Alþýðublaðið - 11.06.1976, Page 2
2 STJORNMÁL
Föstudagur 11. júní 1976. biai
alþyóu-
laöíó
alþýdu-
Ú l fí e f a n d i: A1 þý ð u f 1 o k k u r i n n .
Kekstur: Keykjaprent hf. Kitstjóri f
»g ábvrf;ðarmaður: Arni Gunnars-
son,. Kitstjóri: Sighvatur Björgvins-
son. Kréttasljóri: Bjarni Sigtryggs-
son. Aðsetur ritstjórnar er í' Siðu-
múla 11, simi 81866. Augiýsingar: 14906. Áskriftarsimi 14900.
Prentun: Blaðaprent h.f. Askriftarverð: 10 00 krónur á
mánuði og 50 krónur I lausasölu.
Krabbi í
þjóðarlíkama
Smyglmálin, sem upp hafa komizt í seinni tíö, eru
orðin aö hrollvekju. Varla líður dagur, svo aö ekki
fréttist um milljónagróða af áfengissmygli eða mörg
kíló af eiturlyf jum finnist. Ljóst er, að hér er á ferð-
inni stórbrotið þjóðfélagsvandamál, sem hefur vaxið
eins og dulinn krabbi, þar til þjóðinni verður alvara
hættunnar nú skyndilega Ijós. I veði er sjálfsvirðing
og siðferðislegt þrek íslenzku þjóðarinnar. Þennan
krabba verður að skera burt, meðan þess er ennþá
kostur.
Vandinn við uppskurðinn er sá, að íslendingar hafa
ekki litið á smygl sem alvarleg af brot. Við erum þjóð
sjómanna, sem býr á eylandi, þar sem verðgildi pen-
inga hef ur löngum verið svo f ráleitt, að f lest er ódýr-
ara erlendis —ekki sízt áfengi og tóbak. Þess vegna
hefur flestum þótt meinlaust, þótt sjómenn — og
jafnvel f lugmenn — hefðu með sér til landsins eitt-
hvaðsmávegis til að gleðja sina og drýgja tekjurnar.
Slíkt smygl kann að vera meinlaust í hóf i, en það er
langt síðan smyglmál á íslandi uxu upp úr þeim
barnaskóm. Nú er augljóst, að smyglið er rekið af
stórum, skipulögðum hringum, og veltan er risaupp-
hæðir, hvort sem um tóbak, áfengi eða eiturlyf er að
ræða. Því miður virðist aldrei vera skortur á fólki,
sem er annað hvort svo saklaust eða svo kærulaust,
að það freistast af skjótfengnum gróða og vinnur
skítverkin fyrir þá, sem standa að hringunum og
hirða gróðann.
Þetta er kjarni málsins, sem hér á landi hefur ekki
verið tekið nógu vel eftir. Það er sífellt látið duga að
dæma þá, sem játa eign smyglvarnings, í sektir eða
aðra refsingu. Sjómenn, flugmenn eða ógæfusamt,
ungt fólk tekur út refsinguna, og svo er málinu sem
skjótast gleymt.
Það virðist aldrei vera skyggnzt dýpra og hugsaö
um það, sem hafa skipulagt stórsmygl, leggja fram
erlendan gjaldeyri til að kaupa varninginn, og annast
dreifingu og sölu hér heima, eftir að smyglið hefur
farið fram. Það virðast ekki vera til neinir Guðfeður
á islandi — en hver trúir þvi lengur?
Þessi sl jóleiki verður að breytast. Hörundssárir og
hræddir menn verða að hætta að ráðast á þá lög-
gæzlumenn, sem gert hafa tilraunir til að komast
fyrir meinsemdina. Það verður að finna hina eigin-
legu glæpamenn, sem vafalaust aka spariklæddir á
meðal okkar á fínum bílum. Því miður er erfitt að
þekkja þá f rá skattsvikurunum, svo að þeir hafa litl-
ar áhyggjur.
Engum kemur til hugar að ásaka alla farmenn,
þótt smygl eigi sér stað á kaupskipunum. Engum
kemur heldur til hugar að ásaka alla tollþjóna, þótt
einhverjir þeir kynnu að reynast samsekir smyglur-
unum. Samt verður að líta á störf þessara stétta og
gera ráðstafanir, sem spyrna gegn því að misferli
geti átt sér stað.
Fyrir nokkru lagði glöggur valdamaður fram at-
hyglisverða hugmynd um þessi efni. Hann varpaði
fram þeirri hugmynd, að lögreglu og tollgæzlu væri
steypt saman i eina sveit löggæzlumanna, sem hefðu
verkefni beggja. Starfsmenn yrðu síðan fluttir á
milli tollstarfa og lögreglustarfa eftir ástæðum, og
væri hægt að beita mun f jölmennara liði að sérstök-
um verkefnum, þegar þess gerðist þörf.
Alþýðublaðið tekur þessa hugmynd nú upp og biður
ráðamenn dómsmála og tollmála að íhuga hana af
alvöru.
Nú þýðir ekki að stinga hausnum í sandinn. Það
verður að hef ja gagnsókn gegn smyglinu og uppræta
það með rótum — alveg sérstaklega að hreinsa rætur
þessa illgresis úr gróðurmold íslenzks þjóðlífs.
Húsmæður:
EINI STARFSHÓPURINN
SEM EKKI NÝTUR 0RL0FS
SAMKVÆMT 0RL0FSLÖGUM
Likt og undanfarin ár, mun
oriofsnefnd húsmæðra i Reykja-
vik reka orlofsheimili að
Laugum i Dalasýslu.
Til þessa hefur orlofið verið
styrkt af riki og borg, og má
túlka þann stuðning, sem við-
leitni löggjafans til að koma til
móts við þennan eina starfshóp i
þjóðfélaginu, sem ekki nýtur or-
lofs samkvæmt hinum almennu
orlofslögum.
Allar konur sem veitt hafa
heimili forstöðu, án þess að
þiggja laun fyrir, eiga rett til að
sækja um orlof húsmæðra.
Vegna mikillar eftirspurnar,
hefur orlofsnefndin orðið að
setja sér það sem ófrávikjan
lega reglu, að þær konur sem
ekki hafa áður notið þessarar
fyrirgreiðslu, hafa allan for-
gang.
Frá og með 14. júni verður
tekið á móti umsóknum að
Traðarkotssundi 6, milli 13 og 18
alla virka daga. —gek.
STOFNUN LANDSAMTAKA
HERSTÖÐVAANDSTÆÐIN6A
FYRIRHUGUÐ í HAUST
Miönefnd herstöðvaand-
stæðinga vill leggja áherzlu á
það, aö sumarið, sem i hönd fer
verði notað til að tengja og
treysta innviði þeirrar miklu
hreyfingar gegn herstöðvum og
NATO, sem fram kom i Kefla-
vikurgöngunni.
Kemur þetta fram i fréttatil-
kynningu frá Miönefndinni, þar
sem vakin er athygli á liðsfundi
herstöðvaandstæðinga, sem
haldinn verður i GÍæsibæ
laugardaginn 12. júni. Fundur-
inn hefst kl. 10 árdegis og
stendur til kl. 18.
Miönefnd herstöðvaand-
stæðinga stefnir að myndun
landssamtaka gegn herstöðvum
og aðild tslands að NATO næsta
haust, en fundurinn á laugar-
daginn er nokkurs konar grund-
völlur að viðtækara starfi. t
sumar mun verða lögð
höfuðáherzla á þaö, að treysta
undirstöður slikra samtaka með
erindrekstri og myndun virkra
starfseininga um land allt.
Slikar starfseiningar geta verið
með ýmsu móti, svo sem starfs-
hópar á vinnustöðum, hverfa-
hópar i þéttbýii og hópar sem ná
yfir stór og smá svæði i dreifbili.
Hlutverk starfseininganna
verður ekki aðeins undirbúning-
ur að stofnun samtakanna á
landsráðstefnunni i haust,
heldur einnig almennt upp-
lýsinga- og útbreiðslustarf —
auk þess sem þær verða vett-
vangur skoðanaskipta meðal
þeirra, sem reiðubúnir eru að
taka þátt i sliku starfi.
Að lokum vill Miðnefndin láta
þess getið, að vænzt sé virkrar
og mikillar þátttöku sem flestra
herstöðvaandstæðinga á kom-
andi liðsfundi AV
-
180 erlendir fulltrúar á Norræna
fiskimálaráðstefnu í ágúst
Dagana 17.-19. ágúst munu
um 180 erlendir fulltrúar sækja
norræna Fiskimálaráðstefnu
sem haldin verður hér á landi.
Er ráöstefnan á vegum sjávar-
útvegsr^áðuneytisins, og mun
sjávarútvegsráðherra,
Matthias Bjarnason, setja hana
að Hótel Sögu þriöjudaginn 17.
ágúst. Er þetta i þriðja skipti
sem slik ráðstefna er haldin
hérlendis, en ráðstefnur sem
þessi eru haldnar annaðhvert
ár, til skiptis á Norður-
löndunum, og mun sú sem nú fer
i hönd, vera hin 15. i röðinni.
Auk þeirra 180 erlendu fuli-
trúa sem sitja ráðstefnuna
munu milli 60 og 70 tslendingar
taka þátt i ráðstefnuhaldinu.
Verða flutt mörg erindi, um
margvisleg efni i sambandi við
sjávarútveg.
Að loknum fyrirlestrum og
umræöum fyrsta daginn, verður
þátttakendum skipt i umræðu-
hópa sem hver um sig fær sér-
stakt verkefni.
—gek.
Dýrabók Gröndals gefin út
70 árum eftir að hún var skrifuð
A komandi hausti, nánar til-
tekið 6. október, eru liðin 150 ár
frá fæðingu skáldsins og
náttúrufræðingssins Benedikts
Gröndals. Af þvi tilefni hefur
bókaforlagiö Órn og örlygur
ráðist i að gefa út Dýrabók þá,
er Gröndal hóf aö tekna 1874 og
lauk viö 1905 eða 1906.
Bókin hefur ekki veriö gefin út
áður, aðeins eitt eintak hefur
verið til og hefur það verið varð-
veitt á Landsbókasafninu.
I bókinni eru 100 myndasiður
en á þeim eru 2000 myndir.
— Þetta er þverskurður af
dýrasögu tslands, sagði örlygur
Háldánarson i samtali við
blaðið. Þétta er einstakt verk i
bókmenntasögu landsins.
Bókina vann Gröndalað Vest-
urgötu 16, þar sem hjnn bjó.
Fór hann iöulega niður f.f jöru að
leita sér myndefna.
Þess má geta að svo
skemmtilega vill til að bókaút-
gáfan er einmitt staösett á Vest-
' urgötunni.
örlygur sagði okkur aö
ætlunin hefði verið að bókin
kæmi út á siðastliðnu ári. En
mörg tæknileg vandamál hefðu
oröiö þess valdandi að útgáfunni
varð að fresta þar til nú I ár að
bókin kemur út.
— Ef til vill hefur Gröndal
sjálfur komið þvi svo fyrir að
bókin kæmi út á þessu ári, sagði
örlygur.
Steindór Steindórsson fyrrum
skólameistari á Akureyri skrif-
ar eftirmála. 1 honum gerir
Steindór grein fyrir náttúru-
fræðingnum Benedikt Gröndal.
Er það að sögn örlygs, senni-
lega i fyrsta sinn sem slfk
greinargerð birtist um Gröndal.
Bókin er gefin út i 1500
árituöum og tölusettum eintök-
um. Bókin mun kosta sextiu-
þúsund krónur, þar af renna
beint til rikisins tiuþúsund krón-
ur i formi söluskatts.
Bókin er prentuð i Grafik en
handbundin i Sveinabók-
bandinu. Filmurnar af bókinni
verða afhentar Landsbóka-
safninu meö þvi skilyrði aö bók-
in verði ekki gefin út fyrr en árið
2025, en þá er 200 ára afmæli
Gröndals. Nú þegar hefur þriðji
hluti upplagsins verið seldur.
— Þetta er lika afmælisútgáfa
okkar þvi bókaforlagið á um
þessar mundir tiu ára afmæli
sagði örlygur og hann bætti viö,
okkar innlegg i listahátið!
Ekki amalegt innlegg það. —
OS
✓ V