Alþýðublaðið - 30.01.1976, Qupperneq 2
A
‘Ákveðið hefur verið
að gefa þeim sem þess óska, kost á að ger-
ast áskrifendur að dagskrá bæjarstjórnar
Kópavogs (fundargerðir bæjarráðs og
nefnda).
Nánari upplýsingar veittar á bæjarskrif-
stofunum.
Bæjarritarinn i Kópavogi.
Atvinna óskast
25 ára reglusamur maður, 2ja barna faðir
óskar eftir atvinnu. Margt kemur til
greina. Meðmæli fyrir hendi ef óskað er.
Simi 72076.
UTBOÐ
Leiguibúðanefnd Stykkishólmshrepps
auglýsir hér með eftir tilboðum i byggingu
8 ibúða i fjölbýlishúsi að Skúlagötu 9,
Stykkishólmi.
útboðsgögn eru afhent á skrifstofu sveit-
arstjóra Stykkishólmshrepps, Aðalgötu
10, Stykkishólmi, gegn kr. 10.000.00 skila-
tryggingu. — Tilboð verða opnuð á sama
stað 1. marz 1976 kl. 14.00.
Leiguibúðanefnd Stykkishólmshrepps.
Margeir fast á
hæla Helga á
Skákþingi Rvíkur
N a i n J. 2. 3. V. 5. 7. lr. 9 Jo. // /2.
M 1 0 1% 1 i o 1
2 Có DJZC&Jsr OaXu-rv.O'vi o m 1 1 1 'Á 1 r
3.'0'TWCXXZ. ^(AJ.S£^>V\I L 0 m '(l Iz t X 1 1 (x I
k. 0 /x m 0 O >/, 0 1
0 0 ‘U 1 'A 1 1 o
Á ^)<lS^<Aj^tOOVÍ O L w lo Td T 0 ‘U
7- I)0^jCu|vw>v\J ’þ Ix * 1 1 Íx ‘k T
jU'ft.S'öM-V C\sl>\(>rV\££c v\) 1 0 2.0 0 II h 1
\ o c 0 i * 0 0
0 lÍ2 l T lU o 1 v/i
O 0 T 1 2 1/1 'jz. %
o ol'Ji 0 c 0 { m
Áttunda umferð á
Skákþingi Reykjavikur
var tefld á miðvikudags-
kvöld og urðu úrslit
þessi: Ásgeir Ásbjörns-
son vann Björn Þor-
steinsson, Bragi Hall-
dórsson vann Gylfa
Magnússon, jafntefli
gerðu ómar Jónsson og
Jónas P. Erlingsson og
Margeir Pétursson og
Helgi Ólafsson. Skákir
Guðmundar Ágústs-
sonar og Magnúsar
Sólmundasonar og
Kristjáns Guðmuns-
sonar og Sævars
Bjarnasonar fór i bið.
Mikil spenna rikir nú i mótinu
og geta 5 menn auðveldlega unnið
þingið að þessu sinni. Helgi Ólafs-
son er efstur að svo stöddu með 6
v. en Margeir Pétursson er i öðru
sæti með 5 1/2 v, auk þess sem
hann a'óteflda skák við Jónas P.
Erlingsson. Björn Þorsteinsson
og ómar Jónsson er i þriðja til
fjörða sæti með 5 v. Annars er
staðan nokkuð óljós neðar, þar
sem nokkuð mörgum biðskákum
er ólokið.
t B-riðli hefur Ililmar Karlsson
tekið afgerandi forystu með 7 v.
af 8 mögulegum. Hilmar hefur
teflt mjög vei og hefði verið
gaman að sjá hann innan um
A-riðils mennina.
t C-riðli er Jón Þ. Jónsson
efstur með 7 v. en Kári Kárason
fylgir fast á eftir með 6 1/2 v.
í D-riðlunum, en þeir eru þrir,
eru þessir menn efstir: t D 1.
Þorsteinn Þorsteinsson 7 v. D2,
Arni Sigurbjörnsson 8 v. og þeir
Halldór Stefánsson og Jóhann
Jónsson eru efstir í D 3 með 5 1/2 .
Taflan hér að neðan sýnir
stöðuna í A-riðlinum.
Stórkostleg hækkun fargjalda með Smyrli?
Rett fyrir áramótin
birti Ferðaskrifstofan
Úrval sumaráætlun
Færeyjaferjunnar
Smyrils fyrir árið 1976. í
auglýsingu ferðaskrif-
stofunnar eru far
gjöld tilgreind og kemur
bar i liós að bau eru
mjög svipuð og var i
fyrra.
Alþýðublaðið hefur
fregnað að fargjöld þau,
sem tilgreind eru i
nefndri auglýsingu muni
ekki standast, þegar til
kemur og muni væntan-
legir farþegar, ef til vill,
verða að greiða allveru-
lega viðbót, við auglýst
gjald. Að visu er greint
frá þvi i auglýsingunni,
að fargjöldin séu miðuð
við gengisskráningu 20.
október 1975, en hvergi i
auglýsingunni segir að
Ferðaskrifstofan áskilji
Fer&ist á eigin bíl um Evrópu
sér rétt, til að gera
breytingar á til-
greindum fargjöldum.
Alþýðublaðið hafðði sarrlband
við Ferðaskrifstofuna úrval og
spurðist fyrir um það hvort rétt
væri, að fargjöldin mundu verða
hækkuð. Ekki tókst að ná taii af
framkvæmdastjóra Ferðaskrif-
stofunnar, en þó fékk Alþyðu-
blaðið þær upplýsingar hjá
afgreiðslunni, að þeim væri ekki
kunnugt um neinar fyrirhugaðar
hækkanir á auglýstum far-
gjöldum með Færeyjaferjunni.
Mikið hefði verið spurt um þessar
ferðir og væri augljóst að færri
kæmust með skipinu en vildu.
Um það hvortFerðaskrifstofan
gæti hækkað fargjöldin fékkst það
svar, að svo gæti vel orðið, enda
færi það eftir gengisskráningu og
verðlagi á hverjum tima.
Fargjöldin eru öll 'tilgreind án
fæðis. Fargjald á þilfari, fyrir
einn fullorðinn, frá Seyðisfirði til
Bergen er t.d. 14.500,- krónur.
Með hvildarstól er betta fareiald
kr. 16.000 en í tveggja manna
klefa er fargjaldið 21.800,- krónur
fyrir hvern fullorðinn farþega.
Börn á aldrinum 7-15 ára greiða
50% gjaldsins en 6 ára og yngri
greiða aðeins 10% fargjaldsins.
Þá er einnig gefinn hópafsláttur
fyrir 15 manns eða fleiri.
Gjald fyrir bifreið, 6 mtr. eða
styttri er 8.700.- krónur til
Bergen, en fyrir stærri bifreiðar
kr. 12.500,- Gjald fyrir reiðhjól frá
Seyðisfirði til Þórshafnar er 600,-
krónur. B
Starfsmann vantar -
búsettan á Akureyri
Iðnaðardeild Sambandsins óskar eftir
manni, með búsetu á Akureyri, til að
starfa að vinnurannsóknum og við á-
kvæðislaunakerfi i verksmiðjum deildar-
innar á Akureyri. Æskilegt er að viðkom-
andi hafi menntun og reynslu á þessu
sviði. Nánari upplýsingar gefa Hans
Kristján Árnason i sima 38900 eða starfs-
mannastjóri i sima 28200.
Alþýðublaóió
Föstudagur 30. janúar 1976.