Alþýðublaðið - 24.07.1976, Page 3
REYKJAVÍK LIÐ-
INNA DAGA
Ljósmyndasýning í tilefni af 50 ára afmæli
Ljósmyndarafélags íslands
ídag kl. 14 opnar Óskar Gisla-
son, ljósmyndari, sýningu á ljós-
myndum að Kjarvalsstöðum. Ber
sýning þessi yfirskriftina Reykja-
vík liðinna daga. Sýningin er opin
alla virka daga frá kl. 14-22 fram
til 3. ágúst.
Sýning þessi er haldin i tilefni
af 50 ára afmæli Ljósmyndara-
félags Islands, en það var stofnað
1926 og var óskar einn af stofn
félögum þess.
Óskar Gislason er fæddur i
Reykjavik, 15. april 1901 og hefur
bærinn jafnan verið honum kær.
Arið 1916 hóf hann nám i ljós-
myndum hja Ólafi Magnússyni
ljósmyndara. Um sama leyti voru
Danir að kvikmynda hér á landi
Sögu Borgarættarinnar eftir
Gunnar Gunnarsson. Kom það i
hlut Öskars Gislasonar að fram-
kalla prufur vegna kvikmynd-
unarinnar, en kvikmyndatöku-
maðurinn danski kenndi honum
aðferðina. Varð hann þannig
fyrstur Islendinga til að fram-
kalla kvikmyndir hér á landi og
gat siðar notfært sér þessa aðferð
þegarhann fór að taka eigin kvik-
myndir.
Óskar stundaði framhaldsnám i
ljósmyndun á árunum 1920-1921
hjá hinum virta hirðljósmyndara
og brautryðjanda i kvikmynda-
gerð, Peter Elfelt.
Eftir heimkomuna 1922 setti
hann á stofn ljósmyndastofu að
Kirkjustræti 10, en var siðan
lengst af með ljósmyndastofu i
Austurstræti 14. Eftir 1944 vék
ljósmyndastofan til hliðar fyrir
kvikmyndagerðinni, sem hann
hafði gert ýmsar tilraunir með
fram tilþessa. Iheilan áratug var
kvikmynd frá hendi Oskars
Gislasonar nærri árviss við-
burður i Þjóðlifinu. Meðal kvik-
mynda hans má nefna Lýðveldis-
hátiðina 1944, Björgunarafrekið
við Látrabjarg, Siðasti bærinn i
dalnum, Reykjavikurævintýri
Bakkabræðra o.fl. o.fl.
Þegar kvikmyndagerðinni
sleppti tók ljósmyndunin við á ný
og réðist hann nú siðast til að
skipuleggja Ijósmyndastofu
Sjónvarpsins, er það tók til starfa
1966. Óskar hætti störfum hjá
sjónvarpinu 1. janúará þessuári.
Tók hann til viö að láta 30 ára
gamlan draum sinn rætast: Þá
ljósmyndasýningu sem nú hefur
veriðsett upp að Kjarvalsstöðum.
Ljósmyndasýning Óskars
Gislasonar að Kjarvalsstöðum er
fyrsta einkaljósmyndasýning
hans. Elztu ljósmyndir hans á
sýningunni eru frá árinu 1915.
Yngstu ljlósmyndirnar eru
teknar frá sama sjónarhorni
rúmlega hálfri öld siðar. Megin
viðfangsefni sýningarinnar er að
sýna Reykjavik, lif hennar og
vöxt á fyrri helming aldarinnar.
Til stuðnings þessu viðfangsefni
og í virðingarskyni við frumherja
ljósmyndunar á Islandi hefur
hann unnið upp eftir glerplötum,
sem varðveittar eru i Þjóðminja-
safni, ljósmyndir teknar af Sig-
fúsi Eymundssyni, Pétri Brynj-
ólfssyni, Ólafi Margnússyni og
Magnúsi Ólafssyni.
Asýningunni eru 242 ljósmynd-
ir og eru þær allar til sölu Þór
Magnússon, þjóðminjavörður,
aðstoðaði óskar við val mynda á
sýningunni, en Björn Björnsson,
leikmyndateiknari, við uppsetn-
ingu hennar. Vegleg sýningar-
skrá hefur verið gefin út og þar
ritar Erlendur Sveinsson um ævi
og störf Óskars Gislasonar. AV.
Laus staða
Staða eins lögregluþjóns á Seltjarnamesi er laus til um-
sóknar. Umsóknarfrestur er til 21. ágúst 1976.
Laun samkvæmt launakerfi rikisstarfsmanna.
Umsóknareyðublöð fást hjá yfirlögregluþjóninum i
Hafnarfirði, en hann veitir nánari upplýsingar um starfið.
Lögreglustjórinn á Seltjarnarnesi.
Sjóðurinn
„Gjöf Thorvaldsensfélagsins”
hefur það markmið aö sérmennta starfsiið stofnana fyrir
vanheil börn,, þ.e.a.s. dagvistunarstofnana, vistheimila,
sérskóla og sérdeilda þar sem eru afbrigöileg börn og
unglingar tii dvalar, kennslu og þjáifunar.
Ur sjóðnum er veitt fé til:
A. náms innanlands, svo sem almennra námskeiða fyrir
tiltekna starfshópa undir handleiðslu sérfróðra manna.
B. náms erlendis i formi námsstyrkja til einstakiinga, er
stunda framhaldsnám i skólum erlendis.
Þeirsem njóta styrks úr sjóðnum, skulu skuldbinda sig til
að vinna a.m.k. tvö ár hérlendis. Styrkur til peirra sem
ekki fullnægja téðri vinnukvöð, er endurkræfur.
Umsóknir um styrk úr sjóðnum skulu sendar til Mennta-
málaráðuneytisins fyrir 31. ágúst 1976, ásamt nauðsynleg-
um upplýsingum um fyrirhugað nám og þjálfun.
Reykjavík, 21. júli 1976.
Hjálmar Vilhjálmsson
formaður sjóðsstjórnar Gjafar Thorvaldsensfélagsins.
FRÉTTIR 3
Reynir 'Armannsson formaður Neytendasamtakanna:
Mikið skortir á ö ryggi
íslenzkra neytenda
,, N ey tendasamtökin
beina þeim tilmælum
til viðskiptaráðuneytis-
ins að draga ekki leng-
ur frágang á frumvarpi
til laga um neytenda-
vernd”. Þessi ályktun
var samþykkt á aðal-
fundi samtakanna fyrir
skömmu.
Til skýringar á þessari álykt-
un er bent á eftirfarandi atriði:
A undanförnum árum hefur
komið æ skýrar i ljós nauðsyn
þess að tryggja rétt hins al-
menna neytanda. Neytenda-
samtökin i gegnum þjónustu við
neytendur kynnst náið þeim
vandamálum, sem þeir eiga við
að etja.
Mikið vantar á, að neytendur
hérlendis búi við hliðstætt
öryggi og neytendur i ná-
grannalöndum okkar, þar sem
neytendalöggjöf hefur verið
komið á. Neytendalöggjöf, sem
tryggði rétt neytenda, væri stórt
spor i rétta átt. — Þessi ályktun
var send viðskiptaráðherra.
Núverandi stjórn Neytenda-
samtakanna skipa: Reynir Ar-
mannsson, formaður, Jónas
Bjarnason, varaformaður,
Anna Gisladóttir, ritari og
Eirika A. Friðriksdóttir, gjald-
keri. Meðstjórnendur eru Arni
B. Eiriksson, Guðmundur Ein-
arsson og Gunnlaugur Pálsson.
Ragnheiður hlaut verðlaun
á Biennal-sýningunni
Nýlega voru veitt verðlaun
fyrir lObeztu verkin á 4. alþjóð-
legu Biennal-grafiksýningunni i
Frechen. Meðal verðlaunahafa
var einn islenzkur listamaður,
Ragnheiður Jónsdóttir og hlaut
hún 6. verðiaun sem voru 500
þýzk mörk fyrir verk sin á sýn-
ingunni.
Alls voru lögð 740 grafikverk
fyrir dómnefndina, en eins og
fyrr sagði voru ekki veitt verð-
laun nema fyrir 10 þeirra.
Þeir sem hlutu verðlaunin
eru:
1. Kunihiró Amano, Japan.
2. Miroslav Sutej, Júgóslavia
3. Peter Redeker, Þýzkalandi.
4. Tetsuya Noda, Japan
5. Oldrich Kulhanek, Tékkó-
slóvakiu.
6. Ragnheiður Jónsdóttir, Is-
landi.
7. Ove Stokstad, Noregi.
8. Andras Mengyan, Ungverja-
landi
9. Maurice Pasternak, Belgiu
10. Haage Sixten. Sviþjóð.
Þá fengu lOlistamenn minnis-
Aðeins ein umferð eftir
á IBM skákmótinu
Nú er aðeins einni
umferð eftir ólokið á
IBM skákmótinu i
Amsterdam, en
nokkrar biðskákir eru
þó eftir.
t efsta sæti, fyrir siðustu um-
ferðina, er Kortsnoj með 9
vinninga. 1 2.-3. sæti eru þeir
Miles og Sax með 8 1/2 vinning.
Guðmundur Sigurjónsson er i 10
sæti með 6 1/2 vinning og bið-
skák, en Friðrik ólafsson er i
11.-13. sæti ásamt Ivkov og Ree
með 6 1/22 vinning.
1 fjórtándu umferð tapaði
Friðrik fýrir Velimirovic, eftir
að hafa att unnið tafl. Lékhann
siðan gróflega af sér og tapaði
skákinni eftir 44 leiki. Skák
þeirra Guðmundar og Szabo i
14.umferð fórtvivegis i bið. t 13.
umferð gerðu þeir Friðrik og
Ivkon jafntefli eftir aðeins 23
leiki og Guðmundur gerði jafn-
telfi við Donner i 34 leikjum.
Nú er Ijóst að aðeins Miles og
Sax geta ógnað sigri Kotsnoj á
mótinu.
AJ i2j 3 4 5 (d 1 % °i lo u \2 13 14 ys \^3 V16U- lHOJug RöÐ
I.tet J2 % / !L h & A 0 L A / ö Vt
S.V/ve/íGO ± / l£ W £ /k A. d A A 0 Zz Zz
3.C0ÐMUkiDue A e ik & fí A JL '4 0 'k Zzl 7 ¥ A
4. LAklGcEMJeG JL jf % / A Él \0 / A o o 0
5. ku miucA A !h L % \É_ A 'A. A 4 A Zz / O 'h
í>.F£\У\K ‘Jl m. Zi 0 'án / Zi O 1 h A O £ l
V.G,IPSLIS A % % £ >/i uw /M Z& Z& >/* ZL % A Zz
S.IVKOv/ A 0 Zi >£ 'k '/* A / /z A Zz A
^.YEUMIMEEDVIC jL z Zt /* !6l / / ! 0 O X 1 Q 0
10. SAY Zi / / >á Zz ¥ 0 / /l lk 0 ]
11. DOWKJLR. a H 0 0 £ A / 0 0 [/ 0 0
Ií.SIABO 'A D # Ihá A A 'á / Zz X. 0 / <A m
13. IIGTEEIWK \o £ i W b !k Ú w 0 I 0 0 0
14. bÖPKA jL A l 0 / £ I 0 n X \£L 1 0
15. M\LES & Vh 1 / >/, % L ÍL K A ¥ 1 Z.i
Ib.koCTSttOA 1L 'K s ■i 1<k 0 b Ll s \L Sl / vm