Alþýðublaðið - 20.12.1975, Qupperneq 14
í HREINSKILNI SAGT
„Kátt er um jólin”!
Nú fer í hönd mesta hátiö ársins, sem
sjá má á flestu þvi sem fyrir augu ber
daglega. Milli þess sem menn sinna
daglegum önnum, er hvert tækifæri not-
að, til þess að lita á og afla sér einhvers
sem gleðja á ættingja og aðra vini i til-
efni þessarar fagnaðarstundar. Þessi
ævaforni islenzki siður verður örugg-
lega lifseigur, hvort sem menn gera sér
grein fyrir tilefninu eða ekki. Það ræður
nú af likum, að jólagjafirnar eru ærið
margbreytilegar. Þar fara menn eftir
efnum og ástæðum eins og gengur. „En
allir fá þó eitthvað fallegt, i það minnsta
kerti og spil” er gömul barnagæla.
Svo er það til, að menn láti sér nægja
með að senda kveðjur, sem lika er góður
siður, og þá til þeirra, sem eru fjar-
staddir. Nú er sem óðast verið að undir-
búa og ákveða jólaglaðning á sérhverju
byggðu bóli og auðvitað þarf ekki að efa
að landsfeðurnir vilja ekki láta sitt eftir
liggja að viðhalda þjóðlegum háttum.
A þessari stundu er ekki ennþá orðið
alveg ljóst i einstökum atriðum um allar
þær kveðjur sem ákvarðað er að senda
fólkinu, en þegar er orðið opinbert um
sumar og það alveg án þess að hafa
þurft að forvitnast um með þvi að þukla
jólapakkana eins og hnýsinna er ósiður.
Ef við litum snöggvast á hinar al-
mennu „kveðjur”, sem eru ætlaðar öll-
um, blasir þetta við: Nú er ákveðið að
staðfesta með lögum framhald sölu-
skattstiganna, sem upp voru tekin þegar
að bar hörmungar Vestmannaeyinga
vegna eldgossins i Heimaey með allri
þeirri röskun, sem það hafði i för með
sér fyrir eyjarskeggja, og siðar var við-
haldið vegna hamfaranna i Neskaup-
stað sem á örfáum augnablikum svipti
bæjarbúa þar meginhluta atvinnu tækj-
anna á landi auk hins hörmulega mann-
tjóns.
t þetta sinn skal þessi skattur, sem
þau áttu að bæta og öllum landsmönnum
fannst eðlilegt að á væri lagður, renna
beint i rikishitina! Hefur þá komið eyð-
andi eldgos eða máske snjóflóð yfir rik-
isbúskapinn? spyrja menn. Nei eigin-
„Jólakveðjur
frá Gregory"!
lega ekki, nema ef vera skyldi núver-
andi og fyrrverandi óstjórn!
Vörugjaldið, se.mlagtvar á á liðnu
sumri og svarið var við hár og skegg að
ætti að standa aðeins til áramóta, hefur
nú verið framlengt. Að visu er sagt að
það eigi að hverfa á næsta ári i áföng-
um! Við biðum og sjáum.
Þegar er ákveðið að bæta ofan á
byggðagjöld 10% og svo er auð'vitað það
sem í „hlutarins eðli” liggur, að sveitar-
félögin fái að bæta öðrum 10% ofan á,
sem þau eflaust fara fram á.
Nú eignarskattsaukinn með marg-
földun fasteignamats með 2,7 kemur
máske ekki eins við alla, a.m.k. ekki þá,
sem enga fasteignina eiga. Þetta eru nú
hinar almennu kveðjur, sem er ekki
beint hægt að staðsetja, eins og þeir
Eftir Odd A. Sigurjónsson
segja um sumar jólakveðjur i útvarp-
inu!
En nú hefur það ætið þótt ágætur siður
að hlynna sérstaklega að þeim, sem
vegna heilsubrests og annarra slikra á-
falla hafa orðið fyrir barðinu á tilver-
unni. Skyldi þessum merka þætti i jóla-
glaðningnum hafa verið alveg gleymt?
Onei, sei, sei, nei. Það væri nú annaö-
hvort, að þarfir þeirra féllu ekki alveg i
skuggann! Og nú freistumst við til að
„kikja i” pakkann þeirra.
Sitthvað er þar að sjá,- Það er vist
venja þessara lækna, að þurfa að gera
nokkra rannsókna á þvi, hvað sé nú eig-
inlega að sjúklingnum sem til þeirra
leitar áður en hafizt er handa um lækn-
ingar) Þetta, sem sjúklingurinn hefur
greitt fyrir þá hlið úr eigin vasa er
svoddan skitiri, að það verður að hækka
um svona 50%! Nú og svo þetta lyfja-
gutl, sem til þarf. Hvaða ástæða er til að
láta sjúkt fólk fá það á öðru eins spott-
verði og tiðkazt hefur?! Hvi ekki aö
smyrja svolitlu ofan á þær þarfir?
Þarna er svosem að finna hin þráttum-
töluðu „breiðu bök”! Það er fjall grimm
vissa! Hér skal látið staðar numið i bili,
enda ekki fyrir séð hvað fleira kann að
leynast i kveðjunum frá stjórn og lands-
feðrum — þessum réttnefnda „Gre-
gory”.
„Hreint stórkostlegt. Hverju i
ósköpunum ætli þeir finni upp
á næst?”
Hann: „Nú koma jarðgöngin
— ertu ekki hrædd?”
Hún: „Ekki — ef þú tekur
vindilinn út úr þér.”
„Auðvitaö mæti ég i partiið
hjá þér. Hver er þetta annars i
simanum?”
Hann: ,,Þú ert þaö fyrsta,
sem ég hugsa um, þegar ég
vakna.”
Hún: „Það segir Diggi
lika.”
Hann: „Hvað gerir það? Ég
vakna alltaf löngu á undan
honum.”
„Kærastan min og ég
tölumst ekki við framar.”
„Þetta er bara venjulegt
missætti ástfangins ungs
fólks.”
„Nei, það er alvarlegt. Við
lentum i stjórnmálaþrætu.”
„Gæti ég fengið lánaða rak
vél til að verja hendur
minar?”
FJalla-Fúsd
THEFRENCH
ICONNECTION
JAWS
pd ...MAY (E T00 INTiNSi iOR YOUNGiR CHIlDRiN
ÚTIVISTARFERÐIR
LAUEARASBÍÚ simi 32075
Frumsýning I Evrópu.
Jólumynd 1975.
ókindin
ISLENZKUR TEXTI.
Hin æsispennandi Oscarsverö-
launamynd, sem alls staöar
hefur veriö sýnd viö metaö-
sókn.
Endursýnd kl. 5, 7 og 9
Bönnuö innan 14. ára.
Bíórin
SDðRNUBIÓ Simi 18936 |
ÍSLENZKUR TEXTI.
Æsispennandi og viöburöarlk
ný amerísk sakamálamynd i
litum.
Leikstjóri: Michael Vinner.
Aöalhlutverk: Charles Bron-
son, Martin Balsam.
Mynd þessi hefur allsstaöar
slegiö öll aösóknarmet.
Bönnuö börnum-.
Hækkaö verö.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
IÝIA feíÚ nS4jy
“PURE
DYNAMITE!”
Jaily News
Mynd þessi hefur slegiö öll aö-
sóknarmet i Bandarikjunum
til þessa. Myndin er eftir sam-
nefndri sögu eftir Peter
Benchley, sem komin er út á
islenzku.
Leikstjóri: Steven Spielberg.
Aöalhlutverk: Roy Scheider,
Robert Shaw, Richard Drey-
fuss. ■»
Bönnuö innan 16 ára
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Ath. Ekki svaraö I slma fyrst
um sinn.
ÓNABjö^Jm^msz
Demantar svíkja
aldrei
Diamonds are
forever
SUNNUOAGUR 21. Desember.
Kl. 13.00.
Gönguferö. Arnarnes —
Rjúpnahæö — Vatnsendahæö.
Fararstjóri: Þorvaldur
Hannesson. Verö kr. 400.- greitt
viö bilinn. Brottfararstaöur
Umferöarmiöstöðin (aö austan-
veröu).
31. DESEMBER. KL. 7.00
Aramótaferö I Þórsmörk. Far-
miftar seldir á skrifstofunni.
Feröaféiag tslands,
öldugötu 3,
simar: 19533—11798.
I ■■■tTiiat’rifiiKraiiiri
NERKI
HAFNARBIO Slmi 16444
IJólamynd 1975
Afburöa góö og áhrifamikil lit-
mynd um frægöarferil og
grimmileg örlög einnar fræg-
ustu blues stjörnu Bandarikj-
anna Billie Holliday.
Leikstjóri: Sidney J. Furie.
ISLENZKUR TEXTI.
Aöalhlutverk: Diana Ross,
Billy Dee Williams.
Sýnd kl. 5 og 9.
Sunnudagur 21. des.
Sýnd kl. 5 og 9
Barnasýning kl. 3.
Hve glöð er vor æska
mánudag.
Lady sings the blues
Sýnd kl. 5 og 9.
ENGINN
ER ILLA SÉDUR,
SEM GEHGUR MED
IÁSKÓLABÍÓ simi 22no
Jólamyndin i ár
Lady sings the blues
Einhver ailra skemmtilegasta
og vinsælasta gamanmyndin
sem meistari Chapiin hefur
gert. ógleymanleg skemmtun
fyrir unga sem gamla.
Einnig hin skemmtilega gam-
anmynd
Hundalíf
Höfundur, leikstjóri, aöalleik-
ari og þulur Charlie Chaplin.
ÍSLENZKUR TEXTI
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15.
Ein bezta James Bond mynd-
in, veröur endursýnd aöeins i
nokkra daga. Þetta er siöasta
Bond myndin sem Sean Conn-
ery iék I.
Leikendur: Sean Connery, Jili
St. John.
Bönnuö bömum innan 12 ára.
Sýnd kl. 5, 7.10 og 9.20.
SUNNUB. 21/12.
Grótta — Seltjarnarnes. Brott-
för kl. 13 frá B.S.I., vestan-
veröu. Verö 200 kr. Fararstj.
Einar Þ. Guöjohnsen.
Aramótaferö I Húsafell 31/12. 5
dagar. Gist I góöum húsum, sund-
laug, sauna, gönguferöir, mynda-
sýningar o.fl. Fararstj. Þorleifur
Guömundsson. Upplýsingar og
farseölar á skrifst. Lækjarg. 6,
simi 14606.
(Jtivisl
Laugardagur 20. desember 1975.