Alþýðublaðið - 20.12.1975, Blaðsíða 11
JÓLALEIKRIT
LEIKFÉLAGS
REYKJAVlKUR
Leikfélag Reykjavikur frum-
sýnir nýtt enskt verk, EQUUS,
eftir Peter Shaffer, þriðjudaginn
30. desember og er það þriðja
frumsýning vetrarins i Iðnó á
þessu leikári. Leikrit þetta var
frumflutt hjá brezka þjóðleikhús-
inu, Old Vic, vorið 1973 og vakti
gffurlega athygli. Verkið hefur
siðan verið sýnt viða um heim og
unnið til alþjóðlegra verðlauna
enda talið eitt bezta leikhúsverk,
sem fram hefur komið um ára-
raðir.
Höfundurinn, Peter Shaffer, er
fæddur i Liverpool 1926. Hann
byrjaði að skrifa fyrir sjónvarp i
byrjun sjötta áratugsins. Fyrsta
leikhúsverk hans, sem athygli
vakti var „Five Finger Expcise”
1958. Hann hefur siðan skrifað
fjölda verka. Eitt þeirra var leik-
ið i Iðnó fyrir tveimur árum,
„Svört kómedia”. Þetta nýjasta
verk hans EQUUS, skipar honum
i röð fremstu leikritahöfunda
samtiðarinnar. Frumsýning þess
hefur hvarvetna talizt til meiri-
háttar leikhúsviðburða.
Titill verksins, EQUUS, er
latina og þýðir hestur. Hestar
koma mjög við sögu i sýningunni,
bæði i sjálfu inntaki verksins og
eins þar sem þeir birtast á sviðinu
og verða áhrifarikur hluti af ytri
búnaði sýningarinnar. — Ljósum
og sviðstækni er beitt á mjög sér-
stæðan hátt. Staðsetning og um-
hverfi atburðanna höfðar mjög til
imyndunarafls áhorfenda.
Sjónleikurinn EQUUS er þó
fyrstog fremst magnaður skáld-
skapur. Hann fjallar um mann-
legan vanda, sem er mjög áþreif-
anlegurí nútiðinni. Aðalsöguhetj-
urnareru tvær, Ungur piltur, sem
lendir i andstöðu við umhverfi sitt
og sálfræðingurinn, sem fær hann
til meðferðar, þreyttur góðborg-
ari og ástlaus. — Pilturinn hefur
framið ódæði, sem samkvæmt al-
mennu siðgæðismati ætti að
varða fangelsun, misþyrmt
skepnum á hroðalegan hátt. — En
við meðhöndlun þessa drengs
sækja á sjálfræðinginn áleitnar
efasemdir um tilgang meðferðar-
innar, lækningarinnar. — Dreng-
urinn býr yfir stórkostlegri
reynslu pg hefur gengið svo langt
i sinni sérstæðu guðlegu til-
beiðslu, að dauðhreinsuð veröld
sálfræðingsins og fagurfræðileg
dýrkun hans á fornmenningu
Grikkja verður næsta litlaus til
samanburðar. — Hver er vit-
skertur? Hver er hinn seki?
Leikstjóri sýningarinnar i Iðnó
er Steindór Hjörleifsson. Með
hlutverk sálfræðingsins og pilts-
ins, Alans, fara þeir Jón Sigur-
bjömsson og Hjalti Rögnvalds-
son. Aðrir leikendur eru Soffia
Jakobsdóttir, Helga Bachmann,
Guðmundur Pálsson, Margrét
ólafsdóttir, Kjartan Ragnarsson,
Jón Hjartarson, Halla Guð-
mundsdóttir, Sigurður Karlsson,
Þorleikur Karlsson, Hannes
Ólafsson, Lárus Björnsson.
Leikmynd gerir Steinþór Sig-
urðsson en Magnús Axelsson lýsir
sýninguna. Þýðingu gerði Sverrir
Hólmarsson.
Næstasýning á verkinu verður
á nýársdagskvöld.
Laus störf við Alþýðublaðið
Blaðburðarfólk óskast til að bera
blaðið út i eftirtaldar götur
Reykjavik:
Fossvog
Skúlatún
Borgartún
Hátún
Tjarnarstig
Tjarnarból
Ásvallagata
Hofsvallagata
Hringbraut
Melahverfi
HUGVEKJUR
HALLBJARNAR
HALLDÓRSSONAR
með inngangsorðum eftir
Halldór Laxness
Upplag bókarinnar er mjög takmarkað.
Er nú til sölu i Bókabúð Máls og menning-
ar, Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar
og skrifstofu HfP.
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
VÍFILSSTAÐASPÍ TALI:
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR óskast
nú þegar i fullt starf eða hlutavinnu.
Vinna einstakar vaktir kemur til
greina. Upplýsingar veitir forstöðu-
konan simi 42800.
LANDSPÍTALINN:
HJÚKRUNARDEILDARSTJÓRI
óskast á Sængurkvennadeild frá 1.
janúar nk. Upplýsingar veitir for-
stöðukonan, simi 24160.
Reykjavik 19. desember 1975,
SKRIFSTOFA
RÍKISSPÍTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5, SiM111765
DEUTSCHE
WEIHNACHTSGOTTESDIENSTE
Am 24. Dezember um 14 Uhr wird im Dom
zu Reykjavik ein evangelischer Weih-
nachtsgottesdienst abgehalten. Séra Þórir
Stephensen predigt.
Am 26. Dezember um 17 Uhr zelebriert
Bischof Dr. H. Frehen einen katholischen
Weinachtsgottesdienst in der Domkirche
Landakot.
Botschaft der Germania
Bundesrepublik Islandisch-deutsche
Deutschland Kulturgesellschaft
Jólatrésskemmtun
Vélstjórafélags íslands
verður haldin þriðjudaginn30. des. 1975 kl.
15.-18 i Átthagasal Hótel Sögu. Aðgöngu-
miðar hjá félaginu á Bárugötu 11.
Skemintinefndin.
Laugardagur 20. desember 1975.
Alþýðublaöið