Alþýðublaðið - 26.03.1976, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 26.03.1976, Qupperneq 3
Föstudagur 26. marz 1976 Skoða virkjanir og vélar erlendis á vegum Kröflunefndar - NOKKUÐ SEINT f RASSINN GRIPIÐ Til Japans og Bandarikjanna Um þessar mundir er Einar Tjörvi, yfirverk- fræðingur i Kröflu, er- lendis á vegum Kröflu- nefndar. Þá mun Karl Ragnars, verkfræðing- ur, vera á svipuðum slóðum, i erindum Orkustofnunar rikisins. Alþýöublaðið hafði samband við Jón Sólnes og spurðist fyrir um ferðir Einars. Sagði Jón, að Einar hefði farið til Japans til að vera viðstaddur prófanir á vélum, sams konar þeim og not- aðar verða i Kröfluvirkjun.- Einnig kæmi hann við i Banda- rikjunum til að skoða jarðhita- virkjanir sambærilegar Kröflu- virkjun. Ekki tókst að fá fullnægjandi upplýsingar i Orkustofnun i gær, um ferðir Karls Ragnars, en áreiðanlegar heimildir herma, að ferð hans sé i beinum tengslum við ferðalag Einars Tjörva. Undrunar gætir Nokkrar undrunar gætir með- al manna, vegna þessa ferða- lags. Segja sumir, að furðulegt sé.aðsenda mann erlendis til að skoða erlendar virkjanir, þegar virkjunarframkvæmdireru eins langt komnar i Kröflu og raun bervitni. Hvers vegna var þetta ekki gert fyrr? spyr fólk. bd skýtur einnig skökku við, að fulltrúi Kröflunefndar sé við- staddur prófanir á vélum, sams konar og þegar er búið að festa kaup á og þær þegar komnar til landsins. Var ekki eðlilegra að einhver fulltrúi Kröflunefndar, hefði verið viðstaddur prófanir á vélunum, áðuren kaup voru á- kveðin, svo hægt hefði verið að dæma um kosti þeirra og galla. Ýmsir hafa nefnilega látið þau orð falla, að þessar vélar henti ekki alls kostar Kröflu- virkjuninni. Ekki skal þó á það lagður dómur, en ýmsu er ó- svarað i þessu sambandi. —GAS. Ný félagsmiðstöð A fundi æskulýðsráðs Reykjavikur 19. nóvember 1974 var samþykkt tiliaga frá for- manni ráðsins, Davið Oddssyni um byggingu félagsmiðstöðvar i Arbæjarhverfi. Var arkitektunum Ormari Þór Guðmundssyni og örnólfi Hall falin hönnun byggingar- innar, og var henni jafnframt valinn staður við Rofabæ, næst fyrir vestan Árbæjarskóla. Fyrirliggjandi teikningar voru samþykktar i æskulýðsráði og borgarráði i janúar og febrúar 1967. Alls er gólfflötur félagsmið- stöðvarinnar áætlaður 788 m2, auk 210 M2 rýmis i kjallara. Miðja hússins frá austri til vesturs er umferðarleið, sem einkenndist af skábrautum i stað venjulegra stiga. Með brautunum er tryggt að allir eigi greiða leið um húsið, hvort sem þeir eru i hjólastólum, bæklaðir, eða heilbrigðir. Einnig auðvelda brautirnar flutning tækja um húsið. Helztu húsnæðiseiningar eru afmarkaðar á pöllum, og geta þvi notast hver fyrir sig, eða saman ef óskaö er. Félagsmiðstöðinni i Arbæ er ætlað að vera samastaður félagslifs I hverfinu. Félög munu fá þar inni fyrir sam- komur, fundi og fræðslustarf, og Æskulýösráð Reykjavikur veröur þar með eigin starf semi. Þá er ogsérstök aðstaða fyrir skátastarf i húsinu. Orkunefnd Vestfjarða hefur lokið störfum Orkumálanefnd Vcstfjarða, sem skipuð var af iðnaðarmáia- ráðherra, Gunnari Thoroddsen 23. júli 1975, hefur nú lokið störf- um. Var nefndinni falið að vinna að. orkumálum Vestfjarða og kanna viðhorf sveitarfélaga á Vestfjörð- tnn til stofnunar Vestfjarðavirkj- unar. t nefndina voru skipaðir eftir- taldir menn: Engilbert Ingvars- son, rafveitustjóri Snæfjalla- hreppi, Guðmundur H. Ingólfs- son, bæjarfulltrúi isafirði, Ingólf- ur Arason, hreppsnefndarmaður Patreksfirði, Jóhann T. Bjarna- son, framkvæmdastjóri fjórð- ungssambands Vestfirðinga, Karel E. Loftsson, oddviti Hólmavik, Ólafur Kristjánsson, forseti bæjarstjórnar Bolungar- vikur og Þorvaldur Garðar Kristjánsson, alþingismaður, sem var formaður nefndarinnar. Störf Orkumálanefndar hafa verið tviþætt: tillögugerð, annars vegar um framkvæmdir i orku- málum, og hins vegar um stofnun orkufyrirtækis, og hefur nefndin unnið að þessum verkefnum sam- hliða. Við tillögugerð um fram- kvæmdir fékk nefndin til liðs við sig sjö sérfræðinga og vann hún i samráði við þá að mótun tillagna um framkvæmdir i orkumálum. Við tillögugerð um stofnun orkufyrirtækis hafði nefndin samráð við sveitastjórnarmenn á Vestfjörðum og tók mið af hug- myndum þeirra, meðal annars á vettvangi Fjórðungssambands Vestfirðinga. Þegar nefndin hafði mótað til- lögur sinar, efndi hún til all- margra funda á Vestfjörðum með sveitastjórnarmönnum þar. Þar voru tillögur kynntar og skipzt á skoðunum. A fundi þessa mættu nálega allir sveitastjórn- armenn á Vestfjörðum og kom þar fram einhugur og mikill á- hugi á framgangi málsins. Eins og áður sagði, hefur nefndin nú lokið störfum og af- hent iðnaðarráðherra tillögur sin- ar i orkumálum Vestfjarða. ' Er þar um að ræða: 1. Frum- varp til laga um Orkubú Vest- fjarða. 2. Tillögur um fram- kvæmdir i orkumálum. FRÉTTIR 3 SNORRABÆR — veitingastaður fyrir lokuð samkvæmi Nýr veitingastaður, ætlaður fyrir lokuð samkvæmi, hefir verið opnaður að Snorrabraut 35 uppi. A sinum tima var veitingahúsið „Silfurtunglið” þarna til húsa, en starfsemi þess var hætt ekki alls fyrir löngu. Nýverið bauð stjörn Austurbæj- arbiós fréttamönnum að kynna sér staðinn. Gerðar hafa verið umtalsverðar breytingar á öllum innréttingum, utan skreytingum i lofti og á súlum sem voru látnar halda sér I upprunalegri mynd. Skreytingar þessar gerði Jón Björnsson. Um breytingar þær sem gerðar hafa verið á salnum var haft samráð við Jón Kaldal. f þessum nýja búningi er stað- urinn bæði hlýlegur, vistlegur og rúmgóður, og þar er aðstaða til að þjóna allt að 118 manns til borðs. Það er stjórn Austurbæjarbiós, sem á og rekur staðinn. Fram kom iviðtali við stjórnina.aðhúsið verður ekki leigt út til opinbers dansleikjahalds eða skemmtana, en ef einhver ætiar sér að haida lokað samkvæmi, þá ætti hann að snúa sér til skrifstofu Austurbæj- arbiós,og fá þarallarnánari upp- lýsingar. —ES— atvinnu- leysi á Þórshöfn — Nýtt frystihús tilbúið en vantar hráefni til vinnslu Algjört atvinnuleysi er nú rikjandi á Þórs- höfn. Á næstu dögum verður tilbúið til notk- unar nýtt frystihús, sem hefur kostað 170 milljónir króna, en ekki er fyrirsjáanlegt að það fái hráefni til vinnslu á næstunni. verið á linu, en afli sáralitill, eða 0,3 til 1 tonn i róðri. Aður gátu bátar sótt stutt og fengið góðan afla, en ef til vill ættu veiðar brezku togaranna við Norðausturlandið sinn þátt i þessari fiskþurrð. Tap á þeim bátum sem hafa reynt að stunda veiðar i vetur var komið upp i fimm til átta milljónir á bát og þvi enginn grundvöllur fyrir áframhaldi. Neitað um Frá Þórshöfn hafa undanfarin ár verið gerðir út nokkrir 30-50 tonna bátar. Útgerð þeirra gekk mjög vel þar til i fyrra, en i vetur hefur afli verið frámuna- lega lélegur og útgerðarmenn gefizt upp eða leitaö annað. Veiðar bannaðar Alþýðublaðið ræddi þessi mál við Pálma Ólason, oddvita á Þórshöfn. Hann sagði, að veru- legur liluti sumaraflá Þórs- hafnarbáta hefði fengizt i nót. Nú væri búið að banna nóta- veiðina. Haustvertiðin hefði svo byggst á snurvoð og linu, en nú væri einnig búið að banna snur- voðina. Einn 50 tonna bátur hefur skuttogara Pálmi Olason sagði, að á sið- asta ári hefðu Þórshafnarbúar gert bráðabirgðasamning um kaup á skuttogara erlendis frá. t lok febrúar kom loks tilkynning um það frá stjórnvöldum að leyfi fengist ekki til að kaupa skipið. Pálmi sagðist ekki sjá önnur úrræði, en að fá skip sem gæti sótt lengra en þeir bátar sem nú eru til staðar. eða að togarar frá öðrum stöðum leggðu upp afla á Þórshöfn við ogvið. Þá vildu Þórshafnarbúar fá undanþágu frá banninu við nóta- og snurvoðaveiðum vegna þess alvarlega ástands, sem rikti i atvinnumálunum. —SG

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.