Alþýðublaðið - 30.01.1976, Qupperneq 4
LOÐNAN: FYRIR-
TAKSVEIÐI OG
ÞRÆRNAR FYLLAST
Loönuaflinn frá miönætti fyrrakvölds, og þar til blaöiö hafði sam-
band viö loönunefnd i gærkvöld, er 10.525 tonn. Er það alger metafli á
sólarhring, ekki sizt þar sem meira magn átti eftir að berast á land.
Guðmundur var aflahæstur bátanna meö 800 tonn, en næstu bátar voru
Loftur Baldvinsson með 520 tonn, og Eldborgin meö 530 tonn. Heildar-
aflinn á vertiðinni mun nú vera i kringum 48.300 tonn. Nú eru allar
hafnir á austfjörðum að fyllast, og margar þegar orönar þaö. Leiðir
það til þess, að bátarnir þurfa að sigla lengri vegalengdir til þess að
landa, og má þvi búast við þvi að byrjunarhraðinn á vertiðinni fari að
minnka.
Þessir eru lukk-
unnar (eða náð-
arinnar) pamfílar
Er verðskerðingin 33% kjaraskerðing?
Undanfarna daga hefur fréttatilkynning frá svokallaðri sam-
starfsnefnd sjómanna birzt i flestum dagblaðanna. Frétta-
tilkynningin hefur einnig verið lesin i útvarpi og sjónvarpi.
t tilkynningu þessarier fjallað um fiskverðsákvörðun yfirnefndar
verðlagsráðsins fyrir janúarmánuð 1976, einkum verð á ufsa. í
fréttatilkynningu samstarfsnefndar sjómanna er þvi m.a. haldið
fram, að tilkynning um janúarfiskverð hafi ekki birzt opinberlega
fyrr en 24. janúar s.l., og er látið liggja að þvi, að lækkun á verði
ufsa i 2. og 3. gæðaflokki 85 cm og stærri hafi visvitandi verið haldið
leyndri fyrir sjómönnum. I fréttatilkynningu samstarfsnefndar
sjómanna segir loks, að ætla megi, að verð á ufsa, sem veiddurer i
net og flokkaður i gæðaflokka sé nú 12-14 kr. pr. kg., en hafi verið
fyrir ákvörðunina 18-20 kr. pr. kg. Þannig er þvi haldið fram, að
verðákvörðunin hafi falið i sér 30-33% lækkun á ufsaverði að meðal-
tali. í blaðaviðtölum við menn, sem kenna sig við fyrrnefnda sam-
starfsnefnd sjómanna, eru höfð uppi ýmis stóryrði um þessa
verðbreytingu og það staðhæft, að uppistaðan i janúarafla báta-
flotans sé 2. flokks ufsi og þvi jafnvel haldið fram, að 80-90% ufsa-
aflans sé i verðflokkum þeim, er lækkunin náði til. Raunar er þvi á
einum stað haldið fram, fyrirvaralaust, að verðákvörðun þessi feli i
sér 30-33% kjaraskerðingu hjá meginþorra sjómanna. Fullyrðing-
um þessum hafa fylgt ásakanir á hendur verðlasráðsmönnum, þess
efnis, að þeir hafi beinlinis stefnt að þvi að skerða hluti sjómanna og
haldið leyndri leyndri fyrir þeim veröákvörðuninni, sem þessum
ósköpum ylli.
'Úthlutunarnefnd listamanna-
launa hefur lokið störfum. Þessir
eiga sæti i nefndinni: Ólafur B.
Thors, lögfræðingur (formaður,
Jón R. Hjálmarsson, fræðslu-
stjóri (ritari), Halldór Kristjáns-
son. bóndi, Helgi Sæmundsson,
ritstjóri, Hjörtur Kristmundsson,
fyrrum skólastjóri, Magnús
Þóröarson framkvæmdastjóri og
Sverrir Hólmarsson, m. litt.
Arið 1976 hljóta þessir 125 lista-
mannalauna:
Arið 1976 hljóta þessir 125 lista-
mannalistamannalauna:
Aður veitt af Alþingi 350 þúsund
krónur hver:
Asmundur Sveinsson, Finnur
Jónsson, Guðmundur Danielsson,
Guðmundur G. Hagalin, Halldór
Laxness, Indriði G. Þorsteinsson,
Kristmann Guðmundsson,
Rikharður Jónsson, Snorri
Hjartarson, Tómas Guðmunds-
son, Valur Gislason, Þorvaldur
Skúlason
Veitt af nefndinni, 150 þúsund
krónur:
Agnar Þórðarson, Ágúst
Petersen, Ármann Kr. Einarsson,
Arni Kristjánsson, Björn J.
Blöndal, Björn Ólafsson, Bragi
Ásgeirsson, Eirikur Smith, Elin-
borg Lárusdóttir, Gisli Halldórs-
son, Guðbergur Bergsson, Guð-
munda Andrésdóttir, Guðmundur
L. Friðfinnsson, Guðmundur Fri-
mann, Guðmundur Ingi
Kristjánsson, Guðrún Á.
Simonar, Gunnar M. Magnúss,
Halldór Stefánsson, Hallgrimur
Helgason, Hannes Pétursson,
Hannes Sigfússon, Heiðrekur
Guðmundsson, Hringur Jó-
hannesson, Jakobina Sigurðar-
dóttir, Jóhann Briem, Jóhann
Hjálmarsson, Jóhannes Geir, Jó-
hannes Jóhannesson, Jón As-
geirsson, Jón Björnsson, Jón
Helgason, prófessor, Jón Helga-
son, ritstjóri, Jón Nordal, Jón
Óskar, Jón Þórarinsson, Jón úr
Vör, Jórunn Viðar, Jökull
Jakobsson, Karl Kvaran,
Kristján Daviðsson, Kristján frá
Djúpalæk, Leifur Þórarinsson,
Maria Markan, Matthias Jó-
hannessen, ólafur Jóh. Sigurðs-
son, Ólöf Pálsdóttir, Pétur Frið-
rik, Róbert Arnfinnsson, Rögn-
valdur Sigurjónsson, Sigurður
Sigurðsson, Sigurjón Ólafsson,
Stefán Hörður Grimsson, Stefán.
Islandi, Svavar Guðnason, Sverr-
ir Haraldsson, Thor Vilhjálms-
son, Valtýr Pétursson, Veturliði
Gunnarsson, Þorsteinn frá
Hamri, Þorsteinn O. Stephensen,
Þorsteinn Valdimarsson,
Þórarinn Guðmundsson Þórodd-
ur Guðmundsson
75 þúsund krónur:
Alfreð Flóki, Árni Björnsson,
Benedikt Gunnarsson, Brynja
Benediktsdóttir, Eggert Guð-
mundsson, Einar Hákonarson,
Einar Kristjánsson frá
Hermundarfelli, Einar Þorláks-
son, Erlendur Jónsson, Eyborg
Guðmundsdóttir, Eyjólfur Ey-
fells, Eyþór Stefánsson, Filippia
Kristjánsdóttir (Hugrún), Gréta
Sigfúsdóttir, Guðmundur Elias-
son, Hafsteinn Austmann,
Halldór Haraldsson, Hallsteinn
Sigurðsson, Haraldur Guðbergs-
son, Hrafn Gunnlaugsson, Ingi-
mar Erlendur Sigurðsson, Ingólf-
ur Guðbrandsson, Jóhannes
Helgi, Jón Dan, Jón Sigurbjörns-
son, Jónas Guðmundsson, Kári
Tryggvason, Kristinn Pétursson,
Kristinn Reyr, Magnús Á. Árna-
son, Matthea Jónsdóttir, Oddur
Björnsson, Ólafur Haukur
Simonarson, Ólöf Jónsdóttir,
óskar Aðalsteinn, Sigfús
Halldórsson, Sigriður E. Magnús-
dóttir, Skúli Halldórsson, Stefán
Júliusson, Steinþór Sigurðsson,
Sveinn Björnsson, Sveinn
Þórarinsson, Tryggvi ólafsson,
Unnur Guðjónsdóttir, Vésteinn
Lúðviksson, Vigdis Kristjánsdótt-
ir, Þorkell Sigurbjörnsson, Þor-
steinn Stefánsson, Þuriður Guð-
mundsdóttir, örlygur Sigurðsson.
Að þessu tilefni vill yfirnefnd
verðlagsráðsins láta eftirfar-
andi koma fram.
í fréttatilkynningu frá Verð-
lagsráði um fiskverösákvörðun
yfirnefndar fyrir janúar 1976
sem út var gefin 30. desember
1975, komu að venju einungis
fram meginatriði ákvörðunar-
innar. En að þessu sinni var á-
kvörðunin einkum um breytingu
á stærðarflokkum fisks, en um
þá breytingu sem aðrar viö
þessa verðákvörðun náðist
samkomulag. Áætlað er, að
breytingar þessar í heild valdi
hækkun fiskverðs að meðaltali
um 1-1 1/2%, og er þá miðað
við samsetningu aflans á heilu
ári. 1 fréttatilkynningu
Verðlagsráðs frá 30. des. 1975
kom fram, að auk stærðar-
' flokkabreytingarinnar hefðu
oröið nokkrar minni háttar
verðbreytingar. Þeirra var hins
vegar ekki nánar getið i
upphaflegri fréttatilkynningu,
enda sýnir reynslan, að fjöl-
miðlar stytta yfirleitt jafnvel
einnar siðu frétt af þessu tagi.
Eins og jafnan áður tók
nokkurn tíma að ljúka prentun
og dreifingu hinnar endanlegu,
opinberu verðtilkynningar, þar
sem tilgreind eru nákvæmlega
verð allra þeirra fisktegunda,
sem verðlagðar voru, I öllum
stærðar- og gæðaflokkum, auk
afhendingarskilmala. Að þessu
sinni var verötilkynning send út
til dreifingar 15. janúar 1976,
en ekki 24. janúar eins og haldið
er fram. Þá var tilkynningin
send til Lögbirtingablaðsins 2.
janúar 1976, og hún birt þar
hinn 16. janúar s.l. Mestu skiptir
þó, að allar upplýsingar um ein-
stök verð gátu þeir, sem áhuga
höfðu eða hagsmuna áttu að
gæta, fengið hjá félagasamtök-
um sjómanna, útvegsmanna,
fiskvinnslustöðva og skrifstofu
Verðlagsráðs strax 31. desem-
ber 1975. Hefur þessi háttur
jafnan verið á hafður og ekki
sætt gagnrýni. Þvi fer þannig
víðs fiarri, að nokkur leynd hafi
verið^firj þessari
verðá’kvörðun. Þvert á móti má
benda á, að hún hafi I senn legið
fyrr fyrir en undanfarin ár og
verið nánar frá henni greint i
fyrstu frétt en oft áður, þvi
oftast hefur niðurstöðu
verðákvörðunar I fyrstu verið
lýst með einni meðaltals-
prósentu. Við stærðarfl.breyt-
inguna voru stórufsamörkin
færð niður úr 85 cm I 80 cm en á
þessu lengdarbili áætlar Haf-
rannsóknarstofnunin, að 10-11%
af ufsaaflanum i heild liggi.
Verð á l.fl. ufsa af miðlungs-
stærð er kr. 15.40 en verð á
stórum ufsa 11. fl. er nú kr. 23.30
miðað við óslægðan fisk. Gefur
þvi auga leið, hve mikils virði
þessi breyting er fyrir sjómenn
og útvegsmenn. Auk þessarar
breytingar varð að ráði — vita-
skuld að kröfu kaupenda, sem
þáttur i heildarlausn — að láta
sama verð gilda fyrir 2. og 3.
flokks stórufsa og fyrir mið-
lungsufsa i sömu gæðaflokkum
en 2. og 3. flokks stórufsi eru að-
eins 7-10% af ufsaaflanum á
heilu ári skv. beztu heimildum.
Rökin fyrir þessari breytingu
eru skýr. Hið háa verð á stór-
ufsa helgast af framleiðslu salt-
ufsaflaka, en i þau þarf galla-
laust hráefni, gallaður fisur,
þótt stór sé, hentar þvi miður
eingöngu I afurðir, sem nú
gengur mjög erfiðlega að selja.
Að teknu tilliti til
verðfellingar á 2. og 3. fl. stór-
ufsa verður niðurstaðan 1 1/2-
2% hækkun á ufsaverði að
meðaltali miðað við heilt ár, en
verðlagsráðið miðar flestar
áætlanir sinar af þessu tagi við
aflatölur fyrir heilt ár. Til
dæmis um það, hve frájeitar
fullyrðingarnar i fréttatil-
kynningu samstarfsnefndar-
innar eru, er rétt að geta þess,
að ef litið er á ufsaaflann
mánuðina okt.-des. 1975, en um
hann liggja nú fyrir skýrslur frá
Fiskifél. Islands. Nú má ætla,
að á þessu timabili hafi meðal-
verðið hækkað skv. janúarfisk-
verðsákvörðuninni um 3-4%, úr
18.40 i u.þ.b. 19.00 krónur miðað
við óslægðan fisk. Vist má telja,
að breytingin á verðflokkum
ufsa komi sumar- og haust-
veiðum fremur til góða en
vetrarveiðum. Hins vegar eru
allarfullyrðingar um, að 80-90%
ufsaaflans i janúar séu i 2. og 3.
gæðaflokki, sem betur fer hrein
fjarstæða. Úrtak úr fiskkaupum
helztu fiskveinnslufyrirtækja
um suður- og suðvesturland og i
Vestmannaeyjum sýnir, að 1. fl.
ufsi var yfirleitt 60-80 af ufsa-
aflanum i net i jafnúar 1976.
Samkvæmt þessari athugun er
meðalverð á netaufsa i janúar
1976 kr. 19.70 miðað við
óslægðan fisk, (sbr.
fullyrðingar samstarfsnefndar-
innar um 12-14 kr. meðalverð)
Að lokum er rétt að fram komi,
að hlutfall ufsa i heildar-
verðmæti fiskaflans 1975 hefur
liklega verið nærri 10%. t ljósi
þessara þarf að skoða
fullyrðingar um mikilvægi
verðbreytinga á ufsa.
Það verður að harma að menn
skuli ryðjast fram i nafni sjó-
mannastéttarinnar með órök-
studd gifuryrði, en þetta hátta-
lag virðist einkenna starfs-
aðferð svonefndrar samstarfs-
nefndar sjómanna, sem raunar
á hvergi svo kunnugt sé itök i
eiginlegum stéttarfélögum sjó-
manna.
Jón Sigurðsson
Árni Benediktsson
Eyjólfur Isfeld Eyjólfsson
Ingólfur S. Ingólfsson
Kristján Ragnarsson.
UTB0Ð
Kröflunefnd óskar eftir tilboðum i máln-
ingu stöðvarhúss og kæliturnaþróa
Kröfluvirkjunar.
Útboðsgögn verða afhent i verkfræðistofu
vorri, Ármúla 4, Reykjavik, gegn kr 5000,-
skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað, miðviku-
daginn 18. febrúar 1976 kl. 11.15 f.h.
VERKFRÆÐISTOFA SIGURÐAR THORODDSEN sf
ÁRMÚLI 4 REYKJAVlK SlMI 84499
BjcTl
TRÉSMIÐJA
BJÖRNS ÓLAFSS0NAR
REYKJAVÍKURVEGI 68 - SÍMI 51975
HAFNARFIRÐI
HÚSBYGGJENDUR!
Munið hinar vinsælu TI-
TU og Slottlistaþétting-
ar á öllum okkar hurð-
um og gluggum.
Ekki er ráð nema i
tíma sé tekið.
Pantið timanlega.
Aukin hagræðing
skapar lægra verð.
Leitið tilboða.
W Alþýðublaðið
Föstudagur 30. janúar 1976.