Alþýðublaðið - 10.09.1976, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 10.09.1976, Blaðsíða 13
feíaSð^ JFöstudagur 10. september 1976. ,...TIL KVÖLDS 13. FlokhsstarfiA--------------------------------------- Frá FUJ í Reykjavík Aöalfundur félagsins verður haldinn mánudaginn 20. sept. n.k. í Ingólfskaffi uppi. Hefst fundurinn stundvfslega kl. 20.30. Dagskrá fundarins verður sem hér segir: 1. Formaður gefur skýrslu um störf félagsins á liðnu starfsári. 2 Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga. 3. Lagabreytingar. 4. Kosning stjórnar og varastjórnar. 5. Kosnir verða tveir endurskoðendur og einn til vara. 6. önnur mál. Félagar eru hvattir til að mæta vel og stundvlslega. Guðmundur Bjarnason formaöur Styrktarmannafélagið — Ás — Skrifstofa félagsins Hverfisgötu 8-10 veröur lokuð frá 15/8 — 13/9 Alþýðuflokksfólk Norðurlandskjördæmi eystra. Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðuflokksins i Norðurlandskjör- dæmi eystra verður haidinn að Strandgötu 9 á Akureyri nk. laugardag 11. september og hefst ki. 13.30. Gestir fundarins verða Benedikt Gröndal, formaður Alþýðuflokksins,og Finnur Torfi Stefánsson, lögmaður. f.h. stjórnar kjördæmisráðs Hreinn Pálsson, formaður. Frá F.U.J. i Reykjavik: Aðalfundur félagsinsverður haldinn 20. sept næstkomandi. Dag- skrá verður auglýst slðar. „ . . _. J Guðmundur Bjarnason formaöur Alþýðuflokksfólk Norðurlandskjördæmi vestra. Aöalfundur Kjördæmaráðs AÍþýðuflokksins verður haldinn á Siglufirði n.k. sunnudag, 12. sept. og hefst kl. 13.30. Gestir fundarins verða Benedikt Gröndal, formaður Alþýðu- flokksins, og Finnur Torfi Stefánsson, lögmaður. Allt Alþýöuflokksfólk velkomið. Stjórnin. 37. þing Alþýðuf lokksins verður haldið dagana 22. til 24. október n.k. aö Hótel Loftleiðum. Dagskrá þingsins verður nánar auglýst slðar. Benedikt Gröndai formaður Björn Jónsson, ritari FUJ i Reykjavik. Tillögur um framboö I stjórn FUJ I Reykjavlk, svo og um framboð á SUJ þing skulu hafa borizt fyrir 20. sept. n.k. á skrifstofu félagsins. Uppstillingarnefnd. Alþýðuflokksfólk Suðurlandi Aðalfundur kjördæmisráös Alþýðuflokksins I Suðurlandskjör- dæmi verður haldinn I Vestmannaeyjum 18. og 19. september og hefst fundurinn kl.20.00 á laugardaginn. Gestir fundarins verða þeir Benedikt Gröndal, formaður Al- þýðuflokksins og Arni Gunnarsson, ritstjóri. f.h. stjórnar Kjördæmisráðs Þorbjörn Pálsson. Kvenfélag Alþýðuflokksins heldur félagsfund n.k. þriðjudag 14. september kl. 20.30 i Iðnó uppi. Fundarefni: 1. Vetrarstarfið. 2. Kosning fulltrúa á 37. þing Alþýöuflokksins og á kjördæma- þing fulltrúaráðs Alþýðuflokksfélaganna I ReykjavlR. 3. Benedikt Gröndal, formaður Alþýðuflokksins, ræðir stjórn- málaviðhorfið. 4. önnur mál. Félagar, fjölmennum stundvlslega. Stjórnin Telst rokk til tónlistar? Guðrún Halldórsdóttir „Ég hef nú svo litiö vit á tónlist, en samt finnst mér það rétt á takmörkunum. Ég býst við að flest eldra fólk sé sömu skoðunar". Edda Hrönn Steingrfmsdóttir, nemi. „Ég held það — já. Einnar tegundar tónlistar að minnsta kosti”. Merkið hjólreiðabrautir með gulum Zebraröndum RJ hefur ritað Horninu eftirfarandi bréf: ,,Af hverju eru hjólreiðar ekki i útbreiddari ferðamáti á tslandi en raun ber vitni? Sumir svara þvl til að veðráttan ofbjóði þeim sem feröast á þennan ódýra en heilsusamlega máta. En eftir að hafa verið I Danmörku og I Norður-Þýzkalandi að vetrar- lagi, þar sem kemur fyrir að rignir dugiega held ég að sú skýring sé að mestu fyrirslátt- ur. Að einhverju leyti má segja aö veðrið dragi úr þeim mönn- um kjark.sem vilja leggja biln- um og nota hjartadæluna, en ég óttast að það sé hin þunga, grimma og miskunnarlausa umferð, sem hér rikir orðið I borginni, sem fælir flesta frá þvi að reyna að kaupa og nota reið- hjól. Þar fer llka saman, að auk þess sem æðislegur kappakstur á sér hér stað á öllum götum, breiðgötum sem þrengstu stig- um, þá hafa skipulagsyfirvöld borgarinnar aldrei viðurkennt reiðhjólið sem farartæki. Mannvirkjagerð öll i gatnakerfi borgarinnar miðast við það að koma bilum út á götuna, ekki endilega greitt á leiðarenda, þvi frumskógur umferðarljósa- staura, sem alls staðar hafa ris- ið, sér fyrir þvl að bllar eru lengi að ferðast um. Misræmið 1 ljósunum veldur svo þvl, að það er ekið I spretti milli ljósa, en þar safnast bíla- flotinn saman eins og inniluktar l kindur i klettaskúta. 1 þessum gengdarlausa æðisakstri vil ég ekkiveravegfarandiá reiðhjóli. Ég hef séð hversu réttur hjól- reiðarmannsins er einskis virt- ur. Þvl vil ég nú gera að tillögu . minni, sem ég þykist reyndar fyrirfram viss um að verði ekki hlustað á, að Umferðarráð geri hið fyrsta tillögur til borgar- verkfræðings um skipulag þessa: a) hvernig bezt verði séð fyrir öruggum ferðamáta hjólreiða- fólks miðað við gatnakerfi borgarinnar eins og það er I dag, — og b) hvernigtekið verði iframtíö- inni tillit til við alla gatnagerð og umferðarskipulagningu hjólreiða sem ferðamáta. Það mætti til dæmis styöjast við hugmynd, sem reynd hefur verið i Árósum i Danmörku, þar sem merktar eru gular zebra- leiðir á þeim stöðum sem hjól- reiðamenn eiga forgang, likt og hvitar zebrabrautir eru fyrir gangandi vegfarendur. Þetta á fyrst og fremst við um flóknari gatnamót, en mætti llka hafa víða þar sem tryggja þarf hjól- reiðamönnum forgang, svo þeir geti treyst þvi að bilstjórar neyti ekki stærðarmunar öku- tæjanna. Einnig mætti setja sérstakar reiðhjólabrautir með- fram helztu hraðbrautum og merkja svo með gulum röndum hvar fara skuli yfir götur. Hérlendis eru engir hags- munahópar hjólreiðafólks, sem berst fyrir slikum málum, og þess vegna verða umferðaryfir- völd og Umferðarráð að hafa hér frumkvæðið. Það verður að sporna við ofurveldi bilsins, okkar vegna og barnanna. Með kærri þökk fyrir birtinguna, RJ” „Lóan í flokkum flýgur” Nú fara farfuglarnir að yfirgefa okkur á leið sinni til suðrænna landa. Þúsundir fugla leggja leið sina þangað, en hvað geta þessir flokkar orðið stórir? Stærsti fuglaflokkur, sem sézt hefur nokkru sinni var dúfnaflokkur, sem var af kyni flökku- dúfna i Bandarikjunum um aldamótin 1800. Flökkudúfunum hefur nú verið útrýmt með öllu. Flokkarnir voru svo stórir, að það tók slikan flokk 14 klst. að fljúga yfir ákveðinn stað. Fuglarnir flugu svo þétt, að skotmaður gat skotið 50-60 dúfur i hverju skoti. Menn gera ráð fyrir, að allt að 3 milljarðar dúfna hafi verið i hverjum flokki. V

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.