Alþýðublaðið - 11.09.1976, Page 1

Alþýðublaðið - 11.09.1976, Page 1
LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER I BLAÐINU I DAG i’jqÉi'/iVídi Alyktanír miðstjórnar ASÍ A vettvangi blaðsins i dag birtum við ályktanir sem samþykktar voru á fundi miðstjórnar ASt, sem haldin var i gær. Alyktanirnar voru allar samþykktar samhljóða. Bls.5 ni Hvað gerðist og hvers vegna I blaðinu i dag er löng og itarleg frasögn sem lýsir aðdraganda að valdatöku hers- ins i Chile, valdatökunni sjálfri og sagt er frá skýrslu, sem rannsóknarnefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna skilaði um valdatökuna og þær hörmungar sem hún leiddi yfir þjóðina. Sjábls.8og9 íoT .0' Litið inn hjá B.U.R. ,,Það skiptir bara engu máli hvað maöur vinnur mikið og hvað við fáum mikla pen- inga. Þetta eru að verða verðlausir pappirar. Það lifir enginn á þessu.” Þannig fórust einum starfsmanni Bæjarútgerðar Reykjavikur orð, er blaðamenn Alþýðublaðsins litu þar inn i gær. Sjá frásögn Bls. 2 l[ Merktar hjólreiðabrautir Tillitsleysi bilstjóra i garð hjólreiða- manna virðist þvi miður allt of algengt. Þvi er það mjög brýnt að borgaryfirvöld geri eitthvað til að tryggja öryggi þeirra sem ferðast um á reiðhjólum. Bls. 13 Alþýðubandalagið í hnignun Alþýðubandalagið er nú að missa reynda foringja, en nýir koma ekki i staðinn. Hugmyndagrundvöllur bandalagsins er margklofinn og sundrung i hópi þing- manna og liösmanna. Þess vegna er ==C3C 'i- ! Alþýðubandalagið i hnignun. Bls.2 i'L.-'L- JL rzz:•Vogcn C-j cz3«r~ Áskriftar- síminn er 14-900 NEFNDIR FJALLfl UM ENDURSKIPULAGNINGU LÍFEYRISSJÓÐAKERFISINS Nú starfa tvær nefndir að tillögugerð um endur- skipurlagningu lífeyris- sjóðakerf isins. I sam- komulagi aðila vinnu- markaðarins frá 28. febrú- ars.l. um málefni lifeyris- sjóðanna, var gert ráð fyr- ir að ríkisstjórnin skipaði nefnd til að semja tillögur um þetta mál og skyldu þær skila áliti fyrir lok september. Jón Sigurðsson þjóð- hagsstjóri er formaður sjö manna nefndar sem skipuð er fulltrúum Alþýðusam- bandsins og vinnuveitenda. Hann sagði i samtali við Al- þýðublaðið, að rikisstjórnin hefði skipað i nefndina i lok júli. Auk þess hefði verið skipuð stór nefnd, nokkurs konar stéttaþing, sem i ættu sæti 17 menn og formaður hennar væri dr. Jóhannes Nordal seðlabankastjóri. 1 þeirri nefnd eiga m.a. sæti fulltrúar BSRB og Bandalags háskólamanna. Það kom fram i samtalinu við Jón, að hans nefnd er búin aö koma tvisvar saman á fundi. Hér er um m jög viðamikið verkefni að ræða, eða að samræma störf yfir 100 lifeyrissjóða, sem hafa mis- munandi reglur, og almanna- tryggingakerfisins. Eiga nefnd- irnar að gera tillögur um samfellt lifeyriskerfi allra landsmanna og Nú er unnið að þvi að allir landsmenn verði 1 einum og sama lifeyr- issjóðnum og kjör eldri borgaranna verði jöfnuð. stefnt að þvi, að þetta nýja kerfi taki gildi i ársbyrjun 1978. Fram að þeim tima gildir bráðabirgða- úrlausn um að allir skuli vera i einhverjum lifeyrissjóði, en sam- ræmi er ekki á starfi þeirra allra. Nægir að benda á að sumir eru verðtryggðir en aðrir ekki og sagði Jón að ný og betri tilhögun væri sanngirnis- og réttlætismál. Ekki eru likur á að tillögugerö verði lokið fyrir lok mánaöarins eins og upphaflega var gert ráð fyrir. Bæði er hér um mikið verk að ræða og stutt síðan skipaö var i nefndirnar. Nefnd seölabanka- stjóra mun ekki enn hafa komið saman á fund, en fundir munu væntanlega hefjast bráðlega. — SG Lífeyrissjóðirnir hafa þegar keypt skuldabréf fyrir 700 milljónir Þann 1. júlí voru lífeyris- sjóðir stéttarf élaganna búnír að kaupa verðtryggð skuldabréf af Byggingar- sjóði fyrir 570 milljónir króna. Svarar sú upphæð til 10% af ráðstöfunarfé sjóðanna fram til þess tíma. Þá hafa lífeyrissjóð- irnir einnig keypt skulda- bréf af Framkvæmkasjóði fyrir 135mi 11jónír og nema skuldabréf akaupin því samtals 705 milljónum króna. í tengslum við kjarasamning- ana 1974 gaf rikisstjórnin út yfir- lýsingu þess efnis aö hún myndi beita sér fyrir þvi, að á árunum 1976-1980 verði áframhald á bygg- ingu ibúða fyrir efnalitið fólk. Lif- eyrissjóðir stéttarfélaganna eiga að fjármagna þessar fram- kvæmdir með skuldabréfakaup- um sem nemur 20% af ráð- stöfunarfé þeirra. Talið er, að þetta ráðstöfunarfé hinna 60 sjóða muni nema i ár 5.921 millj. og skuldabréfakaupin þvi verða um 1.184 ijiilljónir. 1 samtali við Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóra Sambands almennra lifeyrissjóða kom fram, að fram til 26. águst höfðu sjóðir innan sambandsins keypt verðtryggð skuldabréf af Bygg- ingasjóði og Framkvæmdasjóði fyrir 15,26% af ráðstöfunarfé sinu. Það eru fyrst og fremst opinberu sjóðirnir sem kaupa bréf Framkvæmdasjóðs. Hrafn sagði, aö visitala bygg- ingarkostnaðar væri mæld fjórum sinnum á ári, þ.e, 1. janú- ar, 1. april, 1. júli og 1. október. Skuldabréfin eru venjulega keypt rétt fyrir þessar dagsetningar og bjóst hann við verulegum kaup- um i þessum mánuði. Taldi Hrafn engan vafa á, að lifeyrissjóðirnir stæðu við sinar skuldbindingar fullkomleg i þessum efnum— SG. Yfirheyrslur tékkamálinu Frumyfirheyrslur eru i þann veginn að hefjast i ávlsanamálinu. Undirbúningur að þeim hefur stað- ið alla vikuna og verður nú farið að kalla menn fyrir. Auk reikningshafanna 15 þarf ef- laust að ná tali af mönnum, sem staðið hafa að baki nokkurra þeirra og séð um öll ávisanaviöskipti þótt þeir væru ekki skráöir fyrir hefti sjálfir. Að sögn Hranfs Bragasonar um- boðsdómara eru ekki frekari fréttir af þessu máli að sinni. — SG tjórn Sföumúla II - Sfml 81)

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.