Alþýðublaðið - 24.07.1976, Page 6

Alþýðublaðið - 24.07.1976, Page 6
6 Laugardagur 24. júlí 197«. KX" Islenskuþættir Albýðublaðsins eftir Guðna Kolbeinsson Undanfarið hef ég eytt miklum tima i orðið atferli. Ætla ég ekki að fara að fjölyrða um það nú en vil spyrja þá, sem mest dálæti hafa á orði þessu, hvort ekki komi til álita að nota i stað þess orðið atferði, sem Simon J. Ágústsson endurvakti i Sálarfræði sinni. Það er dálitið vandamál þeg- ar þeir sem skrifa þættinum geta ekki heimilda sinna: en ef marka má orð eins kennarans, sem skrifaði mér, tala sálfræð- ingar m.a. um foreldramynd- andi atferll Ég verð að játa að ég skil þetta ekki, en ef þessi orð merkja það sem ég held að þau merki þá er auðvelt að finna mun hispurslausara, skiljan- legra og islenskara orðfæri. Sami kennari kvaðst hafa heyrt það i fyrirlestri hjá sál- fræðingi einum að þegar börnin misskildu eitthvað i kennslunni yrðiað aflæraþau og jafnvel af- nema. Heldur finnast mér slikar að- gerðir óvægilegar og enda þótt ljótt sé ef kennarar fara með ósannindi vona ég að þessu sé skrökvað upp á sálfræðinga. Annar kennari ræðir um ýmis nýyrði sem hann er óánægður með og nefnir m.a. atferliseðli móðurmálsins. Kveðst hann ekki skilja fyrrnefnda orðið og raunar geri ég það ekki heldur. En ég giska á að það lúti að eðli hins lifandi máls og þvi hvernig málið er notað. Þessikennarikýs aðnefnasig gamlan barnakennara og hefur áður verið vitnað til hans i þess- um þáttum. Þótt mér finnist gæta fullmikillar ihaldssemi i bréfi hans finnst mér margt af þvi sem hann segir réttmætt. — Ætia ég nú að leyfa hlustendum að heyra álit þessa gamla barnakennara. Hann segir m.a.: „Marklýsingar móðurmálsins heitir bæklingur, ætlaður kenn- urum til skilningsauka. Þegar ég sá fyrst orðið marklýsing, datt mér i hug markabókin og visan, sem eignuð er kölska: „Minu lýsi ég marki hér” o.s.frv. Erindisbréf, sem kennarar fá frá hinum ýmsu stofriunum, ráðum og nefndum mora af furðulegum orðum og oröasam- böndum. Það einkenmr þau, hvað þau eru langsótt og tor- skilin, likt og það mundi vefjast fyrir markglöggum manni i réttinni að átta sig á eyrna- markinu „þririfaðog þristýft og þrettán rifur ofan i hvatt. Varla teljast með nýyrðum þau óralöngu tiskuorð sem eru að útrýma stuttum og snjöllum orðum: Hegðunarvandamál er til- gerðarlegt orð. Mér dettur ósjálfrátt eitthvað slæmt i hug, þegar ég heyri það. óþægö þykir liklega minni hæverska. En það er misskilningur. Betur kynni ég við að láta bók heita óþæg börn en Atferliseðli hegð- unarvandkvæða barna. (Raun- ar veitégekki til að von sé á bók með þvi nafni en hvað getur ekki komið fyrir þegar stööugt er verið að gera einfalda hluti flókna?) Athvörfheita sæluhús eða dagheimili þar sem börn geta dvalið utan skólati'ma, ef þeim hentar. Er þessi fleirtala til? Vangefinner vingjarnlegt orð og getur átt jafnt við ágalla h"k- ama og sálar. Þroskahefur og fjölfatlaður eruóþjál orð, likt og þau væru smiðuð i vél. Þroska- þjálfari er heldur ekki nógu gott.” Við þessa upptalningu kenn- arans má bæta þvi að kennari sem kennir i athvarfi er kallað- ur athvarfsiðjukennari. Heldur finnst mér það þungtáYnalegt starfsheiti. En orðið hegðunarvandamál hefur mun viðtækari merkingu en orðið óþægð, þannig að gagn- rýni gamla barnakennarans á þvi orði er ekki á rökum reist. Ekki er vafamál að mjög eru skiptar skoðanir um þessi efni. Fy ndist mér álitleg hugmynd að menntamálaráðuneytið gengist i'yrir ráðstefnu um málfar opin- berra erindisbréfa og bæklinga varðandi uppeldis- og skólamál. Tel ég að haldnar hafi verið ráð- stefnur um ómerkari mál. Og slik ráðstefna gæti orðið gagn- leg: einkum ef tryggt yrði að ekki kæmu einungis fram sjónarmið þeirra sem skrifa um þessi efni, heldur einnig sjónar- mið hinna sem verða að lesa þessi skrif. Atferli-atferði Sumarhótel Ólafsfirði r--- ‘ ^ Ferðamannaþjónusta allt sumarið £ Gisting 1, 2ja og 3ja manna herbergi 0 Matur, kaffi, smurt brauð og fleira V___________________________________) Verið velkomin Sumarhótelið Ólafsfirði Símar 96-62315 og 96-62384 - Ólafsfirði C5 Unglingahátíö að úlfIjótsvatni um verslúnarmannahelgi Paradís Cabarett Experiment Galdrakarlar Randver Þokkabót Gísli Rúnar & Baldur varðeidar MÓT FYRIR ALLA UNGLINGA Halli&Laddi Loftbelgsferðir HOLBERC MÁSSON Heiðursgestur Bátaieiga ÍÞróttír Tívoli Gönguferðir Ritstjórn Alþýðublaðsins er í I Síðumula 11 - Sími 81866 RÍKISSPÍTALARNIR lausar stöður LANDSPÍTALINN M) STOÐ ARLÆKNAR. Tveir að stoðalæknar óskast til starfa á Barnaspitala Hringsins frá 1. september n.k. i sex mánuði hvor. AÐSTOÐARLÆKNIR óskast til starfa á rannsóknarstofu spitalans i blóðmeinafræði frá 1. september n.k. i eitt ár. AÐSTOÐARLÆKNIR óskast til starfa á lyflækningadeild spitalans frá 1. september n.k. i eitt ár. Nánari upplýsingar veita yfirlæknir við komandi deilda. Umsóknir er greini aldur námsferil og fyrri störf ber að senda Skrifstofu rikis- spitalana fyrir 20. ágúst n.k. KLEPPSSPÍTALINN AÐSTOÐARLÆKNAR. Tveir að- stoðarlæknar óskast til starfa á spitalanum frá 1. september n.k. Umsóknir, er greini aldur menntun og fyrri störf ber að senda Skrifstofu rikisspitalanna fyrir 20. ágúst n.k. BÓKASAFNSVÖRÐUR óskast til starfa við bókasöfn á spitalanum frá 1. september n.k. Nánari upplýsing- ar veitir yfirlænir. LÆKNARITARI óskast til starfa nú þegar eða eftir samkomulagi. Upp- lýsingar veitir yfirlæknir, eða læknafulltrúi. Reykjavik, 23. júli, 1976. SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA EIRÍKSGÖTU 5, SÍM111765

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.