Alþýðublaðið - 08.01.1976, Blaðsíða 3
Sfefnuliós
Kjartan Jóhannsson skrifar
O
Framkvæmdum við hita-
veitur hefur verið stefnt i ó-
vissu vegna óheyrilegrar
kröfugerðar landeiganda um
greiðslur fyrir réttinn til bor-
unar i landi þeirra. Þéttbýlis-
sveitarfélög hafa orðið að
greiða offjár fyrir lönd undir
vaxandi byggð sina til land- og
lóðaeigenda i nágrenni þétt-
býlisins. Virkjunarfram-
kvæmdum við raforkuver hef-
ur verið stefnt i hættu vegna
afarkosta landeigenda á
virkjunarstað. Og nú gætir
vaxandi ásóknar upprekstrar-
félaga og jafnvel sveitarfé-
laga i að helga sér eignarrétt
yfir þeim afréttum, sem þess-
ir aðilar hafa haft til afnota. 1
öllum þessum tilvikum er
hugsunin sú, að fáir skuli
mata krókinn á kostnað fjöld-
ans.
Úr Borgarfirði hafa borizt þau tiðindi,
að kröfur umráðenda lands um greiðslur
fyrir rétt til borunar og virkjunar i land-
inu hafi byggzt á þvi, að húsaupphitun úr
hitaveitu af virkjunarstað til þéttbýlis-
kjarna ætti að verða jafndýr og við oliu-
kyndingu. Allur sparnaður af hitaveitunni
ætti þannig að renna til umráðenda lands-
Landið
ins sem greiðsla fyrir réttinn til þess að
nýta hitann, en húseigendur á hitaveitu-
svæðinu að búa við óbreyttan upphitunar
kostnað rétt eins og þeir oliukyntu hús sin
áfram.
Hitaveituframkvæmdir á Suðurnesjum
hafa verið strandi næst vegna ágreinings
um greiðslu fyrir borunar- og varmanýt-
ingarrétt til eigenda jarðspildunnar, þar
sem bora á eftir heita vatninu. Háar tölur
hafa verið nefndar i þessu sambandi, en
gerðardómi er ætlað úr að skera. A þessu
landshorni varð það hins vegar til tiðinda,
að tveir eigendur jarða yfir tiltölulega ná-
lægu jarðhitasvæði við hinn fyrirhugaða
virkjunarstað gáfu hitaveituréttinn i landi
sinu. Með gerð sinni opinberuðu þeir hinn
kalda sannleika málsins eins umbúða-
laust og barnið i sögunni um nýju fötin
keisarans. Þeirra viðhorf var einfaldlega
það, að þeir hefðu eignazt og átt jarðir
sinar til þess að reka á þeim búskap, en
ekki til þess að standa i jarðavarmavirkj-
unum eða hafa gróða af slikum fram-
kvæmdum. Þessi sannleikur gildir vafa-
litið, ef grannt er skoðað um allar lendur
yfir jarðvarmasvæðum á Islandi. Svo
mikið er að minnsta kosti vist', að þegar
stjórnarskrárgreinin var sett, sem ýmsir
landeigendur byggja kröfur sinar til
varmaréttargjalda á, þá voru jarðirnar
seldar og keyptar búskaparins vegna.
okkar
Varminn i iðrum landsins er ekki eign
þeirra jarðeigenda, þar sem skorpan er
þynnst. Hann hlýtur að vera sameign
þjóðarinnar. Og nýting hans á að vera til
hagsbóta fyrir almenning — fólkið i land-
inu — en ekki þá, sem eiginlega fyrir til-
viljun ráða yfir blettunum með þynnstu
skorpunni. Það er kannski ekki nema von,
að lögin séu úrelt i þessum efnum, svo
mjög sem þekkingu og tækni hefur fleygt
fram. En þá er að breyta þvi. Það eru lika
tækniframfarirnar, sem hafa gert þennan
varma i jörðinni verðmætan, en ekki
framtak landeigendanna á viðkomandi
stöðum.
A sama hátt er fráleitt að landeigendur
á virkjunarstað raforkuvers skuli með af-
arkostum geta brugðið fæti fyrir skyn-
samlegar virkjanir sem standa til al-
mannaheilla. Auðvitað eiga bændur og
aðrir landeigendur að fá sanngjarnar
bætur fyrir þær nytjar af landinu, sem
spillast og þeir hafa nýtt. Þær nytjar sem
búrekstur þeirra hefur byggzt á, þær á að
bæta, ef þeim er spillt, en kröfugerð um
fram það á sér ekki stoð. Þótt virkjunar-
staður sé þjóðinni verðmætur, er það
heldur ekki á nokkurn hátt fyrir framtak
eða tilverknaö þess sem telst eigandi
landblettsins undir virkjuninni.
Þegar þjóðbraut er lögð um hérað eða
þéttbýli vex, þá hækkar verðmæti lands
og lóða i grenndinni. Þessi hækkun er ekki
fyrir tilverknað eigenda landsins eða lóð-
anna, hldur vegna framtaks opinberra
aðila eða þess fjölda sem þéttbýlið byggir.
Samt er nú málum svo háttað, að sveitar-
félög hafa orðið að greiða offjár fyrir lönd
undir nýbyggingarsvæði. Vöxtur sveit-
arfélagsins gerir þannig landið verðmætt,
en verðmætisaukningin skapar þeim aðil-
anum útgjöld sem drifur áfram verð-
mætisaukninguna. Hinn aðilinn, sem á
laridið, þarf ekkert að gera, en ahnn auðg-
ast.
I öllum þessum dæmum er um það að
ræða, að fáir auðgist á kostnað fjöldans. 1
engu tilviki er það framtak þess, sem telst
eigandi landsins, sem eykur verðmæti
þess. I öllum tilvikum snýst málið um
framkvæmdir sem horfa til almanna-
heilla, en fáeinir aðilar geta sett fótinn
fyrir. Við svona óréttlæti er auðvitað ekki
hægt að una.
Landið, gögn þess og gæði eiga vitan-
lega að vera sameign þjóðarinnar, rétt
eins og miðin umhverfis það. Fyrir
þessu hefur Alþýðuflokkurinn, einn allra
flokka viljað beita sér. Á yfirstandandi
þingi flytur hann enn tillögu sina um
eignarrétt á landinu. Málið vinnst auðvit-
að á endanum, en hvað ætla hinir stjórn-
málaflokkarnir að spyrna lengi við fót-
um?
_ P + m Dagsími til kl. 20: 81866
. frettabraðunnn Kvöldsími 81976
Án Ólafs
tapaði
Dankersen
Grunweiss Dankersen, félagið
sem Ólafur H. Jónsson og Axel
Axelsson leika með, tapaði fyrir
danska 1. deildarliðinu FIF i fyrri
leik félaganna i 2. umferð
Evrópukeppni bikarmeistara i
handknattleik 14:17. Leikurinn
fór fram i Danmörku. Að sögn
danska blaðsins Aktuelt var sigur
FIF sist of stór. Axel Axelsson
var markahæstur i liöi Dankersen
ásamt Hans Jurgen Grund með 4
mörk og segir blaöið að hann hafi
verið einn bezti maður liðsins.
Ennfremur segir blaðið að ts-
lendingurinn Ólafur H. Jónsson
hafi verið sá leikmaður sem Dan-
irnir hafi óttast mest fyrir leik-
inn, en þegar allt kom til alls lék
hann ekki með.
Siðari leikur liðanna verður i
Þýzkalandi 24. janúar og mun
Ólafur þá væntanlega leika með
Dankersen.
Úrslit í gærkvöldi:
Þróttur- Vikingur 28:24
Fram - Haukar 20:18
Andrómeda
sigldi á Þór
Brezku freigáturnar halda upp-
teknum hætti á tslandsmiðum,
meö hinum glæpsamlegu ásigl-
ingum sinum, og er svo komið, að
manndráp virðist næsta skrefið
hjá þeim. t hádeginu i gær, sigldi
freigátan Andromeda þaö harka-
lega á varðskipið Þór, aö hann
kastaðist til yfir á bakboröa. Var
það hrein heppni að enginn skyldi
slasast, svo ekki sé meira sagt.
Freigátan hóf fyrst aöför sina
að varðskipinu Þór um 11:30 i
gærmorgun, en þá var varöskipið
statt 35 sjómilur frá Bjarnarey.
Freigátan reyndi hvað eftir ann-
að ásiglingu, en varðskipið komst
jafnan undan, þótt oft hafi ekki
munað nema hársbreidd. Kiukk-
an 12:14, sigldi Þór fram hjá tog-
aranum Hoss Resolution frá
Grimsby en hann var þá á sigl-
ingu. Er þetta sami togari og
varðskipið Ægir klippti aftan úr
s.l. laugardag. Kom freigátan
Andromeda skyndilega á mikilli
ferð milli togarans og varðskips-
ins, sem þurfti að beygja i stjór til
þess að forðast árekstur. Áður en
varðskipið komst á upphaflega
stefnu, stefndi Andromeda á fullri
ferð á bóg varðskipsins stjórn-
borðsmegin. Freigátan kom æð-
andi fyrir stefni Þórs, sem sett
þegar á hæga ferð og beygði i
stjórnborð, en gaf um leið hljóð-
merki um stefnubreytingu. Þá
beygði freigáta skyndilega hart i
stjór, og slengdi afturenda sinum
i Þór, með þeim afleiðingum sem
fyrr sagði!
Á Þór skemmdist 9 metra lang-
ur kafli á stjórnborðsbóg skipsins
frá stefni og aftur úr, og rifnaði
bógur varðskipsins á sjö metra
kafla á þessu svæði. Ekki er enn
ljóst hve miklar skemmdir hafa
orðið á freigátunni við árekstur-
inn.
Er þessi atburður gerðist, voru
um borð i Þór þrir brezkir sjón-
varpsmenn frá Independent Tele-
vision Network undir stjórn hins
þekkta fréttamanns Normans
Rees, og ættu þeir að geta gefið
löndum sinum rétta mynd af þvi
sem brezka ljónið aðhefst við Is-
land.
Sjaldan hefur færöin á götum
höfuðborgarinnar verið eins
slæm, og á mánudaginn, og lenti
margur vegfarandinn i erfiðleik-
um hennar vegna. Margir borg-
arbúar kunna ekki að aka i slik-
um snjóþyngslum, og hlutust oft
vandræði af þeim sökum. Að sögn
lögreglunnar i Reykjavik hefur
færðin skánað það mikið i gær og
á þriðjudag, aö það ættu ekki að
vera nein vandræði með að kom-
ast ferðar sinnar.
Alþýðublaðið kannaði ástand
vega úti á landsbyggðinni, og
hringdi þvi I vegaeftirlit riksiins.
Þar var okkur tjáð, að vegir
sunnanlands væru allir færir, allt
austurað Kirkjubæjarklaustri, en
þar fyrir austan væri verið að
ryðja, og er vonast til að það verði
búið i dag. Vegurinn austur á
Hérað ætti þvi að vera sæmilega
fær i dag. Allir vegir á láglendi
landsins eru færir þessa dagana,
jafnvel þótt snjóað hafi talsvert á
Suðurnesjunum siðustu dagana.
Á Vesturlandi g norður yfir, eru
allir vegir færir, en tvisýnt er
með færðina á Holtavörðu- og
öxnadalsheiði, og eru þær aðeins '
jeppafærar.
A Akureyri er færðin nokkuð
góð, en i útjaðri bæjarins er hún
aðeins verri. Það sem þakka má
þessa ágætu færð á Akureyri, er
það, hve stillt veðrið hefur verið,
og ekkert skafið. Göturnar voru
ólikt verri á sama tima i fyrra, en
þá voru allar götur bókstaflega á
kafi i snjó.
Lóðamálin
undarleg í
Mosfellssveit
t nýútkomnu Félagsriti
Byggingarfélags atvinnubilstjóra
er lýst tilraunum félagsins til að
fá lóðir til byggingar einbýlishúsa
i Mosfellssveit á undanförnum
árum. Einnig er lýst hvernig
vinnubrögð og framkoma
sveitarstjórnarinnar i þessu máli
hefur verið. Þá er þess getið að
BSAB hefur lagt i mikinn kostnað
vegna þessara fyrirhuguðu bygg-
inga, en nú er sveitarstjórnin far-
in aö úthluta samningsbundnum
lóðum til annarra.
Greinin úr Félagsriti BSAB fer
óstytt hér á eftir:
„,Eins og getið var um i skýrslu
stjórnar árið 1974, fór hrepps-
nefnd Mosfellshrepps fram á
endurskoðun á samningi við
B.S.A.B. um lóðaúthlutun í Holta-
hverfi i byrjun ágúst 1974. Voru
þá liðin rúm tvö ár af samnings-
timanum, sem var fjögur ár. Á
þessum tima höfðu orðið sveitar-
stjórnarkosningar og hafði
Hrólfur Ingólfsson hætt störfum
sem sveitarstjóri, en Jón Bald-
vinsson tekið við. Eftir nokkurt
þóf var gerður viðbótarsamning-
ur, dags. 5. des. 1974. Kvað hann
nánar á um tima, sem sækja
skyldi um byggingarleyfi, m.a.
var ákveðið að sækja skyldi um
byggingarleyfi fyrir 18 Ióðum,
fyrir 1. júli 1975.
Fyrrihluta júnimánaöar 1975
var sótt um byggingarleyfi 7 húsa
og skömmu siðar 12 i viðbót. Var
þá kominn nokkur hópur manna,
sem var tilbúinn að byggja og
höfðu þeir lagt fram fjármagn til
greiðslu byggingargjalda til
hreppsins. En þá brá svo við að
byggingarleyfum var synjað og
byggingargjöld endursend, nema
fyrir tveimur húsum, en fram-
kvæmdir þó ekki heimilaðar,
nema við eitt hús, vegna þess að
gata hafði ekki verið lögð að hinu.
Tylliástæða var höfð ýmist sú,
að þakskegg húsanna næði yfir á
næstu lóð, enda þótt þegar hefðu
verið byggð athugasemdalaust
tvö hús, sem lika voru þannig, og
ekki hafði heldur verið gerð at-
hugasemd þegar skipulagið var
samþykkt, eða að byggingargjöld
hefðu ekki verið greidd fyrir til-
skilinn tima. Engin ákvæði eru i
samningum um greiðslu
byggingargjalda, nema um fyrir-
framgreiðslu B.S.A.B. sem nam
kr. 1.500.000 á allar lóðirnar, og
almennar reglur. Fyrir tilskilinn
tima var hins vegar sótt um
byggingarleyfi 19 húsa eins og
tekið er fram i viðbótarsamning-
num. 6. grein þeirrar gjaldskrár,
sem I gildi mun vera nú vegna
byggingargjalda i Mosfellshreppi
hljóðar svo:
„Við úthlutun lóðar greiðist
helmingur gatnagerðargjalds og
siðari helmingur eða eftirstöðvar
við veitingu byggingarleyfis.
Sækja skal um byggingarleyfi
eigi siðar en sex mánuðum eftir
að framkvæmdir eru heimilaðar
á lóðinni.”
Sá réttur sem lóðarhöfum
virðist gefinn með þessari grein
hefur ekki verið viðurkenndur af
sveitarstjórn gagnvart B.S.A.B.
Framkvæmdabann hefur veriö i
gildi á svæði félagsins frá 9. ág.
1974 að undanskildu þessu eina
húsi og nýverið öðru til, eins og
fyrr er getið. Krafist er greiöslu
allra byggingargjalda um leið og
umsókn um byggingarleyfi er
lögð inn, en ekki við veitingu þess,
eins og hjá öðrum lóðarhöfum. Nú
mun hreppsnefnd vera farin að
úthluta öðrum einhverju af lóðum
á svæði B.S.A.B. þvert ofan i alla
samninga og án þess að bjóða
B.S.A. B. greiðslu fyrir að láta
skipuleggja svæðið, teikna öll
húsin, smiða mót fyrir þau og
vinna mikla undirbúningsvinnu.
Einnig hafði verið keypt stál-
grindahús til að byggja upp
vinnuaðstöðu á svæðinu, og tekin
grunnur fyrir þvi með samþykki
fyrrverandi sveitarstjóra. Mun
beinn kostnaður skipta milljón-
um, auk samningsbundins
kostnaðar, sem skiptast átti á öll
hús i hverfinu. t.d. skipulags-
vinna, teikningar og eftirlit arki-
tekta og verkfræðinga o.fl. Nú eru
þessi samningsrof hreppsnefndar
og sveitarstjóra Mosfellssveitar
til meðferðar i félagsmálaráðu-
nevtinu og sýslunefnd Gull-
bringu og Kjósarsýslu, en úrslit
liggja ekki fyrir enn. Ekki er
fyrirsjáanlegt annað en til skaða-
bótakröfu og málssóknar komi af
þessum sökum á hendur Mos-
fellshreppi. Þar sem tilraunir
B.S.A.B. til byggingar einbýlis-
húsa hafa tvivegis brotnað á
óbilgirni sveitarstjóra, er það álit
framkvæmdastjóra félagsins að
óleift sé að ná i þriðja sinn
samstæðum hópi til framkvæmda
við núverandi aðstæður.
Áskrifendur athugið
Vegna breytinga á rekstri Alþýðublaðsins og athugana á nýju
og endurbættu fyrirkomulagi á dreifingu blaðsins til kaupenda
verður Alþýðublaðinu nú um hríð dreift til kaupenda á Reykja-
víkursvæðinu með Visi. Dreifing blaðsins til kaupenda mun á
þessu timabili fara fram eftir hádegið og eru lesendur blaðsins
beðnir velvirðingar á þessari seinkun, sem aðeins veröur um
skamma hrið.
Ef kaupcndur fá ekki blaðið með skilum eru þeir vinsaml.
beðnir að hringja I sima 8-18-66 og veröur tekiö á móti kvörtunum
þar til kl. 19.00.
Færðin víðast
hvar góð
Fimmtudagur 8. janúar 1976.
Alþýðublaöið