Alþýðublaðið - 08.01.1976, Page 10
í HREINSKILNI SAGT
Það vakti talsverða athygli almennra
blaðalesenda, þegar Timinn og Morgun-
blaðið birtu um daginn fréttina af likleg-
um afdrifum pilts, sem hafði horfið al-
gerlega og ekki fundizt tangur né tetur
af. Sem betur fer er slikt næsta óalgengt
hér á landi, að unnt sé að leiða sterkar
likur að þvi, að framin séu morð með
köldu blóði, og vitneskja um það sé og
hafi verið á vitorði nokkurra einstak-
linga i hartnær tvö ár, án þess að þögnin
ryfist, enda hún fengizt með liflátshót-
unum!
Engum blööum er um það að fletta, að
hér er um stórfrétt að ræða, þótt hún sé i
einu og öllu hin óhugnanlegasta. Nú er
það eitt aðalhlutverk blaðanna, að flytja
fréttir, og gildir einu hvers eðlis þær
erú. Frá sjónarhóli blaðamanna, er þvi
eðlilegt að stjórnvöld, ef þau hafa
fréttirnar i höndum, sýni enga hlut-
drægni i upðlýsingum. Það á ekki að
skipta þau neinu máli hvort um er að
ræða s.n. stuðnings — eða andstæðinga-
blöð. Það verður að segjast, að það
kemur eins og þruma úr heiðskiru lofti,
að blöðum sé svo mismunað sem hér var
raun á. Ekki bætir það úr skák, að sýna
svo þeim, sem fyrir hlutdrægninni verða
dreissugheit, ef um er kvartað og segja
bara umbúðalaust við hlutaðeigandi, að
þeir tali aðeins við þá fréttamiðia, sem
þeim sýnist!
Rétt er að benda á, að fréttamenn
komast venjulega á einn og annan hátt á
snoðir um ýmislegt, sem máske er ekki
á nokkurn hátt rétt að kviðra upp með, á
meðan mál af þessu tagi eru i rannsókn.
Enginn heiðarlegur fréttamaður vill
láta bendla sig við, að hann eða hún
stundi æsiíréttamennsku, þar sem ef tii
vill væri gerður úlfaldi úr einni lltilli
mýflugu. Menn vilja gjarnan geta
staðfest þær fregnir, sem þeir birta, eins
vel og nokkur kostur er, og helzt hafa
fyrir sannleiksgildi þeirra alveg óyggj-
andi heimildir. Þess eru mýmörg dæmi,
að fullt samstarf er á milli lögreglu og
fréttamanna um að hreyfa ekki við
fréttum af rannsókn mála, sem eru á
viðkvæmu stigi, eins og það er kallað.
Um þessa hluti gildir þá það sem kallað
er á ensku a gentleman agreement, eða
nefna mætti samkomulag heiöurs-
manna. Að sjálfsögðu er það ekki ein-
hliða. Fréttamenn og þeir fjölmiðlar,
sem þeir starfa við, eiga þá allan
siðferðiiegan rétt á, að þeir séu ekki
Ábending í
fullri alvöru
sniðgengnir þegar rétt þykir að birta
fréttina. Brot á þessu kann að hafa al-
varlegri afleiðingar fyrir þá, sem að þvi
standa, heldur en þeir hafa máske gert
sér alveg ijóst i sinum hofmóði. Að sjálf-
sögðu er það þeirra mál i einu og öllu,
hvort þeir vilja haga störfum sinum á
þann hátt sem Bretinn kallar „gentle-
manlike.” En málið er ekki alveg svo
einfalt. Fréttamenn sem verða fyrir þvi
endurtekið, að á þeim eru brotin hin
óskráðu lögin, hljóta að draga af þvi
eðlilegar ályktanir. Og árangurinn gæti
þá orðið sá, að þeir telji sér heldur ekki
skylt að taka hið minnsta tillit til vilja
eða þarfa valdamanna, sem þannig
Eftir Odd A. Sigurjónsson
haga sér. Það er langbezt fyrir dreissug
stjórnvöld aö gera sér það alveg ljóst, að
með þvi að neita einum um upplýsingar,
sem öðrum eru veittar og meira að
segja meö frumkvæði upplýsandans,
eru þau ekki að vinna neitt þarfaverk.
Augljós hlutdrægni er ekki sérlega
hátt metin, sem betur fer. Á hinn bóginn
er það i lófa lagið að birta fréttir á þann
hátt, að ekki verði að fundið með sann-
girni eða lögum, enda þó fullkomin
staðfesting liggi ekki fyrir. Sjálfsagt er
að játa að slikt er á engan hátt að-
laðandi, en nauðsyn brýtur lika oft lög.
Með augljósri hlutdrægni i fréttamiðlun
eru þessir háu herrar, sem „aðeins tala
við þá sem þeim sýnist” þvi beinlinis að
efna til ófriðar, sem er ekki alveg vist að
þeim sjálfum væri hallkvæmari og
þeirra störfum eða embættum. Verið
geturað þeir hafi til þess lagalegt vald,
en dýrðin af slikri valdbeitir.gu er aftur
vafasamari. Enginn efi leikur á þvi, að
fréttamenn óska einskis fremur ^en
góðrar samvinnu við alla, sem hlut eiga
að máli um fréttamiðlun. Hitt er jafn-
vist, að sú samvinna hvorki getur verið
né á að vera einhliða. Þvi eiga þeir, sem
nú hafa brotið, leikinn með ekki alltof
langan umhugsunartima.
(< IK
Ford vill ekki
teljast klunni
Gerald Ford forseti
Bandarikjanna var margoft
fréttamatur á sl. ári vegna
klaufaskapar sins viöast
hvar. ^-Talsmaður hans
skammaði blaðamenn fyrir
skemmstu fyrir að vega ó-
heiðarlega og á ósanngjarn-
an hátt að forsetanum að
þessu leyti.
Astæðan til að talsmaður-
inn hóf máls á þessu er lik-
legast talin sú að i smáblaði
einu i Colorado birtist teikni-
mynd af forsetanum þar sem
hann var á skiöum og sneru
þau öfugt undir honum.
Ahorfandi sagði við annan:
Þeir segja að skiðakennar-
inn hans stjórni lika kosn-
ingabaráttunni.
Aulaháttur Fords hefur
verið eftirlætisefni banda-
risku pressunnar, allt frá þvi
ford datt inn i Austurriki i
júni sl. sumar. Blöðin hafa
getið sér þess til, að kosn-
ingabaráttan Fords I for-
setakosningunum á komandi
sumri, verði jafn klaufalega
skipulögð.
Ford dettur inn i Austurriki i
sumar sem leið.
Raggd rólegd
FJalla-Fúsd
Bióin
STJÖRHUBIO ■Slmi 18936
ienMICIIAtl WINNfD IIIM
STOne KILLBR
ÍSLENZKUR TEXTI.
Æsispennandi og viöburöarík
ný amerísk sakamálamynd I
litum.
Leikstjóri: Michael Vinner.
Aöalhlutverk: Charles Bron-
son, Martin Balsam.
Mynd þessi hefur allsstaöar
slegiö öll aösóknarmet.
Bönnuö börnum.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Hækkaö verö.
Borsalino og Co.
Spennandi, ný frönsk glæpa-
mynd meö ensku tali, sem
gerist á bannárunum. Myndin
erframhald af Borselino sem
sýnd var í Háskólabió.
Leikstjóri: Jacques Deray.
Aöalhlutverk: Alain Delon,
Riccardo Cucciolia, Catherine
Rouvel.
ISLENZKUR TEXTI.
Bönnuö börnum innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Simi :IMH2
lÁSKtiLABÍÓ s.m. zzuo
Jólamyndin i ár
Lady sings the blues
mynd um frægöarferil og
grimmileg örlög einnar fræg-
ustu blues stjörnu Bandarlkj-
anna Billie Holliday.
Leikstjóri: Sidney J. Furie.
ÍSLENZKUR TEXTI.
Aöalhlutverk: Diana Ross,
Billy Dee Williams.
Sýnd kl. 5 og 9.
VÝJA Eiió
Skóialif í Harvard
ÍSLENZKUR TEXTI
Skemmtileg og mjög vel gerö
verölaunamynd um skólalif
ungmenna.
Leikstjóri: James Bridges.
Sýnd kl, 5, 7 og 9.
HÁFNÁRBIO Slmi 16444
Jólamynd 1975
Gullæðiö
Einhver allra skemmtilegasta
og vinsælasta gamanmyndin
sem meistari Chaplin hefur
gert. ógleymanleg skemmtun
fyrir unga sem gamla.
Einnig hin skemmtilega gam-
anmynd
Ilundallf
Höfundur, leikstjóri, aöalleik-
ari og þulur Chariie Chapiin.
iSLENZKUR TEXTI
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15.
.AU6ARASBIÚ slm~
Frumsýning I Evrópu.
Jólamynd 1975.
ókindin
JAW$
PG w 100 INIINM I0R YOUNOER CHIIDRIN
Mynd þessi hefur slegiö öll aö-
sóknarmet i Bandarikjunum
til þessa. Myndin er eftir sam-
nefndri sögu eftir Peter
Benchley, sem komin er út á
islenzku.
Leikstjóri: Steven Spielberg.
Aöalhlutverk: Roy Scheider,
Robert Shaw, Richard Drey-
fuss.
Bönnuö innan 16 ára
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Ath. Ekki svaraö i sfma fyrst
um sinn.
Er ekki eitthvað smávegis sem þið viljið
selja, eða vanhagar um - og svarar vart
'kostnaði að auglýsa?
Þá hefur Alþýðublaðið lausnina:_______
ÖKEYPIS SMAÁUGLYSINGAR, sem er okkar
þjónusta við lesendur blaðsins.
Vegfarandi á aðeins að ganga
yfir götu á sebrabrautum
€T Alþýðublaðið
Fimmtudagur 8. janúar 1976.