Alþýðublaðið - 18.02.1976, Page 4

Alþýðublaðið - 18.02.1976, Page 4
I Niðurgreiðsla dag- vistar á einkaheimilum Samkvæmt ákvörðun borgarráðs Reykja- vikur skal greiða niður gjald vegna barna einstæðra foreldra i dagvistun á einka- heimilum. Niðurgreiðsla er mismunur á gjaldi Barnavinafélagsins Sumargjafar og þvi gjaldi, er greitt er fyrir dagvistun barns, þó aldrei yfir kr. 6.000.- á mánuði og eru greiðslur bundnar þvi skilyrði að viðkom- andi dagvistarheimili hafi leyfi Barna- verndarnefndar Reykjavikur. Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá Félagsmálastofnun Reykjavikurborgar, Vonarstræti 4 og Asparfelli 12. F élagsmálastofnun Reykjavikurborgar, Vonarstræti 4, simi 25500. JFSBI Felagsmálastofnun Reykjavíkurborgar Vonarstræti 4 sími 25500 Skóladagheimili Reykjavikurborg óskar eftir kaupum á húsi i nágrenni Austurbæjarskóla fyrir skóladagheimili. Upplýsingar gefur skrifstofustjóri Félags- - málastofnunar Reykjavikurborgar, Vonarstræti 4. Félagsmálastofnun Reykjavikurborgar, Vonarstræti 4, simi 25500. J Felagsmálastofnun Reykjavikurborgar I j 6 Vonarstræti 4 sími 25500 * J TRÉSMIÐJA BJÖRNS ÓLAFSS0NAR REYKJAVÍKURVEGI 68 - SÍMI 51975 HAFN ARFIRÐI HÚSBYGGJENDUR! Munið hinar vinsælu TI- TU og Slottlistaþétting- ar á öllum okkar hurð- um og gluggum. * Ekki er ráð nema i tíma sé tekið. Pantið timanlega. Aukin hagræðing skapar lægra verð. Leitið tilboða. Volkswageneigendur Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Huröir — Vélarlok — Geymslulok á Wolkswagen i allflestum litum. Skiptum á einum degi með dagsfyrirvara fyrir ákveðið verð. Reyniö viðskiptin. Bllasprautun Garðars Sigmundssonar. Skipholti 25 Simar 19099 og 20988. ^ Alþýðublaðið ALSTRIÐ MILLI RÍKISSJÓÐS OG HAFNARFJARÐARBÆJAR Risið hafa harðvítugar deilur milli ríkisvaldsins og Hafnarf jarðarbæjar vegna frumvarps um breytingu á álsamningn- um við ÍSAL ((slenzka ál- félagið Straumsvík). Tel- ur Hafnarfjarðarbær að hann beri nú ekki úr býtum það frá verk- smiðjunni sem réttlátt gæti talizt, en samnings- drögin gera ráð fyrir enn minni tekjum bæjarins f rá álverinu. Ekki er unnt að samþykkja þetta frumvarp og láta það koma tii framkvæmda, nema til komi samþykki Hafnarfjarðarbæjar, þar- sem Straumsvík er innan bæjarlandsins og er því undir bæinn að sækja vegna f yrirhugaðrar stækkunar verk- smiðjunnar. Þetta mál kom til umræðu 1 bæjarstjórn Hafnarf jarðar þann 16. desember siðastliðinn, viku eftir að frumvarpið hafði verið lagt fram á Alþingi. Var á þeim fundi samþykkt eftirfarandi til- laga samhljóða. — Þegar lögin um álbræðslu i Straumsvik voru sett árið 1966 og ákveðið, að ÍSAL yrði gert að greiða fram- leiðslugjald i stað almennra skatta, var haft i huga, að hluti Hafnarfjarðarbæjar af fram- leiðslugjaldinu ætti að géra bæjarsjóð að minnsta kosti jafn- settan og ef félagið greiddi sin gjöld til bæjarsjóðs á sama hátt og önnur fyrirtæki. / Nú hefur þróunin orðið sú, að ISAL greiðir i dag langtum lægri gjöld til bæjarsjóðs i formi framleiðslugjalds, heldur en það myndi gera, ef það væri skattlagt eftir venjulegum regl- um. — Þegar hér við bætist, að aðstöðugjöld og fasteigna- skattar eru nú orðin miklu hærri hluti af heildartekjum bæjar- sjóðs, en þau voru við upphaf laganna um álbræðsluna, er orðið timabært að óska eftir endurskoðun á þessum málum. Með visan til þessa og þar sem bæjarstjórn hefir ekki verið gefinn kostur á að fylgjast með undirbúningi nýframkomins frumvarps um lagagildi við- aukasamnings varðandi ál- bræðsluna og ekki heldur leitað umsagnar hennar um frum- varpið, að þvi er snertir breytingar á framleiðslugjald- inu, er bæjarstjórn ekki tilbúin að svo stöddu að taka afstöðu til viðaukasamnings um þriðju stækkun álbræðslunnar, sem er hluti af framangreindu frum- varpi. Jafnframt þvi sem bæjar- stjórn óskar eftir þvi við alþingi, að fá hæfilegan frest til að skila urnsögn urn nefnt laga- frumvarp skorar hún sérstak- lega á alþingi að taka upp i frumvarpið ákvæði um uppsetningu á sem fullkomnust- um hreinsibúnaði við ál- bræðsluna til að draga sem mest úr skaðlegum áhrifum af reyk og gastegundum i sam- bandi við reksturinn. — i frumvarpi rikisstjórnarinn- ar er gert ráð fyrir þvi að fá hærra rafmagnsverð. Það leiði til þess að framleiðslugjaldið lækkar og þar með tekjur bæjarsjóðs Hafnarfjarðar. Það er þvi augljóst að hagsmunir rikissjóðs og bæjarsjóðs stangast á. Ef ISAL greiddi sin gjöld til bæjarins eftir hefð- bundnum leiðum i formi áð- , stöðugjalda og fasteignaskatta, þá myndi heildargreiðsla til bæjarsjóðs frá verksmiðjunni verða um 130 milljónir, en myndu á þessu ári miðað við óbreytt lög verða um 50 mill- jónir króna. Þennan mismun vill bæjarsjóður fá, en ekki enn frekari tekjurýrnun, eins og frumvarpið gerir ráð fyrir. Það er ljóst að frumvarp rikisstjórnarinnar er i sjálf- heldu, ef ekki kemur til sam- þykkis Hafnarfjarðarbæjar, þvi að bærinn þarf að leyfa þriðju stækkun verksmiðjunnar sem frurnvarpið ráðgerir. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur hingað til talað fyrir dauf- um eyrum þingmanna og ann- arra ráðamanna. Það er þó ljóst að Hafnarfjarðarbær tekur þvi ekki með þegjandi þögninni að verða fyrir enn frekari tekju- missi vegna verksmiðjunnar en orðið er. Þetta er mikilvægt hagsmunamál fyrir bæinn, þegar munar orðið um 80 milljónum króna á núverandi tekjum og aftur eðlilegum tekj- um að mati bæjarstjórnar. En hvað gera þingmenn kjör- dæmisins? Hvað gerir t.d. þing- maður Hafnarfjarðar, fjár- málaráðherran Matthias A. Mathiessen, metur hann meir_ hagsrnuni rikisins, en bæjar- félags sins? Þess spyrja Hafn- firðingar þessa dagana, hvar i flokki sern þeir standa. Við urnræður á alþ. á dögun- um um fyrrgreint frumvarp, var litið sem ekkert komið inn á hagsmuni og óskir Hafnar- fjarðarbæjar. Það rikir þvi biturð i Firðinum og er ljóst að einhver málamiðlun eða önnur lausn þarf að koma til, ef frum- varp þetta á að koma til fram- kvæmda. —GAS Miðvikudagur 18. febrúar 1976

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.