Alþýðublaðið - 26.03.1976, Síða 7
VETTVANGUR
bíaðfð1 Föstudagur 26. marz 1976
AÐ HEILSUTJÓNINU FRÁTÖLÐU
HVAD KOSTA REYKINGARNAR
Í BEINHÚRDUM PENINGUM?
Hvað kostar það þig að
reykja?
Margir kynnu að svara þess-
ari spurningu með þvi að marg-
falda saman kostnaðinn við að
kaupa einn sigarettupakka á
dag og fá þannig út hversu mik-
ið fer til tóbakskaupa á ákveðnu
timabili.
Sá kostnaður er, miðað við að
einn sigarettupakki kosti kr. 220
alls kr. 80.300 á ári, + eldspýtur
að kveikjarar.
En það er fleira sem fólk geld-
ur fyrir það að reykja.
Það eru atriði sem ekki eru
nefnd i auglýsingum erlendra
timarita um sigarettur, þar sem
ungt og glæsilegt fólk lýsir þvi
yfir að það „hafi skipt yfir til
xxxxx og nú brosi lifið við þvi”
eða að það „geri nú eins og
heldra fólkið og reyki nú.”.
Tóbaksframleiðendur
„gleyma” að geta þess i auglýs-
ingum sinum að fylgikvillar
tóbaksreykinga eru m.a.
lungnakrabbamein, lungna-
kvef, lungnaþemba, æðasjúk-
dómar og hjartasjúkdómar.
Áhrifin á lungun
Til þess að glöggva okkur litil-
lega á þessum „gleymdu” at-
riðum, skulum við lita aðeins i
bækling sem Krabbameinsfé-
lagið gaf út. Þar segir um áhrif
tóbaksreykinga á lungun: „Allt
að 95% nikótinsins i tóbaks-
reyknum streymir um lungun
hjá þeim sem anda honum að
sér. Nokkuð af þvi fer út i blóðið
og út i þvagið, uppgangi og móð-
urmjólk; flyzt meira að segja
yfir á fóstrið og brjóstabarnið.
Mikið af tjörunni sezt að i
lungunum, þar sem hún þéttist
og binzt slimhúðarfrumum
þeirra.
Bifhárin lamast, sót og reykur
sezt að i sliminu og veldur ert-
ingarhósta, bólgum i lungna-
slimhimnunum og lungnaþani,
er fram liða stundir. Fólk sem
hefur reykt mikið til langframa
á á hættu að fá lungnakrabba.”
Myndun lungnakrabba
Hjalti Þórarinsson, yfirlæknir
segir i bæklingi sem Krabba-
meinsfélag Reykjavikur gaf út:
„Tala má um 4 stig við myndun
lungnakrabbans:
Byrjunar- eða frumstigið er
frá þvi fyrsta sjúka fruman
myndast og þar til frumuhópur-
inn hefur náð nokkurri stærð, en
er ennþá það smár að ókleift er
að greina sjúkdóminn með' þeim
rannsóknum sem við enn ráðum
yfir. Einkenni eru engin.
Næst kemur Hið þögla stig.
Æxlið hefur náð þeirri stærð, að
unnt er að greina það með rönt-
genmyndum, eða öðrum rann-
sóknum, en það er ekki farið að
valda neinum einkennum.
Á þessu stigi væri oftast hægt
að lækna sjúklingana.
Á þriðja stiginu er sjúkdóm-
urinn farinn að valda einkenn-
um en greining hans getur samt
verið erfið. Ennþá eru talsverð-
ir möguleikar á varanlegri
lækningu.
A fjórða eöa lokastiginu hefur
æxlið vaxið út fyrir lungun eða
meinvörp eru komin i önnur lif-
færi. Þá er oftast auðvelt að
greina sjúkdóminn, en hann er
ólæknandi”.
Annar „árangur"
af reykingum
1 grein sem Bjarni heitinn
Bjarnason skrifaði og nefndi
„Sókn i það sem sizt skyldi”
minnist hann á nokkra aðra
þætti úr frægðarsögu sigarett-
unnar:
„Þegar slagæðarnar dragast
saman og þrengjast á blóðið
erfiðara með að streyma létt og
eðlilega gegnum þær. Hjartað
verður þannig að yfirvinna auk-
inn þrýsting4- álag dælustarf-
seminnar eykst að miklum
mun.
Þetta þreytir hjartað og of-
býður þvi, þegar til lengdar læt-
ur.
Onnur áhrif tóbaksreyksins á
æðarnar eru þau, að flýta fyrir
útfellingum i æðaveggina sem
mynda þar þykkni og kalka sið-
an og þar með er hin alkunna
æðaköikun komin til skjalanna.
Kransæðar hjartans verða oft
hart úti af þessum sökum.
Þegar æðaveggir rifna út frá
fituskemmdum og kölkunum,
myndast blæðing á staðnum, og
stifla i æðinni við storknun
blóðsins. Þessir blóðkekkir geta
losnað og fluzt til lungna, heila
og fleiri liffæra, stiflað þar æðar
og valdið lifshættulegum
skemmdum og i nær öllum til-
fellum alvarlegum truflunum á
heilsu sjúklingsins.
Einn algengasti sjúkdómur
sem tóbaksreykingar eiga þátt i
að magna og eiga oft einar sök
á, er langvinnt lungnakvef.
Tæpast nokkur maður sem
reykir til lengdar sleppur við
þennan sjúkdóm, þó verður
hann misjafnlega alvarlegur
eftir mótstöðuafli hvers og eins.
Upp úr langvinnu lungnakvefi
kemur siðan lungnaþemba. Af
sifelldum hósta ofreynast og of-
þenjast lungun, teygjanleiki
vefjanna minnkar og hverfur.
Skilveggir lungnablaðranna
rifna og við það getur mikill
fjöldi þeirra sameinazt i poka,
sem fyllist af slimi og óhroða
sem erfitt er að ná upp, vegna
þess að lungun eru lömuð og bif-
háraþekja þeirra er einnig orðin
lömuð af tóbaksreyknum, sem
stöðugt streymir um bifhárin.”
t greininni telur Bjarni fleiri
atriði um skaðleg áhrif reyk-
inga á likamann og nægir af þvi
að nefna blöðrukrabba, nýrna-
sjúkdóma, krabbamein i barka-
kýli og áhrif þeirra á myndum
skorpulifur.
Þær kosta fleira!
En reykingarnar kosta ekki
aðeins heilsu og fé þeirra sem
þær stunda.
Það er löngu sannað að þeir
sem reykja eru meira frá vinnu
en hinir sem ekki reykja. Þeim
er einnig hættara við allskonar
kvillum sem ganga. Af þessum
sökum tapast t.d. i Bretlandi um
50 milljónir dagsverka og sýnt
hefur verið fram á, að fjarvistir
frá vinnu og skólum eru allt að
10 sinnum meiri hjá þeim sem
reykja, en hjá hinum sem gera
það ekki.
Sjúklingar sem eru komnir
með reykingasjúkdóm á það al-
varlegu stigi að þeir verða að
dvelja langdvölum á sjúkrahús-
um eru mjög kostnaðarsamir.
t dag kostar það um 15 þúsund
Reykingar barna og
unglinga færast stöðugt í
aukana. Á meðfylgjandi
mynd má sjá hve mikið
þær hafa aukizt sam-
kvæmt könnunum sem
gerðar voru á árunum
1959 og 1962 og svo hins
vegar á árinu 1974.
Aukningin er mest á-
berandi frá fjórtán ára
aldrinum.
Kannanir þessar voru
unnar á vegum embættis
borgarlæknis í Reykjavík
og fóru fram í skólum á
Reykjavíkursvæðinu.
krónur og gefur þvi auga leið
hve mikill kostnaður hlýzt bein-
linis af reykingum i þessu tilliti.
Til viðbótar þessu eru margir
þeirra sem orðið hafa reykinga-
sjúkdómum að bráð, öryrkjar
að meira eða minna leyti.
Þessu fólki eru greiddar ör-
orkubætur, og meðan það er
rúmliggjandi á sjúkrahúsi fær
það dagpeninga eftir að hafa
legið ákveðinn tima. — EB.
REYKINGAR BARNA
FÆRAST I VDXT