Alþýðublaðið - 30.01.1976, Side 16

Alþýðublaðið - 30.01.1976, Side 16
alþýðu Útgefandi: Alþýðuflokkurinn ÍRekstur: Reykjaprent h.f |Tæknil. frkvstj: Ingólfur Steins n. Rit6tjóri: Sighvatur Björg ■vinsson Ritstjórnarfulltrúi Bjarni Sigtryggsson Aðsetur rit Istjórnar Siðumúla 11, simi 8-18-66 fPrentun: Blaðaprent h.f. Áskrift arverð: Kr.: 800 á mán. Lausa ísöluverð: Kr.: 40.- KÓPAVOGS APÓTEK Opið öll kvöld til kl. 7 Laugardaga til kl. 12 ' rVedrdd------- $ Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni máúi N gera ráð fyrir hægri og ^ norðaustlægri vindátt á |§ ^Reykjavikursvæðinu i a| pdag. Almennt ættu menn gað geta verið upplits- Ædjarfir þvi veður verður ^•bjart og vægt frost.’ •. Upplagt veður fyrir skauta eða aðrar vetrariþróttir. Flokksstarfió Fræðslufundir Alþýðuf lokksins eru haldnir i Félagsheimili prentara, Hverfisgötu 21, og hefjast kl. 20.30 á mánudaginn 2. febrúar. o o Alþýðuflokksfélag Reykjavikur FÉLAGSVISTIN. Félagsvistin i Iðnó laugar- daginn 31. janúar n.k. hefst kl. 2. e.h. Gengið inn frá Vonars træti. Skemmtinefnd. Kvenfélag Alþýðu- flokksins i Reykjavik heldur félagsfund nk. mánu- dag, 2. febrúar, kl. 20:30 I Iðnó, uppi. Gestur fundarins verður Benedikt Gröndal, formaður Alþýðuflokksins. A fundinum verður tekið á móti félagsgjöldum, svo og skilum á fjáröflun félagsins. Mætið vel og stundvislega. STJORNIN Nýlega hefur verið dregið i happdrætti Alþýðuflokksfélagsins á Akureyri. 1. verðlaun ferð til Noregs kom á miða númer 568. 2. verðlaun ferð til Færeyja kom á miða númer 767. 3. verðlaun ferð frá Akureyri til RVK. og til baka kom á miða nr. 210. 4. verðlaun ferð frá Akureyri til RVK og til baka kom á miða nr. 182. Eftirfarandi númer hlutu 5.000 kr. verðlaun: 130, 299, 416, 613, 846, 963, 1378, 1455, 1632 og 1998. MEGUM VIÐ KYNNA Ólafur Jónsson framkvæmdastjóri Vinnuveit- endasambands Islands, er fæddur 27. mai, árið 1923 i Austvaðsholti i Landssveit. Foreldrar hans eru Jón Öiafsson bóndi á sama bæ, og Katrin Sæmundsdóttir. Kona Ólas heitir Margrét Guðmundsdóttir, og er hún frá Reykjavik. Þau hjónin eiga þrjú börn, eina 17 ára dóttur, og tvo syni, annan 15 ára, en hinn 13 ára. Ólafur varð stúdent frá Menntaskóla Akureyrar árið 1945, en cand. jur. prófi frá Há- skóla tslandslauk hann árið 1951. Að loknu þvi prófi, fór Ólafur til Bandarikjanna, og stundaði þar nám i stjórnunarfræðum, á árun- um 1952-1953. Er við spurðum Ólaf um atvinnuferil sinn, sagði hann. „Ég byrjaði að vinna hjá lög- reglunni i Reykjavik fyrst árið 1951, en eftir námið i USA fór ég að vinna þar aftur, og var ég þá fulltrúi lögreglunnar, og siðar var ég aðalfulltrúi lögreglustjóra til ársins 1966, en tók þá við starfi tollgæzlustjóra fram að seinni- part ársins 1972. Hér byrjaði ég svoaöstarfa 1973.”Er Ólafur var spurður um félags-og tómstunda- störf sin, svaraði hann þessu til: „Þótt timi til tómstunda sé lltill, þá reyni ég ásamt fjölskyldu minni, að ferðast eins mikið og hægt er, og er vist óhætt að segja, að við höfum komið á flest alla staði landsins. Nú félagsstörf af ýmsu tagi, hef ég starfað við, og er ég nú t.d. formaður Barna- verndarráðs. HEYRT, SÉÐ LESIÐ: I Arsriti Skógræktar- félags Islands fyrir árið 1975, að frá árinu 1949 og til áramóta 1974/1975 hafi alls verið gróður- settar 3.253.142 trjáplöntur af al- gengustu trjátegundunum og 48.067 plöntur af sjaldgæfari teg- undum. Langmest var gróðursett árið 1958, eða 218.880 plöntur. Af einstökum trjátegundum hefur langmest verið gróðursett af sitkagreni, eða 1.076.347 plöntur, en minnst af islenzkum reyni og gráreyni, 60 plöntur af hvorri tegund HEYRT: Að DAG- BLAÐIÐ hafi selt tizkuverzlun- inni Evu alla götuhæbina á hinu nýkeypta húsi Dagblaðsins við Laugaveg. Kaupverðið sé 20 millj. króna. SPURT: Einn af lesendum Alþýðublaðsins bað blaðið að koma þeirri spurningu áleiðis, hvort ekki væri möguleiki á þvi, að eitthvert iþróttafélagið i Reykjavik eða Skiðaráð Reykja- vikur hefðu með höndum skiða- kennslu fyrir börn og byrjendur i skiðaiþróttinni i Bláfjöllum um helgar. Væri hér ekki kjörið verk- efni fyrir Æskulýðsráð borgar- innar að taka þetta mál að sér, auglýsa námskeið og efna til rútuferða fyrir börnin i skiða- landið svo fólk gæti sent böm sin uppeftir undir góðri umsjá. TEKIÐ EFTIR: Á ferð um landið i vetur, að fæst bæjarfélög I utan Reykjavikur bera salt á i götur. Viðast hvar er sandur bor- inn á gangstiga og ekkert á göturnar ogeru þærmiklu þokka- legri, en Reykjavikurstræti. HEYRT: Að Sverrir Herm annsson, Austf jarðaþing- maður og kommissar, hafi fullan hug á að flytja sig i framboð 0G HLERAÐ vestur á firði ef vera kynni, að sæti lösnaði þar ofarlega á lista Sjálfstæðismanna við næstu Alþingiskosningar. FRÉTT: Að svonefnd „fisk- veiðilaganefnd” hafi nú lokið þvi verkefni sinu að gera tillögur um hagnýtingu landhelginnar. t ráöi sé að leggja tillögur þessar fyrir Alþingi innan skamms og megi þá eiga von á hörðum deilum vegna byggðarsjónarmiða og ágrein- ings um einstakar veiðiaðferðir.- HEYRT: Fyrir skömmu ritaði Þorsteinn Thorarensen föstu- dagsgrein i Dagblaðið, þar sem hann býsnaðist yfir þvi, að ráð- herrar gætu orðið veikir. Ýmsum þótti nóg um að lika væri farið að skamma þá fyrir að þeir væru ekki ónæmir fyrir bakterium og einum varð að orði: „Hvað er þetta, heldur maðurinn að sóttkveikjurnar séu i kom múnista f lok knum eða ER ÞAÐ SATT, að Gunnar Thoroddsen hafi lýst stefnu sinni i orkumálum á fundi i Sjálfstæðis- flokknum með þessum spaklegu orðum: „Stefna min er sú að fá sem mesta orkufyrir sem minnst fé sem fyrst” — og fengið mikið klapp fyrir? ÖRVAR HEFUR 0RÐIÐ I=>1 Ríkisstjórnin og vandamálin. Það mun vartofsagt, að fáar rikisstjórnir á Islandi hafa þurft að glima við fleiri vanda- mál, en sú, sem nú situr — nema ef vera skyldi stjórnin, sem sat næst á undan henni. Þessum tveimur rikisstjórnum er það sameiginlegt, að þær láta sér ekki nægja þau vandamál, sem skapast af aðstæðum i þjóðfélag- inu. Báðar hafa þær i óðaönn sjálfar búið til ný eða magnað þau, sem fyrir voru, og bætt á bing- inn' Minnir þetta einna helzt á upphleöslu smjör- fjallanna nema hvað hægt er að éta sig niður úr smjörfjalli eða flytja það út, en vandamál islenzkra stjórnvalda eru bæði hörð undir tönn og engri þjóð dytti til hugar að hleypa þeim inn fyrir landamæri sin. Þá er annað sameigin- legtauökenni á núverandi og fyrrverandi rikis- stjórn. Sem sé það, að hvorugar ráða þær við að fjalla um nema eitt mál í einu. Tökum t.d. ástandið eins og það er nú i land- inu. Tvö mikilvæg mál biða úrlausnar. Landhelgismálið annars vegar. Kjaramálin hins vegar. Úrlausn beggja þessara mála er komin undir rikisstjórninni. En vegna þess, að Geir hefur nndanfgrna daea verið upptekinn við að ræða við wri------- Harold Wilson um land- helgismálið og að undir- búa þær viðræður hefur rikisstjórnin bókstaflega ekkert getað hugsað um kjaramálin. Hún ræður alls ekki við nema eitt mál i senn og þar sem nýtt vandamál ris svo til með hverri sólarupp- komu hefur rikisstjórnin dregist langt aftur úr. Gáði ekki að sér Skýrt dæmi um þetta vandhæfi rikisstjórnar- innar til þess að hugsa um fleiri mál en eitt i senn kom fram nú ádögunum. Um nokkurt skeið hefur rikisstjórnin átt að vera að sinna samningaum- leitunum við opinbera starfsmenn. Nokkru fyrir jól var Alþingi látið breyta lögum um með- ferð samningamála opin- berra starfsmanna þann- ig að lengja frestinn áður en málinu yrði skotið til kjaradóms. Atti að nota þennan aukna frest til samkomulagsumleitana. En rikisstjórnin var ekki betur inni i málinu en svo, að hún uppgötvaði i fyrradag sér til mikillar skelfingar, að fresturinn, sem veittur var fyrir jól, var útrunninn og lögum samkvæmt átti kjara- dómur þvi að taka til starfa. Þá var rokið til i miklu irafári og frestur- inn, sem þá var útrunninn fyrir nokkru, lengdur á ný með þvi að keyra nýjar lagabreytingar i gegn um báðar deildir þingsins á sama degi. Þessi saga er glöggt dæmium, að rikisstjórnin getur alls ekki hugsað nema um eitt mál i einu. Nú er þetta eina mál viðræðurnar við Wilson um Iandhelgismálið. Og eins og varð um samn- ingamál opinberra starfsmanna virðist rikis- stjórnin enn ekki hafa getað gert sér grein fyrir þvi, að eftir hálfan mánuð skellur yfir allsherjar vinnustöövun á Islandi láti rikisstjórnin ekki verða af þvi að gera þær pólitisku ráðstafanir, sem aðilar vinnumarkaðarins hafa beðið hana um og sagt að séu alger grund- völlur nýrra kjarasamn- inga I landinu. FIMM á förnum vegi Eftir hverju tekurðu helzt í fari kvenmanna? M Clive B. Halliwetl, (enskur:) „Útlitinu fyrst og fremst og hvernig hún hegðar sér gagn- vart gagnstæða kyninu. útlitið er þó alls ekki allt, viðkomandi verður að hafa einhverja persónutöfra, þvi án þess fer kannski fegurðin fyrir litið. Kristján Hauksson sendiil/nemi: „Ég horfi aldrei á stelpur. Ég vil þó gjarnan hafa þær snyrtilegar. Ég tala mjög sjaldan við stelpur, og þá aðeins stelpur úr minum bekk.” Þorsteinn Sigurftur Jónsson, menntaskólanemi: „Linunum. Útlitið fyrst og fremst. Andlits- laginu tekur maður lika gjörla eftir. Þó litur maður ekki ein- göngu á útlinurnar, skapgerðin hefur einnig ýmislegt að segja.” Þorgrimur Þráinsson, nemi: „Útlitiö er númer eitt. í þvi sambandi leggur maður helzt áherzlu á andlitslag og klæða- burð. Nú, skapgerðin og andriki viðkomandi persónu er auövitað mikilvægur þáttur ef maður kynnist kvenmanninum betur.” Lúftvik Hansson, leigubilstjóri: „Framkoma þeirra hefur mest áhrif á mig, það er einfalt mál. Þó má nefna það, að ekki sakar að útlitið sé ágætt.” ✓

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.