Alþýðublaðið - 25.05.1976, Page 14
14 FRÁ MORGNI...
Þriðjudagur 25. maí 1976. blaSið1'
Útvarp
7.00 Morgunútvarp. Veðurfregn-
ir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimikl. 7.15 og 9.05.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (ogforustu-
gr. dagbl), 9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Sigrún Sigurðardóttir les
söguna „Þegar Friðbjörn
Brandsson minnkaði” eftir
Inger Sandberg (6). Tilkynn-
ingar kl. 9.30. Létt lög milli at-
riða. Hin gömlu kynnikl. 10.25:
Valborg Bentsdóttir sér um
þáttinn. Morguntónleikar kl.
11.00: Yuuko Shiokawa _og
Sinfóniuhljómsveitin i Niírn-
berg leika Fiðlukonsert op. 101
eftir Max Reger, Erich Kloss
stj.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til-
kynn ingar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Myndin af
Dorian Gray” eftir Oscar Wilde
Sigurður Einarsson þýddi.
Valdimar Lárussonbyrjar lest-
urinn.
15.00 Miðdegistónleikar St.
Martin-in-the-Fields hljóm-
sveitin leikur Concerto grosso
op. 6 nr. 6 eftir Handel, Neville
Marriner stjórnar. Jost Micha-
els Kammersveitin í Miínchen
og Ingrid Heiler leika Konsert
fyrir klarinettu, strengjasveit
ogsembal I B-dúr eftir Stamitz,
Carl Grovin stjórnar. Fritz
Henker og Kammersveit út-
varpsins i Saar leika Fagott-
konsert i B-dúr eftir Johann
Christian Bach, Karl Risten-
part stjórnar.
16.00 Fréttir Tilkynningar. (16.15
Veðurfregnir). Tónleikar.
17.30 „Sagan af Serjoza” eftir
Veru PanovuGeir Kristjánsson
les þýðingu sina, sögulok (10).
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Trú og þekking Erindi eftir
Aasmund Brynildsen rithöfund
og gagnrýnanda i Noregi. Þýð-
andinn, Matthias Eggertsson
bændaskólakennari, flytur
siðari hluta.
20.00 Lög unga fólksinsRagnheið-
ur Drifa Steinþórsdóttir kynnir.
21.00 Aðtafli Ingvar Ásmundsson
flytur skákþátt.
21.30 Franski tónlistarflokkurinn
Ars Antiqua Guðmundur Jóns-
son pianóleikari kynnir.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsagan:
„Sá svarti senuþjófur”, ævi-
saga Haralds Björnssonar.
Höfundurinn Njörður P. Njarð-
vik les (24).
22.40 Harmonikulög Veikko
Ahvenainen leikur.
23.00 A hljóðbergi A þjóðveginum
til Kantaraborgar. Peggy
Ashcroft og Stanley Holloway
lesa úr Kantaraborgarsögum
Geoffreys Chaucers.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
SJónvarp
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Þjóðarskútan Þáttur um
störf alþingis, sem lýsir ann-
ril{inu undir þinglokin. Um-
sjónarmenn Björn Teitsson og
Björn Þorsteinsson. Stjórn
upptöku Sigurður Sverrir Páls-
son.
21.20 CoIumboBandariskur saka-
málamyndaflokkur. Vinur i
raun Þýðandi Jón Thor
Haraldsson.
22.50 í skugga kjarnorkunnar
Bandarisk fræðslumynd um
ógnir kjarnorkunnar á styrj-
aldartimum og þær hættur,
sem notkun hennar fylgja,
jafnvel á friðartimum. Þýðandi
og þulur Ellert Sigurbjörnsson.
23.40 Dagskrárlok
ÞRÍR ERLENDIR KÓRAR
K0MA TIL ÍSLANDS
- í boði Karlakórs Reykjavíkur, á fimmtugsafmæli kórsins
A þessu ári eru 50 ár liöin frá
stofnun Karlakórs Reykjavikur,
en kórinn var stofnaður 3.
janúarl926. A þessum árum hef
ur kórinn ferðazt viða um heim
og haldið fjölda tónleika.
t lok þessa mánaðar, nánar
tiltekið dagana 27., 28., 29. mai,
mun kórinn halda upp á þessi
timamót. I tilefni afmælisins
koma hingað til lands þrir
erlendir kórar i boði Karlakórs
Reykjavikur, en það eru finnski
kórinn Muntra Musikanter frá
Helsingfors, Gulberg Aka-
demiska Kor frá Noregi, og
Norwegian Singing Society frá
Bandarikjunum. Munu þessir
kórar halda tónleika fyrir
styrktarfélaga Karlakórs
Reykjavikur. Þá mun finnski
kórinn halda sjálfstæða tónleika
fyrir almenning i Háskólabiói,
hinir kórarnir halda sina
tónleika utan Reykjavikur. Sá
norski i Mosfellssveit og sá
bandariski á Keflavikurflug-
velli.
1 júnimánuði mun Karlakór
Reykjavikur koma fram á
Norrænu Músikdögunum, þar
flytur kórinn m.a. verk eftir
norska tonskáldiö John Persen,
sem hann samdi sérstaklega
fyrir kórinn. í haust mun kórinn
ásamt Sinfóniuhljómsveit
Islands flytja Hátiðarmessu
Siguröar heitins Þórðarsonar,
en hann var aðalhvatamaður að
stofnun kórsins, og stjórnandi
hans i nær 36 ár. Kórinn vinnur.
Karlakór Reykjavikur í Graz, Austurriki
Karlakórs Reykjavikur til
hamingju með afmælið, birtum
við nokkrar myndir úr starfi
kórsins I gegnum árin. —gek
einnig að útgáfu aö hljómplötu,
á þeirri plötu verða 14 lög, öll
eftir Sigurð Þórðarson.
Nú verandi stjórnandi kórsins
er Páll P. Pálsson, hefur hann
stjórnað kórnum frá þvi árið
1964, eða I ein 12 ár.
Um leið og við óskum félögum
Jóhann G. hefur
selt vel og fram-
lengir sýninguna
Jóhann G. Jóhannnsson list-
málari hefur ákveðiö að fram-
lengja máiverkasýninguna,
sem verið hefur að heimili hans
að Skógarlundi 3 I Garðabæ.
Sýningin var opin frá 15. mai
og átti að ljúka um þessa helgi,
en vegna mikillar aðsóknar
ákvað Jóhann að framlengja til
30. mai.
Góð aðsókn hefur verið alla
sýningardagana, en mest nú um
helgina. Jóhann, sem kunnur er
sem tónlistarmaður, sýnir nú 52
myndir, en þetta er áttunda
sýning hans. Hann sýndi fyrst
opinberlega i Casa Nova 1971.
Sýning Jóhanns er sölusýning,
og um það bil helmingur
myndanna á sýningunni hefuí
þegar selzt. Sýningin er opin frá
klukkan 3 siðdegis til klukkan
11 á kvöldin — og leiðin frá
Hafnarfjarðarvegi er rækilega
merkt.
Tónleikar á
Raufarhöfn
í Mývatns-
sveit og á
Húsavík
Dagana 22., 23., og 25. mai
veröa haldnir tónleikar i félags-
heimilinu á Ilaufarhöfn, Skjól-
brekku, Mývatnssveit/ og I
félagsheimilinu á Húsavik.
Eru það þau Margrét Bóas-
dóttir, s óp r a n s ön g ko na ,
Kjartan Óskarsson, klarinett-
leikari, og Hrefna Unnur
Eggertsdóttir pianóleikari sem
halda tónleikana. Á efnisskrá
eru sönglög eftir Islenzka og
erlenda höfunda og verk fyrir
klarinett og pianó eftir Saint
Sae'ns og Piérne. Þá verða flutt
verk fyrir pianó eftir Brahms og
Debussy og verk fyrir sópran,
klarinett og pianó eftir Spohr og
Schubert.
Tónleikarnir hefjast kl. 21 á
öilum stöðunum nema Raufar-
höfn en þar hefjast þeir kl. 17.
—JSS
K0STAB0Ð
á kjarapöllum
KJÖT & FISKUR
Breiðholti
Simi 71200 — 74201
DÚAA
Síðumúla 23
/ími 64200
Heimiliseldavélar,
6 litir - 5 gerðir
Yfir 40 ára reynsla
Rafha við Óðinstorg
Símar 25322 og 10322
Birgir Thorberg
málarameistari
simi 11463
önnumst alla
málningarvinnu
— úti og inni —
gerum upp gðmul húsgögn
i
i
I
■