Alþýðublaðið - 31.10.1975, Qupperneq 9

Alþýðublaðið - 31.10.1975, Qupperneq 9
I Útlitið ekki gott hjá Englendingum eftir tapið gegn Tékkum í gær Englendingar fóru enga frægðarför til Tékkoslóvakiu, þar sem þeir léku næst siðasta leik sinn í 1. riðli Evrópukeppni lands- liða. Fyrst varð að fresta leiknum vegna þoku eins og blaðið hefur þegar sagt frá, og svo þegar leik- urinn var loks leikinn, töpuðu Englendingarnir 2:1. Southampton leikmaðurinn snjalli Mike Channon tók forystu fyrir Englendinga strax um miðjan fyrri hálfleik, en Z. Deneknehode jafnaði fyrir heimaliðið rétt fyrir hálfleik með glæsilegum skalla. Strax á 2. minútu siðari hálfleiks tóku Tékkarnir svo forystuna, og nú var það Peter Gallis, sem skoraði, einnig með skalla. Þetta tap er mikið áfall fyrir fram- kv æ m darstjóra enska landsliðsins Don Revie, og enska knattspyrnu, þvi nú eru þeir i stórri hættu á að komast ekki i 8. Mike Channon gerði eina mark Englands i 2:1 tapi fyrir Tékkum i Bratislava i gær. liða úrslit Evrópukeppni lands- liða, eins og þeir gerðu sér góðar vonir um. England á nú aðeins einn leik eftir i riðlinum gegn Portúgal i Lissabon 19. nóv. Tékkar, sem eru einu stigi á eftir Englendingum eiga hins vegar tvo leiki eftir, báða á úti- velli, gegn Kýpur og Portúgal. Staðan i riðlinum er annars þessi: Engl. 5 3 11 10/2 7 Tékkósl. 4 3 0 1 11:4 6 Portúg. 3 111 2:5 3 Kýpur 4 0 0 4 0:12 0 Leikirnir sem eftir eru: 12/11 1975 Portúgal-Tékkóslóvakia 19/11 1975 Portúgai-England 23/11 1975 Kýpur-Tékkóslóvakia 3/12 1975 Portúgal- Kýpur. Ármann tapaði fyrir finnska körfuknattleiksliðinu Playboys í Evrópukeppni bikarhafa í gær - kvöldi 65:88. Betri hittni og meiri stærðarmunur var lykillinn að sigri Finnana. Jimmy Rogers var stigahæstur Ármenninga en Ronnie Canon hjá Finnum Luton selur Alston Luton Town seldi á jniðviku- dagskvöldið Ástraliumanninn Adrian Alston tii Cardiff City. Alston þessi var einn besti leik- maður Astraliu i heims- meistarakeppninni i V-Þýzka- landi 1974. Eftir keppnina voru mörg fræg lið á Bretlandseyjum á höttum eftir honum, en Luton bauð bezt og þangað fór hann. Hann var með markahæstu mönnum Luton i 1. deildinni ensku i fyrra, en þá lek Luton i 1. deild eins og menn muna. 1 vetur hefur honum hins vegar ekki vegnað eins vel með félaginu og þvi ákvað það að selja þennan skemmtilega leik- mánn til Cardiff. Hann mun þvi leika undir stjórn velska lands- liðsmannsins fræga, Mike Eng- land, en hann gerðist fyrirliði hjá Cardiff eftir að hann fór frá Tottenhm. Ekki veitir vist af að hressa upp á þetta gamla fræga lið, en þeir hafa verið i miklum öldudal að undanförnu. Til gaman má geta þess að Cardiff er eina félagsliðið utan Eng- lands, sem unnið hefur ensku bikarkeppnina. FH-ingar voru of svifaseini Eins cg sagt var frá i blaðinu i gær vann Vikingur FH i 1. deildarkeppninni i handknattleik 24:19. Vikingarnir tóku leikinn i sinar hendur, þegar i upphafiog skoruðu hvert markið á fætur öðru, fram hjá þunglamalegri og silalegri vörn Hafnarfjarðar- liðsins. Þannig mátti sjá tölur eins og 7:3, 9:4, en staðan i hálf- leik var 13:7 Vikingum i vil. Byrjun siðari hálfleiks var svipuð og sá fyrri hafði endað. Vikingarnir juku jafnt og þétt for- skot sitt i leiknum. Þegar staðan var orðin 16:8, tóku FH-ingar til þess bragðs að taka Viggó Sig- urðsson og Pál Björgvinsson úr umferð. Við þessa ráðstöfun kom mikið fát og fum á sóknarleik Vikinga, með þeim afleiðingum, að FH-ingum tókst að minnka muninn jafnt og þétt. Þegar 8 minútur voru eftir að leiktiman- um var staðan 20:16, en Vikingar tóku sig saman i andlitinu það, sem eftir var, og gerðu 4 mörk gegn 3, þannig að leiknum lauk með 5 marka sigri Vikinga, eins og fyrr segir, 24:19. Víkingar eiga sannarlega hrós skilið fyrir leik sinn, þvi þeir léku hraðan og skemmtilegan hand- knattleik. Þannig gerðu þeir 10 Dómaranámskeið Frjálsiþróttasamband islands hefur ákveðið að efna til dómara- námskeiðs i kastgreinum. Nám skeiðið fer fram i 1R húsinu við Túngötu og hefst mánudags- kvöldið 3. nóvember ki. 20.30. Væntanlegir þátttakendur eru beðnir að skrá sig á skrifstofu 1S1, en siminn þar er 83377. Skráningu lýkur fyrir mánudagskvöldið. Aðalfundur Aðalfundur Knattspyrnuráðs Reykjavikur verður haldinn i ráðstefnusal Hótels Loftleiða á morgun laugardaginn 1. nóv og hefst kl. 13.30. X Bikarkeppni KKI Frestur til þátttökutiÍKynningu fyrir bikarkeppni Körfuknatt- leikssambands íslands rennur út laugardaginn 1. nóvember. Þau félög, sem enn hafa ekki tilkynnt þátttöku sina er bent á að gera það sem fyrst. KKÍ hyggst ganga fyrir dóm- aranámskeiði fyrir körfuknatt- leik. Hörður Tulinius og Kristján Albertsson munu leiðbeina. Nám- skeiðið fer fram i KR-húsinu á morgun. r gegn fljótum mörk úr hraðaupphlaupum, Vörn liðsins var einnig mjög góð og Rósmundur varði vel i leiknum. Þá er komið að FH-liðinu. Langt er siðan maður hefur séð FH-ingana jafn lélega og iár. Greinilegt er að hinir reyndari leikmenn iiðsins hafa ekki fylgt þeiri öru þróun varnaraðferða, sem átt hefur sér stað i hand- knattleik siðustu ár. Þeir eru þunglamalegir i vörn,gamli skot- krafturinn að mestu horfinn og engir ungir leikmenn virðast geta fylltskarð Viðars og Geirs. Mark- verðirnir Birgir og Hjalti verja litið, enda gerirvörnin litið til að Víkingum aðstoða þá. Já, það er greinilegt að FH er að fara i gegnum öldudal, og getur hann staðið nokkuð lengi yfir, ef ekki koma neinar nýjar langskyttur i liðið. Flest mörk Vikinga i leiknum gerði Stefán Halldórsson 7, Viggó 6, en Þórarinn var markhæstur hjá FH með 6 mörk. Óskar Guðmundsson hefur leikið báða landsleiki tsiands i badminton til þessa. Hann verður einnig með í þeim þriðja gegn Færeyingum i kvöld kl. 20. i Laugardalshöllinni. Landsleikur Æ Islands og Færeyja í badminton er í kvöld í kvöld fer fram þriðji landsleikur islendinga i badminton i laugardalshöllinni. Nú eru það frændur vorir Færeyingar, sem verða mótherjar okkar en hinir tveir voru gegn Finnum og Norð- mönnum. Landsleikur- inn hefst kl. 20. og er ekki að efa að þeir 3000 þúsund íslendingar, sem iðka þessa útbreiddu iþrótt liggja ekki á liði sinu við að hvetja Islendingana. Á laugardaginn verður svo haldið opið mót i íþróttahúsinu i Garðarhreppi með þátttöku Færeyinga og allra sterkustu . badmintonleikara íslands. íslendingar einir Norðurlanda- í undankeppni OL í blaki þjóða Mörg stór verkefni eru fram- undan á komandi vetri hjá is- lenzkum blakmönnum. Fyrir- hugaðir eru 10 landsleikir við þjóðir af mismunandi styrk- leika, og gerir Blaksambandið sér vonir um að þessi ört vax- andi iþrótt hér heima eigi eftir að eflast og þroskast til muna i þessu landsleikjaprógrammi. Fyrstu landsleikirnir verða við Englendinga laugardaginn 1. nóvember og sunnudaginn 2. nóv. Báðir leikirnir fara fram i Iþróttahúsi Kennaraháskóla tslands. Fimmta og sjötta des. n.k. verða síðan háðir landsleik- ir við Færeyinga, en það hefur verið ákveðið að árleg keppni muni fara fram milli þessara þjóða næstu fimm árin og verð- ur keppt um veglegan bikar. Island mun verða eina Norður- landaþjóðin, sem taka mun þátt i undankeppni Olympiuleik- anna, en sú keppni verður hald- in i Róm dagana 15.-23. janúar. Island er þar i riðli með Búlgariu, Austur-Þýzkalandi, Spáni og Indónesiu. Sænskur þjálfari mun koma um miðjan desember og undirbúa landslið okkar fyrir þessa keppni, en með honum mun kona hans einnig koma, en hún er þekkt blakkona i sinu heimalandi. Mun hún aðallega einbeita sér að þjálfun kvenna. Á heimleið frá Róm verður svo héimsókn Englendinga endurgoldin og leikinn einn landsleikur við þá. Blak er með vinsælustu iþróttagreinum i heiminum og er það álit forystumanna blak- mála að þess verði eigi langt að biða unz blak fari að skipa sér jafn háan sess i islenzku iþrótta- lifi eins og t.d. knattspyrna og handknattleikur, eins og gerist úti i hinum stóra heimi. Það er staðreynd að siðan Blaksam- bandið var stofnað árið 1972, hefur iþróttin vaxið hröðum skrefum. Flestir af forystu- mönnum blaks eru menntaðir iþróttakennarar. Fyrir tilstilli þessara manna hefur Iþrótta- kennarafélag Islands gengizt fyrir þvi að gefa út blað sem sent er til allra iþróttakennara- skólanema. Blað þetta kemur út á 2 til 3 mánaða fresti. 1 riti þessu er ýmiss konar fróðleikur um uppbyggingu mismunandi iþrótta. Nú hefur útgáfustjórn þessa blaðs undir forystu Ingvars Þóroddssonar, en hann er ritstjóri blaðsins ákveðið að safna áskrifendum fyrir blað þetta gegn vægu gjaldi þvi rit- stjórninni er það mikið i mun lagt að blað þetta komist til flestra þeirra sem áhuga hafa á iþróttum. Þegar hafa verið gef- in út nálægt 70 tölublöð og fá þeir sem gerast áksrifendur að þessu blaði i dag öll þau blöð, sem gefin hafa verið út til þessa, gjaldlaust. 1 tölublöðum þessum eru margar fróðlegar greinar, sem eflaust vekja fólk með -- - 00 ^ 1 Treir markveröir, marglr boltar. Tvelr fastir menn. Breyta má stööu föstu mannanna, braut bolta,^ og skotlagl. Bæta má lnn mark- veröl í þaö mark sem skotlö er á, fyrst óvirkum, síðar vlrkum. Tvelr markveröir, marglr boltar. Engir fastlr menn. Breyta má út- kastlengd, þannig aö skotmenn þurfil aö drippla lnn aö marktelg eöa / komast lnn á teig í þremur skrefvun.j Bata má inn markveröl. i þessuin blöðum, sem i.K.F.t. gefur út er margs konar fróðleikur um iþróttir af öllu tagi. T.d. var efni þessa blaðs, sem myndin er af, leiöbcining til þjálfara i bandknattleik eftir Hilmar Björnsson þjálf- ara Vals i bandknattleik, en liann dvaldist um tima úti i Sviþjóð við að kynna sér slík mál. áhuga á iþróttum til umhugsun- ar um iþróttamál. Þarna má finna margar mjög fróðlegar greinar um t.d handknattleik, sem Hilmar Björnsson þjálfari Vals hefur skrifað. Grein um þjálfun i skólum eftir hinn ágæta frjálsiþróttaþjálfara Guðmund Þórarinsson. Þeir sem áhuga hafa á þessu blaði eru beðnir að snúa sér til skrifstofu Blaksambandsins Föstudagur 31. október 1975 Alþýðublaðið tl I

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.