Alþýðublaðið - 16.12.1975, Page 1

Alþýðublaðið - 16.12.1975, Page 1
244. TBL. - 1975 - 56. ARG. ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER Rítstjórn Sföumúla II - Sími 81866 Úrvalið í körfunni - sjá íþróttir í opnu Fjárlögin til annarrar umræðu - bls. 5 j Læknisþjónusta stórhækkar — nýr skattur lagður á SlOKRATRYGGINGAR skornar NIDUR UM 1667 MILLlUNIR 12% vöru- gjaldið framlengt? IVIargt þykir benda til þess, að rikisstjórnin hafi afráðið að fella ekki 12% vörugjaldið, sem sett var á með bráða- birgðalögum i sumar, úr gildi um n.k. áramót eins og til stóð, heldur ætli hún að fram- iengja þessa gjaldtöku út árið 1976. Eftir yfirferð fjár- veitinganefndar á fjárlög- unum fyrir aðra umræðu þykir ljóst vera, að verulega muni skorta á, að áætlaðar tekjur rikissjóðs standi undir áætluðum útgjöldum. Þess vegna er því nú hvislað I þing- sölum, að rikisstjórnin ætli sér ekki að fella 12% vörugjaldið niður, enda hefur forsætisráð- herra ekki viljað gefa af- dráttarlausa yfirlýsingu á Al- þingi um, að það verði gert. 1 gær lagði rikisstjórnin fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingar á lögum um almanna- tryggingar þar sem framlög til sjúkratrygginga eru skorin niður um 1667 milljónir króna og sú byrði lögð á sjúklinga og útsvars- gjaldendur. Þetta er framkvæmd rikisstjórnarinnar á þeirri stefnu, sem hún boðaði i fjárlagafrum- varpi sinu um að spara i útgjöld- um rikissjóðs með þvi að skera niður framlög til almannatrygg- ingakerfisins. Eins og að framan segir nemur þessi niðurskurður á rikisfram- lagi til sjúkratrygginga 1667 mill- jónum króna. Þennan niðurskurð á að framkvæma með tvennum hætti. 1 fyrsta lagi á að hækka gjöld, sem sjúklingum er ætlað að greiða fyrir sérfræðiþjónustu og rannsóknir. Þannig á að hækka gjald fyrir viðtal hjá sérfræðingi úr 300 krónum i 600 krónur og hækka greiðslu fyrir röntgen- greiningu úr 250 krónum i 600 krónur. Þá er einnig gert ráð fyrir að hækka hlut sjúklinga i lyfja- kostnaði allt frá 100 til 200 krónum á lyf. Samanlagt veldur þetta hækkun á sjúkrakostnaði um 480 millj. kr. hjá almenningi i landinu — 280 millj. kr. hækkun vegna hækkaðs lyfjaverðs og 200 m. kr. útgjaldahækkun vegna hækkaðr- ar sérfræðiþjónustu. 1 öðru lagi er svo gert ráð fyrir þvi að innheimta sérstakan skatt af útsvarsgreiðendum á landinu — 1% álag á gjaldstofn útsvara eða m.ö.o. sem nemur 10% hækk- un útsvars hjá hverjum gjald- anda. Þessi skattur er lagður á útsvarsgjaldendur til þess að spara rikissjóði sama fjármagn varðandi framlög til sjúkratrygg- inga og er hér um að ræða 1200 millj. kr. nýja skattheimtu. Eins og frá var sagt i Alþýðu- blaðinu var i nóvembermánuði sl. skipuð nefnd með fulltrúum allra þingflokka til þess að endurskoða útgjöld til almannatrygginga i samræmi við boðaðan niðurskurð til þeirra mála i fjárlagafrum- varpinu. Mun ætlunin hafa verið, að sú nefnd fengi tillögur rikis- stjórnarinnar þar um til með- ferðar. Engar slikar tillögur hafa hins vegar borizt nefndinni. Ávextir frá Kanaríeyjunum fyrir þá sem heima sitja Innflutningur á ávöxtum og grænmeti hefur sjaidan verið meiri en einmitt nú fyrir jólahá- tiðina, þegar landsmenn undir- búa hlaðin veizluborð með Ijúf- fengu góðgæti. Hjá Björgvin Schram, stór- kaupmanni, fengum við þær upplýsingar, að ávextir þeir sem á boðstólum væru nú, kæmu hvaðanæva að úr veröld- inni, þó mest frá Bandarikjun- um og Miðjarðarhafslöndunum. Væru þar m.a. appelsinur, epli, sitrónur, grape-aldin, vínber, melónur o.fl. Eru ávextir þessir fluttir með kæliskipum frá hin- um fjarlægari slóðum til Evrópuhafna, þar sem þeim er umskipaðum borð iislenzk skip og flutt meö þeim til landsins. Björgvin kvað verð hafa hækk- að eitthvað, en á þvi væru stöð- ugar, jafnvel vikulegar sveiflur. Hjá Sölufélagi garðyrkju- manna, var okkur sagt að mikið væri flutt inn af grænmeti ein- mitt á þessum tlma, og væru þar t.d. tómatar og agúrkur frá Kanarleyjum, og svo ceiery, steinselja, paprika og ýmsar fleiri tegundir. Það er eins með þessa vöru eins og ávextina að hún hefur hækkað talsvert, þó mun verð á t.d. tómötum vera svipað og á innlendri fram- leiðslu, þegar hún fyrst kemur á markaðinn á vorin. Grænmeti er flutt hingað t.d. með leigu- flugvélum, sem fljúga með landann tii sólarlanda og koma siðan hlaðnar varningi heim. Fyrrverandi með- eigendur deila ,,Ég mun senda málskjöl varð- andi þetta kærumál til saksókn- ara og leggja það i hans hendur hvort um framhaldsrannsókn verði að ræða á kæru þeirri sem okkur hefur borizt varðandi sölu og uppgjör á bilaleigunni Æði hér i Kópavogi,” sagði Sigurberg Guðjónsson fulltrúi bæjarfógeta i Kópavogi i samtali við Alþýðu- blaðið i gær, en upp kom rimma milli tveggja manna, eigenda bflaleigunnar Æðis, þegar sala á fyrirtækinu fór fram. Sá annar eigandinn um söluna og segir kærandinn að hann hafi gert það að sér forspurðum. Segir sá kærði hins vegar að hann hafi selt fyrir- tækið með vitund og vilja meðeig- andasins (kærandans), og standa þvi málin þannig að orð er gegn orði. Kærandinn fór einnig fram á að sá kærði gerði grein fyrir 200 þús- und óljósum krónum og einnig 2 milljóna króna vixilleigu. Það gerði sá kærði fyrir helgi og virð- ist svo sem hann standi nú með pálmann í höndunum hvað sem nákvæmari rannsókn kynni að leiða i ljós. Við spurðum Sigurberg hvort sjáanlegt væri hvort þarna væri um misferli að ræða. ,,A þessu stigi málsins vil ég ekkert full- yrða um það hvort um saknæmt atferli sé að ræða. En við frum- rannsókn er erfitt að dæma þar um, en eins og ég sagði áðan þá mun saksóknari táka ákvörðun um það hvort um frekari rann- sókn verði að ræða, og ef af henni yrði þá er ekkert hægt að fullyrða um hvort eitthvað misjafnt kæmi i ljós,” sagði Sigurberg Guðjóns- son i lokaorðum sinum. ______ r OECD um efnahag Islands: Hálfur bati á næsta ári? HÁLFUR BATI á næsta ári, er spá hagfræðinga Efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD i nýútkominni skýrslu um efna- hag islands, stöðu og horfur. í greinargerð með hinni ár- legu skýrslu er vandi islenzkra efnahagsmáia reifaður og bent á að auk erlendra áhrifaþátta sé ófullnægjandi stjórn peninga- máia ein meginorsök hinnar miklu verðbólgu, sem sé hið uggvænlegasta við núverandi á- stand. Rakið er hvernig um- skiptin i viðskiptakjörum frá ársbyrjun 1974 og til miðs árs 1975 hafi jafngilt 32% rýrnun — og þvi spáö að eftirspurn á hcimsmarkaði á útflutningsaf- urðum islendinga muni aukast á næsta ári. Það hafi þó ekki i för mcð sér neina breytingu á viðskiptakjörum, þvi verð út- flutningsafurða inuni væntan- lega hækka hlutfallslega jafnt og verð innflutningsvöru, en aukningar kunni að gæta i magni útflutningsvöru fyrst og fremst. Verði um umtalsverða aukn- ingu að ræða inætti minnka við- skiptahallann, segir I skýrsl- unni. ,,Á þessum forsendum mætti þvi vænta nokkurrar aukningar vergrar þjóðarfram- leiðslu á næsta ári, ef til vill sem svaraði hálfri minnkuninni á yfirstandandi ári,” segir þar orðrétt. Endurskoðunin á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga HÆTTIR STJÓRNIN VIÐ ALLT SAMAN? Mikil deila er risin i stjórnar- herbúðunum vegna frumvarpa, sem fylgja áttu fjárlögunum. Frumvörp þessi eru um breytta verkaskiptingu rikis og sveitar- félaga á þá lund, að sveitarfélögin taki á sig aukinn kostnaðarhlut við ýmsa félagslega þjónustu s.s. eins og á sviðum dagvistunar- mála. Erætlun rikisstjómarinnar að lækka með þessu niðurstöðu- tölu f járlaga en á móti var ætlunin að veita 600 millj. kr. til sveitar- félaganna i formi framlags til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga af þeim tveimur söluskattsstigum, sem breyta á úr tekjustofni fyrir Viðlagasjóð i tekjustofn fyrir rikissjóð. Agreiningur er um það meðal þingmanna stjórnarliðsins, sumir þeirra segja, að þessar auknu tekjur sveitarfélaganna nægi þeim hvergi nærri til þess að standa undir þeim nýju og auknu verkefnum, sem fylgi- frumvörp fjárlaganna gera ráð fyrir, að þau taki að sér. Hefur andstaðan við þessa ráðagerð meðal stjórnarþingmanna orðið meiri, en ráðherrar bjuggust við og þvi hafa þeir enn ekki lagt fram umrædd frumvörp um breytta verkaskiptingu rikis og sveitarfélaga. Er jafnv. talið, að það verði ekki gert og benda menn á i því sambandi, að i gær hafi verið frestað að ljúka þriðju umræðu i neðri deild um söl skattsfrumvarp rikisstjórnarin ar en það frumvarp gerir einm ráð fyrir framansögðum tekj auka sveitarfélaga og stendur þ i beinu sambandi við hin ur deildu frumvörp um breytl verkaskiptingu rfkis og sveita félaga, sem rikisstjórnin hefi boðað að fylgja muni fjárlagaa greiðslunni en hafa enn ekki ver lögð fram á Alþingi.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.