarisk
njósnamynd byggö á sam-
nefndri metsölubók eftir
Helen Mclnnes, sem komiö
hefur út I islenzkri þýöingu.
Aöalhlutverk: Barry
Newman, Anna Karina.
Bönnuö innan 14 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuö börnum
ÓNABÍÓ slmi 31183
TOMMY
Ný, brezk kvikmynd, gerö af
leikstjóranum Ken Russell
eftir rokkóperunni Tommy,
sem samin er af Peter Towns-
hend og The Who.
Kvikmynd þessi var frumýnd i
London i lok marz s.l. og hefur
siöan veriö sýnd þar viö gifur-
lega aösókn. Þessi kvikmynd
hefur allstaöar hlotiö frábær-
ar viðtökur og góöa gagnrýni,
þar sem hún hefur veriö sýnd.
Myndin er sýnd i stereo og
meö segultón.
Framleiöendur: Robert Stig-
wood og Ken Russell.
Leikendur: Oliver Reed, Ann
Margret, Roger Daltrey, El-
ton John, Eric Clapton. Paul
Nicholas, Jack Nicholson,
Keit Moon, Tina Turner og
The Who.
Sýnd kl. 5, 7.10 og 9.15.
ISLENZKUR TEXTI.
Bönnuö börnum yngri en 12
ára.
Hækkaö verö.
Kaupið bílmerki
Landverndar
Hreintl
tí?Bland I
fagurt I
land I
LANDVERND
Til sölu hjá ESSO og SHELL
bensínafgreiðslum og skrifstofu
Landverndar Skólavörðustíg 25
STWRHUBÍÓ simi .8336
tSLENZKUR TEXTI.
Hörkuspennandi ný itölsk-
amerisk sakamálamynd i lit-
um um miskunnarlausar
hefndir.
Aöalhlutverk: Henry Silva,
Richard Conte, Gianni Garko,
Antonia Santilli.
Bönnuö börnum.
UftObSKAHlWlPW
KCgNELjliS-
JQNSSOhí
sw)L*w»i!úsm;S'
HANKASIRjf II e
Laus störf við
Alþýðublaðið
Blaðburðarfólk
óskast til að bera
blaðið út
í eftirtaldar götur
Reykjavik:
Bakkavör Sævargarðar
Melabraut Vallarbraut
Miðbraut Melahverfi
Nesvegur Gerðin
Skólabraut
Hafið samband við
afgreiðslu blaðsins
- Sími 14900
hefur opið
pláss fyrir
hvern sem er
HORNIÐ
sími 81866
- eða sendið greinar á ritstjórn
Alþyðublaðsins,
Síðumúla 11,
Reykjavík
Hringið í
Fimmtudagur 30. október 1975.