Alþýðublaðið - 06.07.1976, Qupperneq 16

Alþýðublaðið - 06.07.1976, Qupperneq 16
aKsi ábe mest hjá ungum öku- mönnum Færri teknir fyrir ölvunarakstur nú en á sama tíma í fyrra „Tala þeirra sem teknir hafa verið fyrir meinta ölvun við akstur hefur lækkað stórlega frá þvi i fyrra”# sagði Sturla Þórðarson fulltrúi lög- reglustjóra i Reykjavik við blaðið i gær. Ef miðaöer við 5. júli hafa alls verið teknir 487 manns til blóðrannsóknar hjá lögregl- unnien á sama tima i fyrra voru það 539 manns. Ennfremur sagði Sturla að árekstrum vegna ölvunar hefði fækkaö til muna frá fyrra ári þó svo að bif- reiðum og ökumönnum hefði fjölgað. Mest virðist bera á ölvun við akstur hjá yngstu öku- mönnunum, eða fólki á aldr- inum 17 ára - 25eða 30 ára, enda væri það helzt fólk á þessum aldri sem mest væri að skemmta sér og ætti það þvi til að setjast ölvað undir stýri. Þessi ánægjulegu tiðindi vildi Sturla helztþakka löggjöf þeirri sem yfir þessi mál nær. Væri hún mjög skýr og afdráttarlaus og henni fylgt vel eftir með strangri löggæzlu um allt land. Settar hefa verið tvær marka- tölur til ákvörðunar á áfengis- magni i blóði manna. Neðri mörkin svokölluðu miðast við 0.50 pro mille áfengismagn i blóði og efri mörkin miðast við 1.20 pro mille. Sé um fyrsta brot manns að ræða og nái áfengis- magn i blóði ekki efri mörk- unum er refsingin fjársekt og/eða ökuleyfissvipting frá 3 mánuðum og allt að einu ári. Valdi viðkomandi aðiii árekstri vegna ölvunar sinnar getur refsingin orðið strangari. Ef um itrekun brots er að ræða eða nái áfengismagn i blóði upp fyrir efri mörkin felst refsingin i eins árs ökuieyfissviptingu eða ævi- langri eftir eðli brotsins, auk varðhalds. Hefsingar fyrir ölvun við akstur eru nokkru vægari hér á landi en i ýmsum nágranna- löndum okkar. Ekki kvaðst Sturla þó sjá gagn i því að þyngja refsingar vegna ölvunar við akstur nema þvi yrði fylgt eftir með strangari löggæzlu. Sturla sagði mjög erfitt að dæma um það hvaðgera ætti, en að hans mati mætti þó jafnvel auka sektir og refsivist ,vegna slikra brota. Að sögn Sturlu virðistof mikið einblint á ölvun vðakstur, sem orsakar um 2-3% allra umferðaróhappa, þannig að ýmis glannaskapur og vangá við akstur sem brýn þörf væri að uppræta hyrfi algerlega i skuggann. —AV Eyjamenn fjölmenntu niður að höfn til að bjóða nýja Herjólf velkominn. Stór áfangi í sögu Vestmannaeyja ,,Það er óhætt að segja aö það sé stór áfangi I sögu Vestmannaeyja að fá ferjuna hingað.sagöi Friðrik Óskarsson i samtali við Alþýðublaðið vegna komu nýja Herjólfs til Eyja. „Ferjan getur flutt bæði vörur og fólk, og eru i henni björgunarvesti ogbátar fyrir 400 manns. Þá er áætlað að hún geti flutt allt að 40 bifreiðar i senn, en vitanlega fer fjöldinn nokkuð eftir stærð bifreiðanna. Auk þessa tekur hún talsvert vörumagn.” Friðrik sagði ennfremur að ekki væri búið að ganga endanlega frá áætlum Herjólfs milli lands og eyja, en það yrði væntaniega gertfljótlega, enda yrði stefnt að þvi að hefia áætlunarferðir sem fyrst. —JSS Breytingar á lögum um eignaskatt Forseti Islands undirritaði i gær bráðabirgðalög um breyting- ar á lögum um eignaskatt. Þar er fasteignamat til skatts hækkað um 170% frá þvi sem gildir ai- mennt. Þá voru einnig gerðar ýmsar aðrar breytingar. Þetta hefur m.a. i för með sér aðgjaldendum fækkar frá þvi sem verið hefur. Hér fer á eftir fréttatilkynning fjármálaráðuneytisins: t dag voru gefin út svofelld bráða- birgða lög: Forseti íslands gjörir kunnugt: Fjármálaráðherra hefur tjáð mér, að vegna breytinga á virði fasteigna til eignarskatts, sem gerð var með lögum nr. 97/1975, megi vænta þess, að fram- teljendur, er eigi hafa borið eignarskatta af ibúðarhúsnæði til þessa, muni nú bætast i hóp gjald- enda eignarskatts. Þar sem undirbúningi að á- lagningu gjalda fyrir skattárið 1975 er um það bil að ljúka hjá skattstjórum ber brýna nauðsyn til að gera nú þegar ráðstafanir til þess að unnt sé að breyta á- lagningu eignarskatts þannig, að þeir framteljendur, sem ekki háía átt meiri eignir en svo að þær hafa verið eignarskatts- frjálsar verði nú ekki skattlagðir af þeim eignum. Fyrir þvi eru hér með sett bráðabirgðalög samkvæmt 28. gr. stjórnarskrárinnar á þessa leið: 1. gr. Ákvæði til bráðabirgöa i 1. gr. laganna orðist svo: Ákvæði til bráðabirgða. Við eignarskattsálagningu fyrir skattárið 1975 skal verðmæti fast- eigna til eignarskatts reiknað á 2,7-földu gildandi fasteignamats- verði, þrátt fyrir ákvæði A-liðar 22. gr. laga nr. 68/1971. Akvæði þessi hafa eigi áhrif á heildár- fyrningarverð fasteigna, sbr. lokamálsgrein B-liðar 15. gr. laga nr. 68/1971, sbr. 3. gr. laga nr. 60/1973. Fjárhæðir skattstiga i 1. tl. 26. gr. laga nr. 68/1971, sbr. 12. gr. laga nr. 7/1972, hækki þannig að af fystu 2.700.000 kr. skattgjalds- eign greiðist enginn skattur, af næstu 1.500.000 kr. skattgjalds- eign greiðist 0.6% og af þeirri skattgjaldseign, sem þar er fram yfir, greiðist 1%. 2. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi og gilda við álagningu eignarskatts fyrir skattárið 1975. Kjármálaráðuneytið, 5. júlí 1976. ÞRIÐJUDAGUR 6.JÚLÍ 1976 alþýöu blaöið Lesið: Að i Nýjum þjóð- málumer hugleitt um það hvort Alþingiskosningar verði á næsta ári. Telur greinarhöfundur það lik- legt vegna þess, að annars færu Alþingiskosningar fram á sama tima og sveita rstjórnarkosningar, en áhrifamikilr aðilar innan Sjálfstæðisflokksins taki slikt hins vegar ekki i mál. o Lesið: 1 íslendingi á Akureyri að frú Sigurlin Iloarsemer Vestur-lslendingur hafi heimsótt Akureyri. Sigur- lin er dótturdóttir Sölva Helgasonar, þúsundþjala- smiðs, sem Davið Stefáns- son skrifaði um og kallaði Sólon Islandus. o Tekið eftir: Að þegar gefin hafa verið út bráða- birgðalög um hækkaðan eignaskatt, séu menn al- mennt orðnir m jög uggandi um það, að skattarnir sem tilkynntir verða seinni hluta þessa mánaðar verði óvenjulega háir. o Lesið: 1 Sveitastjórnar- málum.að eina konan sem gegnir embætti oddvita á Islandi á þessu kjörtimabili er Arnfriður Guðjónsdóltir, en hún er oddviti I Búða- hreppi. o Lesið: Að til stendur að fyrirtækið Stálvik taki að smiða skip fyrir erlend fyrirtæki, og segir Jón Sveinsson, forstjóri Stál- vikur, að slikt myndi bjarga skipaiðnaðinum i landinu, sem standi nú mjög höllum fæti. Engin endanleg ákvörðum hefur þó verið tekin. o Lesið: Að i Helgarspjalli i Timanum á sunnudag skorar Steingrimur Her- mannssonenn á þjóðina að herða mittisólina um sinn, það sé leiðin út úr núver- andi ógöngum. Ekki eru nema nokkur ár siðan Steingrimur Hermannsson taldi leiðina úr ógöngunum vera þá að búa i minni húsum.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.