Alþýðublaðið - 26.03.1976, Page 1
FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1976
Inndjúpsáætlun er nokkuo sem morgum
hefur orðiö tíðrætt um og er deiluefni
manna. Aætlað var að Ijúka byggingafram-
kvæmdum að mestu fyrstu ár áætlunarinn-
ar, og um leið að hefja ræktunarfram-
kvæmdir. Smiði útihúsa hefur að inestu
haldið sínu striki, en ræktunarmálin dregist
mjög aftur úr. Getur þaðorðið til þess að öll
áætlunin tefjist sem þvi nemur. Nánar um
Inndjúpsáætlun getur að lita i miðopnu.
BROTLEGIR UM ALVARLEG
VANSKIL A ORLOFSFE Jí
Z ..'7 :
émur
vorið?"
,,Hvenær kemur blessaö vorið”, spyrja margir þessa
dagana, þegar óðum styttist I sumardaginn fyrsta. A
Suðurlandi gerast menn þreyttir á sifelldum umhleyp-
ingum, og þrálátur orðrómur er á kreiki um að næsta
sumar verðieitt þaðbezta i manna minnum. — Liklega
hafa menn ekki alveg gleymt þvi hvernig borgin Htur
út á vori og sumri, en þessi mynd á að minna á það. —
Þetta er glaðleg mynd úr Austurstræti og styrkir
minninguna um vorið.
Enginhljóö —
eða hlustunar-
tæki í fanga-
geymslum í
Reykjavík
— Fangaverðir hér i
Reykjavik hafa fyrir-
mæli um að lita eftir
mönnum á 15—20 min-
útna fresti og einnig ber
þeim að sinna öllum
hringingum frá fanga-
klefunum. Engin hljóð-
eða hlustunartæki eru i
klefunum, sagði
Guðmundur Hermanns-
son aðstoðaryfirlög-
regluþjónn i samtali við
Alþýðublaðið.
Fréttirnar um há-
tiðnitæki i fangaklefum
á Höfn og Akranesi hafa
vakið mikla athygli.
Jafnframt hafa þá
margir spurt hvernig
búið væri að mönnum
sem gistu fangaklefa
lögreglunnar i Reykja-
vik.
Guðmundur
Hermannsson sagði, að
það væri litið svo á að
þeir sem sætu i fanga-
klefunum væru undir
vernd lögreglunnar.
Bjalla væri i hverjum
klefa og gætu fangar þvi
alltaf gert vart við sig
með þvi að ýta á hnapp,
ef þeir þyrftu að komast
á salerni eða þyrftu á
annarri þjónustu að
halda.
Hávaðaseggir
Stundum kemur það
fyrir að þeir sem hafa
verið settir inn eru með
hróp og köll i klefum
sinum og lemja i hurðir.
Veldur þetta öðrum ó-
þægindum, en
Guðmundur sagði, að
reynt væri að róa há-
vaðaseggi með þvi að
tala þá til.
Lögreglan ræður yfir
tveimur klefum þar
sem hægt er að fjötra
menn með fótjárnum.
Sagði Guðmundur þá
aðeins notaða, þegar
menn vildu skaða sjálfa
sig, t.d. i geðveikisköst-
um. en þá væri jafnan
haft samband við lækni.
Að lokum lýsti
Guðmundur Hermanns-
son yfir furðu sinni á
hátiðnitækjunum, sem
notuð voru á Höfn og
Akranesi og sagðist
ekki hafa heyrt um mál-
ið fyrr en fjölmiðlar
birtu fréttirnar.
Fullkomnasta
vörumóttaka
ó öllu landinu
Alþýðublaðið fór í heim-
sókn i Vöruf lutningamiðstöðina H/F, og
kynnti sér stækkun og breytingar, sem
þar hafa verið gerðar. _ ..