Alþýðublaðið - 11.06.1976, Qupperneq 10
10
Föstudagur 11. júní 1976. jbÍaðf'T
Laus staða
Laus er til umsóknar staða heilbrigðis-
ráðunauts við Heilbrigðiseftirlit rikisins. •
Umsækjendur þurfa að vera dýralæknar,
helzt með nokkra sérþekkingu i heil-
brigðiseftirliti, eða matvælasérfræðingar.
Staðan veitist frá 1. ágúst 1976.
Umsóknir sendist heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu fyrir 10. iúli
1976.
Heilbrigðis- og Tryggingamálaráðuneytið
10. júni 1976.
Af marg gefnu tilefni
vekur heilbrigðismáíaráð athygli á þvi, að
samkvæmt ákvæðum 39. 2. gr. heilbrigðis-
reglugerðar er bannað að hleypa hundum,
köttum eða öðrum dýrum inn i matvöru-
verzlanir, veitingastofur eða önnur fyrir-
tæki, þar sem framleiðsla eða dreifing
matvæla fer fram.
Leyfishafar ofangreindra fyrirtækja bera
ábyrgð á að fyrirmælum þessum sé fram-
fyigt-
Reykjavik, 10. júni 1976,
Heilbrigðismálaráð Reykjavíkurborgar.
Skírteini vegna
skyldusparnaðar
gjaldársins 1975 eru nú tiibúin til af-
hendingar.
Geta gjaldendur vitjað þeirra i skrifstofu
innheimtumanns rikissjóðs i umdæmi sinu
þar sem þau verða afhent gjaldendum
gegn framvísun persónuskilrikja.
Eru skirteinin skráð á nafn og verða ekki
afhent öðrum er skráðum rétthafa nema
gegn framvisun skriflegs umboðs frá
honum.
Fjármálaráðuneytið
8. júni 1976
Ingólfs-Café
Gömludansarnir í kvöld kl. 9
Hljómsveit Garðars Jóhannessonar.
Söngvari Björn l>orgeirsson.
Aðgöngumiðasaia frá kl. 8. — Simi 12826.
SKEMMTANIR — SKEMMTANIR
HÓTEL LOFTLEIÐIR
Cafeteria. veitingasalur meft sjáifsafgreiðslu opin alla
daga.
HÓTEL LOFTLEIÐIR
Blómasaiur, opinn alla daga vikunnar.
HÓTEL SAGA
Grillið opift alla daga. Mfmisbar og Astrabar, opift alla
daga nema miðvikudaga. Simi 20890.
INGÓLFS CAFÉ
við Hverfisgötu. —Gömlu og nýju dansarnir. Simi 12826.
ÞÓRSCAFÉ
Opið á hverju kvöldi. Simi 23333.
SKEMMTANIR — SKEMMTANIR
Það er margs að
gæta þegar kaupa
á nýjan eldhússtól
Það er mjög mikilvægt að
sitja rétt — einnig þegar maður
borðar. Vandinn er bara sá að
| velja réttan stól, stól sem gott er
. að sitja i og er einnig fallegur á
| að lita.
| Þegar þú ferð út að kaupa stól
I sem þú ætlar að sitja á til borðs,
| skalt þú ekki velja þann sem þér
I við fyrstu sýn virðist fallegastur
| og virðist svo sem allt i lagi með
■ að sitja á, eftir nokkurra
I sekúndna prófun. Það er hlutur
■ sem hendir allt of marga. Eld-
I hústóll er nokku sem þú skiptir
‘ ekki of oft um og þvi er nauð-
I synlegt að velja þann rétta, ekki
1 þann sem litur bezt út.
| Manni á að liða vel
I þegar maður situr
til borðs
I Maður sem ekki situr rétt get-
| ur með timanum fengið ill-
' læknanlega sjúkdóma (bak-
I veiki, blóðrásin breytist, o.fl.)
* Það er þvi nauðsynlegt að sitja
I_____________________________
rétt við matborðið, jafnvel þótt
maður eyði þar ekki löngum
tima.
Það að sitja á að virka af-
slappandi. Maður á að hafa
það gott og vöðvarnir eiga ekki
að ver a spenntir.
Borð og stólar i
„standard” stærðum
Eldhúsborð og stólar eru
framleidd i „standardstærðum”
sem hæfa meðalmanninum.
Réttast væri að stólar væru
gerðir I mörgum mismunandi
stærðum svo að allir fengju eitt-
hvað við sitt hæfi.
Til athugunar
Ef þú ætlar að fá þér eldhús-
stóla á næstunni, þá skalt þú
hafa eftirfarandi atriði i huga.
Láttu aldrei útlitið ráða útslit-
um, og láttu þér ekki til hugar
koma að þú getir dæmt um gæði
stólsins með þvi einu að setjast i
nokkrar sekúndur, ef svo væri
myndi þér finnast allir stólar
góðir.
Fæturnir eiga að ná alveg nið-
ur á gólfið og öll ilin á að nema
við.
Stólbrúnin má ekki skerast
inn i lærið, það getur heft blóð-
rásina.
Sætið sjálft má ekki vera ,það
djúpt að stólbrúnin skerist inn i
knésbæturnar, það heftir blóð-
rásina og þrýstir á taugarnar
svo að fæturnir dofna.
Setan á að vera lárétt.
Bakið á að styðja við mjó-
hrygginn.
Eldhússtóll er eins konar
vinnustóll og á þvi ekki að vera
eins og hægindastóll i laginu, ef
svo er reynir maður óþarflega
mikið á hrygginn þegar maður
beygir sig fram að diskinum
Ef stólíinn er með örmum
mega þeir ekki hindra hreyf-
ingar handanna þannig að mað-
ur sé neyddur til að lyfta öxlinni
til að geta hreyft olnbogana.
Vendu þig ætið á að sitja með
FRAMHALDSSAGAN
þeim alla leið niður til Murch.
Þeir settust inn i bilinn, og
Greenwood sagði: „Væri þér
sama, þó að þið slepptuð mér
fyrst? Ég er dálitið að gera
heima.”
„Sama er mér,” sagði Chef-
wick.
„Sjálfsagt,” sagði Murch.
Þeir settu Greenwood úr
bílnum fyrir utan dyrnar hans, og
hann fór i lyftunni upp til Ibúðar
sinnar, en þar var stúlkan
sitjandi I rúminu að lesa James
Bond. Hún lagði bókina strax frá
sér og slökkti á leslampanum,
meðan Greenwood losaði sig viö
fullt af óviðkomandi fatnaði og
st(8ck upp i til hennar.
„Gekk allt vel?” spurði hún
blfölega.
„Ég er kominn aftur,” svaraði
hann aðeins.
„Ummmmmm,” sagði hún og
byrjaði að narta i hann alls
staðar.
„Ég elska konur, sem eru
ættjarðarvinir,” muldraði Green-
wood.
6. kafli.
Veðrabrigði voru tið fimmtu-
daginn nitjánda október. Það var
úðaregn um morguninn, gustur
og kuldi tók þá við, svo hurfu
skýin eftir hádcgið og sólin skein i
heiði, og klukkan hálf sex var
hlýtt eins og á sumardegi. Albert
Cromwell vörður i bankahólfa-
deildinni hjá C&I National Banks
útibúinu á horninu á 46th Street
og Fifth Avenue, hafði farið i
regnkápu og skóhlifum um
morguninn, meira að segja tekið
með sér regnhiif, en nú gekk hann
heimleiðis haldandi á öllu þessu.
Hann vissi ekki, hvort hann átti
að vera leiður og þreyttur á þess-
um veðrabrigðum eða gleðjast
yfir þvi, að allt fór vel að lokum,
og ákvað loks að vera hvoru
tveggja.
Heima i augum Alberts Crom-
wells var ibúð á tuttugustu og sjö-
undu hæð i þrjátiu og fimm hæða
háhýsi á Upper West Side, og
hann fór þangað með strætis-
vagni og lyftu. Þegar hann kom
inn i lyftuna þennan dag til að
fara siðasta áfanga ferðarinnar
fór hávaxinn glæsilegur maður
með hvöss, dökk augu, breitt enni
og þykkt hár, sem var kolsvart ef
undan eru skildar fáeinar gráar
rákir i vöngunum inn i lyftuna
með honum. Albert Cromwell
hafði ekki veitt þvi eftirtekt, en
þessi sami maður hafði farið inn i
lyftuna með honum á hverjum
einasta degi i heila viku, eini
munurinn var sá, að i dag voru
þeir tveir einir.
Þeir stóðu hlið við hlið, Albert
Cromwell og glæsilegi maðurinn
og horfðu báðir fram. Dyrnar
lokuðust og lyftan ók upp.
„Hafið þér nokkru sinni horft á
þessar tölur?” spurði glæsilegi
maðurinn. Rödd hans var djúp og
hljómmikil.
Albert Cromwell leitundrandi á
hinn manninn. ókunnugir menn
töluðust ekki við i lyftu. Hann
sagði: „Ha? Hvað?”
Glæsilegi maðurinn benti með
höfðinu að tainarööinni yfir dyr-
unum. „Ég á við þessar tölur
þarna,” sagði hann. „Reynið að
horfa á þær,” sagði hann.
Albert Ieit áhugalaus á þær.
Þetta voru litlar glertölur á langri
ræmu fyrir ofan dyrnar frá
vinstri til hægri,byrjuðu á K til
vinstri (kjallarinn) og svo kom 1,
2, 3 o.s.frv. alveg upp að 35.
Tölurnar voru uppljómaðar ein i
einu til að sýna á hvaða hæð lyft-
an væri. Núna var t.d. kveikt á
tölunni 4. Meðan Albert Cromwell
horfði á þetta, slokknaði sú tala
og númer 5 lýsti i staðinn.
„Sjáið, hvað breytingarnar eru
reglubundnar,” sagði glæsilegi
maðurinn með hljómfögru rödd-
ina. „Það er svo þægilegt, að
horfa á eitthvað, sem er svona
jafntog reglulegt, að telja með og
vita, að næsta tala hlýtur að koma
með sama jafna hraðanum. Svo
jafnt. Svo reglubundið. Svo ró-
andi. Horfið á tölurnar. Teljið
með ef yður langar til, það er
mjög róandi eftir erfiðan vinnu-
dag. Það er gott að geta slappað
af, að geta horft á tölurnar, og
talið með og fundið hvernig likam
inn slappar af, að vita að maður
er kominn heill á húfi i sitt eigið
hús, öruggur og hvildur og ró-
legur, meðan maður horfir á
tölurnar og telur með og finnur
hvern vöðva slaka á, hverja ein-
ustu taug slaka á og vita að maður
getur hallað sér að veggnum og
slakað á, slakað á, slakað á. Það
er ekkert i öllum heiminum núna
nema tölurnar og rödd min.
Ekkert nema tölurnar og rödd
min. Tölurnar og rödd min.”
Glæsilegi maðurinn hætti að
tala og leit á Albert Cromwell,
sem stóð og hallaði sér upp að
lyftuveggnum, meðan hann starði
heimskulega á tölurnar. Það
slokknaði á númer 12 og kviknaði
á númer 13. Albert Cromwell
glápti á tölurnar.
Glæsilegi maðurinn sagði:
„Heyrið þér til min?”
„Já,” sagði Albert Cromwell.
„A næstunni,” sagði glæsilegi
maðurinn,” kemur maður til yðar
i bankann. 1 bankann, sem þér
vinnið i. Skiljið þér mig?”
„Já,” sagði Albert Cromwell.
„Þessi maður segir við yður”
bananaklasi frá Afganistan”.
Skiljið þér mig?”
„Já,” sagði Albert Cromwell.
„Hva*segir maðurinn?”
„Bananaklas frá Afganistan:”
sagði Albert Cromwell.
„Gott,” sagði glæsilegi maður-
inn. Nú ljómaði talan 17 yfir
dyrunum. „Þér eruð mjög af-
slappaður,” sagði glæsilegi
maðurinn. „Þér gerið allt, sem
maðurinn segir yður að gera,
eftir aðhannhefursagt „banana-
klasi frá Afganistan” við yður.
Skiljið þér mig?”
„Já,” sagði Albert Cromwell.
ÞAÐ VAR EINU
SINNI DEMANTUR...