Alþýðublaðið - 05.12.1975, Qupperneq 2
AUrrEÍÍAFÉIiMiS ÍUIIS
tiKllKSASXKii 111
Opin í dag
Sérsýning - Gólfefni 75
Húsbyggjendur-Húseigendur
t sýningarsal okkar er sérsýning á ýmsum
gerðum gólfefna (teppi, parket, dúkur og
fU
Sýning er opin i dag frá kl. 14—22.
Ath.: Ókeypis aðgangur
Siðasti sýningardagur.
Rafmagnsveitur ríkisins auglýsa laust til umsóknar starf bókhalds- og skrifstofufulltrúa að svæðisskrifstofu Rafmagnsveitnanna á Egilsstöðum. Umsóknir með upplýsingum um menntun, aldur og fyrri störf sendist starfsmanna- stjóra. ■■k ’l Rafmagnsveitur rikisins Laugavegi 116 f ^ J Reykjavik
TAKIÐ EFTIR Basar Verkakvennafélagsins Framsóknar, er laugar- daginn e. Ues. kl. 14 i Alþýðuhúsinu gengið inn Ingólfs- strætismegin. Komið og geriö góð kaup. Basarstjórn.
æíh
Sunnudaginn 7. desember kl. 16:00 kynna Erik Skyum-Nielsen, danskur sendikenn- ari, og Ingeborg Donali, norskur sendi- kennari, nýjar danskar og norskar bók- menntir. Gestur verður norska ljóðskáldið OLAV HAUGE, sem les úr eigin ljóðum.
Verið velkomin. Norræna húsið.
Volkswageneigendur llöfum fyrirliggjandi: Bretti — Huröir — Vélarlok Geymslulok á Wolkswagen I allflestum litum. Skiptum á einum degi með dagsfyrirvara fyrir ákveðið verð. Reynið viðskiptin. Bilasprautun Garðars Sigmundssonar. Skipholti 25 Simar 19099 og 20988.
[ Alþýðublaðið á hvert heimili
^ Alþýðublaðið
RÖDD
JAFNAÐARSTEFNUNNAR
alþýðu
1 n ct
Flokkur, sem
Alþýðubandalagið, og á undan þvi
Sameiningarflokkur alþýðu-Sósial-
istaflokkurinn, hafa verið sterk öfl i
islenzkum stjórnmálum og verka-
lýðsmálum. Þessir flokkar eru arf-
takar hins hreina kommúnista-
flokks, sem stofnaður var 1930.
Hefur þó oft verið um það deilt,
hvort réttmætt væri að kalla Al-
þýðubandalagið kommúnistaflokk,
en það leggur sjálft i áróðri sinum
rika áherzlu á, að það sé aðeins is-
lenzkur, lýðræðislegur sósialista-
flokkur.
Enginn vafi er á þvi, að meirihluti
þeirra almennu kjósenda, sem
greiða Alþýðubandalaginu atkvæði
sin, eru ekki kommúnistar og
mundu ekki kæra sig um kommún-
istiskt stjórnarfar, t.d. eins og það
er i Austur-Evrópu eða á Kúbu, eða
islenzka útgáfu af þvi tagi.
Hins vegar verður ekki gengið
framhjá þeirri staðreynd, að valda-
mestu forustumenn Alþýðubanda-
lagsins eru kommúnistar, ýms at-
riði i stefnu flokksins eru i anda
heimskommunismans og málgagn
flokksins Þjóðviljinn er kommúnist-
iskt áróðursrit.
Tilefni er til að rifja þessar stað-
reyndir upp nú, af þvi að 45 ára af-
mælis stofnunar Kommúnistafl. ísl.
hefur verið minnzt með hátiðarsam-
komu i Reykjavik, og Þjóðviljinn
hefur birt lofgerðarrollu um þennan
atburð eftir Einar Olgeirsson. Einar
er einn þeirra manna, sem tengja
saman hinn gamla, hreina
kommúnistaflokk, sem ekki dró dul
á stefnu sina og eðli, og hina siðari
flokka, sem af tækifærissinnuðum
hvötum hafa blekkt þjóðina með þvi
að þykjast vera annað. Enn eru
fleiri forustumenn starfandi i Al-
þýðubandalaginu, sem hófu feril
sinn i Kommúnistaflokki íslands og
hafa án efa ekki breytt um grund-
vallar lifsskoðun, þótt þeir sigli
undir fölsku flaggi.
Það er mikilsvert i þessu sam-
bandi, að Þjóðviljinn er greinilega
kommúnistiskt málgagn. Það má
sjá á blaðinu svo til hvern dag. Þvi
er að visu ætlað að endurspegla
sauðagærupólitik Alþýðubandalags-
ins, en blaðið á erfitt með að fóta sig
gengur aftur
á þeirri linu. Það kom nú siðast i ljós
i afstöðu þess með portúgölskum
kommúnistum, sem eru strangir
harðlinubyltingamenn. ítalskir
kommúnistar hafa tekið afstöðu á
móti þeim, en ekki Þjóðviljinn. Þá
er greinilegt af Þjóðviljanum, að
hann tekur afstöðu með Sovétrikj-
unum gegn Kina i innri baráttu
hinna kommúnistisku stórvelda.
Alþýðubandalagið þykist vera
óháð hinum sovézka heims-
kommúnisma og tekur stundum af-
stöðu til að sýna það. En þrátt fyrir
allt er haldið við samböndunum,
vissir menn fara reglulega austur til
Moskvu, þar er rúm fyrir islenzka
námsmenn, þaðan koma ferða-
styrkir og önnur aðstoð til hins
kommúnistiska kjarna Alþýðu-
bandalagsins. Það var nýlega viður-
kennt af formanni Alþýðubanda-
lagsins, sem er valdalaust peð til
þess ætlað að sanna ,,hina nýju
mynd” kommúnismans i Alþýðu-
bandalaginu, að erlendir kommún-
istaflokkar byðu bandalaginu á al-
þjóðlegar ráðstefnur sinar. Þótt
boðin séu oftaSt ekki þegin (til að
sýnast), þekkja hinir erlendu
kommúnistaflokkar sina. Þess
vegna bjóða þeir.
Það er ekki að ástæðulausu, að
minnzt hefur verið 45 ára afmælis
Kommúnistaflokks Islands. Hann
hefur lifað, þrátt fyrir nafnbreyt-
ingar, og afmælinu var ætlað að
minna á, að flokkurinn mun lifa á-
fram. Það ættu kjósendur Alþýðu-
bandalagsins að ihuga vandlega.
Sem betur fer hefur Alþýðubanda-
lagið hjakkað i þvi 'farinu að fá 16-
19% atkvæða, örlitið meira eða
minna eftir aðstæðum. Kommúnist-
um hefur ekki tekizt að brjótast
gegnum 20% múrinn og verða
,,stór” flokkur. Nú er ekki bjart
framundan fyrir þá. Margir af dug-
legustu forustumönnum þeirra fara
að hætta vegna aldurs, fáir nýir
koma i staðinn, nema nokkrir rit-
höfundar og stofukommar, sem hið
breiða verkalýðsfylgi flokksins mun
ekki sætta sig við. Það er hin nýja
kynslóð þróttmikilla jafnaðar-
manna, hinir einu sönnu lýðræðis-
sósialistar, sem eiga leikinn.
Ásgeir Magnússon -In Memoriam
f. 24. 11. 1923
d. 28. 11. 1975
Kola á Kveldúlfsbryggju,
kuðung undir steini,
drógum drengir tveir. '
Fló i flæðarmáli,
fiskititt á króki,
öllu mátum meir.
Fórum vitt um fjörur,
flæðarmálið tæra
geymdi gersemar.
Sundin svelli bundin
seiddu hugi unga,
kvöld var kJakavök.
Vitatorg um vetur,
völlur æskuleikja,
skóf i skafla fönn.
Sumarkvöld við sundin,
sendinn fjörukambur
rétt við Rauðará.
Þar i þarabingi
þöngulhausaslagur
stóð með strákum tveim.
Horfinn ert þú héðan
hvilu drottins feginn,
bernsku-bróðir minn.
Við þig vil ég segja,
vinur, á stund dauðans:
Hafðu hjartans þökk.
Eitt þig aldrei skorti,
ævidaginn stranga,
dyggðir drengskapar.
Lifir i ljúfu minni
leikfélaginn góði,
lifs um liðinn dag.
Jón Ingimarsson
Föstudagur 5. desember 1975.