Alþýðublaðið - 16.09.1976, Page 16
Rætt við nokkra hafnarverkamenn:
FIMMTUDAGUR
16. SEPTEMBER 1976
Önrggisbúnaður við uppskipun
er ófullnægjandi við Rvíkurhöfn
Alþýðublaðið ræddi
við nokkra hafna-
verkamenn i gær, þar
sem þeir voru að vinna
við uppskipun úr einum
„Fossanna”. Ragnar
Jónasson sagði að
vinna væri stöðug og
oft væri unnið til kl. 7
Hann sagði að
launakjör þeirra væru
allmiklu betri en hjá
iðnverkafólki og vinnu-
aðstaða væri nokkuð
góð.
Ragnar sagði að
mjög mikill munur
væri á þessari vinnu nú
og þvi sem þekktist i
uppskipun fyrir svona
tiu-fimmtán árum.
Tæjabúnaður væri
allur miklu meiri,
vörumar væru fluttar á
flekum og svo væri
öryggisbúnaður er ekki nægi-
lega góður, sagöi Sveinn.
farið að flytja komvöru
ósekkjaða.
Sveinn Kristjánsson sagði að
öryggisútbúnaður væri ekki
nægilega góður og alltaf væri
hætta á að óhapp henti. Sem
betur fer hefði þó ekkert meiri-
háttar slys orðið á lengri tima.
Einar Einarsson sagðist vera
búinn að vinna þarna lengi.
Hann sagðist ekkert vilja ræða
Kristján stjórnaði umferðinni af
lestarlúgunni.
við fjölmiðla. Það væri næg
vinna og hann hefði yfir engu
sérstöku að kvarta.
Uppi á lestarlúgunni stóð
maður, sem Kristján heitir, og
stjórnaði hann athöfnum þess
manns sem stjórnaði kran
anum. Kristján sagði að örygg-
isaðstaða væri slæm og reynd-
ar alveg óforsvaranleg. Það
mátti lika vel sjá, að ekki
hefði mikið mátt út af bera til
þess að óhapp hlytist af. ,,En
það er reynt að fylgjast með
þessu eftir þvi sem hægt er.”
Það virðist ljóst af viðtölum
við ýmsa menn sem vinna við
uppskipun að slysin henda ekki
aðallega fyrir trassaskap eða
athugunarleysi. Þau koma bara
allt I einu, eitthvað brestur eða
„Auðvitað er öryggisbúnaður i fullkomnu lagi,” sagði verkstjórinn.
bilar og þá getur tilviljun ein
ráðið hvort af hlýzt stórslys eða
hvort menn sleppa með
„skrekkinn”.
Að lokum sneri blaðamaður
sér að verkstjóra, sem þarna
var og spurði hann hvort hann
teldi öryggisútbúnaðinn við-
unandi. „Heldurðu að við séum
með eitthvað rusl hérna?
Auðvitað er öryggisútbúnaður i
fullkomnu lagi.”
Blaðamaður gerði nokkra
tilraun til að ræða þetta mál við
verkstjórann, sem vék sér
undan i fússi og sagðist ekkert
háfa við blaðamenn að ræða um
þessi mál. Þegar hann var
spurðurum þaðhvorthann teldi
öryggismál á vinnustað ekki
mikilvægt mál til að ræða, sagði
hann aðeins, að hann hefði
ekkertfrekar um það að segja,
allur öryggisútbúnaður við
uppskipun væri hinn full-
komnasti.
Það er þvi greinilegt að ekki
eru allir sammála um öryggi á
þessum vinnustað, þ.e.
Reykjavikurhöfn. Staðreyndin
er sú, að oft kemur það fyrir
að hluti af vöru, kassar,
dunkar, pokar eða eitthvað þess
háttar dettur úr stroffunni og þá
ræður oft tilviljun ein hvort ein-
hverjir verða fyrir eða ekki.
Það er ekki nokkur vafi á þvi,
að hérer um að ræða vandamál,
sem nauðsynlegt er að endur-
skoða rækilega þannig að
tryggilega verði gengið frá
öryggisbúnaði við afgreiöslu
skipanna.
Ragnar sagði að breytingarnar
hefðu oröið miklar sfðustu árin.
HERT EFTIRLIT
MEÐ NOTKUN
FÍKNILYFJA
- rætt við Almar Grímsson
deildarstjóra
Talsvert hefur borið á
þvi undanfarið, að hafa
þurfi afskipti af fólki
vegna ofnotkunar ails
konar lyfja. Við höfðum
samband við Almar
Grimsson deiidarstjóra
hjá Heilbrigðisráðu-
neytinu og inntum hann
eftir hvernig væri háttað
eftirliti með lyf jagjöfum
lækna.
Sagði Almar að
stöðugt eftirlit væri haft
með svokölluðum fikni-
lyfjum, og hefði það ver-
ið hert á seinni árum. Þá
væru einnig gerðar úr-
takskannanir, en þær
næðu ekki eingöngu til
þeirra lyfjategunda sem
flokka mætti undir fíkni-
lyf, heldur væru þær
gerðar með tilliti til
fleirit lyfjaflokka.
Einnig hefðu verið fram-
kvæmdar kannanir á notkun
ýmissa lyfja sem væru eftirlits-
skyld og væri þá átt við lyf sem
væru á alþjóðlegum eftirlitslista,
svo sem sterk verkjastillandi lyf
róandi lyf, svefclyf o.fl. þess
háttar.
Ef skyndikannanirnar leiddu i
ljós, að um hugsanlega mis-
notkun væri að ræða, þá væri um-
svifalaust haft samband við við-
komandi lækni.
Tvær meiri háttar
kannanir.
Ennfremur sagði Almar aö
tvær meiri háttar kannanir af
þessu tagi hefðu verið gerðar. Sú
fyrri var framkvæmd árið 1972,
en hin seinni 1974. Miðuðu báðar
kannanirnar að þvf, að athuga
hversumikiðværinotað af nokkr-
um lyfjaflokkum, svo sem róandi
lyfjum.fúkkalyfjum o.fl. Ikjölfar
fyrri könnunarinnar var siðan
komið á reglugerð, sem kvað á
um hert eftirlit með lyfjanotkun.
Könnunin sem framkvæmd var
árið 1974 leiddi svo i Ijós, hvað
fyrri aðgerðir hefðu haft að segja.
Sagði Almar að t.d. heföu menn
talið óæskilegt að nota svefnlyf,
sem nefnist Arbiturat, i miklum
mæli og hefði heildarnotkunin
verið minnkuð mjög á seinni ár-
um.
„Annars er erfitt að segja
nákvæmlega um heildarnotkun
lyfja hverju sinni, sagði Almar
enn frerriur. Það eru alltaf ein-
hverjir einstaklingar sem vilja
ofnota einhver lyf og fara þá ýms-
ar leiðir til að verða sér úti um
þau.
Samanburðarkönnun á
Nwðurlöndum.
Um magntölurnar gildir allt
öðru máli. Þær segja alltaf sitt.
Við erum t.d. í hærra lagi, hvað
magn snertir, miðað við Noreg og
Sviþjóð. Nú er einmitt verið að
gera samanburðarkönnun á not-
kun ýmissa geðlyfja og benda
fyrstu tölur til þess að við notum
meira af slikum lyfjum en Svíar
og Norðmenn. Danir eru hæstir
hvað þetta snertir.
Aðspurður um hvort eitthvað
hefði borið á þvi að læknar
skrifuðu meira út af deyfilyfjum
en góðu hófi gegndi, sagði Almar
að hann væri ekki tilbúinn til að
tjásigum þaðaðsvo komnumáli.
Aukþass væri ákaflega erfitt fyrir
læknana að hafa nákvæmt eftirlit
með því, hvað hver einstaklingur
gæti komiðhöndum yfir,ef viljinn
væri fyrir hendi.
„Það er alltaf til staöar viss
hópur af fólki, sern reynir visvit-
andi að verða sér út um óhóflegt
magn af ýmsum lyfjum, og þetta
fólk rambar á milli lækna og
reynir að fara allar leiðir til aö út-
vega sér lyfin, sagði Almar aö
lokum.
alþýöu
blaöió
Frétt: Að væntanleg sé frá
Rannsóknarráði rikisins
skyrsla um skipulag fjar-
könnunar á Islandi. Þar
mun vera lagt til, að mið-
stöð fjarkönnunar verði hjá
Landmælingum rikisins.
Heyrt: Að mikill áhugi sé
meðal almennings um
kaup á nýjum „Gullfossi”
til farþegaflutninga á milli
Islands og annarra landa. í
þvi' sambandi benda
margir á hve vel hefúr
gengið rekstur færeyska
skipsins Smyrils, sem flutt
hefur hundruð farþega og
bila til og frá íslandi. Þess
ber þó að gæta, að hann
siglir aðeins að sumrinu,
þegar fjöldi ferðamanna er
mestur. Margir hafa þó
bent á, að ekki væri úr vegi
að nota nýtt farþegaskip til
sólarsiglinga, á vetrum.
Heyrt: Að verði veðuí
sæmileg það sem ettir íuu
af þessum mánuði og i
næsta mánuði megi búast
við, að stærstu verk-
þáttunum við Sigöldu-
virkjun ljúki i lok ágúst-
mánaðar. Er nú beðið á-
kvörðunar um hvort hafizt
verður handa við virkjun í
Hrauneyjarfossi strax að
lokinni Sigölduvirkjun.
Séð: Að þessi Englendmg-
ur hefur krafizt þess að fá
viðurkennt heimsmet i
gangi á stultum. Hæðin á
stultunum er 6.7 metrar
(Sjá mynd)