Alþýðublaðið - 30.01.1976, Page 13
Með andvaraleysi í útgerðar-
málum er verið að kippa stoðum
undan atvinnulífi borgarinnar
Beinar launagreiðsl-
ur til starfsmanna
Bæjarútgerðar
Reykjavikur á árinu
1975 námu 352.3
milljónum króna, en sú
upphæð er heildartala
1.382 launamiða.
Þessar upplýsingar
veitti Björgvin
Guðmundsson, borgar-
fulltrúi Alþýðuflokks-
ins blaðinu, er við leit-
uðum til hans til að afla
upplýsinga um rekstur
BÚR á nýliðnu ári, en
Björgvin á sæti i
útgerðarráði borgar-
innar.
Björgvin upplýsti
einnig, að 350—400
manns starfi að meðal-
tali hjá útgerðinni, en
laun til annarra séu
vegna uppskipunar úr
togurunum og við aðra
þjónustustarfsemi, svo
sem viðgerðir og
viðhald á togurunum.
Fyrir borgarráði liggur enn
óafgreidd tillaga frá Björgvin
og Albert Guðmundssyni um að
byggt verði nýtt frystihús fyrir
Bæjarútgerðina og skipastóllinn
efldur, og sagði Björgvin að i
þvi sambandi virtist vænlegast
að huga að kaupum á smærri
skuttogurum, og væri rétt að
kanna hvort einhverjir slikir
yrðu til sölu innanlands i stað
þess að kaupa nýja að utan.
Hlutdeild Reykjavikur i út-
gerð landsmanna hefur stór-
minnkað siðan i striðslok, og
taldi Björgvin það ekki rétta
stefnu að kippa með andvara-
leysi stoðum undan útgerð
Reykjavikur, en borgin hefði
fyrst og fremst byggzt upp á
fyrri áratugum þessarar aldar
sera útgerðarstöð.
Benti hann á nýlega ályktun
Sjómannafélags Reykjavikur,
þar sem óskað er eftir þvi að
keyptir yrðu tveir nýjir skuttog-
arar af minni gerðinni fyrir
BÚR til að auka atvinnu i borg-
inni.
Varðandi rekstrartölur út-
gerðarinnar á liðnu ári sagði
Björgvin Guðmundsson að þær
væru þessar helztar:
A árinu 1975 var innviktað
hráefni til fiskiðjuvers B. Ú.R.
8.407 tonn að verðmæti kr. 211.3
milljónir. Framleidd voru á ár-
inu 2.509 tonn af flökum að verð-
mæti kr. 406.9 milljónir. (útb.
verð SH)
A árinu 1975 var innviktað
hráefni til fiskverkunarstöövar
.B.Ú.R. 3.467 tonn að verðmæti
kr. 121.8 milljónir. Framleidd
voru á árinu 65 tonn af fullþurri
skreið að verðmæti kr. 32.5
milljónir, 917 tonn af fullstöðn-
um saltfiski að verðmæti kr. 150
milljónir, 37 tonn af ufsaflökum
að verðmæti kr. 7.4 milljónir,
4.457 tunnur af sild að verðmæti
kr. 51 milljón og 160 tunnur af
hrognum að verðmæti 1.9.
milljón.
RÆTT VIÐ BJÖRGVIN
GUÐMUNDSSON UM
SÍÐASTA STARFSÁR
BÆ JARÚTG ERÐARIN NAR
Rekstrarúthald togara B.Ú.R. var árið 1975 skv. eftirfarandi:
Þormóður Bjarni Snorri Ingólfur
goði Benedikts. Sturlus. Arnarson
Rekstrardagar 361 354 376 362
Fjöldi veiðiferða. 16 17 17 17
Landanir innanlands. 15 16 16 17
Landanir erlendis. 1 1 1 ~ 0
Stopp v. verkf. dagar. 82 73 79 79
Viðg. og aðrar tafir dagar. 50 19 23.5 31
Siglingatimi dagar. 10 10 10 0
Löndunartimi dagar. 16 17 17 17
Veiðitimi dagar. 203 235 246.5 235
Aflamagn tonn. 2.179 3.357 3.301 3.466
Aflaverðmæti þús.kr. 56.170 108.827 108.397 97.482
Aflaverðm. á úth.d. þús. kr. 252 444 423 415
Afli per. veiðid. tonn 10.7 14.3 13.4 14.8
Afli per. veiðid. tonn ’74. 9.2 15.8 14.8 16.2
Karfi i % af afla. 71 48 56 50
Þorskur i % af afla. 12 35 27 28
Ufsi i % af afla. 9 9 9 12
ATVINNULEYSINGJUM í BORGINNI
FJÖLGAÐI UM 59% FRÁ ÁRAMÓTUM
Atvinnuleysingjum i
Reykjavik hefur fjölgað
um 100 frá áramótum og
nú eru 299 skráðir at-
vinnulausir. Gunnar
Helgason forstöðumað-
ur Ráðnin ga stof u
Reykjavikurborgar
sagði i samtali við Al-
þýðublaðið i gær, að at-
vinnuleysi i byggingar-
iðnaði væri nokkuð á-
berandi og sagðist ekki
muna eftir þvi á síðustu
árum að 25 múrarar
væru atvinnulausir eins
og er i dag.
Atvinnulausir karlmenn eru 217
taisins núna en voru 139 þann 2.
janúar s.l. Sem fyrr segir eru 25
múrarar skráðir atvinnulausir og
24 trésmiðir auk verkamanna
sem unnið hafa við nýbyggingar.
Kvaðst Gunnar álita, að ótiðin
undanfarnar vikur ætti einhvern
þátt i atvinnuleysinu i byggingar-
iðnaði þar sem ekki hefði verið
hægt að vinna útivinnu við bygg-
ingarum nokkurt skeið. Hinsveg-
ar bæri alltaf eitthvað á verk-
efnaskorti hjá þessum aðiium yfir
háveturinn. Þá eru 19 verzlunar-
menn skráðir atvinnulausir.
Samtals 82 konur eru nú at-
vinnulausar en voru 58 um ára-
mót. Helmingur kvennanna eru
iðnverkakonur og virðist þvi vcra
um samdrátt að ræða hjá iðnfyr-
irtækjum borgarinnar. Samtals
voru 198 atvinnulausir,2. janúar
en voru 299 i gær eins og fyrr
sagði.
Þeir sem eru á atvinnuleysis-
skrá þurfa að koma á hverjum
degi til að láta skrifa sig niður ef
þeirvilja fá bætur. Atvinnuleysis-
bætur til handa fyrirvinnunt eru
nú 1880krónurá dag og er 153 kr.
með hverju barni, en ekki er
greitt nteðfleiri börnum en þrem-
ur. Einstaklingar fá 1645 krónur á
dag. t sambandi við þessa fjölgun
atvinnulausra er rétt að geta
þess, að eftir að vinna lagðist nið-
ur aðmestu við Sigöldu hafði það
nokkra fjöigun i för með sér.
—SG.
Alþýðublaðið
Föstudagur 30. janúar 1976.