Alþýðublaðið - 11.12.1975, Page 2
TRÉSMIÐJA
BJÖRNS ÓLAFSSONAR
REYKJAVÍKURVEGI 68 - SÍMI 51975
HAFNARFIRÐI
HÚSBYGGJENDUR!
Munifi hinar vinsælu TI-
TU og Slottlistaþétting-
ar á öllum okkar hurö-
um og gluggum.
*
Ekki er ráð nema i
tnna sé tekið.
Pantið timanlega.
Aukin hagræðing
skapar lægra verð.
Leitið tilboða.
BÉÍI
Barnafata-
verzlunin
Rauðhetta
Látið ekki verðbólguúlf-
inn gleypa peningana
ykkar, i dýrtiðinni. Vör-
ur seldar með miklum
afslætti, alit nýjar og
fallegar vörur á litlu
börnin. Lítið inn og gerið
góð kaup.
Opið laugardaga
kl. 10 til 12.
Ba r naf ataverzl u n i n
Rauðhetta
Iðnaðarmannahúsinu,
Hallveigarstfg 1 — Sími
28480.
Útboð
Tilbofi óskast I þvott á llni o.fl. fyrir skóla, sundstafii og
skrifstofur ýmissa stofnana Reykjavikurborgar.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frlkirkjuvegi 3,
Reykjavlk.
Tilboöin verfia opnufi á sama stafi þrifijudaginn 13. janúar
1976, kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYK3AVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
Volkswageneigendur
Höfum fyririiggjandi: Bretti — Huröir — Vélariok —
Geymslulok á Wolkswagen I allflestum iitum. Skiptum á
einum degi meö dagsfyrirvara fyrir ákvefiifi verö.
Reyniö viðskiptin.
Bilasprautun Garðars Sigmundssonar.
Skipholti 25 Simar 19099 og 20988.
Þér finnið
viðskipta- og athafnalíf
þjóðarinnar í Alþýðublaðinu
Ritstjórnar- lalþýðuj Auglýsinga-
síminn 81866 síminn 14906
• •
R0DD
JAFNAÐARSTEFNUNNAR
Óvirðing við Alþingi
Eins og oft hefur verið bent á hér i
Alþýðublaðinu hefur á undanförnum
árum smátt og smátt verið að draga
úr völdum hinna þjóðkjörnu
fulltrúa, sem skipa Alþingi Is-
lendinga. Framkvæmdavaldið i
landinuhefur stöðugt verið að draga
til sin meiri völd á kostnað lög-
gjafarsamkundu þjóðarinnar. í
mörgum mikilvægum málum er
Alþingi nánast orðið að afgreiðslu-
stofnun þvi svo litið svigrúm er farið
að gefa þingmönnum til þess að
fylgjast með gangi mála og hafa
áhrif á úrlausn þeirra.
Með afgreiðslu fjárlaga i haust og
vetur hefur þó verið kastað tólfun-
um. Fjárveitinganefnd, sem á að
vera sérfræðinefnd Alþingis i þess-
um mikilvæga málaflokki, hefur
vissulega haldið langa og tiða fundi,
en of margir þessara funda hafa
verið haldnir fremur til þess að
drepa timann en til þess að leiða
sjálfa fjárlagagerðina til lykta.
Fjárveitinganefndarmenn hafa
nefnilega litið sem ekkert fengið að
vita um hugmyndir rikisstjórnar-
innar og framkvæmdavaldins um
einstök atriði fjárlaga svo sem eins
og skiptingu útgjalda á einstaka liði
og fjárveitinganefnd hefur jafnvel
verið neitað um mikilvægar upp-
lýsingar frá framkvæmdavaldinu.
Þegar þetta er ritað hefur nefndin,
t.d. enn ekki fengið neinar upp-
lýsingar frá einni umfangsmestu
rikisstofnuninni um hvernig hún
hafi fylgt þeim framkvæmdafyrir-
mælum, sem fyrirhana voru lögð i
fjárlögum yfirstandandi árs. Fjár-
veitinganefndarmenn hafa þráfald-
lega kallað eftir þessum upplýsing-
um, en ekki fengið.
Þá hefur það einnig gerzt, að fyrst
nú á allra siðustu dögum hafa
nefndinni borizt sundurliðaðar
tillögur um skiptingu útgjalda sam-
kvæmt einstökum þáttum fjárlaga-
frumvarpsins frá þeim aðilum i em-
bættiskerfinu,sem þær tillögur eiga
að gera. Tillögur um skiptingu fjár-
veitingar til framkvæmda i hafnar-
málum voru t.d. ekki laðgar fyrir
fjárveitinganefnd fyrr en að morgni
s.l. mánudags og nefndarmönnum
þá gefnir tveir solarhringar til þess
að kynna sér tillögurnar, kynna þær
hinum ýmsu þingmannahópum og
leita eftir skýringum og athuga-
semdum frá hafnaryfirvöldum. Þá
gerðist það um miðjan dag á s.l.
þriðjudegi, að þingmönnum var
fyrst skýrt frá hugmyndum
framkvæmdavaldsins um endanleg-
ar fjárveitingar til heilsugæzlu-
stöðva og skólamála og sundurliðun
þeirra. Þá var frá þvi skýrt, að
endanlega ætti að ganga frá þessum
málum að kvöldi þessa sama dags
svo þingmenn höfðu sem sé brot úr
degi til þess að gera sér grein fyrir
þessúm viðamiklu tillögum, hvað að
baki þeim stæði og hvort ein-
hverjir möguleikar væru á að fá þar
einhverju um þokað.
Svona vinnubrögð eru auðvitað
hrein móðgun við Alþingi íslendinga
og raunar ætti enginn þingmaður að
láta bjóða sér slikt. Þetta er ekki
sagt til þess að gagnrýna fjár-
veitinganefnd eða formann hennar,
núverandi rikisstjórn eða stjórnar-
þingmenn, sem verða að neyðast til
að láta sér þetta lynda. Athygli er
vakin á þessum óhæfu vinnu-
brögðum til þess fyrst og fremst að
hvetja Alþingi sem stofnun til þess
að standa vörð um völd sin og
virðingu og spyrna fótum við þeirri
öfugþróun, sem átt hefur sér stað að
undanförnu i tið margra rikis-
stjórna þar sem smátt og smátt hef-
ur verið að færa hin raunverulegu
völd i þjóðmálum úr höndum Al-
þingis og yfir til annarra aðila i
þjóðfélaginu.
Þingmenn verða að standa
ábyrgir fyrir kjósendum sinum
fyrir þvi sem gert er á Alþingi. Þvi
ætti það að vera lágmarkskrafa
þingmanna, að þau ráð, sem Alþingi
ræður, séu ráðin fyrir atbeina þeirra
en ekki bara á ábyrgð þeirra.
Mótorhjól
Montesa Cota 247 ’75,
nýtt.
Honda CB 450 ’74
Kawasaki 500 ’73
Montesa Cota 247 ’73
Tökum notuð hjól i
umboðssölu. Sér-
verzlun með mótor-
hjól og útbúnað.
Velhjólaverslun
Hannes Ölafsson
Skipasundi 51. Sími 37090
Reykjavik:
Skúlatún
Borgartún
Hátún
Laus störf við
Alþýðublaðið
Blaðburðarfólk
óskast til að bera
blaðið út
í eftirtaldar götur
Ásvallagata
Hofsvallagata
Hringbraut
Melahverfi
Hafið samband við afgreiðslu
blaðsins - Sími 14900
€T Alþýðublaðið
Fimmtudagur 11. desember 1975.